Morgunblaðið - 16.08.1945, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 16.08.1945, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Fimtudagur 16. ágúst 1945. Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Óla. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Askriftargjald: kr. 8.00 á mánuði innanlands, kr. 10.00 utanlands. I lausasölu 50 aura eintakið, 60 aura með Lesbók. Síldarvertíðin FLESTIR MUNU TELJA fullvíst orðið, að síldarver- tíðin bregðist þetta ár. Aflinn er tæpl. Í/2 í hlutfalli við aflann á sama tíma í fyrra, og hófst þó aðalveiðin í seinna lagi þá. Margra ára reynsla hefir sannað, að aðalsíldveiðitíminn er 20. júlí til 20. ágúst. Frá þessu eru að sönnu undan- tekningar; en aðeins undantekningar. Fyrir 20. júlí er síld oftast gisin og mögur, eftir 20. ág. er tíðarfar venju- lega svo óstöðugt, að teljast verður tilviljun, ef langvar- . andi gæftir eru á þeim tíma. Hjer eftir er því ekki nema um það tvent að ræða: hvort vertíðin bregst alveg, eða aðeins að verulegu leyti. Sjálfsagt gera ekki allir sjer það ljóst, hvert feikna áfall þetta er fyrir þjóðarbúskapinn. En ljóst má þetta þó vera, ef menn athuga að s. 1. ár seldist sá hiuti síldaraíurðanna, sem út var fluttur, fyrir kr. 42 miljónir og 852 þúsundir. Og þegar það er einnig'athugað, að allar síldarafurðirnar eru seldar fyrir fram fyrir mjög hagstætt verð, verður tjónið ennþá augljósara og tilfinnanlegra. Það kostaði langvarandi strit að fá íslendinga til að viðurkenna, að síldveiðar væru heilbrigður atvinnurekst- ur. Heill flokkur í landinu linti ekki ópi gegn honum meira en tug ára. Taldi síldveiðarnar árás á landbúnað- inn, og síldarútvegsmennina glæframenn og braskara. Svo langt var gengið í áróðrinum gegn síldveiðunum, að krafa kom fram um að banna þær með öllu, en aðrir vildu. leyfa mjög takmarkaða veiði. Nú hafa „glæfra- mennirnir" hrimdið af sjer að mestu fordómunum og of- sóknunum, og eftir standa naktar staðreyndirnar: Að framleiðsla síldarafurða er næst mesta framleiðsla íslend- inga og gefur nú þegar ca. 50 miljónir kr. í þjóðarbiiið á ári. Og getur þó enn aukist stórlega eða jafnvel marg- faldast. Þó er líklegt, að Skotta sje ekki dauð með öllu, og að einhverjir gráti enn þurrum tárum þótt síldarver- tíðin bregðist. Hætt er við, að enn vefði dómur margra sá, eftir þetta sumar, að síldveiðarnar sjeu óviss atvinnurekstur. En það er nú svo, að í fáum framleiðslugreinum „taka menn hlut smn á þurru landi“. Hvernig er það með þorskveið- arnar? Hjer eru þorskveiðar árið um kring á sumum fiski- miðum. Á öðrum miðum er vertíð ekki nema 2—3 mánuði. En svo bregðast þessar vertíðir oft að meira eða minna leyti, stundum sjálf fiskigangan, stundum tíðarfarið — gæftirnar. — Og hvernig er það með heyskapinn? Stund- um bregst sprettan, og enn oftar nýtingin, vegna dutlunga tíðarfarsins. Þessar staðreyndir raska ekki mikilvægi atvinnuveg- anna. En þær ættu að opna augu Íslendinga fyrir nauð- syn þess, að þekkja þá náttúru, sem þeir sækja hin jarðnesku gæði til, og eiga jafnframt í höggi við. Hafrannsóknir. og fiskirannsóknir eru á bernskustigi hjá ísiendingum, þjóðinni, sem að langmestu leyti byggir lífsafkomu sína og framtíð á fiskveiðum. Við eigum þó allmarga vel hæfa menn til þessara rannsókna. En málið hefir ekki átt nægum vinsældum að fagna til þessa hjá Alþingi og ríkisstjómum. Einkennandi fyrir blindni ís- lendinga í þessum málum er það, að þegar fyrst kom fram tillaga á Alþingi um hafrannsóknir og fiskirannsóknir, hlaut flutningsmaður látlausar skammir á Alþingi fyrir tiltækið, og var tillagan tætt í sundur, þótt atkvæði eða einurð brysti til að fella hana. Og ekki var við það kom- andi að fiskifræðingar landsins (sem þá voru B. Sæm. og Á. Friðriksson) mættu þar nærri koma, svo sem ráð var fyrir gert í tillögunni, heldur skyldi „Rauðka“ leggja til vísindin. ÞcJr var samt búinn tækjum til rannsóknanna. En Framsókn sætti fyrsta færi, sem gafst, til að kasta öllu því dóti í land, og búa skipið til annara þarfa. Eú /hvað. sem fortíðinni líður, þá verða fiskveiðarnar, svo síldveiðar sem þorskvéiðar, að fá í framtíðinni öflugri stuðning yísindalegra rannsókna en hjer til hefir verið í tje látinn. F SJðNÁRHðLI SVEITAMANNS ÞEGAR ÞETTA er ritaS, stendur túnaslátturinn sem hæst. Það er verðmætasti tími bóndans og mesti annatími alls sveitafólks. Þurkdagarnir á túnaslættinum eru dýrustu dag ar ársins. Það væri alveg ómet- anlegt gagn fyrir bóndann að hafa þá sem mestan vinnukraft. Enn eru tengslin milli sveita og kaupstaða það góð (þrátt fyr ir allan Tímaróginn) að ætt- ingjar óg kunningjar ýmsra bænda láta þá njóta góðs af því, að kaupstaðarbúar fá frí sitt á mesta annatíma sveita- fólksins og rjetta því þá hjálp- arhönd við heyskapinn. ★ Samt, þarf þetta að verða í langtum stærri stíl en nú tíðk- ast. Það er tæpast von, að fólk, sem fær 10—15 daga frí frá sín um skyldustörfum allan ársins hring, fari að leggja nokkuð að ráði að sjer rjett á meðan. Þátt ur kaupstaðarfólks í heyskapn um verður að verða miklu rík- arif og hið opinbera þarf að stuðla að því með markvissum aðgerðum. Það þarf að setja lög um það, að þau störf, sem ekki standa í beinu sambandi við frumframleiðslu landsmanna og eru ekki nauðsynleg fyrir gang hennar, sjeu alls ekki rækt yf- ir hábjargræðistímann. Þá á að einbeita allri starfsgetu þjóð- arinnar að heyskapnum og síld- veiðinni og öðru því, sem nauð synlegt er að leysa af hendi á besta og bjartasta tíma ársins. ★ AUÐSJEÐ er að við þetta mundi vinnast tvennt: Undir- stöðuatvinnuvegir landsins yrðu tryggari og verksmiðju- fólk og iðnaðarmenn bæjanna yrðu hraustari við að reyna á sig við útistörf yfir sumarið, eft U. júlí ir kyrrseturnar inni allan vet- urinn. Jeg tel því miður ólík- legt, að hægt sje að koma þessu á nema fyrir atbeina löggjaf- ans. Meðan verksmiðjueigand- inn græðir, vill hann halda at- vinnurekstri sínum í gangi all- an ársins hring án tillits til þeirra þarfa, sem aðrar atvinnugreinar kunna að hafa fyrir vinnukraftinn. Jeg veit heldur ekki til, að nokkur hafi orðið við þeirri áskorun Tím- ans að gefa sig beinlínis fram í kaupavinnu í sumarfríinu, nema þá vegna vináttu eða vensla. Samt tók jeg undir þessa áskorun hjer í pistlum mínum á sínum tíma og lagði til að Framsóknarforkólfarnir gengu á undan og færu með „sitt fólk“ á vettvang. ★ . VIÐ ÞURFUM ekki að líta ■ ♦ langt til baka til að sjá að verka skipti milli sveita og sjávarsíðu var allmikil. FjTÍr nokkrum áratugum fjölmenntu sveita- menn í verstöðvarnar yfir vetr- arvertíðina. Aftur á móti reið fólkið úr þorpum og tómthús- plásum á suðurlandi í hópum norður í land í kaupavinnu og margt gamalt fólk hefi jeg þekt sem minntist þessara ferða með ánægju. Nú verða þessi verka skipti með nokkuð öðrum hætti. Sveitirnar myndu fá fólk sem lítt eða ekki væri vant lík amlegri vinnu, og margir halda að þeim yrði að því lítið gagn. Ekki tel jeg mikla hættu á því, enda hefi jeg nokkra reynslu fyrir því gagnstæða. Heyvinna með vjelum er yfirleitt ekki mikið erfiði. Til þess að hún gangi vel þarf lægni og lipurð engu síður en krafta. Og ef bændur landsins fylgjast að sínu leyti eins vel, með í tækn- inni eins og sjávarsíðan, hætta þeir hvað líður að biðja um góða sláttumenn eða roskar rakstrarkonur, heldur menn, sem kunna að fara með trak- tora og aðrar vinnuvjelar. Til þess ætti verksmiðjufólk úr kaupstöðum að vera jafnfært og aðrir. ★ _____________ VONANDI fer verkalýðurinn eða forystUmenn hans ekki að taka þessa skipun þannig að hjer sje um þvingun eða þræla lög að ræða, þótt' reglur um slíka verkaskiptingu væru sett ar. Þeir hljóta að sjá að þessi skipan yrði verkafólki til holl- ustu og hagræðis og atvinnuveg upum nauðsynleg. Nýlega var þess getið í útvarpfrjettum, að þúsundir verksmiðjufólks hefðu farið úr borgum Ráðstjórnar- ríkjanna út í sveitirnar til að hjálpa til við uppskeruna, enda Ijet Stalin bóndi vel af búskap sínum og var ekkert að berja sjer þótt herskarar Hitlers hljóti að hafa valdið honum mikilla búsifja. íslenskir verka menn virðast í mörgu vilja taka Rússa til fyrirmyndar, skipulag þeirra og stjórnarháttu og er vonandi að í þessu fyrrnefnda dæmi vilji þeir fúsir fylgja dæmi sinna gersku stjettar- bræðra, hvað sem Hermann úr Hafnarfirði, Iðju-Björn og aðr- ir slíkir kunna um það að segja. ★ JEG HELD að allir hljóti að sjá, að sú skipan á atvinnu- rekstrinum, sem hjer hefir ver ið drepið á, er alveg nauðsyn- leg. Hjer er svo margt, sem Framh. á bls. 8. Á INNLENDUM VETTVANGi I Morgunblaðinu fyrir 25 árunt FYRIR 25 árum var Skóla- varðan nokkurskonar útsýnis- turn Reykvíkinga. I blaðinu 1. ág. 1920 segir m. a.: „Svo sem sjeð verður á aug- lýsingu borgarstjóra annarsstað- ar í blaðinu, hefir sú nýbreytni verið tekin upp, að opna Skóla- vörðuna fyrir fólk, sem vill fá góða útsýn yfir borgina og ná- grehnið. Áður fyrr þótti það góð skemtun að njóta útsýnisins það- an á fögrum og björtum sumar- kvöldum og þykir oss líklegt, að margjr noti tækifærið til þess nú“. ★ EFTIR heimsstyrjöldina 1914 —’18 var mikið af rekduflum víðsvegar um höfin og við strend ur landa þeirra, sem að. þeim liggja. Var af þessu hin mesta hætta. Uln tundUrdufl við íslánd segir m. a. í Mbl. 11. ág. 1920: „Símfregn frá Seyðisfirði í morgun segir frá sögu eftir Fær- eyingum, sem komið hafa af fiskveiðum, að þeir hefðu sjeð einhverskonar hylki á floti í sjónum fyrir Norð-Austurlandi suður af Langanesimg torðið var- ír'.við 10 alls. Hugðu þeil- þetta vera sprengjudufl og styrktist skipsbómu, sem þeir hjeldu vera leifar af skútu, sem farist hefði. — Enn fylgir það sögunni, að einhverjir hefðu gerst svo djarf- ir að draga á land við Langanes eitt af duflum þessum, og annað hefði komið á land í Bjarnarey fyrir sunnan Vopnafjörð. Þá hefir einnig rekið á Séyðisfirði, fyrir utan Vestdalseyri einhvers- kpnar hylki, sem mönnum þyki grunsamlegt, en hvað þó vera miklu minna en menn hvggja venjuleg sprengidufl vera“. ★ I blaðinu 12. ágúst er rætt áfram um rekduflin. Þar segir: „Frá Skálum á Langanesi hef- ir einnig borist sú fregn, að fiski- skip hafi orðið vör við tundur- dufl á sveimi undan Langanesi. Hefir vitamálastjóri sent út til- kynningu og aðvarað sjómenn og aðra að koma við duflití, þó þau reki á land. Að tilhlutun landsstjórnarinn- ar fór varðskipið Beskytteren, sem er við strandgæslu fyrir Norðurlandi nú um síldveiðitím- ann, áleiðis frá Siglufirði í gær- morgun snerrtma. til þess að granda duflunúm. Hefir ekki frjgtst um för skipsins enn, en vonandi tékst að eyða þeim öll- „MANNASIÐIR" hjet. bók, sem þá var gefin út. Um hana segir 13. ág. 1920: „Það var þörf á slíkri bók, sem Jón Jakobsson landsbókavörður nú hefir gefið út. Ekkert til hjer á landinu um þetta efni, en hins- vegar ekki hægt að neita því, að mörgum er mjög ábótavant hvað hegðun og góða siði snertir. Er- . lendis eru slíkar bækur mikið keyptar, t. d. er „Takt og Tone“, eftir Emmu Cad, komin út í mörgum endurprentunum í Dán mörku á síðustu missirum. í fyrsta kafla bókarirtnar spyr hÖfundurinn: Hvað eru manna- siðir? Og hann svarar því þann- ig, að það sje það, sem hjá ment- : uðum þjóðum er skiJið kurteisi1 og háttprýði, vitaskuld méð ýms- um hættí hjá þjóðunum, en æf- inlega ýmislegt sameiginlegt hjá öllum prúðum mönnum meðal- allra þjóða. . ■— Er kurteisi og háttprýði • nauðsynleg? er næsta spurning- in, og svarið er þetta: Já, því að þær eru einkaskilyrði upptöku í samfjelag siðaðra manna og sam vistir með þeim. — Hver er líf- æð; kurteisinnar? Það er smekk- vísin, j-segir höf. Smekkvísin er móðir, allrar prúðmensku, allrar' hæverskú og háttprýði“. grunur þeirra við það, að þeir j um, því stórhætta ér siglingunum sáu á reki í sjónum lifrarföt og | þar nyrðra eins og nú er ástatt"

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.