Morgunblaðið - 16.08.1945, Síða 8

Morgunblaðið - 16.08.1945, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Fimtudagur 16. ágúst 1945. AF SJÖNAHHÖU SVEITAMAIVNS Framhald af 6. síðu. vínna þarf yfir sumarið, en of fáar hendur bjóðast til. Hins- V'égar er nú margt starfað, sem ígjarna mætti bíða til vetrarins jog hentugra væri fyrir þjóðar- jheildina. Þess er því að vænta, að forystumenn í okkar atvinnu 'málum — oddvitar verkamanna 'og atvinnurekenda — taki þetta 'mál til vinsamlegrar athugun- ar. j EF FÓLKIÐ i Kaupmanna- höin hrækti á götuna á her- 'fnámstímanum, kom þýskur fvarðmaður í ljós og sagði: — Á •hvern er verið að hrækja hjer? |I áttina til okkar — eða hvað? jÞegar stjórnarblöðin tala um |að koma þurfi betra skipulagi :á opinberan í-ekstur, gera starf rækslu ríkisins einfaldari og ódýrari, fækka bitlingum óg 'Oeggja niður lítt þörf embætti, þá æpir Tíminn upp með hræðslublandinni ákefð. Kom- múnistisk ógnaröld að hefjast, ofsókn skipulögð gegn Fram- sóknarmönnum! ★ ÞESSAR fátkendu upphróp- anir Tímadótsins, þegar rætt er um fækkun embætta og sparn- að í ríkisrekstri, sannar sekt þess betur en nokkuð annað. Við munum það frá valdatím- um Framsóknar gömlu, hvern ig allir starfsmenn, allt niður í dyraverði og þvottakonur, voru valdir eftir pólitískum lit ein- göngu. Og ekki nóg með það, ief færri komust að en flokks- hagsmunirnir leyfðu var emb- ættunum fjölgað, heilum stofn- unum komið á fót til þess að bitlingahjörðin hefði hús og hey. Tugum og hundruðum saman safnaðist Framsóknar- lýðurinn utan af landsbyggð- inni og allir fengu rúm við rík- isjötuna. Og af því að Tíminn veit, að þar var margur „óverð ugur upphafinn“, af því að hann veit skömmina upp á sig, reynir hann nú að leyna þess- um staðreyndum með fasistisk um móðursýkisupphrópunum um kommúnistiska ógnaröld. ★ ÞAÐ ER enginn hætta á að stjómin láti svo óvandaðan mál flutning a sig fá. Hún verður að ganga hreint að verki og sýna einurð og festu við það vandasama en miður vinsæla starf, að hreinsa til í mörgum ríkisstofnunum. Stjórnin má vita það, að hversu illa Sem Tíminn lætur, þá á hún vísan stuðning allra góðra manna við að framkvæma það, sem þiugið hefir nú þegar falið henni: fækkun opinberra embætta og alhliða sparnað í opinberum rekstri. Monlgomery marskálkur hyltur London í gærkveldi: M( )NTG( )M E Rt marskálk- ur var í dag gerður heiðurs- jborgari í Lambeth, fæðingar- borg sinni. Svo mikill mannfjöldi hylti Montgomery, er hann ók unx götur borgarinnar, að bifreið hans komst vart áfram fyrir þrönginni. I Lambeth Ilall ,tók Mont- gomery við heiðursskjalinu. Af svölurn hallarinnar ávarp- aði hann mikinn mannfjölda, sem safnast hafði saman. Mint ist Montgornery einkum kvenn anna, mæðranna, eiginkvenn- anna og verkakvennanna, sem borið hefðu þunga styrjaldar- innar með hetjulund. Reuter. Framh. af bls. 5. kau.pa mörinn fyrir kr. 12.70 pr. kg. til að býrja með, án þess að hann sje okkur nokkuð verð meiri en áður. Verðmunur á söluverði og innkaupsverði mörsins dregst þá frá þessum 5%, sem eftir voru. Virðist þá verða harla lítið .eftir til að standast venjulegan verslunar- kostnað. Auk þessa eru tíðar verð- breytingar til lækkunar, sem ætíð fylgja sumarslátrun, en sem við vitum ekki um fyrir- fram og eigum þá oft einhverj- ar fcirgðir, sem við verðum að bera verðfall á. — Japan Framh. af bls. 1. sennilega af. því, að jap- önsku hersveitirnar vita enn ekki um uppgjöfina. Flest útvarpstæki þeirra munu hafa týnst eða skemst á undanhaldi þeirra frá Pigufjöllum. Flugvjelar bandamanna hafa varpað flugmáðum yfir svæðin, þar sem Japanar berjast. Er á þá skráð fyrirskipun keis- arans um uppgjöf á öllum vígstöðvum. Bresku herirnir á þessum slóðum hafa enn ekki feaig- ið fyrirskipanir um að leggja niður vopnin, en hins vegar hefir verið lagt fyrir þá að skjóta ekki á Japana að fyrra bragði. Innrás stóð fyrir dyrum. Mountbatten lávarður hef ir látið svo um mælt, að inn- rás í Japan hefði alveg stað- ið fyrir dyrum, er Japanar gáfust upp. Segir lávarður- inn, að alt hafi verið tilbúið til innrásar, en sem betur fer hafi ekki til þess komið, að hana þyrfti að gera. — En þótt bardögum sje nú að mestu lokið, segir Mount- batten, þýðir það engan veg- inn, að hlutverki bresku herj anna sje lokið. Á valdi Jap- ana eru um 80.000 breskir stríðsfangar og þúsundir Indverja. Þessa menn þurfi að leysa úr haldi við allra fyrsta tækifæri og hlynna að þeim, svo sem kostur er á. Rauði krossinn hafi mik- inn viðbúnað og góð tæki til hverskyns hjúkrunarstarf- semi. ★ Heima fyrir er japönsku þjóðinni sagt, að hennar bíði mikið og erfitt hlut- verk, að endurreisa sæmd föðurlandsins. Ekki er á það minst, að Japanar þurfi að bæta hörmungar þær, sem þeir hafi leitt yfir aðrar þjóðir. Keisarinn hafi fall- ist á uppgjafarskilmálana, vegna þess að honum hafi verið ant um heimsfriðinn og heill og hamingju þjóðar sinnar. Þó er ekki fyrir það synjað, að atómsprengjan og þátttaka Rússa í styrjöld- . inni hafi gert Japönum erf- itt fyrir. !\öcjnuaíclvu' Sicjurjóniion : Píanótónleikar PÍANÓTÓNLEIKAR Rögn- valdar Sigurjónssonar.í Gamla Bíó í fyrrakvöld voru einhverj- ir þeir glæsilegustu, sem hjer hafa heyrst lengi. Eins og kunnugt er, hefir Rögnvaldur undanfarin ár stundað framhaldsnám í Amer- íku, eftir að hafa lokið námi við Tónlistarskólann hjer (þar sem Árni Kristjánsson var aðal kennari hans) og dvalið um eins árs skeið í Paris. Áður en Rögnvaldur kom hingað heim í sumar, hjelt hann tónleika í Washington, höfuðborg Bandaríkjanna, og hlaut hið mesta lof listdómara, svo að ungum „debutant“ get- ur varla betra hlotnast. Var viðurkenning þeirra svo óskor- uð, að ýmsum kanri að hafa dottið í hug, hvort ekki kynni að vera þar ofsagt, en að svo var ekki, sýndi Rögnvaldur með stórfenglegum tónleikum sínum hjer í fyrrakvöld. Tónleikarnir hófust með Toccötu og fúgu í d-moll eftir Bach-Tausig. Er þetta fræga orgelverk Bachs hjer fært í glæsilegan píanóbúning af ein- um merkasta nemanda Litszts, Carl Tausig. Rögnvaldur flutti þetta verk á þróttmikinn og myndugan hátt. Sónötur Scar- lattis voru einnig leiknar af ljettleik og mjög „píanistískt“. En þá komum við að aðalvið- fangsefni kvöldsins, sem var h-moll sónata Liszts. Er þetta eitt af allra þyngstu verkum, tæknilega sjeð, sem samin hafa verið fyrir slaghörpuna, og ekki á færi nema hinna allra snjöllustu píanóleikara að gera henni full skil, enda heyr- ist hún mjög sjaldan í tónleika sölum. Þetta verk hins mikla konungs slaghörpunnar gerir fyrst og fremst kröfur til tækn innar, og sýndi Rögnvaldur með óþvinguðum flutningi són- ötunnar, yfir hve geysimikilli og öruggri tækni hann býr, og að hún nægir honum til að verða píanóleikari í heims- formati. Þá hefir túlkun hans yfirleitt náð mjög miklum þroska og djúpum skilningi, enda leggur hann sig fram með Iífi og sál í list sinni. En ef til vill er honum eiginlegast að endurskapa nútímatónlist, eins og fram kom í flutningi hans- á verkum Prokofieff, sem var með ágætum. Efnisskránni lauk með Tocc- ötu Schumanns, snjöllu en geysi erfiðu verki. Var hjer sem fyr, að alt ljek í höndum þessa unga píanósnillings, Listamanninum var mjög fagnað af áheyrendum, sem voru ófúsir á að yfirgeía hann, og varð hann að leika tvö auka lög þeim til þægðar. — Fjöldi blóma barst og mátti á öllu sjá, að áheyrendur fögnuðu hjart- anlega beimkomu Rögnvaldar og glöddust yfir hinum mikla frama hans sem pianósniílings. P. I. Belgar krefjasl skaðabóla af Þjóð- verjum Brussel í gærkveldi. VAN ACKER, forsætisráð- herra Belgíu, sagði í tilkynn- ingu, sem hann gaf út í dag, að Belgar ætluðu sjer að krefjast af Þjóðverjum rjettlátra skaða- bóta fyrir það tjón, sem þeir hefðu valdið. Ennnfremur segir í tilkynn- ingunni, að Belgar muni taka þátt í hernámi Þýskalands. — Ennfremur, að Belgar muni krefjast þess að fá sinn skerf af hráefnum frá Þýskalandi. íbúar Tylffareyja heiðra Bretakonnug London í gærkvöldi. ÍBÚAR Tylftareyjar hafa á- kveðið að heiðra Georg Breta- konung í þakklætisskyni fyrir það, að Bretar leystu eyjarnar undan oki Þjóðverja. Verður reist líkneski af Bretakonungi og því valinn - staður við mynni hafnarinnar á Rhodes. Efflr Roberf Slorm OTOOLIE, VOU U5E0 TO RUN vvnil EARO eCN'JF'í OLD /409—WHERE CA'rJ WE FIND 'ötooue'’ kXAZZ !5 "INVITED" IN FOR A CHAT WITfcl AVI EA5TERN CITV'5 DETECTIVE9...... Co'pr. fíing J'ealurci SynJicate, ínc., World riyri.ts rcscTved. 1) Leýnilögreglumenn koma í „heimsókn“ til „Stoolie“ Krazz. Leynilögreglumaðurinn: — „Stoo- lie“, þú varst í kunningsskap við Eyrnalang Gonuf. Hvar getum við fundið hann? 2) Krazz: — Hvað viljið þið með hann? Fyrsti leynilögreglumaður: — Okkur langar til að fá okk- ur slag í bridge og vanta: fjórða mann. Haha. ■—• Annar leynilögreglumaður: Svor.a, leystu frá skjóðunni. Eða eigum við að txka þig aftur fyrir þjófnaðinn í vöruhúsinu. 3) Krazz: — Jæja, jæja, jeg hef ekki sjeð Eyrna- lang mánuðum saman, en hann á húskofa við Troll- eygötu. Leynilögreglumaður: -*- Jæja, þú ferð með okkur þangað og sýnir okkur húsið.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.