Morgunblaðið - 16.08.1945, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 16.08.1945, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Fimtudagur 16. ágúst 1945. eftir Jían/en/jftartt 40. dagur Eftirmáli. Blaðamennirnir voru ný- komnir um borð. Það voru nokkrir menn með skipinu, sem þeir þurftu að ná tali af: fræg- ur bridge-spilari, austurlensk- ur prins, bresk kvikmyndaleik- kona og Adam Belinski. Þeir reikuðu um þilfarið í hóp: fimm karlmenn og ein kona, og gáfu gætur að þeim, sem á vegi þeirra urðu. „•Þessi þama er áreiðanlega eitthvað“, sagði ungfrú Beebee alt í einu. Hin litu í áttina þangað sem hún benti. —* Hávaxin, ung kona stóð og hallaði sjer upp að borðstokknum. Rauður klút ur var bundinn um dökt hárið, og undir hendinni hjelt hún á litlum hvolpi. Hún svaraði for- vitnislegu augnaráði þeirra með algjörri ró. „Skyldi þetta vera kvik- myndastjarnan?“ sagði ungfrú Beebee. „Hún er of hávaxin“, ansaði einhver starfsbræðra hennar. „Auk þess er kvikmyndaleik- konan ljóshærð“. „En hún er samt eitthvað“, sagði ungfrú Beebee. Hún dró sig út úr hópnum og nálgaðist Cluny Belinski. (,Afsakið — eruð þjer ungfrú Deirdre Fost- er?“ spurði hún kurteislega. „Nei“, ansaði Cluny. „Jeg er frú Adam Belinski“. „Viljið þjer gjöra svo vel að fylgja mjer til manns yðar“, sagði ungfrú Beebee. „Jeg er hjer fyrir hönd ótal kvenna- blaða, sem blátt áfram brenna í skinninu eftir að fá viðtal við hann“. „Ö — eruð þjer fulltrúi blaða mannanna?“ spurði Cluny. Sannleikurinn var sá, að Bel- inski hafði sent hana upp á þilfar, til þess að ná í blaða- mennina um leið og þeir kæmu um borð — áður en kvikmynda stjarnan, bridge-spilarinn og prinsinn hefðu dregið að sjer alla athygli þeirra. En hug- niyndir sínar um bandaríska blaðamenn hafði Cluny ein- vörðungu úr kvikmyndum, og þess vegna hafði hún átt von á því, að hitta nokkra vel feita karla, tyggjandi vindla með hattinn aftur á hnakka. Ungfrú Beebee, sem virti Cluny fyrir sjer með miklum áhuga, kinkaði kolli. Frú Adam Belinski var vissulega merkileg persóna. Og þessi unga kona virtist hafa eitthvað það í fari sínu, sem myndi hafa gert hana eftirtektarverða, jafnvel þótt hún hefði ekki verið gift þeim fræga manni, Adam Belinski. „Hann er inni í veitingastof- unni“, hjelt Cluny áfram. „Hann segist altaf tala við blaðamenn í veitingastofum". „Það er mjög skynsamlegt af honum“, sagði ungfrú Beebee. Hún hikaði dálítið. Svo sneri hún sjer^að starfsbræðrum sín- um og sagði: „Strákar — hr. Belinski er inni í veitingasaln- um. Jeg ætla að tala hjerna nokkur orð við frú Belinski“. Þeir hikuðu andartak. Þeir báru mikla virðingu fyrir ung- frú Beebee, því að hún var talsvert nösk að ná í efni. En það, sem mestu máli skifti, var þó að ná tali af Adam Belinski, og þeir kinkuðu því kolli og hjeldu að stað til þess að leita hans. „Jeg ætla að fá að taka mynd af yður með litla hvolpinn þarna“, hjelt ungfrú Beebee á- fram, og sneri sjer aftur að Cluny. „Jeg geri ráð fyrir, að það sje fullsnemt að spyrja um álit yðar á bandarískum kon- um“. „Eru þær allar eins og þjer?“ spurði Cluny. „Hm — jeg lít nú vitanlega svo á sjálf, að jeg sje dálítið fyrir ofan meðallag. En annars getið þjer litið á mig sem gott dæmi um bandarísku konuna“, svaraði ungfrú Beebee. „Þá finst mjer þær vera vel klæddar og mjög vingjarnleg- ar“. „Já — þjer skulið bara halda áfram! Og svo verðið þjer að segja mjer eitthvað um yður sjálía. — Hvað hafið þjer verið giftar lengi?“ „Þrjár vikur“. „Þetta er þá brúðkaupsferð yðar?“ sagði ungfrú Beebee, og brosti. „Ættum við ekki að tylla«okkur einhversstaðar nið- ur, þar sem við getum talað saman í næði?“ Cluny var fús til þess. Hana langaði einmitt til þess að tala við einhvern — segja einhverj- um, hve dásamlegt það væri, að vera komin til Ameríku í fylgd með eiginmanni sínum. Og það var meira, sem hana langaði til þess að segja. Nú hafði hún loks fundið mann- eskju, sem var fús til þess að heyra eitthvað um Cluny Brown. — Henni var svo mik- ið í mun, að hún byrjaði þegar í stað. „Jeg hefi átt mjög skemtilega ævi“, sagði Clúny glaðlega. „Jeg var þjónustustúlka .. „Guð komi til!“ hrópaði ung- frú Beebee upp yfir sig. Þetta virtist koma henni mjög á óvart. .,En jeg var fremur Ijeleg þjónustustúlka“, bætti Cluny við, „því að jeg gerði mjer ekki ljósa grein fyrir því, hvað til- hlýðilegt væri að stúlka í þeirri stöðu gerði. — Maðurinn minn segir, að það muni ekki koma að sök hjer í Ameríku, þótt maður geri sjer ekki grein fyr- ir, hver staða manns sje í þjóð- fjelaginu“. „Hann hefir sennilega rjett fyrir sjer í því“, sagði ungfrú Beebee, og horfði með athygli á Cluny. „Hjá hverjum voruð þjer þjónustustúlka, með leyfi að spyrja?“ Cluny hugsaði sig um. Þegar öll kurl voru komin til grafar, hafði lafði Carmel verið henni góð. — „Jeg held að það sje best, að jeg segi yður það ekki“, svaraði hún. „Það er ekki víst, að fólkið, sem jeg var hjá, kæri sig neitt um það“. Það var einkennilegt, hve heimafólkið að Friars Carmel — ásamt með hr. Wilson — virtist nú óralangt í burtu. Minningin um Porritt og Trump er-hjónin virtist ekki eins fjar- læg — en þó var hún tekin að blikna til muna í Vitund henn- ar. — Um leið og Cluny settist hjá ungfrú Beebee og opnaði hjarta sitt fyrir Bandaríkjun- um, sagði hún hljótt: „Vertu sæll, Porritt frændi“ — og um leið hvarf síðasti snefillinn af iðrun og heimþrá úr huga hennar. ENDIR. Sigurgeir Sigurjónsson nœs'.ai ettarlögmoður Skrifstofutími 10—12 og 1 — 6. Aðolstrœti 8 Vinna Okkur vantar nú þegar til vinnu í Hvalfirði: Bifreiðavigerðarmann Meiraprófsbílstjóra Sjáum um* húsnæði á staðnum og fæði. Ilálfsmán- aðarlega ferðir í bæinn. — Upplýsingar ekki veittar í síma. — Umsækjendur komi til viðtals í skrifstofu okkar í Ilamarshúsinu. H.f. „Shell íí Stríðsherrann á Mars 2), e n (j jai acja Eftir Edgar Rice Burroughs. 2. Hinn svarti kynþáttur, sem öldum saman hafði tilbeðið Issus, hinn falska guðdóm Mars, hafði komist á ringul- reið, er jeg fletti svikahamnum af gyðju þeirra, þannig að hún kom fram eins og hún var í raun og veru. Og í seði sínu höfðu þeir banað kerlingunni, sem drottnað hafði lengst og með mestri grimmd og þóttist guðdómleg vera. Og þó var þetta þungt áfall fyri-r hina stoltu svörtu menn. Þeir höfðu verið auðmýktir ákaflega. Guðdómur þeirra var horfinn og einnig öll hin fölsuðu trúarbrögð þeirra. Hinn voldugi floti þeirra hafði beðið Ósigur fyrir betri skipum og hraustari mönnum, herjum Helium. Herskáir grænir menn frá uppþornuðu sjávarbotnun- um utar á hnettinum, höfðu þeyst sínum viltu reiðskjót- um yfir heilaga musterisgarða Issus, og Thars Tharkas, foringi þeirra og sá herskáasti af þeim öllum, hafði setið í hásæti svörtu mannanna og stjórnað þeim, meðan and- stæðingar þeirra voru að ákveða örlög hinnar sigruðu þjóðar. Allur fjöldinn vildi endilega að jeg settist í hið forna hásæti svörtu mannanna, og voru meira að segja sumir af þeim sjálfum hlynntir því, en það vildi jeg ekki. Jeg gat aldrei unað mjer með þeim kynflokki, sem vanvirt hafði konu mína og son. Jeg stakk upp á því, að ungur aðalsmaður af hinni svörtu kynkvísl, Xodar að nafni, yrði stjórnandi þeirra. Hann hafði gengt stjórnarstörfum áður en Issus ljet reka hann, svo jeg var viss um hæfni hans til þessa. Var hann því settur í hásæti hinna svörtu manna. Þegar friðurinn í Dor-dalnum var þannig tryggður, hjeldu bæði hinir grænu menn og við frá Helium burt til síns heima. í Helium var mjer aftur boðið hásæti, þar sem ekkert hafði frjettst um konunginn eða Jeddakinn í því nki, nje heldur son hans, jed í Helium (jarl), en báðir þeir höfðu horfið á ferð. Þeir voru faðir og bróðir Dejah Toris, konu minnarr Það var liðið meira en ár síðan þeir höfðu lagt af stað, til þess að rannsaka norðurhluta hnattarins, og til þess að Læknirinn: — (er að koma sjúklingnum fyrir á skurðborð inu). Jeg ætla að vera fullkom lega hreinskilin við yður. Fjór ir af hverjum fimm, sem skorn ir eru upp við þessum sjúkdómi týna lífi. Er nokkuð, sem jeg get gert fyrir yður áður en jeg byrja? Sjúklingurinn: — Já, vilduð þjer ekki hjálpa mjer úr skón- um og sokkunum? . ★ — Jeg get ekki sofið, sagði væluleg rödd í símanum lækn- isins um miðja nótt. — Slítíð þjer ekki samband- ið, jeg skal syngja fyrir yður vögguvísu, sagði læknirinn. ★ — Hefir maðurinn yðar far- ið eftir ráðleggingum mínum. Ein tafla á dag eftir mat og svolítill whiskysjúss á eftir? — Hann er nokkrum töflum á eftir áætlun, en whiskeyið er hann búinn að taka marga mánuði fyrirfram. ir — Læknir, eruð þjer vissir um, að jeg geti aftur spilað á fiðlu, þegar þjer eruð búnir að skera mig upp? — Jeg vil ekki fullyrða, að þjer getið spilað á fiðlu, en síðasti sjúklingurinn, sem je£ hafði, var farinn að spila a hörpu í himnaríki áður en 24 klukkustundir voru liðnar fra uppskurðinum. ★ Jæja, læknir — sagði sjúk- lingurinn — við höfum nú ver ið vinir síðan í skóla og íe£ mundi ekki geta látið mJel’ koma til hugar að móðga Þ1® með því að bjóða þjer pening3- En jeg er búinr. að nótera Þ1^ niður í arfleiðsluskránni minn1- — Það var fínt, biddu ann- ars dálítið, jeg þarf að breyt3 svolítið lyfsðlinum. ★ — Ó, læknir, jeg hefi sv° miklar áhyggjur út af maý11' inum mínum, hann er svo mík ið fyrir að láta hugann reika- — Blessaðar verið þjer 10 legar, jeg þekki manninn yða1. hann kemst aldrei langt rne því móti. ★ Sjúklingurinn (á geðveik13 hæli): Okkur líkar betur v þig heldur en síðasta læknú11111 hjerna. Læknirinn: — Hvernig Þa' Sjúklingurinn: — Þjer eru meira eins og einn af oss. ið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.