Morgunblaðið - 05.09.1945, Blaðsíða 16
16
66
wf 11®
wjcisiMpiiJ
„HAUKUR
sekkur
Kannbjörg varð
SÁ SJOSKAÐI varð 31. f. m.,
að vjelskipið ,.Haukur“, eign
hlutafjelaganna ,,Haukur“ og
,.Baldur“, sökk, er það var á
leið hingað til lands með sem-
entsfarm frá Bretlandi. Ekk-
ert tjón varð á mönnum.
Blaðið átti í gærkvöldi tal
við framkvæmdastjóia skips-
ins, Pjetur Bóasson. Kvaðst
hann hafa fengið skeyti frá
skipstjóranum, Lárusi Blöndal,
s.l. mánudagskvöld, sent frá
Sandvík í Færeyjum, þess efn-
is, að skipið hefði sokkið 90
sjómílur suð-vestur af eyjun-
um kl. 5 síðdegis 31. ágúst. —
Ennfremur var sagt i skeytinu,
að allri áhöfjajpui..liði.vel og að
hún færi til Þórshafnar.
Ekki hafa enn neinar frekari
frjettir borist um það, af hvaða
völdum skipið hafi farist, eða
hvernig mannbjörg varð, en
sýnilegt er, að áhöfnin hefir ver
ið tvo sólarhringa á sjó frá því
að skipið sökk og þar til hún
kom til Sandvíkur í Færeyj-
um.
,.Haukur“ var nýtt skip,
smíðað í Kanada. Var það bú-
ið öllum nýjustu tækjum. Leit
það út fyrir að vera hið traust-
asta í alla staði, og keypt hing-
að sem fyrsta flokks skip. Fór
skipið hjeðan áleiðis til Eng-
lands 6. júli s.l. Á leiðinni ut-
an laskaðist það nokkuð og var
sett til viðgerðar í Englandi.
Var það nýkomið úr þeirri við-
gerð, er það lagði af stað hing-
að heim 27. f. m.
Það skal tekið fram, að í
Englandi var skipið fermt und-
ir eftirliti vátryggingafjelags-
ins, sem það var trygt hjá.
Hjcr fsnnst heldur ekhi neiti
Rausnargjbf lil
Áfiiáriunguhirkju
RAUSNARLEG GJÖF, hefir
Álftártungukirkju á Mýrum
borist nýlega. Er það altaris-
klæ'ði mjög vandað og fagurt,
saumað úr rauðu silkiflosi, með
ísaumuðum" gulum krossi með
fjólubláum rósum, og fylgir því
altarisdúkur vandaður. Grip-
irnir eru gefnir sem áheit af
frú Jónínu Jónsdóttur, Lauf-
ásveg 2 A í Reykjavík, og börn-
um hennar, en frúin er alin upp
í Áltártungusókn Fyrir þennan
fagra vinsemdarvott og ræktar-
semi við gamla sóknarkirkju,
vill sóknarnefnd Álfártungu-
kirkju hjer með tjá sínar bestu
þakkir.
flnfianháfliisti .....
V(9e9waða0«a%jtðti9i öíWjs
í kmmWffútt
STJÓRN Iþróttasambands
íslands hefir ákveðið að veita
ekki þriðja flokks drengjum
undanþágu til þess að keppa í
fyrsta flokki í knattspyrnu,
eða fjórða flokks drengjum með
öðrum flokki.
TALIB var að Hitler og Eva Braun hefðu verið brend, og líkamsleifarnar grafnar á stað
þeim, sem sjest hjer á myndinni að ofan, fyrir framan inngöngudyrnar að kjöllurum kansl-
arahallarinnar. — Nú hafa Rússar látið grafa á staðnum, — en ekkert fundið.
Útvarpshúsið nýja verður
ein glæsilegasta bygg-
ing landsins
Á FUNDI, sem menta-
málaráðherra og húsbvgg-
ingarnefnd útvarpshúss
hjelt með sjer fyrir skömmu
var ákveðið, að fallast á í
höfuðatriðum teikningar
þær að útvarpshúsi, sem
ameríski húsameistarinn
William Lescaze hefir teikn-
að. Var samþykt að fela hin-
um ameríska húsameistara
að fullgera frumteikninguna
og óska eftir því, að húsa-
meistarinn geri bráðabirgða
útlits teinkningu að húsinu.
Þetta nýja útvarpshús, sem
reist verður á Melunum, skamt
frá, eða við íþrottavöllinn, verð
ur ein stærsta og sjerkennileg-
asta bygging, sem hjer hefir
verið reist og verður væntan-
lega byrjað á verkinu á næsta
vori. — I tilkynningu um þetta
frá ríkissttjórninni, segir m. a.
á þessa leið:
,,Er þess vænst, að þetta
verði ein sjerkennilegasta og
veglegasta bygging þessa lands
og að öllu leyti gerð samkvæmt
nýjustu tækni. Með bygging-
unni. verður sjeð fyrir húsnæð-
isþörf Ríkisútvarpsins um langa
frarntíð, en stofnunin á nú við
mestu þrengsli að búa, sem
staðið hefir henni mjög fyrir
þrifum að undanförnu.
Tvö hús.
Utvarpsbyggingunni hefir
verið ætluð lóð sunnan Hring-
brautar vestan íþróttavallarins
og á norðvesturhluta hans. —
Frumteikning byggingarinnar
hefir þó verið miðuð við það að
skerða ekki notagildi íþrótta-
’ vallarins. Gerir hún ráð fyrir
j að sú útvarpsbygging, sem nú
á að reisa, feli eiginlega í sjer
tvö hús með brú á milli. í því
húsinu, sem nær er Hringbraut,
verða almennar skrifstofur út-
varpsins, frjettastofa, viðtækja
verslun, viðgerðarstofa, viðgerð
arsmiðja; og ýmislegt fleira. —
Þetta hús verður fimm hæðir.
11 útvarpssalir.
í hinu húsinu. sem er mun
lægra, verða 11 útvarps- og
æfingasalir og einn sjónvarps-
salur, ennfremur tæknileg
starfsemi útvarpsins, skrifstof-
ur útvarpsráðs, tónlistadeiid og
annað tilheyrandi framkvæmd
dagskrár. Einn útvarpssalurinn
er langstærstur og tekur 600
áheyrendur, hefir sv’ð fyrir
stóra hljómsveit og fjölmenn-
an kór, og á salurinn að vera
búinn tækjum til kvikmynda-
sýninga.
Gert er rá'ð fyrir að einhvern
tíma í framtíðinni verði reist
þriðja húsið fyrir víðtækari
sjónvarpsstarfsemi og annað, er
ekki verður sjeð fyrir nú. Er
því húsi ætlaður staður á norð-
vestur hluta íþróttavallarins.
Búist er við að Ríkisútvarpið
sjálft geti borið kostnaðinn við
bygginguna, bæði með bygging
arsjóði sínum, sem er IV2 milj.
kr., og með lántökum, svo og
með árlegum tekjuafgangi og
tekjuöflun á annan hátt“.
Miðvikudagur 5. sept 194"»
Chrisfmas Möller
skilur ekki andúð
Dana á íslendingum
Khöfn í gær.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins.
CHRISTMAS MÖLLER, ut-
anríkisráðherra Dana, flutti
ræðu á fundi norræna fjelags-
ins í Oslo, en þar er hann nú
staddur og sagði meðal annars:
Jeg hef aldrei getað skilið hvers
vegna ýmsir Danir hafa lastað
Islendinga fyrir það, að þeir
sögðu upp sambandslagasamn-
ingunum áður en Danmörk
varð frjáls. Skyldúm við Danir
ekki hafa gert hið sama, ef við
hefðum verið í sporum íslend-
inga.
Ennfremur sagði ráðherrann:
„Samningar þeir, sem nú fara
að hefjast milli Dana og íslend-
inga, veita báðum þjóðum tæki
færi til þess að sýna norræna
samvinnu á raunhæfan hátt,
eins og hún getur verið til fyr-
irmyndar, og gefa með því ror-
dæmi fyrir norrænni sam-
vinnu“.
Umtnælum Chrisl-
illa
K. R. vann lands-
mót I. flokks.
SÍÐASTL. mánudagskvöld
fór fram iírslitaleikurinn í
landsmóti 1. flokk's. Kepptu
þá KR og Hafnfirðingar. Leik-
ar fóru þannig, að KR sigraði
með 2:0. Að leikuum loknum
afhenti forscti ÍSÍ sigurvegur-
Linum bikar þann, sem keppt
var um.
Landsmót I. flokks var út-
sláttakepjmi að þessu sinni.j
Tóku þátt' í J»ví auk bæjarfje- j
laganna, KR, Vals, Fram, og
Víkings bæði Hafnfirðingar
og Akrnesingar.
Sketntiferð Heim-
dailar um helgina
HEIMDAI.LUR, Fjelag ungra
Sjálfstæðismanna efnir til
skemtiferðar til Þingvalla um
næstu helgi. Lagt verður af
stað hjeðan úr bænum kl. 5.30
á laugardag. Sameiginlegt borð
hald hefst í Valhöll kl. 7 e. h,
— Undir borðum verða ýms
skemtiatriði og ræðuhöld, síð-
an verður stiginn dans.
Sjálfstæðismenn ættu að
tryggja sjer þátttöku í ferðinni
sem allra fyrst í skrifstofu
Sjálfstæðisflokksins, sími 2339.
Gera má ráð fyrir mikilli þátt-
töku þar sem hinar árlegu Þing
vallaferðir Heimdallar eru
mjög vinsælar.
Frá frjettaritara vorum
í Kaupmannahöfn.
BERLINGSKE TIDENDE
skrifar í tilefni af ummælum
Christmas Möller í Osló, þar
sem hann sagði, að ekki væri
hægt að álasa íslendingum fyr-
ir sambandsslitin við Dani:
„Það er tilgangslaust að vera
að ýfa upp gömul sár. Danir
hafa sætt sig við það, sem skeð
hefir. Konungurinn hefir ósk-
að Islendingum til hamingju og
þar með er málið út úr þessum
heimi, hvað Dani snertir.
En úr því að Christmas Möll-
er rifjar málið upp, þá má e£
til vill segja, að Christmas
Möller er sennilega eini mað-
urinn utan íslands, sem ekki
skilur tilfinningar Dana.
Svíar voru vafalaust ein-
dregið á máli Dana.
. íslendingar, sem búsettir
voru í Danmörku, voru sam-
mála Dönum. Buhl forsætis-
ráðherra beindi þeim tilmæl-
um af festu og virðuleik til ís-
lendinga, að þeir frestuðu upp-
sögninni þar til við gætum sam
ið, eftir góðri og gildri nor-
rænni venju. Það voru ekki að
eins noklcrir Danir, eins og
Christmas Möller vill vera láta,
heldur öll þjóðin, sem var með
frestun. Það var sárt, undir
[ auðmýkjandi kringumstæðum,
j sem Danir áttu þá í, að íslenska
! þjóðin skyldi einhuga segja
upp aldagömlu ríkjasambandi.
j Það er leiðinlegt, að Christmas
Möller skuli ekki skilja þetta,
og kannske ennþá leiðinlegra,
: að hann skuli draga fram dcilu
j mál, sem best væri fyrir Dan-
' mörku og ísland, að væri úr
sögunni. — Páll.
RÓM í gær: — Sforsa greifi,
senr kunnastur er fyrir baráttu
sína gegn fasistum á Italíu, var
: í dag kjörinn forseti ráðgef-
1 andi þings, sem á að koma sam
an á Ítalíu til að vera stjórn-
inni til aðstoðar í vandamáium
! þeim, er nú steðja að ítölum.
(