Morgunblaðið - 13.09.1945, Side 2

Morgunblaðið - 13.09.1945, Side 2
2 morgdnblaðið Fimtudagur 13. sept. 1945 Nýju togararnir irá Engiandi verða 170 íet með guiuvjel Nýtísku dieselskip til I Ameríku-flutninga ÞAÐ HEFIR nú verið á- kveðið, að togaranir 30, sem smíðaðir verða fyrir nkkur í Bretlandi, verði 170 fet og allir með gufuvjel, að þrem undanteknum, sem verða dieselvjelskip og heldur minni. Varð ríkisstjórnin að ákveða stærð og gerð skip- anna að nokkru leyti, fyrir 6. þ. m. Þá er farin nefnd sjerfræðinga til Englands til að gera fullnaðarsamn- inga um smíði togaranna. 1 nefndinni eru: Helgi Guð- mundsson, bankastjó'ri, Gísli Jónsson, alþingismað- ur og Aðalsteinn Pálsson, skipstjóri. í tilkynningu frá ríkisstjórn- inni um togarasmiðina segir á þessa leið: Forsagan. ..Með skírskotun til fyrri yf- irlýsinga varðandi smíði þrjá- tíu togara í Englandi handa Is- lendingum, vill ríkisstjórnin " skýra frá eftirfarandi: Eftir að nefnd þeirri, er í sum ar fór út á vegum nýbyggingar ráðs til að leitast fyrir um skipa smíði fyrir Islendinga í ná- grannalöndunum, hafði tekist að afla tilboða frá fimm helstu skipasmíðastöðvum í Bretlandi um smíði 30 togara, með því skilyrði þó, að af Islendinga hálfu yrði aðeins einn aðili þessa máls, og eftir að ríkis- stjórnin hafði með aðstoð sendi ráðsins í Lundúnum og tjeðrar nefndar. fengið heimild bresku stjórnarinnar til þessara skipa smíða, var ákveðið, að ríkis- stjórn Islands gerðist aðili máls ins. Aflaði hún sjer heimildar í því skyni með bráðabirgðalög um. Að því búnu var nefnd- inni falið, að gera bráðabirgða- samning um smíði skipanna. Þegar bráðabirgðasamning- ur þessi hafði verið gerður, kom nefndin heim og gaf ríkis stjóminni skýrslu um störf sín. Þurfti ríkisstjórnin að ákveða fyrir 6. september stærð skip- anna og hvort þau skyldu knú,- in með gufuvjelum eða diesel- vjelum. TiIIögur sjerfræðinga. Ríkisstjórnin fól þegar í stað nefnd kunnáttu- og áhuga- manna að gera tillögur um þessi tvö meginatriði og enn- fremur að benda á æskilegar breytingar, miðaðar við ís- lenska staðhætti sjerstaklega, frá þeim frumtillögum, sem fyr ir lágu. Að fengnum tillögum þessum ákvað ríkisstjórnin, að öll hin nýju skip skyldu vera 170 fet á lengd og knúin gufuvjel. Þó áskildi hún sjer rjett til að á- kveða siðar, að þrjú skipanna skyldu vera nokkru minni og knúin dieselvjel. Einnig ljet rík isstjórnin í ljós, að ef unt væri að ná um það samkomulagi við ski'pasmíðastöðvarnar, teldi hún æskilegt að skipin yrðu stækkuð upp í 175 fet, en svo sem áður greinir, var í önd- verðu gert ráð fyrir, að togar- arnir yrðu eigi stærri en 170 fet á lengd. Að öðru leyti skyldi gengið Nefnd sjerfræðinga farin til Englands til fullnaðarsamninga frá fullnaðarsamningum hið bráðasta og nefnd sjerfræðinga gjöra þá fyrir hönd Islendinga. Nefndin. I samræmi við þetta hefir rík isstjórnin nú falið þeim Helga bankastjóra Guðmundssyni, — Gísla alþingismanni Jónssyni og Aðalsteini skipstjóra Pálssyni, fullt umboð til þess að gera fullnaðarsamninga við skipa- smíðastöðvarnar um þessi efni, þar á meðal að semja um brevt- ingar á fyrirliggjandi teikning um og viðbætur við þær. Fór nefnd þessi áleiðis til Eng lands í gær. Nýbyggingarráð hrekur rógskrif Frá Nýbyggingarráði hef- ir Morgbl. fengið eftirfar- andi greinargerð til birt- ingar: ÚT AF árásum á Nýbygging- arráð í Tímanum, blaði Fram- sóknarflokksins, þann 7. og 11. september síðastliðinn í sam- bandi við veitingu ráðsins á gjaldeyris-. og innflutnings- leyfi fyrir vjelskipinu Haukur, sem sökk á leið til íslands frá Bretlandi þann 31. ágúst síðast- liðinn vill Nýbyggingarráð laka fram það, sem hjer fer á eftir: Þegar kaupendur Hauks leit- uðu til Nýbyggingarráðs vegna fyrirgreiðslu til skipakaupanna var þeim þegar sagt, að tryggt yrði. að vera, að skipið væri byggt eftir reglum og undir eft- irliti viðurkennds skipaflokkun arfjelags. Þeir lögðu og síðar fram símskeyti frá umboðs- manni Bureau Veritas í Halifax er staðfesti að skipið væri byggt eftir reglum og undir eftirliti Bureau Veritas. I brjefi sínu 12. mars þ. á. til Viðskiftaráðs er hefur með höndum útgáfu gjaldeyris- og ‘innflutningsleyfanna eftir með mælum Nýbyggingarráðs, tók Nýbyggingarráð það fram ásamt öðrum skilyrðum fyrir útgáfu leyfisins, að skipið yrði að vera byggt eftir reglum Baureau Veritas. Vottorð frá trúnaðarmanni Bureau Veritas, dags. í Hali- fax 17. maí þ. á., er staðfestir áð skipið hafi verið byggt eftir reglum og undir eftirliti Bur- eau Veritas, var afhent skipa- skoðunarstjóra ríkisins, þegar skipið kom hingað til lands, og í haffærisskírteini skipsins, út- gefnu í Reykjavík 6. júlí þ. á., segir, að skipið fullnægi ákvæð um laga nr. 93 frá 3. maí 1935 um eftirlit með skipum. Telur Nýbyggingarráð, að framanritað ætti að nægja til þess að sýna það, að ásakanir Tímans á hendur ráðinu vegna leyfisveitingu fyrir þessu skipi eru á engum rökum reistar. | Skrif Tímans um það, að Ný- , byggingarráð „virðist láta al- gerlega eftirlitslaust hverskon- ar skip sjeu flutt til landsins heldur láti hvern sem vill fá gjaldeyri til skipakaupa“ og ,,að hingað sjeu keypt gömul skip, sem aðrar þjóðir vilji ekki nota lengur“, munu eiga við nokkur sænsk fiskiskip, sem Ný byggingarráð hefur samþykkt að veita gjaldeyri fyrir. Út af þessu skal það tekið fram, að Nýbyggingarráð hef- ur við allar slíkar leyfisveiting- ar gert það að skilyrði, að styrk leiki og gerð skipanna fullnægði kröfum þeim, sem gerðar eru af Skipaeftirliti ríkisins. Einnig hvað þétta snertir, eru því ásakanir Tímans úr lausu lofti gripnar. Reykjavík, 12. sept. 1945. Jóhann Þ. Jósefsson. Lúðvík Jósefsson. Steingrímur Stein- þórsson. Óskar Jónsson. Vopnasali handtekinn FRITZ MANDL, austurríski miljónamæringurinn og vopna- salinn, sem oft hefir verið get- ið í frjettum undanfarin ár og sem einu sinni var giftur Hedy Lamar kvikmyndaleikkonu, var nýlega tekinn fastur í Uruguay í Suður Ameríku, eftir að honum hafði Verið vís- að úr landi í Argentínu. NÝLEGA VAR FRÁ því skýrt, að íslendingum væri trygður skipakostur frá Ameríku og í tilkynningu, sem ríkisstjórnin sendi út í gær segir að þau skip, sem sendiherra Islands í Washington útvgaði til íslandsferða verði nýtísku dieselvjel- skip. Þá er Guömundur Vilhjálmsson, forstjóri Eimskip far- inn til Englands á vegum ríkisstjórnarinnar til að semja við Breta um flutninga milli íslands og Bretlands og ennfremur að leita fyrir sjer um kolakaup í Englandi. Það var allflókið mál, að út vega skip til flutninga hingað til lands og er það skýrt í eft- irfarandi frjettatilkynningu frá ríkisstjórninni, sem Morg- unblaðinu barst í gær: Fyrir nokkru komu Banda- menn á fót stofnun, er hafa skyldi öll umráð kaupskipa- og fiskiskipaflota hinna sam- einuðu þjóða í því skyni að tryggja hina fullkomnustu hag nýtingu skipastólsins. Stofnun þessi, er nefnist United Mari- time Authority (UMA) hefir skrifstofur bæði í London og Washington. Að undanförnu hefir íslenzka ríkisstjórnin haft til athugun- ar, hvort íslendingar ættu að gerast aðilar í þessum samtök- um, en af því hefði leitt, að UMA hefði orðið að á umráða- og ákvörðunarjett um notkun islenskra skipa, en aftur á móti tryggði íslendingar sjer um leið nægilegt skipsrúm til flutn inga að og frá landinu. Fyrir milligöngu íslenska sendiráðs- ins í Washington tókst þó mjög bráðlega að útvega þann skipa- kost, er þurfti til flutninga milli íslands og Ameríku, án þess að íslendingar gerðust þátttakendur í UMA, og stóð við svo búið fram í miðjan s. 1. mánuð. En þá bárust ríkis- stjórninni skilaboð um, að öll þau skip, er hún hefði haft á leigu frá stjórn Bandaríkj- anna, yrðu af henni tekin og og engin ný skip myndu fást í staðinn, nema íslendingar yrðu þáttakendur í UMA. Thors Thors útvegar skip. Sendiherra íslands í Was- hinton var staddur hjer á landi urrt þetta leyti. Varð það að ráði milli hans og ríkisstjórnar- innar, að málið skyldi liggja í þagnargildi uns hann kæmi aftur vestur um haf. Skömmu eftir heimkomu hans til Was- hington barst ríkisstjórninni símskeyti um, að að sönnu stæði við það, sem áður hafði Verið tilkynnt, að skipin, sem íslendingar nú hefðu á leigu, yrðu tekin úr Íslandsíerðum, en í stað þeirra hefði sendiherr anum tekist að tryggja allan þann skipakost, er íslendingum væri nauðsynlegur til flutning- anna, og myndum við nú fá ný tísku dieselskip. Fjell stjórn Bandaríkjanna frá þeirri kröfu, að íslendingar þyrftu að gerast aðili í UMA. Flutningar milli íslands og Bretlantls. I Bretlandi standa sakir þannig, að málinu hefir enn eigi verið ráðið til lykta að því er varðar flutninga milli íslands og Bretlands og annara Evrópu landa, og hefir íslenska stjórn- in nú, samkvæmt bendingu frá bresku stjórninni og að ráðí sendiráðsins i Lundúnum, falið framkvæmdastjóra h.f. Eim- skipafjelags íslans, herra Guð- mundi Vilhjálmssyni, að fara til Englands til að ráða þessu máli til lykta og reyna að semja um það endanlega við bresk stjórn arvöld. Er framkvæmdastjór- inn nú farinn utan þessara er- inda. Jafnframt fól ríkistjórnin Guðmundi Vilhjálmssyni að at huga í samráði við sendiráðið í Lunduúnum, um útvegun kola frá Englandi, því að nú nýverið bárust ríkistjórninni þau skilaboð, að íslendingar myndu ekki fá fá nein kol frá Bretlandi á þessu ári, umfram þau kol, sem hingað mundu flutt í þessum mánuði sam- kvæmt áðurgefnu loforði. Spænskur prins sesi að í Róm ZURICH í gær: — Það hefir vakið töluverða athygli, að Don Jaimo, elsti núlifandi sonur Al- fonso fyrrverandi Spánarkon- ungs og fjölskylda hans er á förum til Rómaborgar. Spænskir konungssinnar hafa látið svo ummælt, að prinsinn muni ætla að búa í Róm þar til bróðir hans, Don Juan, hefir tekið við konungdómi á Spáni. — Reuter. (Grein um Don Juan er á> 7. síðu blaðsins í dag). Danskf skip ferst í áreksfri LONDON í gær: — Danska skipið Marianne (2232 smálest- ir) frá Kaupmannahöfn, sökk í dag við eyna Man eftir árekstur við skipið „Cornelius Ford“. 10 manns af áhöfninni, þar á meðal skipstjórinn, Eriksen að 1 nafni, hafa ekki enn komið fram og er talið að þeir hafi farist. — Reuter. Dæmir nú kvikfje LONDON: Lowatt lávarður, yfirmaður strandhöggssveita Breta, verður einn aðaldómar- inn á hinni árlegu argentínsku kvikf j ársýningu, sem haldin verður í Buenos Ayres innan skemms. Vinna við járnbrautir LONDON: Nýlega var háðtíð legur haldinn í Rússlandi, dag- ur járnbrautarverkamanna. •—i Helmingur af öllu því fólki, sem þar í landi vinnur við járnbraut ir, er kvenfólk.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.