Morgunblaðið - 14.09.1945, Page 8
8
MOKGUNBLAÐIÐ
Föstudagur 14. sept. 1945
Minning:
Einars J. Jónssonar
ÍlIG setti hljóðan, er mjer
ba'fst til eyrna sú harmafregn
að vinur minn, Einar J. Jóns-
son væri látinn, við höfðum
eihmitt átt tal saman tveimur
dögum áður og var þá Einar
eins og altaf endranær, hinn
hressi og lífsglaði maður. Vor
dauðlegi heimur á oft bágt með
að: skilja breytingar sem slík-
ar, þegar maður í blóma lífs-
ins er kallaður burtu svo skjót-
lega, maður sem oss fanst eiga
einmitt svo mikið eftir ógert
hjerna megin hafsins, en þetta
stig tilverunnar hefur oss ekki
tekist að skygnast í, þrátt fyrir
öll vísindi, nýjungar og tækni
í heiminum nú á tímum. Nei,
gagnvart dauðanum stöndum
vjer öll á sama þrepinu, hann
er sá, sem óumflýjanlega sækir
alla heim, án nokkurrar und-
antekningar, hvort sem oss lík-
ar betur eða ver.
Einar J. Jónsson var fæddur
9. apríl 1912, að Klapparstíg
19 hjer í bæ, en var löngum
kendur við Klöpp. Hann var
sonur hjónanna Jóns Halldórs-
sonar og Sigurlaugar Rögn-
valdsdóttur og er hann sjöunda
barnið, sem móðir hans missir,
svo og mann sinn, sem hún
misti 1936. Einar var tvíkvænt-
ur, með fyrri konu sinni átti
hann þrjú börn, það yngsta er
nú 5 ára en elsta 11 ára. Með
seinni konu sinni átti hann 2
börn, það yngsta rúmlega mán-
aðargamalt, en það eldra 2 ára.
Af framanskráðu sjest, að hjer
hefur orðið skarð fyrir skildi,
er sár harmur kveðinn að börn-
um hans, konu og móðir og er
slíkt að vonum, því heimils-
faðir var Einar sjerstakur í
sinni röð, bæði með heimilis-
háttu og allan aðdrátt.
Hann var ljettlyndur og ljet
ekkert á sig fá, þó oft bljesi
ekki byrlega í lífinu og mörg
vonbrigði yrðu á vegi hans.
Hann mætti öllum erfiðleikum
ávalt sem hetja og það var alt
af hressandi blær, þar sem hann
fór. Hjálpsamur var hann og
mátti ekkert aumt sjá, og þó
að það kostaði hann mikið erf-
iði og fyrirhöfn, var hann
ávalt reiðubúinn til hjálpar,
hver sem í hlut átti. Hann vár
þjettur á velli bg þjettur í lund
og ljet ekki hlut sinn að
óreyndu.
Einar J. Jónsson, mjer finst
tómleg sú hugsun að vita að
eiga aldrei eftir að finna þitt
hlýja og fasta handtak og þinn
hressilega málróm, en hvað er
það á móti því, hvað konan þín
og blessuð litlu börnin hafa
misst, manninn, sem vildi sjer
öllum fórna fyrir þeirra vel-
ferð og hamingju, en treystum
Guði og biðjum hann að blessa
þeirra framtíð og þá tilveru,
sem þú ert kominn í. Vertu
sæll, og þakka þjer fyrir allt.
Vinur.
Skátaskólinn að
Lækjarbotnum
25 ára
UM NÆSTU HELGI mun
Skátafjelag Reykjavíkur efna
til afmælisfagnaðar við elsta
skála fjelagsins, að Lækjarbotn
um, en í þessum mánuði eru
25 ár liðin síðan skálinn var
bygður. Það var Skátafjelagið
Væringjar, sem stóðu fyrir
byggingu þessa skála, undir
forustu þeirra Axel V. Tulin-
ius, skátahöfðingja og Ársæls
Gunnarssonar, fjelagsforingja
og mun Væringjaskálinn, eins
og hann var lengst kallaður,
vera fyrsti fjelagsskáli, hjer á
landi, sem bygður var til fjalla.
Það er ósk Skátafjelags
Reykjavíkur að gamlir skátar,
sem unnu við byggingu hans,
eða tóku þátt í útilegum þar
efra, fjölmenni á gamlar slóð-
ir nú um helgina og mega þeir
búast við hlýjum móttökum,
þótt afmælishófið verði fábrot
ið.
Lehmann lýst ekki á
blikuna
London í gærkveldi:
Lehmann, forstjóri UNRRA,
hjálparstofnunar hinna samein
uðu þjóða, hefir nú áhyggjur
stórar út af ástandinu í vetur
í mörgum þeim löndum, sem
orðið hafa hart úti í styrjöld-
inni, bæði í Evrópu og Asíu.
( Telur hann að bandamenn verði
, að leggja sig alla fram, til þess
‘að komið verði í veg fyrir hung
J ursneyð víða um heim. Hann
I segir, að þegar hafi verið send-
Jar 2 millj. smálesta af matvæl-
um til Evrópu, en auk þess, sem
þangað þurfi í viðbót, verði að
hjálpa Manchuriumönnum, Kór
eubúum og Kínverjum, og en-
i fremur hafi Rússar beðið um
, hjálp. — Reuter.
Konoye vissi ekki
um árásina á Pearl
Horbour
London í gærkvöldi.
KONOYE prins, sem var
forsætisráðherra Japana á und
an Tojo, átti viðtal við ameríska
blaðamenn í Tokio í dag, og
ljet hann þar svo um mælt, að
hann hafi ekkert vitað um ár-
ásina á Pearl Harbour, sem
hefði verið undirbúin og fram-
kvæmd með mikilli leynd af
Tojo og nánustu samstarfsmönn
um hans. — Enfremur sagði
Konoye, að hann væri þeirrar
skoðunar, að komast hefði mátt
hjá styrjöld, ef hann hefði feng
ið tækifæri til þess að ræða
sjálfur við Roosevelt forseta.
— Reuter.
Vindlar og whisky
LONDON: Brotist var nýlega
inn í hús eitt í Maidenhead, er
enginn var heima þar, og stol-
ið vindlum sem voru 1000
sterlingspunda virði, og einnig
20 flöskum af whiskyi. Allmik-
ið var i húsinu af dýrmætum
skartgripum, en þeir voru ekki
hreyfðir.
Firmakepni í golfi á
Akureyri
Akureyri.
MÁNUDAGINN 10. septem-
ber hófst á Akureyri „firma-
kepni“ i golfi. Fer hún fram
með samskonar fyrirkomulagi
og firmakepnin í Reykjavík s.l.
sumar.
Til verðlauna í kepni þess-
ari verður fenginn silfurbikar,
og verður á hann grafið nafn
þess firma, er vinnur kepnina
ár hvert, en firmað sjálft fær
til eignar minni bikar af líkri
gerð.
Þessi firmu taka þátt í kepn-
inni:
I. Brynjólfsson & Kvaran,
Bókaverslun Þorsteins Thor-
lacius, Bókaversl. Gunnlaugs
Tr. Jónssonar, Brynjólfur
Sveinsson h.f. Sportvöru- og
hljóðfæraverslunin, Prentverk
Odds Björnssonar, Kolaverslun
Ragnars Ólafssonar, Heild-
verslun Vigfúsar Jónssonar,
Bifreiðastöð Akureyrar, Bif-
reiðastöð Oddeyrar, Sjóvá-
tryggingarfjelag íslands, Al-
mennar Tryggingar, Kjötbúð
Kea, Kaupfjelag Eyfirðinga,
Hótel Kea, Efnagerðin Flóra,
Brauðgerð Kea, Sápuverksmiðj
an Sjöfn; Kaffibrensla Akur-
eyrar, Smjörlíkisgerð Kea,
Smjörlíkisgerðin Akra, H.f.
Shell, Olíuverslun íslands,
Brauðgerð Kristjáns Jónssonar,
Skóverksmiðjan Iðunn, Klæða-
verksmiðjan Gefjun, Nýja
Kjötbúðin, Þvottahúsið Mjöll,
Prentsmiðja Björns Jónssonar,
Skipasrníðastöð Kea, Dráttar-
braut Akureyrar, Hót^l Norð-
urland.
Fimtugur: Heigi
Sigurðsson, Eskifirði
í DAG á Helgi Sigurðsson,
velmetinn borgari Eskifjarðar-
kauptúns fimtugsafmæli. Um
20 ára skeið hefir hann átt
heima á Eskifirði. Hefir hann
fengist við margt um dagana:
verið útgerðarmaður, vega-
vinnuverkstjóri, trjesmiður og
margt fleira, sem sannar best
að allt hefir leikið í höndunum
á honum, enda dugnaði hans
viðbrugðið við hvaða starfs-
grein sem er. Vinfastur er hann
og hefi jeg ekki hvað síst fund-
ið það. Bestu kyni okkar voru
er við unnum saman í Góðtempl
arareglunni heima á Eskifirði.
Var hann þar sem annars stað-
ar heill liðsmaður og taldi hann
ekki sporin eftir sjer.
Helgi er giftur ágætri konu,
Guðrúnu Kristjánsdóttur, eru
þau hjón samhent mjög. Vist-
lega heimilið þeirrtT og fallegi
garðurinn þeirra ber vott um
gróður hug þeirra. Hafa þau
sýnt mikinn áhuga fyrir- að
prýða og fegra staðinn. Mættu
þannig fleiri vera, þau hjón
eru glaðvær og góð heim að
sækja.
Jeg sendi þeim hjónum mín
ar bestu vinarkveðjur um heill
og hamingju og vil um leið
nota tækifærið til að þakka
þeim óteljandi ánægjustundir.
Árni Helgason.
53 menn slasast
LONDON: Strætisvagn valt
hjer í gærkveldi, eftir árekstur
við annan vagn, og slösuðust 56
manns þar á meðal nokkur ung
börn. Farið var með 13 manns
í sjúkrahús, og var það fólk alt
alvarlega meitt.
Þetta slys varð á gatnamótum
þar sem áður voru umferðaljós,
en þau eyðilögðust af völdum
sprengju árið 1940, og hafa ekki
verið endurnýjuð. Það voru veg
farendur, sem drógu fólkið út
úr vagninum, sem valt. Lögregl
an strðvaði bifreiðar, sem um
fóru. og ljet aka meiddu fólki í
siúkrahús í þeim.
Yktar fregnir um
óeirðir í Indo-Kína
London í gærkvöldi.
BRESKIR blaðamenn, sem
hafa farið til franska Indokína,
eru nú komnir þaðan aftur og
hafa skýrt svo frá, að fregnir
þær, sem borist hafa af óeirðum
í landinu, sjeu mjög ýktar. Þeir
segja að vísu, að til nokkura á-
taka hafi komið í Hanoi, og
hafi þar fallið tveir Frakkar,
ogn okkur hún hafi verið rænd,
en í Saigon telja þeir alt með
kyrrum kjörum á yfirborðinu,
þótt úlfúð sje mikil í garð
Frakka undir niðri. — í Indo-
kína er nefnilega risin upp öfl-
ug sjálfstæðishreyfing, en land
ið hefir verið nýlenda Frakka
um langt skeið. — Reuter.
BEST AÐ AUGLYSA I
fVU »Ríil íNBLAÐINU.
Eftlr Robert Sform
I'VE GOT IT ALL “***
OUT. ORPEfZ
ANOTNE/S CARTON Of=
HA/R CtA
!
m,
i
■
1.—2.) Glæponinn: — Hjerna er hármeðalið yfir-
maður minn. Gullskalli: Komdu með flöskuna. —
Annar glæpon: — Af hverju ertu alltaf að bursta
þessa hárkoB'i bír a, Gullskalli? — Gullskalli: —
Ha ha, líttu ba' > bylgjurnar í hárinu.
3.—4.) Glæpor m: — Nú verðum við að fara
að gera eiíth fð. Áú er búið með veðreiðarnar, og
>. i - f.+v’ *f t t'-t-i i* ►4'tf ? '* < 1 *«• "•
á hverju eigum við svo að lifa? Gullskalli: — Jeg
er nú búinn að reikná það allt út. Náið í nýja flösku
af hárolíú.