Morgunblaðið - 22.11.1945, Síða 11

Morgunblaðið - 22.11.1945, Síða 11
Fimtudagur 22. nóv. 1945. MORGUNBLAÐIÐ 11 • ■ Fjelagslíf Kvennflokkur. Æfing í kvöld, kl. 9y2, í Aaustur- bæj arskólanum. Stjórnin. JÁRNSMÍÐANEMAR Reykjavík. Fundur í kvöld, kl. 9, í Iðnskólanum. Áríðandi mál á dagskrá. Mætið allir! Stjórnin. Tilkynning K. F. U. K. Ud fundur í kvöld, kl. 8,30. Þar verður upplestur, gítarsamspil, píanósólo o. fl. Hugleiðing: Síra Sigurjón Árnason. Allar stúlkur velkomnar. Fermingarstúlkum haustsins sjerstaklega boðið á fundinn. K. F. U. M. A-D-fundur í kvöld, kl. 8,30.^Sr. Friðrik Friðriksson talar. Allir karlmenn velkomnir. FÍLADELFÍA Almenn samkoma í kvöld, kl. 8,30. ♦♦♦♦♦♦»♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦»»♦♦♦ I.O.G.T ST. FREYJA Fundur í kvöld, kl. 8,30. Inn- taka. Frjettir o. fl. Æðstitempl- ar. Upplýsingaskrifstofa opin í Templarahöllinni, Frí- kirkjuveg9, kl. 6—8 í dag. >♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦<*>♦♦♦♦ Kaup-Sala STOFUBORÐ, útvarpsborð, blómaborð, Bóka- hillur o. m. fl. Versl. G. Sigurðsson & Co. Grettisgötu 54. RISSBLOKKIR fyrir skólabörn og skrifstofur. Blokkin 25 aur. Bókaútgáfa Guðjóns Ó. Guð- jóiissonar, Hallveigarstíg 6 A. NOTUÐ HÚSGÖGN keypt ávalt hæsta verði. — Sótt ♦ heim. — Staðgreiðsla. — Sími 5691. — Fornverslunin Grettis- götu 45. KAUPUM FLÖSKUR Sækjum. — Versl. Venus. — Sími 4714. . Vinna Tökum að okkur IIREINGERNINGAR Áhersla lögð á vandvirkni. — Sími 5932. — Bjarni. HREINGERNIN G AR Magnús Guðmunðs. Teppa- og husgagnahreinsun Sími 6290. BÓKHALD reikningaskriftir. Ólafur J. Ólafsson, Hverfisg. 108. Sími 1858 til kl 17 »♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦« Leiga FUNDARSALUR til leigu. Smurt brauð á sama stað. Sími 4923 kl. 1—3. BEST AÐ AUGLTSA I SlORGUNBLAÖINU. 326. dagur ársins. Árdegisflæði kl. 7.10. Síðdegisflæði ltl. 19.35. Ljósatími ökutækja frá kl. 15.35 til kl. 8.50. Næturlæknir er í læknavarð- stofunni, sími 5030. Næturvörður er í Lyfjabúðinni Iðunni. Næturakstur annast B. S. R., sími 1720. Helgafell 594511237 VI 2. í. O. O. F. 5 = 1271122814 = 9. O. Dánarfregn. — í fyrradag and- aðist í Stykkishólmi konan Anna Sigurðardóttir Dalmann, rúmlega 80 ára að aldri, ekkja Jóhanns Erlendssonar skósmiðs í Stykkis- hóhni, sem andaðist fyrir nokkr- um árum. Hjónaband. Præp hon. Böðvar Bjarnarson vígði nýlega saman í hjónaband, brúðhjónin Baldur Böðvarsson og Hólmfríði Jónsdóttur. Heimili þeirra er að Njálsgötu 13 A. Skipafrjettir: — Brúarfoss er sennilega að ferma í Leith. Fjall- foss, Lagarfoss, Selfoss, Reykja- foss, eru í Reykjavík. Buntline Hitch fór frá Reykjavík 17. nóv., til New York. Lasto kom 17. nóv. frá Leith. Span Splice er senni- lega að ferma í Halifax. Mooring Hitch er að ferma í New York. Anne kom 15. nóv. frá Gautaborg Baltara fór sennilega frá Leith í gær til Reykjavíkur. Maður og kona hefir nú verið sýnt 75 sinnum hjer í bænum. Þeir Alfred Andrjesson, Valdi- mar Helgasön og Jón Leós hafa farið með sömu hlutverkin í öll þessi 75 skipti. — Sýningar eru nú í fullum gangi. Happdrætti Snæfells: Dregið var 1. nóv. s. 1. í happdrætti UMF. Snæfells í Stykkishólmi, og komu upp eftirtalin númer: 1539, radio grammófónn. 4347 rafmagns- þvottavjel og 4351, 1000 kr. í pen ingum. — Vinninga sje vitjað til Árna Helgasonar, Stykkishólmi, sem fyrst. ÚTVARP í DAG: 8.30 Morgunútvarp. 12.10 Hádegisútvarp. 15.30 Miðdegisútvarp. 18.30 Dönskukensla, 2. flokkur. ,19.00 Enskukensla, 1. flokkur. 19.25 Þingfrjettir. 20.00 Frjettir. 20.20 Útvarpshljómsveitin (Þór- arinn Guðmundsson stjórnar). a) Vikulok, svíta eftir Caludi. b) Forleikur að óperettu eftir Lincke. c) Franskur vals eftir Auvray. 20.45 Lestur fornrita: Þættir úr Sturlungu (Helgi Hjörvar). 21.40 Frá útlöndum (Einar Ás- mundsson, hæstarjettarmála- flutningsmaður). 22.00 Frjettir. —• Ljett lög (plöt- ur). Var rekinn út. LONDON: Þingmaður einn í þingi Norður-írlands var ný- lega rekinn út úr þingsalnum, vegna þess að hann hafði gef- ið öðrum þingmanni kjaftshögg. Hann baðst afsökunar á næsta þingfundi. Báðir voru þing- mennirnir úr verkamanna- flokknum. MÁIiFLUTNINGS- SKRIFSTOFA Einar B. Guðmundsson. v Guðlaugur Þorláksson. Austurstræti 7. Símar 3202, 2002. Skrifstofutími kl. 10—12 og 1—5. Eiríkur Þór Jónsson Minning „Dauðinn er lækur, en lífið er strá“. — Hve miklar vonir voru ekki bundnar við þennan fagra efni- lega dreng, er aðeins varð 15 ára gamall. Hann ljek við alla og allir ljeku við hann. Lundin var viðkvæm, brosið ástúðlegt. Og þá var karlsmannslundin sterk og þrekið og þolgæðið í stríði við dauðann hvíta frá- bært. Hann vissi sjálfur hvers var að vænta, en léit brosandi til ástvinanna á síðustu stundu. Reyndi hann þannig að hugga þá og ljetta söknuðinn, minna þá á, að lífið er eilíft og hann væri aðeins að skilja við .þá um stundar sakir. Hann var meiður af sterkum stofni, sonur Magneu Torfadótt ur og Jóns Eiríkssonar, skipa- smiðs frá Vattarnesi eystra, Þórðarsonar Eiríkssonar, Guð- mundssonar frá Bessastöðum í Fljótsdal. Þessi ætt var miklum hagleik gædd og hinn látríi virt- ist hafa erft þær gáfur í rík- um mæli. „Fyrst deyr í haga rauðust rós“. B. S. — Jessen Framh. af bls. 2. smiðjunum, og það er mikils virði fyrir alla aðila. Síðan taldi Jessen skólastjóri upp marga af fyrri nemendum sínum, sem reynst hafa hinir duglegustu menn og nýtustu þjóðfjelagsborgarar. En hann sagði um leið, að þeir væru svo margir í alt, að jeg skyldi ekki nefna nein nöfn. Því ef nefna ætti þá alla, sem ástæða væri til, þá yrði greinin altof löng. — Og svo á þetta að vera grein um yður, en ekki þá. — Ojá, segjum það, sagði skólastjórinn, sem útskrifað hefir alla vjelstjórana, nema þessa tvo, sem komnir voru á undan honum, og sem í upp- hafi kendi allar námsgreinar í hinum unga skóla, nema tungu málin. Hamingja hans hefir m. a. verið í því fólgin, að hann hef- ir haft gaman af að kenna. Það hefir líka verið mikilsvirði fyr ir hina mörgu nemendur hans, vjelstjórana, sem sóttu skól- ann til þess að læra þá tækni, er atvinnulíf landsmanna þurfti á að halda og til þess að verða nýtir menn í þjóðfjelaginu. Fyrir aðstoð, leiðbeiningar, kenslu og alla velvild þakka þeir Jessen skólastjóra í dag. V. St. 25 ára hjúskaparafmæli eiga í dag frú Jóhanna Jóhannesdóttir og Óskar Ólason matsveinn, Mið- tún 66. Bridgekepnin SJÖTTU UMFERÐ er lokið og fór hún þannig- Sveit Guð- mundar Ó. Guðmundssonar vann sveit Sveinbjörns Angan- týssonar, sveit Gunnars Möller vann sveit Guðlaugs Guðmunds sonár, sveit Gunngeirs Pjeturs- sonar vann sveit Jóhanns Jó- hannssonar, sveit Stefáns Þ. Guðmundssonar varín sveit Gunnars Viðar og sveit Jóns Ingimarssonar vann sveit Jens Pálssonar. Hæst er nú sveit Gunnars Möller með 10 stig. Guðmund- ur Ó., Gunnar Viðar og Stefán Þ. hafa 8 stig; Gunngeir 6 stig; Guðlaugur, Jóhann, Jens og Sveinbjörn 4 stig og Jón og Ragnar 2 stig. Næst verður kept á Röðli í kvöld kl. 8. Öllum er heimill aðgangur og fjelagar fá ókeyp- is aðgang, enda sýni þeir skýr- teini sín. tmmimmuiuuunM s Herra 1 hf 1 C&P A I w 1 jjJtíhuion iniiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiniininiiimiiiiiiiiiiimi LISTERINE RAKKREM Mitt besta þakklæti og blessunaróskir, sendi jeg öllum þeim, sem glöddu mig á áttatíu ára afmælj mínu. Stefanía Stefánsdóttir, frá Minni-Ólafsvöllum, Grettisgötu 28 B. Alúðar þakkir, votta jeg öllum þeim, fjær og nær, er sýndu mjer hlýjann vinarhug og glöddu mig á sextugs af- mæli mínu, þann 12. þ. m., með heimsóknum og góðum gjöfum, þar á meðal blóm í ríkum mæli, svo og heilla- skeytum, hlýum handtökum og glöðu brosi. Alt þetta varð, til þess að gleðja mig og gefa mjer góð- ar ehdurminningar um daginn. Guð blessi ykkur öll og gefi ykkur gleðiríka framtíð. Hafliði Pjetursson. IflKðCfib^ Hjartkær sonur okkar, KRISTINN, andaðist að heimili sínu, Suðurgötu 3, Keflavík, þann 20. þessa mánaðar. Vilborg Guðnadóttir, Þórður Kristinsson. Faðir okkar, GUÐBJARTUR JÓNSSON, beykir, frá ísafirði, andaðist 20. nóv., að heimili sínu, Smyrilsveg 22, Reykjavík. Systkinin. Litla dóttir okkar, SIGURRÓS, sem andaðist 15. þessa mánaðar, verður jarðsungin frá heimili okkar, í dag, fimtudag, kl. 114 eftir hádegi. Anna Helgadóttir, Svavar Guðjónsson. Hjartans þakklæti til allra þeirra, er sýndu oss samúð og vinarhug við útför föður okkar, GUÐJÓNS EINARSSONAR, prentara. Sjerstaklega viljum við þakka Hinu íslenska prentara- fjelagi, fyrir þann heiður, sem það sýndi hinum látna, með því að kosta útför hans. Ben. G. Waage, Einar G. Waage, Gunnar H. Guðjónsson. Innilegt þakklæti til allra þeirra, er sýnt hafa samúð og vináttu við andlát og jarðarför sonar míns, ÁSGEIRS BÚASONAR. Guðrún Brandsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.