Morgunblaðið - 19.12.1945, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.12.1945, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 19. des. 1945. Enskur Ásókn Framsóknnr Hvar hafa þelr Stálvír V; Benslavír = Lyftuvír f Vantavír, allar stærðir. Vcrðandi h. f. g iMimiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii!!]iiiiiidiimiiininiiiii] nnnmiiimmiimiiHmiiiiiiiimmumimimmimiiiiiD Philips- /> Utvarpstæki 4 lampa, og tveggja manna i svefnottoman, til sölu. Til g sýnis hjá Vjela- og raf- j§ tækjaversl. Heklu, — = __ Tryggvagötu 28. nminimmiiiiiiiiiimiuiniiiiiiumiiinmiuiuiiiniiiiit mnfliumBMBMáMUMMIMgMMBIBMP Tíl sölu 2 djúpir stólar á Hrísateig 35. iiimmmimmiiiuimiiiimmmmummimmmimu ^iiiiuiiiiimiiiimmiiiiiiiimmmimumummiumim Til sölu lýr Hawaii guitar á Há- j irallagötu 44, frá kl. 8—9 j e. h. —mmnuniÉM*i Aflar íslendinga- söprnar ásamt Eddum og Sturlungu ] I.—-IV., í skrautbandi, er til i sölu og sýnis í Fjelagsbók s bandinu. — Verð krónur 9 1000.00. ■aiiBau!iimHUfig«ii«pcaanimmniininiiB aimmmimiiimimmiuiiiiiiiiiiimiimunuuimunm % | | Vasaljós ( I Og | vasaljósn-j | battorí ( |fám & Cjter Lf | | Laugavegi 70. Sími 5362. = mmiimimiiiiiiiiiimiimnmimnimimiumiiiiimiiH jliii!iuiiiiumimiiimii'!iiiiii!iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii llmvötn | Hálsfestar Armbond Garðastr. 2. — Sími 4578. = klimHliraHmnnmurainillinnnnnnnminnffflfc^ Reykvíkingar verða að forða Alþýðuflokknum FLESTIR kannast við söguna af maddömunni, sem ólm vildi ganga að eiga Jónas skáld Hall- grímsson. Blessaða maddömuna hafði dreymt, að skáldið ætti að verða seinni maðurinn sinn. Því miður fjellu þrár skálds- ins ekki saman við drauma maddömunnar, og ljet Jónas sjer fátt um atlot hennar finn- ast. En maddaman gerðist þeim mun aðgangsfrekari og lyktaði þeim viðskiftum svo, að skáldið varð að leita sjer verndar hjá lögreglu höfuðstaðarins. Og misti maddaman þar með af ráðahagnum, sem hana hafði svo fagurlega dreymt fyrir. Draumur Framsóknar. Þessi saga hlýtur að koma manni í hug, þegar hann velt- ir fyrir sjer viðskiftum Fram- sóknar og Alþýðuflokks um þessar mundir. Það er ekki um að villast, að maddömu Fram- sókn hefir dreymt, að Alþýðu- flokkurinj^ ætti eftir að ganga í hjúskap við sig. Þessi hjú hafa að vísu haft sameiginlegt bú áður fyrri, en sá búskapur flosnaði upp. Mest vegna fyrirsjáanlegs bjargar- leysis, eftir margra ára sukk og óspilunarsemi, en síðar einnig vegna ósamlyndis þokkahjú- anna sín á milli. Síðan hefir maddaman að vísu víða komið við, en Ijóst er, að hugur hennar stendur ætíð fyrst og fremst til hins fyrsta elskhuga, Alþýðuflokks- ins. Það er hann, sem hún treyst ir á, og með honum, sem hún vonar að finna jarðneska sælu að lokum. Framsókn fær ekki að vera með. Aldrei hefir þessi ástríða Framsóknar komið berlegar fram en nú í vetur. Lengi vel var í ráði, að Framsókn hefði ekki í kjöri hjer við bæjarstjórn arkosningarnar, heldur reyndi að beina hinum litlu leifum liðs síns yfir á Alþýðuflokkinn og sýndi honum þannig enn einn lítinn vott ástar sinnar og trygðar. En Alþýðuflokkurinn brást illa við og sagði, að litlar væri vonir sínar áður um fylgi með- al Reykvíkinga, en með öllu mundi úti um þær, ef á daginn kæfni, að flokkurinn nyti enn hins sama ástríkis Framsóknar og áður fyrri. Því að þaðan vissu Reykvíkingar sjer æ ills von, sem Framsókn væri. Fyrir þrábeiðni forustumanna Alþýðuflokksins mun Framsókn því horfin frá því að veita flokknum opinberan stuðning, heldur er sagt, að hún hafi nú í ráði að senda sína eigin fram- bjóðendur út á völlinri. í gremju sinni yfir þessu hrygg- broti mun hún meira að segja hafa tekið nokkra af sínum gömlu króum, sem í búi Al- þýðuflokksins voru, með sjer og mun nú hafa í hyggju að koma upp lista hjer í bænurn með þessum óartarbörnum Al- þýðuflokksins. Þykir sú fylk- ing öll heldur ólánleg. Hermann flytur bónorðið. En þó að Framsókn sje þann ig gröm í aðra röndina, þá hef- ir hún ekki látið sjer þetta hryggbrot Alþýðuflokksins eitt nægja. í útvarpsumræðun- um ljet hún sinn aðal fyrirsvars mann, Hermann Jónasson, bera upp formlegt bónorð til Al- þýðuflokksins og lofaði honum gulli og grænum skógum, ef hann vildi nú sýna þá ábyrgð- artilfinningu að skríða upp í gömlu Framsóknar-flatsængina á ný. Alþýðuflokknum mun nú hafa þótt nóg komið. Hann var áður búinn að segja Framsókn, að hann vildi ekki, að hún væri að nálgast sig á mannamótum, hvað sem um dulda vináttu í skúmaskotum kynni að vera. Emil Jónsson synjaði því bón- orðinu og sagði maddömunni hreinlega, að flokkurinn hefði ekki þá reynslu af fyrri sambúð við hana, að líklegt væri, að hann fýsti mjög til að taka hana upp á ný. Að vísu þótti sumum kenna f fi nokkurs fyrirvara í alyktunar- orðum Emils þetta varðandi. Og það mun hafa verið af þeim sökum, sem hinn ráðherra Al- þýðufokksins tók skarið alveg af gagnvart hinni gömlu madd- ömu og eyðilagði með öllu hina fögru hjúskapardrauma henn- ar. — Finnur veifar lögreglu- skýrslunum. Honum fór svipað og skáld- inu forðum. Honum þótti svo mjög fyrir um hjúskaparásókn iná endalausu, að hann tók upp gamlar lögregluskýrslur og leynigögn stjórnarráðsins og ógnaði maddömunni með þeim, ef hún hefði sig ekki hæga. Að vonum brást maddaman hið versta við og hefir nú í grimmilegum heitingum gegn sínum gamla ástmög. Er þó trú manna, að sú heift standi ekki lengi, og er sennilegt, að flokk- urinn sleppi ekki frá þessari leiðu ásókn, fyrr en hann hef- ir mist enn meir af þeim ver- aldargæðum, sem maddaman girnist svo mjög. En það eru kjósendurnir. Á meðan Alþýðu- flokkurinn hefir svo mikið af þeim, að einhver von er til, að Framsókn geti notað þá til að hefja nýjan sukk-búskap, mun hún seint láta Alþýðuflokkinn í friði. Er og viðbúið, að ef flokk •urinn sjer, að jafnvel lögreglu- skýrslurnar nægja ekki til að lama hjúskapar-ákefð maddöm unnar, kunni manndómur hans að bila fyrir ástríðu-þunga maddömunnar. Það er því sannur velgern- ingur við sjálfan hinn hrelda Alþýðuflokk, ef Reykvíkingar sjá til þess, að hann fái nú ekki of marga kjósendur, svo að freistingin hverfi frá maddömu Framsókn. „VIÐ SKULUM EKKI víla bót“ — segja kommúnistar — og bera sig karlmannlega á yf- irborðinu. Þykjast enn hafa vonir um mikinn sigur hjer í Reykjavík í janúar-lokin. En þetta er ekki nema upp- gerð hjá þeim. Því þeir sjá sem er, að þeir geta ekki vænst mikils fylgis. Verkafólk í bænum er að hverfa frá þeim. Treystir ekki á, að kommúnistar geti haldið lífi í atvinnunni. Enda sýnir reynslan, bæði hjer og annars- staðar, að kommúnistum tekst allur atvinnurekstur óhöndug- lega. Þess vegna beita þeir þræla- svipum í „paradís" sinni, skamta kaup úr hnefa og skylda menn til að vinna fyrir þá smán arborgun, sem valdhafarnir á- kveða. Verkafólkið gert að viljalausum vjelum. Sjómenn vilja ekki sjá komm únista. Það hefir nýlega komið á daginn í átökum innan Sjó- mannafjelagsins. Og af 408 atkvæðum í Verka kvennafjelaginu Framsókn fengu kommúnistar 12 atkvæði. Tæplega 3% af fjelagskonum greiddu atkvæði samkv. óskum og fyrirmælum kommúnista. Iðnaðarmenn eru til muna fráhverfari Kommúnistaflokkn um nú, en þeir voru um skeið, verslunarfólk flest vill ekki sjá þá, og mentamenn eru farnir að átta sig á hinu „austræna lýðræði“, svo meðal þeirra fer fylgi kommúnista þverrandi. Það sýna m. a. Stúdentaráðs- kosningarnar í haust. Hvar skyldu kommúnistar hugsa sjer að von sje fyrir þá um vaxandi fylgi? Það er kross gáta, sem hvorki þeir nje aðrir geta ráðið. SNÓT í DAG kom til mín gömul vin kona, vinkona, sem jeg unni meira en nokkru öðru í æsku minni og fram eftir árum, en hefi nú ekki sjeð um langan tíma. Það er ljóðabókin Snót. í æsku minni var hún til á hverju heimili, og fólkið kunni ljóðin, raulaði þau og söng við vinnu og í tómstundum. Jeg hvai-f að heiman nokkru eftir fermingu, og síðan hefi jeg ekki sjeð Snót, en oft saknað hennar. Jeg hefi ekki langt í vana minn að ritdæma bækur. Og ekki á þetta að vera dómur um Snót. Jeg býst líka við því, að þótt jeg segði ekki annað en satt eitt um bókina, þá yrði ein hver til þess að telja það pant- að lof, því að ekki er hægt að segja annað en gott eitt um þá bók. Jeg vildi með línum þessum gera tvennt: Jeg vil þakka þeim mönnum, sem stóðu að útgáf- unni, og jeg vil í einlægni benda því fólki, sem vill gefa ungum eða gömlum jólagjöf, á það, að Snót var sú bókin sem öllum þótti vænst um, og svo mun enn verða. Sigurður Jónsson. •’-msii. .:n;”umr New YORK: I Southbury í Bandaríkjunum var maður nokkur að nafni Laboudy að fara í skyrtu. Skyrtan veitti svo harða mótspyrnu að eigandinn fór úr axlarliðnum. iLiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiHtiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiimi^! 2 djúpir (Stólar 5E am s og barnarúm til sölu á B Klapparstíg 4. iiÍiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiuuiiiimmiuiuimmiM iiniiiiiiiiiiiiHiiiiiiuiim>imiiii]iiiiiiiiiiiiiniliiiiniiiiiu| j Barnabuxur | ! Silkisokkar og fl. nýkomið = == E5j Verslun G. Zoega = ’iiniiiiuiiiimimmmwiHiiimiiniimniimiBHUHitH? iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiimiiiiimmiiiiiiiiiiiniiiiinfi Kjólföt f Vetrarfrakkar Smoking. 1 Verslunin Laugavegi 76. § E ~ miiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiu E.s. „Aime“ fer hjeðari um 28.—29. desem- ber til Kaupmannahafnar og Gautaborgar og hleður þar um miðjan janúar. — Vörur hjeðan óskast tilkynntar aðalskrifstofu vorri sem fyrst. Vörur frá Kaup mannahöfn óskast tilkynntar; skrifstofu vorri þar: H. f. Eim- skipaf jelag íslands Ekspedition, Strandgade 25, Köbcnhavn. — Vörur frá Gautaborg óskast til kynntar umboðsmönnum vor- um þar: Otto Zell A/B, Pack- husplatsen 4, Göteborg. BEST AÐ AUGLÝSA í MORGUNBLAÐINU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.