Morgunblaðið - 19.12.1945, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 19.12.1945, Blaðsíða 16
VEÐURUTLITIÐ. Faxaflói: NA-stormur. Urkomulaust. Hiti um frostmark. TITO MARSKÁLKUR, einvald- ur í Jugoslaviu — sjá grein á bls. 9. IvTiðv ikudagur 19. desember 1945. Hvað var á ferð yfir Akranesif í FYRRAKVÖLD klukkan tæplega fimm sáu menn á Akra nesi hvar ferlíki eitt, líkast flug vjel, flaug yfir bæinn, og stóð eldsúla úr afturenda þess. Menn þessir voru staddir á Suðurgötu er þeir alt í einu sáu hvar loftfar eitt, sem þeir halda ákveðið fram að hafi verið flug vjel, sveif í boga yfir húsunum. Það fór ekki mjög hratt. Menn þessir sáu hvar það hvarf á bak við húsin og stefndi þá mjög lágt til vesturs. — Ekki sáu þeir frekar til ferðar loftfars þessa. Þóttust menn vita fyrir víst, að það hefði stungist í sjóinn. Var farið á bát þangað sem tal- ið var að það hefði stungist. — Var á þessum slóðum nokkurn tíma, en leitarmenn urðu eins- kis varir. Samningaumleifanir í (hungking London í gærkveldi: Fulltrúar frá kommúnistum í Norðvestur-Kína eru nú komn ir til Chungking þeirra erinda að semja við stjórnina þar um það, hvort ekki megi takast að koma á friði í norður-hluta landsins, en þar berjast stjórn arhermenn og kommúnistar stöðugt. Stjórnin í Chungking kvaddi fulltrúa þessá til borgar innar, og halda frjettaritarar þar, að vel geti komið til mála, að samningar takist um að koma á friði, að minsta kosti vopnahljei. — Reuter. Eldur í Iv. ÓlaSi Bjamasyn! í NÓTT sem leið kom upp eld ur í lv. Ólafur Bjarnason, frá Akranesi. — Eldurinn kviknaði í hálmdýnu í rúmi skipstjóra. Er hann varð þess var fleygði hann dýnunni út um gluggann út á þilfarið. — Logaði hún þar. Varðmaður á síldveiðiskipinu Fanney sá hvar eldur logaði á þilfari skipsins. Brá hann því fljótlega við, með handslökkvi- tæki. — Hafði honum nær tek- ist að slökkva eldinn, er slökkvi liðið kom á vettvang. x Skemmdir urðu litlar. onmimiiZ' li*1" NEW YORK: Doolittle flug- foringi, sem fyrstur stjórnaði lofíárás á Tokio, hefir nú lagt einkennisbúninginn til hliðar og er farinn að vinna hjá hinu mikla olíufjelagi Shell. — Mun hann verða háttsettur þar. ) é SiglufirSi Frá frjettaritara vorum á Siglufirði, þriðjudag.' í GÆRMORGUN kom upp eldur í húsinu Suðurgata 70, sem er einlyft timburhús í smíð um. — Húsið brann alt að inn- an, svo aðeins hanga uppi út- veggir þess. Eldsins var fyrst vart um fótaferðatíma. Var húsið þá orð ið alelda. — Var slökkviliðinu þegar gert aðvart og var það að mestu brunnið, er það kom á vettvang. í gærdag var verið að vinna við húsið; — Rafmagnsofn var þar og er talið að kviknað hafi í út frá honum, því þar sem hann stóð, var mest brunnið. — Ekki voru önnur hitunartæki í húsinu, og það mannlaust. Eigandi þess var Jóhannes Hjálmarsson, verkamaður. —- Ætlaði hann að flytja í húsið á næstunni. — Hann hefir beðið mikið tjón, því alt efni til að fullgera húsið brann. — Það vátryggt, eins og það stóð, fyrir fjörutíu þúsund krónur. Lokaumræða fjárlaganna: Fjármálaráðherrann aðvarar Alþingi Veðursfofan flyfur í Sjómannaskólann VEÐURSTOFAN er nú að flytja úr hjsakynnum sínum í Landsímahúsinu. — Hún verður flutt upp í hinn nýja Sjómanna skóla. — Fær Veðurstofan þar ti umráða 10 herbergi í fyrstu hæð, í austurálmu. I Landsímahúsinu hafði stof- an aðeins til umráða 2 herbergi og önnur tvö er voru mjög lítil. JETlorgtTribla&tð AÐ GEFNU tilefni skal athygli manna vakin á því að Morgunblaðið kemur ekki út á aðfangadag jóla, sem nú ber upp á mánu- dag. — Síðasta blað fyrir jól kemur sunnudaginn 23. desember. — Krisiján S. Sigurðs- son á Akureyri sjöfugur Frá frjettaritara vorum á Akureyri. Kristján S. Sigurðgson, trje- smíðameistari, Brekkugötu 5 á Akureyri er 70 ára í dag. Hann er fæddur 19. des. 1875 í Bárðar dal. — Foreldrar hans voru Sigurður Jónsson og Sigríður Halldórsdóttir kona hans. Kristján lærði trjesmíði hjá Snorra Jónssyni á Akureyri, og vann eftir það að iðn sinni á ýmsum stöðum á landinu. — Hann fluttist til Akureyrar 1915, en fór sama ár til Osló og lærði þar skíðasmíði. Flutt- ist hann síðan aftur heim til Tslands og átti í nokkur ár heima í Glæsibæjarhreppi í Eyjafjarðarsýslu, en hefir síðan 1934 átt heima á Akureyri og stundað þar trjesmíði, aðallega verkstæðisvinnu. Kristján hefir verið formað- ur sóknarnefndar Akureyri í mörg ár og er kirkjuvörður. — Hann hefir um langt skeið tek- ið mikinn þátt í ýmsum fjelags störfum á Akureyri og rækt þau öll með trúmennsku og hagsýni. Kona hans var Guðríður Jósefs dóttir ‘ frá Finnastöðum á Skagaströnd. Hún andaðist árið 1923. ÞRIÐJA umræða fjárlaganna hófst í gær. Stóð hún allan dag- inn og langt fram á nótt. ] Auk breytingatillagna fjár- veitinganefndar, sem að vísu voru. ekki margar, en hækka þó ^ útgjöldin um nál 3 milj. kr., í lá fyrir fjöldi tillagna frá ein- stökum þingmönnum, sem all- ar fóru fram á aukin útgjöld ríkissjóðs. Ræða fjármálaráðherra. Seint í gærkvöldi kvaddi fjár j málaráðherra, Pjetur Magnús- son, sjer hljóðs. j Ráðherrann gat þess í upp- hafi ræðu sinnar. að hann hefði í fundarhljeinu (kvöldverðar) lauslega reiknað út, hverju framkomnar hækkunartillögur I þingmanna næmu og taldist það vera nál. 6 milj. Síðan hefðu bætst við mangar till., er vafa- laust næmu miljónum króna. Þingmenn hefðu nú flestir talað fyrir brtt. sínum — en þær væru aðallega um aukið framlag til vega og brúa — og þeir hefðu fært ágæt rök fyrir nauðsyn framkvæmdanna. En hitt væri jafnljóst, að ekki væri unt að leggja alla vegi og byggja allar brýr á íslandi á einu ári. Vegamálastjóri og fjárveitinganefnd hefðu gert tillögur um þessar framgvæmd ir á næsta ári og þar væri vissu lega fremur of langt gengið en of skamt, bæði þegar tillit væri tekið til möguleikanna til þess að vinná þéssi verk (vinnuafl- ið) og einnig til getu ríkissjóðs til að rísa undir þeim. Þessu næst mintist fjármála- ráðherra á nokkrar brtt. frá einstökum þingmönnum, er hann taldi að ekki ættu fram að ganga. Voru það tillögur um víðtækar ábyrgðarheimildir. Samgöngumál Sunnlendinga. Þá fór ráðherrann nokkrum orðum um brtt. um 3.7 milj. kr. (1. greiðsla af sex) til Suður- landsvegar. Sagði ráðherra í sambandi við þessa tillögu, að búið væri að verja milj. króna til Krýsuvíkurvegar. Kvaðst ráðherra aldrei hafa haft trú á, að samgöngumál Sunnlend- inga yrði leyst með þesbum vegi, og kraðst 4 sínum tíma hafa borið fram á Alþingi til- lögu um fjárveitingu til hins vegarins, um Þrengslin, en Al- þingi ekki á það fallist, en lagt í þess stað frani fje til Krýsu- víkurvegar. Nú væru ólagðir 30—40 km. af þessum vegi. Sjálfsagt væri að Ijúka hon- um, enda þótt það kostaði tals- vert fje. Öll skynsamleg rök mæltu með því, að ljúka þess- um vegi áður en. byrjað væri á hinum nýja vegi um Þrengsl- in. Því að ef reynslan yrði sú, að Krýsuvíkurvegurinn hjeldi vetrarsamgöngum opnum, þyrfti ekki að hraða hinum Gálausleg afgreiðsla fjárlaganna veginum svo mjóg sem nu er ráðgert. En um hitt kvaðst ráð- herrann ekki vera í vafa, að framtíðar samgönguleiðin yrði um Þrengslin. Aðvörun til þingmanna. Þessu næst ræddi fjármála- ráðherra afgreiðslu fjárlaganna almennt. Hann sagði m. a.: Jeg býst við að flestum þing- mönnum sje ljóst, hver útkom- an er orðin á fjárlögunum. Ef tillögur fjárveitinganefndar verða samþyktar mun rekstr- arhallinn verða nálægt 3.5 milj. k»- og greiðsluhallinn um 15 milj. kr. Bætist svo þar á ofan eitthvað af till. einstakra þing- manna (3—5 milj. kr.), þá nálg ast greiðsluhallinn 20 milj. króna. Um það geta ekki verið skift ar skoðanir, að þetta er ekki varfærin afgreiðsla fjárlaga. Og hún er ekki varfærnari fyr- ir það, að nú síðustu dagana hafa borist þær fregnir, að, hætta kunni vera á því, að erfiðlega gangi með sölu fisk- framleiðslu okkar. Það er að vísu ekki unt að miða fjárlög- in við þær fregnir, því að ef svo reyndist, þá væri búið að reisa stórhýsi á sandi, sem hlyti að hrynja. Þessvegna verður að að vona, að framleiðslan hald- ist á næsta ári. Hinsvegar liggur sú stað- reynd fyrir, að á fjárlögum verða um 30 milj. króna fram- lög til ýmiskonar framkvæmda, auk margháttaðra framkvæmda einstaklinga, bæjar- og sveitar fjelaga; er vissulega ástæða fyr ir Alþingi að stinga við fótum. Jeg sje gkki, að það sje með nokkru móti verjandi, að vera að hlaupa í kapp við framleiðsl una um vinnuaflið. — Komi í ljós, að skortur verði á vinnu- afli, tel jeg nauðsynfegt, . —• i hvað sem fjárhag ríkissjóðs líð ur — að stjórnin fái heimild til að draga úr framkvæmdum. Sú afgreiðsla, sem nú er á fjárlögunum væri óverjandi, e£ árið sem er að líða kæmi ekki út með verulegum tekjuafgangi og talsverðum greiðsluafgangi. Og þetta er hið eina sem afsak- ar það, að tekið er við slíkum fjárlögum. Ef þetta væri ckki, myndi jeg ekki taka við fjárlög unum. En hvorttveggja er, að ekki er enn fullvíst um afkomu þéssa árs og ekki vitað hvernig tekj- ur næsta árs reynast má ekki mikið út af bera til þess að illa fari. Af þessu tel jeg ekki annað forsvaranlegt en að veita stjórn inni heimild til lántöku. Að lokum bar fjármálaráð- herra fram svohlj. brtt. við 22. gr. (heimildargr.) fjárlaganna: Ríkisstjórninni er heimilað: „Að draga úr framlögum til verklegra framkvæmda, sem ekki eru bundin í öðrum lögum en fjárlögum, um alt að 30%, eftir jöfnum hlutföllum, að þvi er við verður komið, svo fram- arlega sem ríkisstjórnin telur, að vinnuafl dragist um of frá framleiðslustörfum. Telji stjórn in hinsvegar, að ekki sje á- stæða til að draga úr fram- kvæmdum, skal henni heim- ilt að taka innanlands lán, alt að 15 milj. kr., ef tekjur rík- issjóðs hrökkva ekki fyrir gjöldum“. Atkvæðagreiðsla um fjárlög- in fer fram í dag. Bæ ja rsfjérsi a rko sn ingarnar Frá SjálfstæðisMknum Sjálfstæðismenn — konur og karlar! Skrifstofur Sjálfstæðisflokksins í Thorvaldsensstræti 2 — sími 2339 og 3315 — veita allar upplýsingar í sambandi við bæjarstjórnarkosningarnar. Eruð þið á kjörskrá? Eru líkur til að þið hafið fallið niður af kjörskrá vegna fjarveru? Spyrjist fyrir í skrifstofu flokksins eða í síma. Leitið aðstoðar í skrifstofu Sjálfstæðisflokksins með að kæra inn á kjörskrá, ef mcð þarf. Veitið skrifstofu Sjáifstæðisflokksins þær upplýsingar, sem að haldi mættu verða við undirhúning kosninganna. SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.