Morgunblaðið - 28.12.1945, Blaðsíða 1
mmm ihyriiír í siíijr yið hOfimiixia
Mynd í bragganum, þar sem lí k Kristjáns Guðjónssonar fanst í fyrrinótt. Örin bendir á þann
stað, þar sem líkið á. Hefir verið stráð sagi á gólf braggans, þar sem blóðið var. Það eina,
sem var inni í bragganum, voru borð þau, sem sjást á myndinui. Víraflækjurnar á borðinu
eru gamlar rafleiðslur. — Ljósm. Mbl. Friðrik Clausen.
Samkomulag náðist um
mörg mikilvæg mál
Árangursríkum utan-
ríkisráðherrafundi
lokið
LONDON í gærkvöldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá REUTER.
UTANRÍKISRÁÐHERRAFUNDINUM í Moskva er
lokið. Tilkynning, 5000 orð, um störf fundarins og sam-
þyktir, hefur verið birt samtímis í London, Washington
og Moskva. Gert er ráð fyrir því, að sett verði á stofn
sjerstök kjarnorkumálanefnd, sem starfi innan vjebanda
bandalags sameinuðu þjóðanna. Ennfremur, að stofnuð
verði Austur-Asíunefnd, sem hafi það hlutverk að endur-
skipuleggja hernám og eftirlit í Japan. Þá er ráðgert að
viðurkenna Koreu sjálfstætt ríki og ennfremur, að Bretar
og Bandaríkjamenn viðurkenni ríkisstjórnir Rúmeníu og
Búlgaríu.
Kjarnorkumálanefnd.
Tilkynningunni er skift í 8
kafla, og fjallar hinn síðasti um
fyrirhugaða k j arnorkumála-
nefnd. Öðrum meðlimum í ör-
yggisráði bandalags sameinuðu
þjóðanna, Frökkum og Kínverj
um, verður boðið, þegar banda-
lagið kemur saman á fyrsta
fund sinn í janúaimánuði næst-
komandi, að hefja með Rússum,
Bretum og Bandaríkjamönnum
undirbúning að stofnun nefnd-
Eramh. á 2. síðu
Sáilaumleifanir
í (hunking
London í gærkvöldi.
ÞÆR FREGNIR hafa borist
frá Chungking, að fulltrúar
kommúnista og kínversku
stjórnarinnar sitji nú á fundum
til þess að ræða möguleika á
því, að borgarastyrjöldinni, sem
geisað hefir í landinu um hríð,
verði hætt.
Japanskir hershöfð-
ingjar dæmdir
í Singapore
Singapore í gærkvöldi.
í JANÚARMÁNUÐI hefjast
í Singapore rjettarhöld í mál-
um nokkurra japanskra hers-
höfðingja, þar á rneðal Animura
hershöfðingja, sem hafði yfir-
umsjón með stríðsföngum í
Malajalöndum. — Yamashita,
yfirhershöfðingi Japana á Fil-
ippseyjum, hefðL einnig verið
dæmdur í Singapore, ef her-
rjettur í Manilla hefði ekki þeg
ar dæmt hann til dauða fyrir
grimdarverk á Filippseyjum. —
Frakkar vilja íhhit-
un um Balkanmál
París í gærkvöldi.
FRANSKI utanríkisráðherr-
ann hefir lýst því yfir, að
franska stjórnin muni krefjast
þess að fá fulltrúa á allar þær
ráðstefnur bandamanna, þar
sem málefni Balkanlandanna
verða rædd. Talið er, að yfir-
lýsing þessi hafi verið út gefin
vegna ákvarðana þeirra, sem
teknar voru á fundi utanríkis-
ráðherranna varðandi málefni
Búlgaríu og Rúmeníu.
Lík Kristjáns Guðjóns-
sonar prentara fanst
illa leikið í auðum
bragga
Lögreglan leitar
morðingjans
HRYLLILEGT MORÐ var framið hjer í bænum á ann-
an jóladag. Um miðnætti í fyrrinótt fannst, af tilviljun,
lik Kristjáns Guðjónssonar prentara í opnum og auðum
bermannaskúr niður við höfn. Yoru miklir áverkar á
höfði líksins. Það hafði verið fært úr yfirfrakka og jakka
og merki sáust um að leitað hefði verið í vösum. Ekki var
Kristján þó með neitt fjemætt á sjer.
Til þessa er það eitt vitað um férðir Kristjáns heitins þenna
dag, að hann fór að heiman frá sjer, Traðarkotssundi 3, klukkan
um 3 e. h. og að síðast varð hans vart á heimili kunningja hans
klukkan um 4,30. Líkið fannst í bragganum um miðnætti og
var það þá stirðnað og kalt. Er ekki hægt að segja með neinni
vissu, hvenær hann hefir dáið, en það hefir verið einhvern tíma
eftir klukkan fimm.
Seint í gærkvöldi hafði lögreglunni ekki tekist að fá neinar
þær upplýsingar, sem gætu bent til þess hver morðinginn er.
En hitt þykir líklegt, að morðinginn muni hafa ætlað að ræna
Kristján, eða að morðið hafi verið framið í einhverju æði.
Rannsóknarlögreglan hefir óskað eftir samvinnu amerísku og
bresku lögreglunnar við rannsókn þessa morðmáls.
Kristján Guðjónsson.
Fulllrúar Hollend-
inga ræða við
Altlee
London í gærkvöldi.
FULLTRÚAR hollensku
stjórnarinnar, sem nýkomnir
eru til London til viðræðrta við
bresku stjórnina um Indonesíu-
mál, ræddu í dag við Attlee for
sætisráðherra Breta. Sendi-
nefndin er undir forustu for-
sætisráðherra Hollands.
Líkið finst.
Það var klukkan 12.15 eftir
miðnætti í fyrranótt, að maður
nokkur kom á lögreglustöðina
og tilkynti, að hann hefði fund
ið lík af manni í auðum og opn
um hermannaskúr niður við
höfn. Hann kvaðst hafa farið
inn í skúr þenna af tilviljun og
kveikt á eldspítu, og sá hann
þá líkið. Rannsóknarlögreglan
fór þá þegar á staðinn ásamt
hjeraðslækni.
Braggi sá, sem líkið var í, er
einn af fimm bröggum, sem
reistir voru styrjaldarárin í svo
nefndu saltporti, sem Kveldúlf
ur á. Er port þetta beint á móti
Sænska frystihúsinu. Snýr
bragginn frá austri til vesturs.
Onnur hlið braggans er að
mestu opin. Inni í bragganum
hagar svo til, að þar eru borð
meðfram endilöngum hliðum
hans og ennfremur fyrir end-
anum, sem veit móti vestri.
Þar inst inni lá lík Kristjáns
á bakinu. Það hafði verið klætt
úr yfirfrakka og jakka og lágu
þeir framarlega á borðinu í
bragganum, hægra megin, þeg-
ar komið er inn.
Sleginn með barefli.
Kristján heitinn hafði fengið
Framh. á 12. síðu.