Morgunblaðið - 05.01.1946, Page 1

Morgunblaðið - 05.01.1946, Page 1
33. árgangur. 3. tbl. — Laugardagur 5. janúar 1946 ísafoldarprentsmiðja h.f. Morgan hershöfð- ingi verður að víkja Vegna ummæla sinna um Gyðinga London í gærkveldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. YFIRSTJÓRN UNRRA hefir tilkynt, að hún verði að segja Morgan hershöfðingja, eftirlitsmanni sínum á hernámssvæði Bandaríkjamanna í Þýskalandi, upp stöðu sinni, vegna ummæla þeirra, er hann ljet falla í viðtali við blaðamenn á dögunum, um það, að mikið af auðugum og vel búnum Gyðingum streymdi nú austan úr Póllandi, vestur á hernámssvæði Bandaríkjamanna a Þýskalandi, með það fyrir augum, að komast þurtu úr Evrópu. Þessi ummæli hershöfðingjans vöktu feikna eftirtekt, ekki síst vegna þess, að hann fullyrti að leynifjelagsskapur Gyðinga stæði þarna á bak við. Flugvjel bjargaðl skipstjóranum ÞEGAR skipið, sem hjer sjest á myndinni, strandaði, björg- uðust allir nema skipstjórinn, vegna þess að skyndilega brimaði svo, að bátar komust ekki út að flakinu. Skipstjóranum varð samt bjargað, og gerði það Helicopterflugvjelin, sem sjest hjer á myndinni vera að taka skipstjórann frá borði. Góðar horfur um sam- komulag í Kína Marshall er að miðla málum London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. GÓÐAR íIORPUR eru nú taídar á því. að samkomulag ná- ist í deilu Chungkingstjórnarinnar og kommúnista í Kína. Marshall hershöt'ðingi, hinn nýji sendiherra Bandaríkja- manna í Chungking, hefir boðist til þess að miðla málum, og hafa báðir 'aðilar tekið þessu tilboði vel. llafa samninga- nefndirnar þegar setið á fundum ásamt með Marshall. Frakkar svara slór- veldunum jrrem London í gærkveldi: FRAKKAR hafa sent stór- veldunum þrem, Bretum, Banda ríkjamönnum og Rússum orð- sendingu í tilefni af ráðstefn- unni í Moskva, og því, sem þar 1 gerðist, og leggja fram nokkrar spurningar. Spyrja þeir fyrst um það, hvernig verða skuli í framtiðinni með hina fimm utanríkistráðherra, sem sam- þykkt var á ráðstefnunni í Potsdam, að skyldu koma sam- an með vissu millibili, en ráð herrarnir sem saman komu í Moskva hefðu aðeins verið þrír. Þá segjast Frakkar hafa áhuga á friðarsamningum, sem gerð- ir verði við allar fylgiþjóðir Þjóðverja í styrjöldinni, og vilja vita sem gerst um þá. Enn- fremur krefjist þeir þess, að þótt rætt verði við Balkanþjóð irnar um friðarsamninga, þá verði alls ekki samið neitt við Þjóðverja. — Reuter. Má ekki kenna sögu Japana LONDON: Mac Arthur hers Ihöfðingi hefir lagt bann við því, að kend sje saga Japana, landafræði Japans og japansk ar siðareglur í skólum lands- ins. Munu aðrar námsgreinar verða settar í stað þessarra. .Hershöfðinginn segir, að þetta sje gert, til þess að leggja grundvöllinn að lýð- ræði. — Pregnritarar herma, að fólki hafi brugðið ákaf- lega, þegar keisarinn lýsti því yfir á dögunum, að hann væri ekki af guðlegum uppruna. þiagði hann að þetta hefði Iraft svipuð áhrif á þjóðina og það hefði á kristna þjóð, að maður, sem hún tryði al- gerlega, lýsti því yfir við Iiana, að Kristur hefði aldrei verið til, og alt væri blekk- jng, sem um hamy hefði ver- ið kent. — Reuter. Sprengja veldur Ijóni í London London í gærkveldi: SPRENGJA, sem legið hefir í jörðu í fimm ár, eftir að henni var varpað úr þýskri flugvjel, hefir valdið skemmdum á mörg um húsum í Eastbourne. Verið var að grafa fyrir húsgrunni, er sprengjunnar varð vart. — Varð fólk svo hrætt, að það flutti úr mörgum húsum í grendinni. Síðan voru fengnir menn úr verkfræðingasveitum hersins, til þess að eyðileggja sprengjuna. Er þeir sprengdu hana, brotnuðu allir gluggar í húsum ömhverfis, og þök fuku af sumum. Ekkert manntjón varð af sprengingunni. —- Sprengja þessi var -500 kg. að þyngd. — Reuter. Bardagar minka í Jehol. I hjeraðinu Jehol, þar sem all-hatrammir bardagar hafa átt sjer stað að undanförnu, hefir nú færst kyrð yfir aft- ur, og telja sumir frjettarit- arar, að vopnahlje muni verða samið innan mjög skamms tíma. Annarstaðar í Norður- Kína, eru bardagar svo að. segja engir, en þó hefir sums- sjtaðar þar komið til lítilfjör- legra átaka, en báðir aðilar virðast reyna að hafa hemil á mönnum sínum. Bandaríkjalið á brott. Talið er að 5500 manna lið Bandaríkjamanna, sem nú er í Norður-Kína, muni bráðlega fara þaðan á burtu með alt sitt. Munu brottflutningar þessir hefjást einhvern næstu daga. — Kommúnistar krefj- ast þess í samningunum í Chungking, að stjórnin þar hætti þeirri einangrun Norð- ur-Ivína, sem verið hefir að undanförnu. Þýska hersljórnin ákærð í Nurnberg London í gærkveldi: í DAG hófust ákærur gegn þýsku herstjórninni og þýska herforingjaráðinu fyrir rjettin- um í Núrnberg. Var herstjórn ákærð fyi-ir að hafa verið verk færi nasista, fyrir að hafa brot ið alþjóðalög og búist til styrj- aldar. Herforingjaráðið var ákært fyrir ýmsar svipaðar sakir. — Hess hefir ekki ritað neitt hjá sjer í rjettinum fyrr en í dag. Keitel og Jodel fylgdust af at- hygli með því sem fram fór. — Herstjórnin var meðal annars ákærð fyrir það, að hafa undir búið loftárásir á Bretland árið 1939. — Reuter. Frakkar taka við námum í Saar London í gærkveldU KÖNIG hershöfðingi, yfirmað ur franska hersins í Þýska- landi, hefir tilkynnt, að Frakk ar muni taka við öllum kola- námum í Saarhjeraðinu, en þar er unnið mjög mikið af kolum. Munu Frakkar fá mest af þeim, en nokkuð renna til sameigin- legra kolabirgða bandamanna. Ejns og menn muna, höfðu Frakkar lengi vel Saarhjerað- ið eftir fyrri heimsstyrjöld, en árið 1935 samþykktu íbúar hjer aðsins næstum einróma að hjer aðið skyldi aftur tengjast Þýskalandi. — Reuter. Bændur og frjáls- lyndir fá sæti í Rúmeníustjórn London í gærkveldi: SAMKVÆMT samkomulagi, sem varð á fundi utanríkisráð- herranna í Moskva á dögunum, munu nú stjórnarandstöðuflokk arnir tveir í-Rúmeníu, Bænda- flokkurinn og Frjálslyndi flokk urinn fá ráðherra inn í stjórn- ina. Hafa miklar umræður orð ið um þessi mál í Bukarest milli stjórnarinnar og nefndar þeirr ar frá bandamönnum, sem þang að fór, til þess að athuga stjórn arfarið. Stjórnin vill ekki að for- menn flokka þeirra, sem áður eru nefndir, taki sæti í stjórn- inni, heldur varaformennirnir. Stendur nú í nokkru stappi um þetta, og eru miklir fundir haldnir. — Sendinefndin hefir rætt við Mikael konung um þessi mál. — Reuter. Vörusýning í Ankara LONDON: Nýlega hefir verið opnuð í Ankara, höfuð- borg Tyrklands, sýning á! breskum vörum og hefir orð- ið mjög fjölsótt. Úmmæli Morgans. Morgan hershöfðingi fullyrti það við blaðamennina, að mik- il brögð hefðu verið að því upp á síðkastið, að heilir hópar af vel búnum og vel útlítandi Gyð ingum kæmu á hernámssvæði Bandaríkjamanna austan að, aðallega frá Póllándi. — Kvaðst hann hafa sannanir _ fyrir því, að á bak við þetta stæði leyni- fjelagsskapur, og hefði fólk þetta í hyggju að reyna að kom ast burt úr Evrópu. Alla þessa Gyðinga kvað Morgan hafa næga peninga og ekki skorta neitt af neinu. Gyðingar bregðast reiðir við. Ekki hafði fregnin um þetta fyrr borist út, en Gyðingar í ýmsum áttum, sjerstaklega í London, tóku að mótmæla harð lega. Töldu þeir að þetta væri alger uppspuni frá rótum. — Á- rangur þessarra mótmæla hefir nú orðið sá, að UNRRA hefir sagt Morgan upp stöðu sinni, með þeim forsendum, ,,að áhrif yfirlýsingar hans við blaða- mennina hafi gert ómögulegt að hafa hann lengur í stöðunni. Kveðst stjórn UNRRA þó harma að þurfa að taka þetta skref, því Morgan hafi verið dugandi starfsmaður. Ætlar ekki að segja af sjer. Sá kvittur hafði komið upp, áður en stjórn UNRRA lýsti yf- ir að hún myndi reka Morgan, að hann myndi segja af sjer. Var hann spurður að þessu, en neitaði, og sagðist ekkert hafa sagt, nema það sem satt væri, og enga ástæðu sjá til þess að segja af sjer. Hann sagði einn- ig, að Gyðingavandamálin í Ev rópu væru ekki nema örlítið brot af öðrum vandamálum, er leysa þyrfti, svo mjög sem hung ur og neyð syrfu nú að víðsveg ar á meginlandi álfunnar. Húsnæðisyandræði NEW YORK: Fjölskylda, sem flutti til borgarinnar Akron varð að reka gaggandi hænsni út úr eina húsinu, sem hún gat leigt í borginni. — Það var hæsnahús.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.