Morgunblaðið - 17.01.1946, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 17.01.1946, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Fimtudagur 17. jan. 1946 Framsókn er íylgislaus í Reykjavík Starfsmannafél. Rvk. er 20 ára í dag Af ýmsu fráleitu, sem fram hefir komið í kosninga baráttunni, eru einna frá- leitastar yfirlýsingar Fram- sóknarmanna um að þeir muni geta fengið hjer mann kjörinn. Á meðan Framsóknar- menn enn höfðu mikilhæfa forustumenn tókst þeim í upphafi, er þeir hófu afskifti af bæjarmálum Reykjavík- ur að fá menn kosna. En eftir því sem menn kyntust flokkinum betur fór fylgi hans minkandi hjer í Reykjavík. Þannig að fvrst misti hann helming af full- trúum sínum og síðan fjekk hann engan kosinn. Var þó veldissól Framsóknarmanna ennþá hátt á lofti ý942, og vald þeirra yfir flbkksmönh um þeirra hjer í bænum býsna mikið. Framsókn afturhaldssam- asti flokkur, sem hefir starfað á íslandi. Síðan hefir alt gengið þess um flokki til óþurftar. Hann hefir mist völdin í landinu og sýnt sig að vera hinn mesta afturhaldsflokk, sem hjer á landi hefir starfað. Hann einn skarst ur leik, þegar aðrir flokkar sáu og skildu nauðsyn þess að taka varð saman höndum til þess að tryggja velferð landsins og búa svo í haginn, að at- vinnulífi yrði borgið eftir ófriðinn. Og síðan hefir hann haldið hatrömum árás- um uppi gegn hinum vin- sælu nýsköpunaráformum ríkisstjórnarinnar. Á Alþingi legst þessi flokkur yfirleitt á móti öll- um málum, sem Reykjavík eru til góðs. Á málfundum úti á landi er höfuðverkefni hans að rógbera Revkjavík og í málgögnum hans birt- ist sí og æ skætingur og skammir til höfuðstaðarbúa. Framsókn er á móti bygg- iwgum í Reykjavík. Frá fyrri árum minnast Reykvíkingar þess, hvernig Eysteinn Jónsson beitti inn- flutningshöftunum til þess að koma í veg fyrir að Reyk- víkingar gætu bygt einsjmik ið af íbúðarhúsum og hugur þeirra og geta stóð til. Þess- ari sömu stefnu er enn hald- ið óbreyttri. Það hefir komið fram í Tímanum að byggingar yrði að stöðva hjer í Reykja vík og standa að öðru leyti á móti framförum borgur- unum/til góðs, vegna þess ef svo væti fram haldið sem gert hefir verið, mundi af- leiðingin verða sú, að fólk- ið flýði til Reykjavíkur hvaðanæfa af landinu. Þess vegna yrði að stöðva fram- kvæmdir íhaldsins í Reykja- vík til þess að jafna þannig metin. Þessum sömu skoð- unum halda Framsóknar- menn fram á almennum fundum; þar sem þeir geta komist höndum undir. Reynir að gera komm- únistum það gagn sem hún getur Framsókn vanrækti að útvega vjelar í Mjólkurstöðina. Athafnageta Framsóknar- manna hefir glögglega sýnt sig í framkvæmdum mjólk- urmálsins, þar sem nú er sannað, að fyrir vanhirðu þeirra hefir árum saman dregist að koma hjer upp sæmilegri mjólkurstöð. Þó að þeir beri fyrir sig erfið- leika af völdum ófriðarins, þá eru það tylli-ástæður ein- ar. Ef vel hefði verið á hald ið, hefði verið hægt að út- vega mjólkurvjelarnar í Ameríku á sama tíma eins og ýms önnur tæki til fram- fara hjer í bæ voru þar út- veguð. Alt er því á sömu bókina lært. hjá þessum flokki varð andí skifti hans af málefn- um Reykvíkinga. Fólkið flýr undan áhrifum Framsóknar úti á landi. Nú er sagt, að Framsókn setji vonir sínar til þeirra manna, sem nýkomnir eru í bæinn, og telji sig hafa slæðing af fylgi þeirra, svo þess vegna sje ekki með öllu útilokað, að hún fái mann kosinn. Meiri fjarstæðu er vart hægt að hugsa sjer, því að einmitt þeir menn, sem ný- lega eru fluttir utan af landi, hafa flæmst þaðan sökum þess að vald Framsóknar- manna úti um bygðir lands ins torveldar þar eðlilegar framkvæmdir og er þrö- skuldur í vegi fyrir heil- brigðu athafnalífi. Engir hafa þess vegna fundið sár- ar til óstjórnar Framsóknar heldur en einmitt þessir menn. Engir eiga þeim grárra að gjalda en þeir. Og engir eru ólíklegri til fylgis við hana en þeir. Nú eru þeir komnir hingað og eiga alt sitt undir eðlilegri framþró— un Reykjavíkur, og þá stuðla þeir vitanlega að því, að sú framþróun geti orðið í samræmi við þá farsælu stefnu, sem hjer hefir ráðið á undanförnum árum undir stjórn Sjálfstæðismanna. Framsókn vinnur með kommúnistum. Ef svo illa færi, að Fram- sóknarflokkurinn fengi mann kosinn, og kæmist í meiri hluta ásamt hinum rauðu flokkunum, sem vissu lega verður ekki, myndi það verða til þess að allsherjar- glundroði og upplausn kæm ist á í bæjarmálefnum Reykjavíkur. Því að hver hefir tru á því, áð sk'apleg stjórn geti átt s.jer stað hjer í bænum undir sameigin- legri forustu Framsóknar, Alþýðuflokks og kommún- ista? Eina vonin, sem Fram- sóknarmenn hefðu til að hafa einhver áhrif í bæjar- málefnum Reykjavíkur, væri sú, ef kommúnistar leyfðu þeim að styðja síná stjórn-og kjósa sinn borgar- stjóra, Pálmi Hannesson er einmitt einn af þeim Fram- sóknarmönnum, sem ætíð hafa verið hlyntir kommún- isturn, svo sem glögglega kom í ljós við hneykslismál Björns Franzsonar í útvarp- inu í vetur. Þegar Pálmi Hannesson var sá eini af fulltrúum lýðræðisflokk- anna, sem þar skarst úr leik, og reyndi, þótt á veikan hátt væri, að veita kommúnist- um nokkurt liðsinni. Mundi því svo íara, að komrnúnistar gætu einnig notað hann, ef hann yrði kosinn í bæjarstjórn Reykja' víkur. Það eru líka einu möguleikarnir, sem hann hefði til að hafa þar nokkur áhrif. Háðungarför. Er þessi afstaða frambjóð anda Framsóknar í fullu samræmi við heilindi henn- ar í öðrum málefnum Reykjavíkur, þar sem alt er af óheilum hug mælt. Flokk urinn þykist vera að berjast á móti kommúnistum en hef ir þá eina von til áhrifa, að maður hennar verði auð- sveipur kommúnistum, ef hann nær kosningu. En til þessa kemur ekki. Aum var síðasta ganga Fram sóknar hjer í bæ. Verri verð ur þessi. Hraklegri útreið hefir Framsókn aldrei feng- ið en hún mun nú fá hjá Reykvíkingum. Utvarpið 15.45 Miðdegisútvarp. 19.25 Söngdansar (plötur). 20.00 Frjettir. 20.20 Útvarpshljómsveitin leik ur (Þórarinn Guðmundsson stjórnar). a) Spánskur gleðiforleikur eftir Kéler-Béla. b) Suðrænar rósir, vals eft- ir Johann Strauss. c) Draumur engilsins eftir Rubinstein. 20.45 Lestur fornrita: Þættir úr Sturlungu (Helgi Hjörvar). 21.15 Dagskrá kvenna (Kven- fjelagasamband íslands): Erindi: Konan Pearl Buck (frú Aðalbjörg Sigurðardótt- ir)- 21.40 Frá útlöndum (Gísli Ás- mundsson). . t t 22.00 Frjettír. — Ljett lög (plötur). ÞENNAN DAG fyrir tuttugu árum síðan var Starfsmanna- fjelag Reykjavíkur stofnað, eða 17. janúar 1926. — Stofnendur: voru 68, þar af voru aðeins tvær konur. Nú er fjelagið meS stærstu fjelögum opinberra starfsmanna og fjelagatala þess nokkuð yfir 550. — Ráðsiefnan Framhald af 1. síon hann m. a. á það, að banda- lagið gæti ekki arinast öll þau störf, sem nauðsynleg væru til þess að skapa tryggan frið í heiminum. Stórveldin . yrðu að taka þau að sjer ut'an vjebanda þess. Þau yrðu að gera sjer það ljóst, að auknum hagsmunum fylgdi aukin ábyrgð. Fulltrúi Salvador lýsti, fyrir hönd Salvador og smáríkjanna í Suður-Ameríku, yfir stuðn- ingi við bandalagið og trú á störf þess. — Fulltrúi Argen- tínu, helsta útflutningslandsins í Suður-Ameríku, sagði, að þjóð sín hefði fullan hug á því að rjetta hinum bágstöddu Ev- rópuþjóðum hjálparhönd. — Fulltrúi Póllands bar bandalag- inu kveðju þings síns og þjóð- ar. Sagðist hann bera því kveðju þeirra 23 miljón Pól- verja, sem á lífi væru, en einn- ig þeirra 6 miljón, sem Þjóð- verjar hefðu myrt. Kvöldvaka Heimdallar EINS OG auglýst hefir verið í blaðinu, efnir Heimdallur, fjelag ungra Sjálfstæðismanna, til kvöldvöku í Tjarnarcafé í kvöld. Verða þar fluttar ræð- ur. Þá verða ýms skemtiatriði, en að lokum verður dansað fram eftir nóttu. — Fjelags menn fá ókeypis aðgang fyrir sig og einn gest. Aðgöngumið- ar, sem eftir eru, verða afhent- ir í skrifstofu Sjálfstæðisflokks ins, Thorvaldsensstræti 2, frá kl. 9 f. h. — Athugið, að hús- inu verður lokað kl. 10. Fyrsti formaður fjelagsins var Ágúst Jósefsson, heilbrigð- isfulltrúi og var hann það til ársins 1931. Síðan hafa þessir menn verið formenn fjelagsins: Nikulás Friðriksson umsjónar- maður, frá 1931 til 1938. Jóhann G. Möller, skrifstofustjóri, frá 1938 til 1940. Pjetur heitinn Ingimundarson, slökkviliðs- stjóri, frá 1940 til 1941 og síðan hefir*verið formaður Lárus Sig- urbjörnsson, fulltrúi. Fjelagið starfar í 10 deildum, en lögregluþjónar hafa, sem kunnugt er, sitt eigið fjelag, Lögreglufjelag Reykjavíkur, sem þeir stofnuðu 1940. Af aeildum fjelagsins er fjöl mennust deild Rafmagnsveitu Reykjavíkur. — Nýjasta deild- in innan fjelagsins er deild Vatns- og Hitaveitu starfs- manna. Starf fjelagsins hefir mjög aukist með rekstri bæjar- ins, enda hafa síðustu ár ný og mannmörg fyrirtæki bsíst við bæjarreksturinn, eins og Sund- höllin, Hitaveitan og nú síðast Strætisvagnar, þó starfsmenn Strætisvagna sjeu ekki fjelagar í Starfsmannafjelagi Rej'kjavík ur. Stjórn fjelagsins' er nú skip- uð þessum mönnum: Lárus Sig- urbjörnsson, formaður, Karl Lárusson varaformaður, Karl Bjarnason ritarí, Helgi Hall- grímsson gjaldkeri og brjefrit- ari er Hjálmar Blöndal. í vara stjórn eiga sæti tveir menn: Karl Torfason, aðalbókari, og Georg Þorsteinsson skrifari. Afmælisins minnist fjelagið með hófi að Hótel Borg annað kvöld og hefst það kl. 7,30. Kjósið D - listann Hvað fær Sjálfstæð- isflokkurinn mörg atkvæði ? - Verðlaunagetraan - GETIÐ UPP Á ÞVÍ, hvað Sjálfstæðisflokkurinn muni fá mörg atkvæði við bæjarstjórnarkosningarnar. Þrenn verðlaun verða veitt þcim fara næst umatkvæða- magnið: 1. Verðlauir 2000.00 kr. 2. Verðlaun 1000.00 kr. 3. Verðlaun 500.00 kr. Ritið uppástungu ykkar ásamt nafni og heimilisfangi á úrklippu úr blaðinu og sendið Morgunblaðini*. fyrir kjördag, merkt: „Getraun“. Sjálfstæðisflokkurinn fær ......... atkvæði. Nafn ............................. ;■ -t < 'V .J : ; . ' hi H ; ’ l ú: r !" I •: UI Heimilisfang ..........................

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.