Morgunblaðið - 24.01.1946, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 24. jan. 1946
Margþætt starf Breið-
firðingafjelagsins
BREIÐFIRÐINGAFJELAG-
'IÐ hjelt aðalfund sinn nýlega.
Er það nú stærsta hjeraðaf jelag
ið, sem starfandi er hjer í Rvík,
enda nær það yfir þrjár sýslur,
Barðastrandar-, Dala- og Snæ-
fellsnessýslu. Telur það nú nær
níu hundruð fjelaga.
Starfsemi fjelagsins er mjög
fjölþætt. Stærsta dagskrármál
f jelagsins nú er hið svo kallaða
húsmál. Beitti fjelagið sjer fyr-
. ir kaupum á eigninni Skóla-
vörðustíg 4, 6 og 6 B og var
síðan stofnað hlutafjelag um
eignina. Breiðfirðingafjelagið
er þar stærsti hluthafinn.
Mjög almennur skilningur og
vinsemd er í garð þessa máls af
hálfu fjelagsmanna. Hafa mjög
margir fjelagsmenn lagt fram
gjafadagsverk og unnið að end
urbótum hússins. Þá hefir Hús-
byggingarsjóð Breiðfirðingafje-
lagsins borist peningagjafir frá
ýmsum fjelagsmönnum.
Til fjáröflunar fyrir húsmál
ið mun Breiðfirðingafjelagið
efna til hlutaveltu nú á næst-
unni. Þá er komið af stað happ
drætti, sem er einnig til fjár-
öflunar fyrir sama málefni.
Breiðfirðingafjelagið vinnur
um þessar mundir að fram-
gangi skólamáls Snæfellinga,
er fjelagið í því máli í samvinnti
við Samband breiðfirskra
kvenna og aðra aðila í Snæfells
nessýstu, sem beita sjer fyrri
stofnun húsmæðraskóla í sýsl-
,unni. Á árinu veitti fjelagið kr.
1000.00 úr sjóði og gekst fyrir
skemtun þessu máli til stuðn-
ings.
Breiðfirðingafjelagið vinnur
nú sem áður að tvíþættri út-
gáfustarfsemi. Er annað ársrit-
ið Breiðfirðingur, sem hefur nú
göngu sína í fjórða jsinn. Rit-
stjóri er Jón Sigtryggsson cand.
phil. og framkvæmdastjóri
Magnús Þorláksson símamaður.
Hinn þáttur útgáfustarfseminn
ar er hin væntanlega hjeraðs-
saga Dalamamrar Hafa verið
ráðnir menn til að rita söguna
og munu þeir hefja störf sín á
næstunni.
Þá hefir fjelagið mikinn á-
huga fyrir lausn hins svo kall-
aða Reykhólamáls og lætur sig
miklu skifta, að á Reykhólum
verði komið upp hið allra fyrsta
veglegu menningarsetri.
Á s.l. ári hjelt fjelagið uppi
ferðast^fsemi; voru farnar 6
ferðir með 135 þátttakendum;
var þátttaka í ferðalögunum
ekki eins góð og árið áður, en
það mun einkum hafa stafað
af því, hversu veðráttan var ó-
hagstæð til skemtiferðalaga.
Innan Breiðfirðingafjelagsins
var starfandi á árinu nefnd,
sem hafði það verk með hönd-
um, að skygnast eftir landsvæði
sem gæti verið hentugt fyrir
einskonar sumarbústað fyrir
Breiðfirðingafjelagið. Formað-
ur þessarar nefndar var Sigurð
iur Sveinsson garðyrkjuráðu-
} nautur. Gaf Sig. Sveinsson fje-
|laginu í þessu skyni landsvæð-
j ið „Heiði“, sem er nálægt
i Hveragerði. Mun það verða eitt
j af verkefnum fjelagsins á næst
í unni að vinna að fegrun þessa
? staðar.
Varðandi fjelagsstarfsemina
má m. a. geta þess, að fjölmarg
ir fundir og mót hafa verið hald
in, við mjög almenna þátttöku.
Á s.l. ári bauð Breiðfirðingafje-
lagið öllum Breiðfirðingum 60
ára og eldri til kaffidrykkju.
Var þar ýmislegt til skemtun-
ar. Boðið þágu um 200 manns,
og skemtu sjer hið besta.
Breiðfirðingafjelagið efndi til
útvarpskvöldvöku, Breiðfirð-
ingamótsins og fjölda annara
fagnaða.
Innan fjelagsins starfa nú 6
deildir. Blandaður kór, 33ja
manna, undir stjórn Gunnars
Sigurgeirssonar píanóleikara.
Fór kórinn s.l. sumar í söngferð
vestur um Breiðafjörð, og var
hvarvetna tekið með sjerstakri
alúð og hrifningu.
Aðrar deildir eru: Málfunda
fjelagið, skemtideild, skák-
deild, handavinnudeild og
leikflokkur, en hann hefir ekki
getað starfað á árinu sökum
húsnæðisvandræða.
Fjelagsmönnum hefir fjölgað
mjög mikið á árinu, og eru þeir
nú samtals 894.
Stjórn fjelagsins skipa nú:
Jón Emil Guðjónsson formaður
og meðstjórnendur: Friðgeir
Sveinsson, Sigurður Hólm-
steinn Jónsson, Lýður Jónsson,
Snæbjörn G. Jónsson, Ingveld-
ur Á. Sigmundsdóttir, Davíð
O. Grímsson, Ólafur Þórarins-
son, Óskar Bjartmars, Jóhann-
es Ólafsson, og til vara Guð-
björn Jakobsson, Guðmundur
Einarsson, Björgólfur Sigurðs-
son, Bergsveinn Jónsson, Þor-
björns Jónsson og Sigurður
Sveinsson.
Bæjarstjórnarkosningarnar
FRÁ SJÁLFSTÆÐIS-
FLOKKNUM.
• Listi Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík er
D-LISTI.
9 Skrifstofa Sjálfstæðis-
flokksins, sem annast alla
fyrirgreiðslu við utan-
kjörstaðakosningar er í
Thorvaldsensstræti. Sím-
ar 6472- og 2339.
• Kjósendur, sem ekki
verða heima á kjördegi,
þurfa að kjósa nú þegar.
• Sjálfstæðismenn, sem
vildu lána bíla sína á kjör
degi, eru vinsamlegast
beðnir að tilkynna það
skrifstofu flokksins —.
síma 3315.
• Allir þeir, er gætu að-
stoðað skrifstofuna við
margvisleg störf, ættu að
gefa sig fram þegar í stað.
D-LISTINN
Sjálfstæðisflokkurinn.
Svissnesk
kven og herra armbands-
úr í miklu úrvali ávalt
fyrirliggjandi í skraut-
gripaverslun minni á
Laugaveg 10, gengið inn
frá Bergstaðastræti.
| GOTTSVEINN ODDSSON
úrsmiður.
Hjartans þakklœti sendum við öllum þeim, er
glöddu okkur með sendingum á síðastliðnum jólum.
Sjerstaklega viljum við þakka Haraldi Böðvarssyni
og frú. Þorsteini Briem og frú, frú Emelíu Þorsteins-
dóttur, Grund, Kvenfjelagi Akraness og ekki síst
Andrjesi Nielssyni, sem nú og á undanförnum árum
hefur sent heimilinu valdar bœkur. — Öllu þessu
fólki og fleiri vinum óskum við blessunarríkt ár.
Vistmenn Elliheimilisins Akranesi.
i
*
s
?
I
1
t
?
y
(UlllimilMlllllllllllliqtlllllillllllIIIllimiUlMiilllllllllIi
StU & DííL
S Smurt brauð og snittur |£ ...
I t
= v
= t
= :
lufmnninmnnimnsinuiiurininiiniiiimimÐnBiaa %
Sijósið D - listann
VVVVV V V V vvv V
í—:—:**;**:**;**;*-;*-;*--^
Innilegar þakkir til allra fyrir sýnda vinsemd
og virðingu á 75 ára afmœli mínu.
Björn Guðmundsson,
Hásteinsveg 34, Vestmannaeyjum.
Gleymið ekki oð branatryggja
Athugið hvort brunatrygging yðar sje miðuð við núgildandi verð-
lag, ef svo er ekki, getið þjer keypt viðbótar- (hækkunar-) tryggingu
hjá oss, þótt þjer hafið tryggt annarsstaðar.
1 Tryggið vöruforða yðar, innbú og
aðra lausafjármuni hjá oss
Það nægir að biðja um trygginguna í síma og gengur hún 1 gildi
við pöntun.
Firemen’s Insurance Company
of Newark, New Jersey, USA.
Aðalumboð fyrir ísland: -
CARL D. TULINIUS & CO., h.f.
Austurstræti 14 (I. hæð).
Ennfremur hagkvæmustu sjó- oy stríðstryggingar
Sími 1730 (tvær línur) Sími 1730 (tvær línur)
Fulltrúaráð Sjálf-
stæðisfjelaganna
•s>
f
FUDUR verður haldinn í Fulltrúaráði Sjálfstæðisfjelaganna í
Reykjavík, föstudaginn 25. janúar Td. 8,30 e. h. í Sjálfstæðishúsinu
við Austurvöll.
Þetta er síðasti fundur Fulltrúaráðsins fyrir bæjarstjórnarkosning-
arnar.
Gengið verður frá salnum með borðum og öðru fyrirkomulagi á
þann hátt, sem verður á kjördegi svo að fulltrúar geti kynnt sjer
áður alla aðstöðu.
Fulltrúar. Nú þurfa allir, hver einn og einasti að mæta.
Heilir hildar til-----Heilir hildi frá“.
-Stjótrn ^Jaíítráai'á^ó S)jáIj^ótœ^ió ^jeíacjcmna í ^\eyl?jauíh