Morgunblaðið - 05.03.1946, Blaðsíða 8
V
áíORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 5. marz 1946
Sjötug:
Frú Eyrún Guð-
1 mundsdóttir í Yík
Merkiskonan frú Eyrún Guð-
J mundsdóttir í Vík í Mýrdal á
/ sjötugsafmæli í dag. Hún er
i fædd 5. mars 1876, dóttir Guð-
v mundar bónda í Ytri-Dalbæ í
Landbroti Jónssonar. Ólst hún
f að öllu leyti upp í Vestur-
; Skaftafellssýslu og vandist við
! öll nauðsynleg heimilisstörf og
; sýndi þá þegar þann röskleik
og myndarskap í öllu, sem hún
snerti á, er ætíð hefr einkent
hana siðan. Hefir hún ávalt ver
ið fríðleikskona og gerfileg og
• staðist hverja raun, eftir að
út í lífið kom, og hvergi smeyk.
enda hefir hún aflað sjer stöð-
ugra vinsælda og viðurkenn-
ingar. í æsku naut hún þeirrar
fræðslu sem títt var þá um
bændadætur alment og fjekk
auk þess nokkra undirstöðu í
■ saumaskap og íleiru á embættis
mannaheimilum, sem helst
þótti ráð að leita til um slíkt
í þann tíð. Síðan hefir hún
verið sjálfbjarga í þeim efnum
eins og öðrum störfum, er að
bústjórn lúta, svo að fáar kon-
ur munu hafa farið þar fram
úr.
Eyrún giftist rúmlega tvítug
■ Sveini Þorlákssyni frá Þykkva-
bæ. Lærði hann skósmíði á
Eyrarbakka og að loknu því
námi settust þau hjónin að í
• Víkurkauptúni, þar sem þau
; búa enn. Stundaði Sveinn þar
L skósmíði af miklum dugnaði
lengi, en er landssíminn var
f lagður til Víkur fyrir meir en
30 árum, tók hann þar við
• stjórn símastöðvarinnar og hef-
ir þjónað því starfi síðan við
hinn besta orðstír.
Hefir Eyrún kona hans verið
hans önnur hönd einnig í síma-
afgreiðslunni og hefir reynst
þar ekki síður liðtæk en á öðr-
um sviðum.
Þau Eyrún og Sveinn hafa
eignast alls 15 börn og eru 11
þeirra á lífi. Bera þau öll mik-
inn myndárbrag, svo að eigi er
úr ætt skotið, en öll eru þau nú
farin að heiman nema 2 dæt-
urnar, enda eru fleiri þeirra
gift og búsett m. a. í Reykja-
vík, og er alt þetta fólk nú
góðkunnugt fjölda manns.
Það sjer nú svo sem ekki
á, eftir störf allra þessara ára,
að Eyrún Guðmundsdóttir hafi
náð stjötugsaldri, hún virðist
ennþá á ágætu skeiði, sama táp
mikla og tilkomumikla kon-
an, sem hún hefir altaf verið,
kát og æðrulaus.
Fjöldi vina hennar óska
henni nú góðra og hlýrra daga
um ókomna tíma.
G.
FORNGRIPIR EYÐILEGGJ-
AST
LONDON: Fyrir skömmu
kviknaði í fornminjasafni í
Brussel og brann ein álma bygg
ingarinnar. Skaðinn er metinn
á 300.000 sterlingspund, þar
sem mjög mikið af forngripum
eyðilagðist.
Nýkomið
Enskar rúmdýnur og rúmbotnar. Má með lít-
illi breytingu nota sem ottóman.
Kristjánsson h.f.
Fjórða umferð skák-
keppninnar
FJÓRÐA umferð í landsliðs-
keppni Skáksambandsins var
tefld á sunnudaginn í V. R.-
húsinu. Urslit urðu þau, að
Arni Snævarr vann Benóný.
Öllum hinum skákunum var
frestað eftir 4 tíma viðureign.
I gærkvöldi sömdu þeir Guðm.
Agústsson og Guðm. S. jafn-
tefli. Óli og Jón tefldu einnig
í gærkvöldi, en skák þeirra var
ekki lokið, þegar blaðið fór í
prentun, en hefir að líkindum
orðið jafntefli. Skák LáruSár
Johnsen og Guðm. Ágústssonar
frá þriðju umferð var einnig
tefld í gærkvöldi og lauk svo,
að Guðmundur vann.
Önnur umferð frá keppninni
er nú komin út fjölrituð.
Firrrta umferð hefst í kvöld
kl. 8 í V. R.-húsinu.
Minningarorð um
Sigurð Kr. Finnbogason
Austurstræti 12.
Sími 2800.
DANSSKOLI Rigmor Han-
son mun starfa einn mánuð enn
í vetur, þ. e. marsmánuð. En í
vor mun frú Rigmor sigla — til
Englands og Danmerkur — til
að kynna sjer helstu nýjungar
í samkvæmisdansi og stepp.
Eins og kunnugt er hefir frú
Rigmor kent mörg undanfarin
ár, og sýnir hin sívaxandi að-
sókn að skóla hennar best,
hversu ánægðir og þakklátir
nemendur hennar hafa verið
fyrir kensluna.
I vetur hefir frú Rigmor, sök
um heilsu sinnar, aðeins kent
börnum og unglingum, og mun
svo einnig vera þennan síðasta
mánuð.
Kenslan fer fram í Lista-
manriaskálanum, og verður
fyrsta æfingin í dag.
í GÆR var til moldar borinn
hjer í Reykjavík, Sigurður
Kri'stján Finnbogason, frá Akra
nesi.
Með skömmu millibili hegg-
ur hrútidauðinn stór skörð í
þjóðfjelag vort, næstum dag-
lega verðum við að horfast í
augu við þann veruleika, að
hann beri sigur af hólmi í þeirri
viðureign, sem háð er í hverju
tilfe^Ui. Einn þeirra sem urðu
honum að bráð, er hinn ungi
Akurnesingur, sem nú er lagð-
ur til hinstu hvíldar. Þegar
ungur maður, sem heifr nýhafið
lífsstarf sitt, er kallaður burtu
stöndum við hljóð, við skiljum
ekki þann tilgang lífsins, en
við skiljum nú samt, að elsku*
legt ungmenni, sem öllum kröft
um eyddi.til að verða sínum til
blessunar og aðeins skyidi eft-
ir hugljúfar endurminningar í
hugum þeirra, er mikil guðs-
gjöf, jafnvel þó hún sje frá
þeim tekin.
Svo hugljúf er njinningin um
þennan unga mann og eftir-
breitnisverð öll hans framkoma
á sinni stuttu ævi, að telja má
tij gæfu að hafa kynnst honum.
Sigurður var ekki gamall
þegar hann fór að taka virkan
þátt í lífsstarfi foreldra sinna.
Mig undrar stundum, hvað
þessi hugþekki drengur gat ver
ið hugsunarsamur með allt,
sem til, hjálpar mátti verð^
heimili foreldra sinna, sem og
þurfti með í margra ára bar-
áttu heimilisins, við heilsuleysi
heimilisföður, sem endaði með
því að hann var kallaður burt
frá konu «g ungum börnum.
Það var því ekki nema eðli-
legt að móðirin tengdi fram-
tíðarvonir sínar við elsta son-
inn, enda var hann henni mjög
umhyggjusamur og ástfólginn.
Næstum því barn að aldri, fór
hann að sækja sjóinn til bjarg-
ar móður sinni og systkinum.
Þar kom brátt í ljós kjarkur
hans og áræði, svo og frábær
dugnaður hins óharðnaða ung-
lings.
Hann var lengst af á línú-
veiðaranum Sindra frá Akrá-
nesi, og vann sjer brátt virð-
ingu og traust starfsbræði'a
sinná. En mitt í starfinu, við
rð hjálpa móður sinni, kom hinn
gamalkunni nágestur og kall-
aði hann frá störfum, öllum
sem til þekktu til hrygðar, Og
móður hans og systkinum fil
mikillar sorgar. Um þriggja ára
skeið, háði hann baráttúna, méð
þeim afleiðingum að harin
andaðist að Vífilstöðum hirin
24. febrúar s. 1. þá aðeins 26
ára gamall.
Mikil er nú sorgin, sem rík-
ir á heimili móður hans, en frá-
bær dugnaður hennar og sál-
arþrek, sem hefir einkennt allt
þgnnar líf, mun veita henni
styrk tilað bera hina mikíu
sorg, og mikil raunabót má
það vera henni hve minning-
ih er hrein og fögur, um hirin
unga son, sem svo snemma var
kallaður hjeðari til aæðri starfa
guðs í geim.
Jeg vil svo að enduðum lín-
um þessum, votta móður og
systkinum Sigurðar heitins,
mína innilegustu samúð, og bið
hið algóða guð að styrkja ykkúr
og blessa í sorg ykkar.
F. G.
FuiHrúar þyrpast
til Dublin
London í gærkveldi:
DANSKIR, hollenskir, amer-
ískir, breskir, kanadiskir og
kínverskir fulltrúar á alþjóða-
flugmálaráðstefnuna í Dublin,
sem hefjast á þar á mánudag-
inn, komu þangað í dag.
Frönsku fulltrúarnir og þeir
aðrir, sem enn eru ókomnir,
koma þangað á morgun.
—Reuter. ■
Skrifstofiamaðiir
Ungur skrifstofumaður, góður í vjelritun,
íslensku, ensku og dönsku, óskast nú þegar
eða á næstunni.
V. Sigurðsson & Snæbjörnsson h.f.
X~9
ík
sHiiiiiiiiuiiiiiiiiiiimiiiuimiuiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiumimiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiB
&
Eflir Robert Sform
"W ................................................. a
X-9: Jeg vona að þetta hafi verið rjett hjá mjer,
Glámur þarf svo sem ekki endilega að vera á lest-
inni. ... Þá sjer hann mann fyrir framan sig á lest-
inni. X-9 kallar: Vertu kyrr Glámur, eða jeg verð
að skjóta. Glámur: O, þegi þú lögreglusnuðrari. Jeg
á líka eitthvað af skotum eftir. Hjerna er eitt lagsi.