Morgunblaðið - 06.04.1946, Qupperneq 11
Laugardagur 6. apríl 1946
MORGUNBLAÐIÐ
1J
Fjelagslíí
ÆFINGAR í kvöld:
í Mentaskól-
anum:
Kl. 8-10: íslensk glíma.
Æfingar á morgun:
(sunnudag):
í Andrewshöllinni:
Kl. 11-12 árd: Handb. karla
Stjórn K.R.
■i SKÍÐADEILDIN
klk J Skíðaferðir verða í
dag kl. 2 og 6 og á
morgun kl. 9 f. h, Á Skálafelli
er nú ágætis skíðafæri. Far-
miðar hjá versl. Sport, Aust-
urstræti 4. Farið frá BSÍ.
ÁRMENNINGAR!
Skíðaferðir verða í
Jósepsdal í dag kl.
2, kl. 6 og kl. 8, og
í fyrramálið kl. 9.
Farmiðar í Hellas.
Kn attspyrnumenn
Víkings. Áríðandi
'undur verður hald
inn í V.R. sunnu-
daginn 7. apríl kl. 4 e. h,
Stjórn Víkings.
VALSMENN!
Skíðaferðir verða
farnar í Valsskál-
ann í kvöld kl. 7,
og á morgun kl. 9 f. h. Farið
verður frá Anarhvoli. Farmið
ar verða seldir í Herrabúðinni
frá kl. 12—4 í dag. Valsmenn!
Notum snjóinn og sólskinið
á fjöllum, á meðan færi gefst.
Skíðafjelag
Reykjavíkur
ráðgerir að fare
skíðaför næstk
sunnudagsmorg-
un. Lagt af stað frá Austur-
velli kl. 9. Ekið að Kolviðar-
hóli og Skíðaskálanum. Far-
ið á skíðum í Innstadal, Heng'
afjöllum og annarstaðar þai
sem skíðafæri er. Farmiða:
hjá Miiller í dag fyrir fjelags-
ítnenn til kl. 2 en 2 til 4 fyrir
utanf j elagsmenn.
SKEMTIFUNDUR
í Sjálfstæðishúsinu í kvöld
kl. 10. Verðlaunaafhendingar
Dans. Góð músik.
Nefndin.
Í.R. SKÍÐADEILDIN
Skíðaferðir að Kolviðarhóli
‘í dag kl. 2 og kl. 6 og á morg-
un (sunnudag) kl. 9 f. h. —
■Fermiðar seldir í versl. Pfaff
í dag frá kl. 12—3.
SKÍÐAMÓT
REYKJAVÍKUR
Stökkkeppnin fer fram sunnu
daginn 7. apríl og hefst kl. 2,
Keppnin fer fram í Bláfjöll-
um.
BEST AÐ AUGLÝSA
í MORGUNBLAÐINIÍ
<2}a.g.bóh
95. dagur ársins.
24. vika vetrar.
Árdegisflæði kl. 9.25.
Síðdegisflæði kl. 21.50.
Ljósatími ökutækja frá kl.
20.30 til kl. 6.35.
Næturlæknir er í læknavarð
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í læknashrh
Næturvörður er í Lyfjabúð-
inni Iðunn.
Næturakstur annast B.S.R.
sími 1720.
Dómkirkjan. Messa kl. 11,
síra Bjarni Jónsson (Ferming).
Kl. 2 síra Jón Auðuns. (Ferm-
ing).
Altarisganga í Dómkirkjunni
á sunnudaginn kl. 9 f. h.
I.O.G.T.
Unglingast. UNNUR nr. 38
Fundur á morgun kl. 10 f. h.
í Bindindishöllinni á Frí-
kirkjuveg 11.
Fjelagar, sem hafa verið
að innheimta gjöld, eru beðn-
ir að skila af sjer.
Fjölsækið.
Gæslumenn.
Kaup-Sala
FERMIN G ARK J ÓLL
til sölu. — Sími 6331.
NOTUÐ HÚSGÖGN
keypt ávalt hæsta verði. — Sótt
heim. — Staðgreiðsla. — Sími
5691. — Fornverslunin Grettis-
götu 45.
RISSBLOKKIR
fyrir skólabörn og skrifstofur.
Blokkin 25 aur.
Bókaútgáfa Guðjóns Ó. GuS-
Jónssonar, Hallveigarstíg 6 A.
ÓDÝR HÚSGÖGN
við allra hæfi.
Söluskálinn,
Klapparstíg 11, sími 560E
OFIN BORÐTEPPI
og fleira, fæst í Vefstofunni,
Bergstaðastræti 10B.
Vinna
Burstavörur frá Danmöi'ku.
Ágætar handunnar bursta-
vörur úr taglhari, til sölu, beint
frá verksmiðju. Vörur írá ís-
landi viljum við kaupa.
A.s. Graff & Co.
Nörrebrogade 39, Köbenhavn N
Símnefni: IGRAFFCO
Ungur danskur timburmaður,
útlærður frá Ðanmörki1, Sví-
þjóð og Finmandi, óskar eftir
atvinnu á íslaudi sem fyrst.
Finn Nordqvist,
Vendersgade 28. Köbenhavn.
HREIN GERNIN G AR
Vanir menn til hreingerninga,
sími 5271.
HREIN GERNIN G AR
Magnús Guðmundsson.
Sími 6290.
HREINGERNINGAR
Sími 1327. — Jón og Bói.
HREIN GERNIN G AR
Pantið í tíma. — Sími 5344.
Nói.
HREINGERNINGAR
Vönduð vinna.
Pantið í síma 5781 frá kl. 12-1.
Matti og Þráinn.
Hallgrímssókn. Barnaguðs-
þjónusta í Austurbæjarskóla kl.
11 árd. Sr. Sigurjón Árnason.
— Messa sama stað kl. 2. Sr.
Jakob Jónsson.
Laugarnesprestakall. Barna-
guðsþjonusta kl. 10 árd. Engin
síðdegismessa. — Síra Garðar
Svavarsson.
Fríkirkjan. Messa kl. 2 síðd.
(ferming). Síra Árni Sigurðs-
son.
Messað á Elliheimilinu kl. 10
f. h. Síra Sigurbjörn Einars-
son, dósent predikar.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. —
Messa kl. 5. Síra Jón Auðuns.
í kaþólsku kirkjunni í Reykja
vík. Hámessa kl. 10; 1 Hafnar-
firði kl. 9.
Nesprestakall. Messað í Ka-
pellu Háskólans á morgun kl. 2
e. h. — Sr. Jón Thorarensen.
Kálfatjörn. Messað á morg-
un kl. 2. Sr. Garðar Þorsteins-
son.
Lágafellskirkja. Messað kl.
14. Síra Halfdan Hélgason.
70 ára varð í gær Þóra Egils-
dóttir, Bern, Ólafsvík.
Hjónaband. í dag verða gef-
in saman í hjónaband af síra
Bjarna Jónssyni, ungfrú Bára
, Jóhannsdóttir og Gunnar Egg-
ertsson, viðskiftafræðingur.
Hjónaband. í dag verða gef-
in saman í hjónaband, Ingi-
björg Björnsdóttir frá Vík í
Hjeðinsfirði og Guðmundur
Ragnar Helgason.
Iljúskapur. Nýlega hafa ver-
ið gefin saman í hjónaband, af
sr. Garðari Svavarssyni, ung-
frú Brynhildur Eyjólfsdóttir
frá Skálanesi og Aðalsteinn Da-
víðsson frá Arnbjargarlæk.
Hjónaefni. í gær opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Ragnhild-
ur Finnbjörnsdóttir frá ísa-
firði og Gísli G. ísleifsson,
Skeggjagötu 2.
Hjónaband. Gefin voru sam-
an í hjónaband, 30. mars s. 1.,
ungfrú Guðrún H. Guðmunds-
dóttir, Bergþórugötu 23 og
Sgt. Laurente W. Davidson,
ameríska hernum.
I dag verða gefin saman í
hjónaband í Bandaríkjunum
Auður Jónsdóttir (Eyjólfssonar
kaupmanns í Stykkishólmi) og
Harald Vigmo (O. J. Olsens
prests, Baugsvegi 13, Reykja-
vík). Heimilfang ungu hjón-
anna er: Medical College of
Virginia, Richmond, U. S. A.
Skipafrjettir. Brúarfoss hef-
irsennilega farið frá New York
í fyrradag. Fjallfoss er á Skál-
um. Lagarfoss er í Gautaborg.
Selfoss er í Leith, hleður í Hull
um miðjan apríl. Reykjafoss fór
frá Reykjavík 3. apríl til Ant-
werpen. Buntline Hitch fór frá
Halifax 29. mars til Reykjavík-
ur. Acron Knot hleður í Hali-
fax í byrjun apríl. Salmon Knot
hleður í New York í býrjun
apríl. True Knot hleður í Hali-
fax um 20. apríl. Sinnet er í
Reykjavík. Empire Gallop fór
frá Reykjavík 2. apríl til Hali-
fax. Anne er í Reykjavík. Lech
fór frá Reykjavík 3. apríl til
Greenock og Frakklands. Lub-
lin hleður í Leith í byrjun
apríl. Sollund hieður 1 Menstad
í Noregi 5. apríl. Otic er í Leith.
Horsa hleður í Leith um miðjan
apríl. Trinete hleður. í Hull í
byrjun apríl.
Jóhann Þorkelsson hjeraðs-
læknir á Akureyri hefir feng-
ið ársleyfi frá störfum sínum
og er á förum til útlanda. —
Gerir hann ráð fyrir að dvelja
í Danmörku og Svíþjóð þar til
í haust, en síðan ætlar hann að
leggja leið sína til Englands og
vera þar næsta vetur og koma
síðan heim. Með lækninum fer
kona hans, sem er dönsk að
ættum, og börn þeirra. Stefán
Guðnason læknir hefir verið
settur hjeraðslæknir í fjarveru
hans, þó þannig að .Jón Geirs-
son læknir annast störf hjeraðs
læknis í hjeraðinu utan Akur-
eyrar. — Frjettaritari.
Fjelag Vestur-Islendinga —
heldur skemtifund í kvöld í
Austurstræti 12. Hefst hann kl.
8,30. Sr. Friðrik Hallgrímsson
segir þar endui'minningar að
vestan, en síðan verður sungið,
spilað og stiginn dans.
Ljósiuæður. Morgunblaðið
hefir verið beðið að geta þess,
að það sje ljósmæðrafjelag ís-
lands (ekki Ljósmæðrafjelag
Reykjavíkur), sem stendur að
frv. því um breyting á ljós-
mæðralögunum, sem liggur fyr
ir Alþingi. Hafði verið prent-
villa í greinargerð þingskjals-
ins.
Leikfjelag templara sýnir
sjónleikinn Tengdamömmu eft-
ir Kristínu Sigfúsdóttur á
morgun, sunnudag, í G. T,-
húsinu. Sýningin hefst kl. 2 e.
h. stundvíslega. Leikstjóri er
frú Soffía Guðlaugsdóttir, leik
kona og fer hún jafnframt með
aðalhlutverk leiksins. Leikur
þessi hefir nú verið sýndur alls
11 sinnum og jafnan við góða
aðsókn og hefir þótt vel takaSt.
Aðeins örfáar sýningar eru eft-
ir. Aðgöngumiðar eru seldir í
dag frá kl. 2—4 í Góðtemplara-
húsinu.
ÚTVARP í DAG:
12.10—13.15 Hádegisútvarp.
15.30-—16.00 Miðdegisútvarp.
18.30 Dönskukensla 2. flokkur.
19.00 Enskukensla, 1. flokkur.
19.25 Samsöngur (plötur).
20.30 Leikrit: Skálholt eftir
Guðmund Kamban. Leikfjelag
Reykjavíkur.
Gyðingar myrða
Þjóðverja
LONDON: — Gyðingar í
Palestinu sátu nýlega fyrir
gömlum manni, sem áður hafði
verið borgarstjóri í þýsku
þorpi nærri Tel Aviv, og myrtu
hann.
UNRRA kaupir skip
LONDON: — UNRRA hefir
keypt 15 danska fiskibáta, og
eiga þeir að afhendast Pólverj-
um, sem nota munu þá til þess
að veiða fisk sjer til matar.
Mínar hjartans þakkir færi jeg öllum þeim, er
glöddu mig með heimsóknum, gjöfum, blómum og
heillaóskaskeytum, á fimmtugsafmæli mínu, 3. þ. m.
Guðný Stefánsdóttir, Grindavík.
Innilega þakka jeg þeim litla hóp, sem heimsótt-
uð mig og senduð mjer skeyti og glödduð mig á ann-
an hátt á 70 ára afmæli mínu 12. marz s.l.
Sauðárkróki, 31. marz 1946
Guðm. Sigváldason.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vin-
arhug við fráfall og jarðarför litla drengsins okkar,
ÁSGEIRS ÞÓR.
Þorgerður Þórarinsdóttir,
Steinþór Ásgeirsson.
Innilega þökkum við öllum, nær og fjær, vottun
samúðar og vináttu við andlát og jarðarför,
KRISTJÁNS J. BRYNJÓLFSSONAR,
verslunarmanns.
Guðrún J. Brynjólfsson, Brynjólfur J. Brynjólfsson,
Magnús J. Brynjólfsson, Marie C. Brynjólfsson,
Jón J. BrynjólfSson, Ásta Á. Guðmundsdóttir,
Anna Jónsdóttir, Karl Kristinsson,
Sigríður G. J. Zoega, Sveinn Zoega.
Hjartans þákkir fyrir auðsýnda samúð og vinar-
hug við andlát og jarðarför.
KATRÍNAR MAGNÚSDÓTTUR, Skaftholti.
Vandamenn.
Hjartanlega þökkum við auðsýnda samúð við and-
lát og jarðarför elsku litla sonar okkar og bróður,
GUÐJÓNS.
Ebba Vilhjálmsson,
Jens Vilhjálmsson og synir.