Morgunblaðið - 28.04.1946, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 28.04.1946, Qupperneq 7
Sunnudagur 28. apríl 1946 MORGUNBLAÐIÐ 7 - RÆÐA FORSÆTISRÁÐHERRA Framh. af bls. 6. þeir ætluðu að taka þátt í stjórn inni, ef þeim tækist ekki að við halda glundroðanum, en eftir að þeir urðu utangátta iinnir ekki óhróðrinum um fjárglæfra ríkisstjórnarinnar, er hún beit- ir sjer fyrir kaupum á nýjum tækjum, án þess að sjá um kaup lækkanir. Er þó öllum Póst, að eigi gat nokkur maður ákveðið það haustið 1944, hvort kaup- gjaldið þyrfti að verða, til þess ,að tryggja arðvænlegan rekst- ur hinna nýju tækjaýþegar þau koma í notkun á árinu 1946 eða 1947. Hitt er jafn Ijóst, að með- an útvegurinn er rekinn með sæmilegum árangri, sættir verkalýðurinn sig ekki við kauplækkanir. Það var því hvorki á valdi Framsóknar- flokksins nje annara að knýja kauplæ’^kanir fram. Nægir það eitt til að sanna, að þessi megin krafa Framsóknarflokksins er þegar af þeirri ástæðu dauða- dæmd. En auk þess er hún jafn ósanngjörn, sem hún er óvit- urleg. Afleiðingin gat aldrei orð ið annað en verkföll og ófriður, er leitt gat til óbærilegs tjóns fyrir þ.ióðarbúið, en lyktar með rjettlátum sigri verkalýðsins. Þetta er rjett, að þjóðin hafi í huga, þegar húnVkveður upp dóm sinn við kosningarnar. Annars vegar styrjöld, sem hlaut að enda með ósigri kaup- lækkunarkröfunnar, en áður hefði þó leitt til að þeir fjár- munir, sem nú er varið til ný- HÁTTVIRTU alþingismenn og aðrir hlustendur! , Ykkar er nú að kveða upp dóminn, ýmist á Alþingi eða við Alþingískosningarnar í sumar. Þeir, sem kosið hafa innbyrð- isstyrjöld á sviði athafnalífsins og athafnaleysi í stjórnmálalíf- inu, samþykkja vantraust á sköpunar, hefðu eyðst í her- kostnað. Hinsvegar þær framfarir á sviði löggjafar og framkvæmda er jeg hefi lýst. Það er að sönnu rjett, að Framsóknarf lokkurinn hefir ekki barist gegn hverju einasta þörfu mál. Til þess virðist hann hafa haft vilja, en brotið kjark, vegna kosninganna, s<jm fyrir dyrum eru. Þetta er þó ekki aðalatriðið, heldur hitt, að Framsóknarflokkurinn hefir barist eins og hýena gegn því samstarfi, sem öll sú iöggjöf og allai þær framkvæmdir, sem jeg lýsti, hafa sprottið af. Valið er á milli stjórnarflokk anna, sem biðja bjóðina bess að verða dæmdir_ af verkum sín- um, og Framsóknarflokksins, sem með hnúum og hnefum hefir fjandskápast gegn stjgrn- arsamstarfinu frá því stjórnin tók við völdum og fram á þenna dag. Það er fyrir hina neikvæðu baráttu gegn hinni alhliða, stór huga og víðsýnu viðreisnar- stefnu stjórnarflokkanna í and legum og veraldlegum efnum, baráttu Framsóknarflokksins gegn hmum stórfeldu hagsmuna málum bænda, sjómanna, út- vegsmanna og yfirleitt alls al- menings í landinu, sem hin dauða hönd Framsóknarflokks ins biður nú þjóðina um nýj- an styrk, svo henni megi fram vegis takast- að kyrkja í fæð- ingu slík þurfamál, sem þau, er stjórnarflokkarnir hafa borið og vilja bera fram til sigurs. ú þjóðarinnar stjórnarflokkana á Alþngi og við kosningarnar. Hinir fella vantraustið á Alþingi og Framsóknarflokk- irín við kosningarnar. Sú fylking verður mikil og þjettskipuð. í henni verða allir þeir, sem fagna þvi, að þjóðinni hefir ver ið forðað frá vinnudeilum og í þess stað trygður friður til að vinna að framleiðslunni og öðr- um þjóðnytjastörfum. Þar verða og allir þeir, sem viðurkenna, að vel og viturlega voru leyst vandamál bænda. Þar verða sjómenn og utvegsmenn og all- ir aðrir, er bera hag útvegsins fyrir brjósti, til þess með þeim hætti að styðja þá stjórn, sem hafði hrakspár hrunstefnu- manna að engu, fyrirskipaði ali mikla verðhækkun á inniendum markaði á framle'ðsluvöru út- vegsins, en tók síðan upp djarfa og sigursæla baráttu fvrir af- urðaverðinu á erlendum mark- aði með' margflóknum miliiríkja samningum og einbeittri sókn inn á nýja markaði. í þeirri fylkingu verða og allir, er fagna því, að 30 nýir togarar og yfir 100 stórir vjel- bátar eru væntanlegir til lands- ins. Ennfremur allir þeir, sem gleðjast yfir því, að nýjar verk smiðjur og óteljandi nýjar land búnaðarvjelar eru nú teknar í þjónustu þjóðarinnar, og með þessu öllu stigið langstærsta sporið, er íslendingar nokkru sinni hafa stigið. til þess að fylgja fordæmi þeirra þjóða, er komist hafa til auðs og vel- sæídar, einmitt með því að taka vjelaaílið í sína þjónustu. Þarna munu og sjást þeir, er telja sjer til. hagsbóta, að raf- orkan verði leidd inn á sem flest heimili í landinu. Þeir, er þakka aðstoð við húsbyggingar í kaupstöðum og kauptúnum. Þeir, sem telja sjer til fram- dráttar, að ríkið veiti 6 miljónir króna árlega 1 10 ár, til aukinn- ar ræktunar og byggingar í sveitum landsins. Þeir, sem vilja heldur greiða 214% vexti en 8% af lánum til nýsköpunar útvegsins. Þar verða allir þeir, sem fagna því, að verða trvggðir fyrir skorti frá vöggu til grafar. Þeir, sem láta sig það skifta, að bætt verði mentun unglinga í landinu. Þeir, sem telja sjer’ til hagsbóta, að ríkið skapi ör- ugga samgönguleið austur yfir fjall og verji til þess 22 milj. króna. Þeir, sem telja nauðsyn á hafnarbótum og nýrri iands- höfn. Þeir, senr telja að bæta þurfi samgöngur á sjó við strendur landsins. Þeir, sem telja þörf fyrir gistihús í Rvík. Þeir, sem vilja forgöngu rikisins ti] íyrirmyndar framkvæmda, sem einstaklingurinn ekki ræður við. Og yfirleitt allir þeir, sem beint eða óbeir.t hafa hagnast á því framtaki, sem stjórnarflokkarnir hafa sýnt og munu sýna, meðan þeir starfa saman. Jeg held, að ekki sje fýsilegt fyrir svokallaða Framsóknar- menn að sækja fram gegn þess- ari fylkingu. * Jeg ætla að bíða rólegur dóms þjóðarinnar. Jeg kvíði honum ekki. Hann verður ekki nema á einn veg. Þjóðin hefir raunar þegar kveðið upp sinn dóm. — Hún hefir kveðið niður návæl forkólfa Framsóknarflokksins. Hún hefir neitað að láta það á sig fá, þótt tveir nafnkunnir menn lentu utan við ráðherra- stólana. Hún hefir lagt blessun yfir stefnu stjórnarinnar og störf. Hún hefir nú þegar ráð- stafað nær 240 af beim 300 milj. er ákveðið var að verja til kaupa á nýjum tækjum. Þessi dómur er skýr og tvímælalaus. Þessi dómur er ekki stjettadóm ur. Hann er k^veðinn upp af mönnum úr öllum stjettum, dreifðum um allt land. — Rödd bænda kveður hátt við. Þeir ákæra forustu Framsóknar- flokksins fyrir að hafa brugð- ist, þegar mest á reið. Þeir telja meiru skifta, að bændur fái sinn skerf nú, þegar þjóðin í fyrsta sinni ræður yfir veruleg um fjármunum, og hefir stað- ráðið að verja þeim til efling- ar atvinnulífinu, en hitt, hvort Hermann Jónasson og Eysteinn Jónsson eru ráðherrar. Þess- vegna hafa þeir nú heimtað og trygt sjer vjelar í þágu iand- búnaðarins fyrir tvo til þrjá miljónatugi. Og þess vegna hafa þeir nú unnvörpum snúið bakinu við furustu Framsókn- arflokksins. * ★ JEG TEL mig nú hafa gert hreint fyrir dyrum ríkisstjórn- arinnar. Jeg ætla mig hafa sannað að hún verðskuldar beinan stuðning allra annara en þeirra, sem alls ekki geta felt sig við samstarf við einn eða fleiri af stjórnarflokkun- um. Sem kunnugt er, hafa Fram- sóknarmenn alment ekki verið í þeim flokki. Vænti jeg því að ekki iðeins Sjálfstæðismenn, Sósíalistar og Alþýðuflokks- menn, heldur og Framsoknar- menn viða um landið aðhyllist stefnu stjórnarnnar við Aiþing- iskosningarnar, hvort sem þing flokkurinn telur sjer skvlt eða ekki að geðjast foringjunum með því, að ^reiða vantraustinu atkvæði. M.s. Dronning Alexandrine Þeir farþegar sem fengið hafa ákveðið loforð fyrir fari með skipinu í byrjun maí, sæki farseðla á niorgun (mámidag); annars seldir öðrum. SKIPAAFGREIÐSLA JES ZIMSEN (Erlendur Pjetursson) Wadkin trjesmíðavjelar Ýmsar tegundir úlvegum við frá Englandi. Gæðin eru viðurkend um allan heim. Friðrik Bertelsen & Co. h.í. Hafnarhvoli — Símar: 6620 og 1858 ÍOOOOOÓOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOOÓÓOOOÓOOOOOOOOOOOOOÓOOÓOOOOOOOOOOOOO' i

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.