Morgunblaðið - 28.04.1946, Side 8

Morgunblaðið - 28.04.1946, Side 8
8 MORGUNBLAbíÐ Sunnudagur 28. apríl 1946 Utg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Riíst'jórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgBarm.). Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald: kr. 8.00 á mánuði innanlandf. kr. 12.00 utanlands. I lausasölu 50 aura eintakið, 60 aura með Leabðk. Farsælt starf ÞAÐ ER langt síðan að nokkur ræða á Alþingi íslend- ínga hefir vakið jafnmikla eftirtekt og ræða sú, er for- sætisráðherra Ólafur Thors flutti síðastliðinn föstudag. Og blaðið þorir óhikað að bæta við, að það er einnig langt síðan að nokkur ræða hefir fallið í eins góðan jarð- veg hjá íslendingum og þessi ræða forsætisráðherrans. ★ Það ber margt til þessa. A fyrsta lagi fagna menn því, að fá nú að heyra frá ríkisstjórninni sjálfri hvað gerst hefir í herstöðvamálinu. Og þó auðvitað miklu fremur því, hvernig ríkisstjórnin hefir tekið á málinu. Hitt hlýtur þá einnig.að vekja furðu, að ábyrgir stjórn- málamenn, sem vissu öll deili málsins frá upphafi, skuli hafa notað þá leynd sem yfir því hvíldi, til þess að þyrla upp moldviðri um málið, og til illkvitnislegra árása á þjóð, sem íslendingar standa í mestri þakklætisskuld við. Gefst væntanlega tækifæri að ræða þenna þátt síðar. Menn skiija nú, að sú leynd sem ríkti um þetta mál, stafaði ekki af því, að stjórnin hafði neinu að leyna, heldur af hinu, að forsætisráðherrann hafði manndóm til að viðhafa þá málsmeðferð, sem hann taldi hyggilegasta og áreiðanlega líka var hyggilegust, enda þótt hann með því gæfi andstæðingunum tækifæri til að rægja hann persópulega. íslendingar kunna að meta slíka eiginleika hjá forystutnömium sínum. ★ í öðru lagi var sú mynd, sem forsætisráðherra dró upp af stefnu og starfi ríkisstjórnarinnar mjög ánægjuleg. Þessi mynd sýndi ekki aðeins hversu farsæl stefnan er,” heldur einnig nversu vel hún hefir verið frarn- kvæmd. Forsætisráðherrann skýrði svo eigi verður um vilst, hversu vesæl er tilraún Framsóknarflokksins til að ó- virða ríkisstjórnina vegna langrar setu þingsins. Hann taldi upp milli 10 og 20 stórmál, sem hvert um sig nægði til að festa virðingu þingsins. En öll til samans slá því föstu, að þetta þing hefir afrekað langtum meira,en nokkurt annað þing, sem háð hefir verið hjer á landi. ★ Með þessu og með því að rekja störf stjópnarinnar og stuðningsflokka hennar utan þings og innan, hefir for- sætisráðherrann slegið því föstu, svo ekki verður um deilt, að ríkisstjórnin og flokkar hennar hafa efnt heitin og verið afkastameiri og farsælli í störfum en nokkur önnur ríkisstjórn hjer á landi. ★ Ált þetta er fagnaðarefni fyrir þjóðina. Hún kann áreið- anlega að meta það. Og hún gleðst innilega af þessu. Hinu er svo ekki að leyna, að mjög margir þeirra, sem hlustuðu á útvarpsumræðurnar á föstud^gskvöld, höfðu gaman af því hversu sneypuleg var för Framsóknar- flokksins, og hversu háðulega útreið hann fjekk hjá mörgum ræðumönnum stjórnarliðsins, og þá ekki síst hjá forsætisráðherra. , Hin gagnmerka ræða forsætisráðherra var málefnaleg og óvenjulega sterk. Hún var og viðeigandi og maklegt svar við illkvitni og nuddi Framsóknarflokksins fyrr og síðar. ★ Þjóðin gengur nú bráðlega til kosninga. Þá er það henn- ar, að kveða upp úrslitadóminn við kjörborðið. Þjóðarinnar er að meta verk ríkisstjórnarinnar og dæma eftir þeim. Hennar er einnig að gera sjer ljóst, hvernig umhorfs væri hjer á landi í dag, ef sundrungar- stefna Framsóknarflokksins hefði fengið að ráða. Þessi dómur þjóðarinnar getur ekki farið nema á einn veg. Það er óhugsandi að þjóðin gangi nú í lið með sundrungaröflunum, þegar henni ríður meir á því en nokkru öðru, að standa saman. Ríkisstjórnin kvíðir ekki dómi þjóðarinnar. \Jílwerji ílrijar: ÚR DAGLEGA LlFINU Farfuglar. MEÐ VORINU koma farfugl- arnir til Islands. Lóan kvaS vera komin fyrir nokkru, ,,að kveða burt snjóinn“. Krían kemur eftir svo sem tvær vik- ur og nánar tiltekið 14. maí í Tjarnarhólmann hjá okkur. Farfuglunum fögnum við af al- hug. Þeir koma með sólina og hlýjuna frá suðlægari löndum. Og við eigum von á öðrum „farfuglum“ í sumar, sem einn ig eru okkur aufúsugestir. Á leiðinni hingað til landsins er ungur piltur, íslenskur í aðra ættina. Er það cellosnillingur- inn Erling Blöndal Bengtson. Verður honum vafalaust vel fagnað. -—- Innan skams kemur frá Norðurlöndum Islendingur, sem getið hefir sjer frægð fyr- ir harmonikuleik og það. svo að nýlega gat norskt blað þess, að það væri mikil eftirsjá að hon- um frá Noregi. Harmoniku- snillingurinn heitir Lýður Sig- tryggsson og er Akureyringur. Von er á enn fleiri aufúsu- gestum, listamönnum, sem koma til að gleðja okkur með list sinni. Heyrst hefir að Reu- mertshjónin komi að sumri, að minsta kosti frú Anna Borg Reumert. Stefán Islandi er og væntanlegur og fleiri og fleiri. • Aðrir ferðalangar. OG ÞAÐ er von á fleiri gest- um. Esjan er á leiðinni til lands ins með 211 farþega. Vafa- laust ermargt ferðalanga meðal farþega. íslendingar, sem eru að, koma heim til dvalar, eða koma í stutta heimsókn, en eitthvað mun slæðast af erlendum mönn um, sem koma í atvinnuleit. Með þeim farþegaskipum, sem komið hafa frá Norðurlöndum í vetur hafa Islendingar jafn- an verið í miklum minnihluta. Utlendir menn í atvinnuleit, eða í söluferðum, hafa hópast til landsins. Fer það að verða fullkomið íhugunarefni hvort ekki sje einhver takmörk fyrir því hve mikið við getum tekið við af slíkum gestum. Það virðist ekki vera farið eftir neinum föstum reglum hvað þessa innflytjendur snert ir, en hinsvegar tími til kom- inn, að nokkuð eftirlit sje með þessum nýstárlega innflutningi. Er hjer þó ekki verið að stinga upp á því, að landinu verði lokað, eða að við byggj- um utanum okkur neinn kín- verskan múr. En við verðum að fara að dæmi annara landa, að fylgjast vel með hverjir það eru, sem taka sjer hjer ból- festu og í hvaða tilgangi. • Húsnæðismálin. EITTHVAÐ ER nú verið að byggja í bænum. Menn þurfa ekki að ganga lengi um í út- hverfunum til að veita þessu athygli. Hvert húsið, já, heil borgarhverfi rísa upp. Og þetta hefir haldið svona áfram um nokkurra ára skeið, án þess að nokkuð dygði til. Húsnæðis- vandræðin eru þau sömu og þau hafa verið síðan fólkið fór að streyma til bæjarins í æ stríðari straumum. Enn búa margir í Ijelegum braggaíbúð- um. Allir eru sammála um að þeir mannabústaðir eigi að hverfa og það sem allra fyrst. Aldrei mun hafa verið bygt hjer eins mikið eins og á þessu vori og meira er í vændum í sumar, því bæjarstjórnin er nýlega búin að úthluta hvorki meira nje minna en rúmlega 300 lóðum. Verði bygt á öll- um þessum lóðum í sumar læt- ur nærri að við bætist alt að 1000—1200 íbúðir. Húrra fyrir þessu framtaki. Það er spor í rjetta átt til að bæta bæinn okkar. Takmarkið hlýtur að vera, að hver og einn einasti Reyk- víkingur fái þægilega og góða íbúð. x Ástæður örðugleikanna. ______ ÞAÐ er ekki til neins að loka augunum fyrir því, að okkur vantar ýmislegt hjer í þessum bæ og að við eigum við örðug- leika að stríða. Mönnum hættir við að heimta alltof mikið af því opinbera og kvarta svo og kveina, ef ein- • hver þægindi vantar. í ræðu, sem borgarstjórinn okkar, Bjarni Benediktsson, flutti af svölum Alþingishússins á barna daginn, sagði hann þessa eftir- tektarverðu orð um ástæðurn- ar fyrir erfiðleikum okkar hjer í bænum: „Astæður örðugleikanna hjer eru margar, m. a. sú, að við erum nú í fyrsta sinn í sögu okkar að koma okkur fyrir í þjettbýli. Að byggja upp borg- ir í stað dreifbýlisins, sem- við höfum fram að þessu um allar aldir dvalið í. En það hlýtur að sjálfsögðu að taka nokkurn tíma að koma sjer svo fyrir í samræmi við hina nýju lifnað- arháttu, sem best má á fara“. Þessu orð borgarstjóra ætt- um við að hafa í huga, þegar okkur finnst það ganga seint, að koma hjer upp öllum þeim þægindum, sem við myndum kjósa okkur. • Heiður þeim, sem heiður ber. ÞESS BER að geta, sem vel er gert, ekki síður en hins, sem miður fer. Útvarpshlustend ur hafa verið sjerstaklega á- nægðir með útvarpsdagsskrána í síðustu viku. Það er eins og * það hafi færst nýtt líf í útvarp- ið, eftir deyfðina og drungan um páskana. Það er eins og það sjeu komnir menn til að skemta okkup í útvarpinu, í stað sál- arlausra vjela. Hjer skal ekki farið út í ein- staka dagskrárliði, en þeir hafa verið margir ágætir. Guð láti gott á vita. | Á INNLENDUM VETTVANGI 3 ............. Aflraunamaður og afskorfö blóm í grasi Utanríkismál. HERMANN Jónasson er sjer- kennilegur stjórnmálamaður. Það hefir oft komið í ljós. Kannske aldrei betur en við út- varpsumræðurnar í fyrradag. Þar ræddi hann m. a. um ut- anríkismálin.Hann fór um það mörgum orðum, að við íslend- ingar þyrftum að hafa hina nánustu og bestu samvinnu við engilsaxnesku þjóðirnar. Ekki vacð annað sjeð, en hann talaði þar af sannfæringu. En þessi valdasjúki aflrauna- maður hefir sýnilega mjög ein- kennilegar hugmyndir um það, hvernig landsmenn eigi að Þyggja sJer Þá samvinnu og vinsemd, er hann segir okkur lífsnauðsynlega. Hann hefir í blaði sínu, og á alþingi, haldið því fram, að ríkisstjórn íslands ætti að taka upp alveg nýjan og áður óþekt- an hátt í viðskiftum við aðr- ar þjóðir. Að þegar -vinsam- leg stórveldi senda íslensku ríkisstjórninni orðsendingar, þá eigi það að vera siður á Is- landi, að birta þær orðsend- ingar, án þess að komi til sam- þykki sendandans. Og þegar fulltrúar íslands erlendis fá einhverjar upplýsingar um mál sem varða viðskifti þjóðarinn- ar við önnur ríki, þá eigi að vera hægt að heimta, að fá öll slík brjef birt alheimi. Ef hinn vöðvamikli valda- streytumaður hefði tök á því, að draga nokkrar ályktanir, þá myndi hann geta sagt sjer það sjálfur, að ef ríkisstjórn og alþingi tæki upp þann hátt í utanríkismálum, seni hann leggur til, þá myndi afleiðing- in verða sú, að aðfar þjóðir, stórar og smáar hætta að tala við okkur. Ef Hermann Jónasson ætti eftir að komast hjer til valda að nýju, þá myndi þessi háttur kanske henta best. Hann gerði öll viðskifti við aðrar þjóðir mjög einföld. En þegar aðrar þjóðir hefðu fyrir tilstuðlan Hermanns Jón- assonar fengið sönnun fyrir því, að ekkert væri við okkur talandi, sem siðað fólk, þá er hætt við að þjóðinni þætti brátt „þrengjast fyrir dyrum“. Samlíking. Liðsmaður Hermanns Jónas- sonar í útvarpsumræðunum, Bjarni bóndi Ásgeirsson, kom í upphafi ræðu sinnar með sam- líkingu, sem fór ákaflega vel í munni hans. Hann var að tala um at- vinnurekstur sem ekki gæti borið sig fjárhagslega. Mætti líkja þeim rekstri við „afskorið blóm í vatnsglasi“. Fyrir nokkrum árum hjeldu garðyrkjumenn hjer í Reykja- vík myndarlega sýningu. En meira bar þar á skrautblómum en nytjajurtum og jarðarávöxt- um. Hermann Jónasson var þá landbúnaðarráðherra. Er sýn- ingin var opnuð vjek hanri að því, að þáð væri ekki mikill vandi að reka búskap á íslandi, með þeirri glæsilegu fram- leiðslu á skrautblómum, sem þarna væri sýnd. Rjett einsog þar væri lausn fundin á land- búnaðarkreppunni. Blómlegur for- ystumaður. ÞEGAR HERMANN Jónas- son gaf þessar vísdómslegu bendingar, hafði Bjarni Ás- geirsson nýlega ljett af sjer skuldum að frádregnum 5% sem hánn ætlaði sjálfum sjer. Síðan hefir þessi forystumaður landbúnaðarins farið að ráðum (Gjörið svo vel að fletta á bls. 12, 1. dálk.)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.