Morgunblaðið - 12.05.1946, Qupperneq 1
12 síður og Lesbók
33. árgangur. 105. tbl. — Sunnudagur 12. maí 1945 Isaíoldarprentsmiðja h.f.
S)í£uátu ýrjettir:
Verkföllin magn-
ast í Danmörku
K.höfn í gærkveldi.
Einkaskeyti til Mbl.
ÝMSIR hafa þegar byrjað
mótmæláverkföll gegn því, að
ríkisþingið stöðvaði slátrara-
verkfallið. Þeir sem byrjað hafa
verkföll eru m. a. hafnarverka-
menn, brauðökumenn og verka
menn hjá Burmeister & Wain.
Búist er við að þessi mótmæla-
verkföll breiðist út, cg eru
menn nræddir um að þau geti
orðið að allsherjarverkfalli,
sem lami Kaupmannahöfn.
Bandaríkja^enn
handfaka þýska
kommúnisia
London í gærkveldi.
BANDARÍKJAHERINN í
Berlín hefir handtekið tvo aðal-
leiðtoga þýskra kommiirusta á
hernámssvæði Bandarík.janna í
Berlín. Hafa báðir þessir menn
reynst sekir um að hafa verið
með undirróðr.r og svívirðing-
ar á hend.ur Bandaríkjunum og
Bandaríkjahernum, og mun
þeim verða refsað fyrir þetta.
Umdeildur siaður
K. B. vann Chelsea
DANSKA knattspyrnufjelag-
ið Köbenhavns Boldklub átti
50 ára afmæli fyrir nokkru og
heimsótti breska atvinnumanna
fjelagið Chelsea það þá í Höfn
og ljek við það einn leik í
Idrætsparken. Úrslitin komu
mönnum mjög á óvart, þar sem
K.B. vann með 2 mörkum gegn
einu. — Ðönum þótti mikið til
koma að sjá Lawton, hinn fræga
landsliðsmiðframherja frá
Chélsea leika. — Nokkru síðar
Ijek Chelsea gegn úrvalsliði frá
Fjóni og vann það með 3:0.
K.B. hefir möguleika til að
vinna Danmerkurkepnina í
fyrstu deild. — Chelsea sem
beið nú ósigur fyrir K.B. gerði
á sínum tíma jafntefli við rúss-
nesku meistarana Dynamo, svo
vel má sjá, að Danir eru engar
liðíeskjur í knattspyrnu.
Hjer sjest yfir Trieste, hina mjög umdeildu borg við Adriahafið, sem bæði ítalir og Jugoslafar
vilja eiga.
Rússar draga taum Azerbeijaa-
manaa gegn Teheranstjórninni
Danir stöðva verkföllin
með löggjöf
Kommúnisiar hafa í hófunum
K.höfn í gær.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins.
RÍKISÞINGIÐ samþykkti með atkvæðum borgaraflokkanna
að stöðva slátraraverkfallið frá því á mánudagsmorgun.
Jafnaðarmenn og kommúnistar voru á móti frumvarpinu um
þetta. Leiðtogi jafnaðarmanna, Hedtoft Hansen ljet svo um
mælt að nauðsynlegt væri að stöðva verkföllin hið skjótasta,
vegna þess að ýms mál lífsnauðsynleg þjóðfjelaginu væru í
veði, ef þetta væri ekki gert.
Auglýst effir
bílsijóra
FÖSTUDAGINN 10. þ. m.
varð græn fólksbifreið þess
valdandi að stúlka fjell af reið-
hjóli og meiddist.
Þetta skeði kl. 13 við gatna-
mót Barónsstígs og Bergstaða-
strætis. Bílstjórinn er vinsam-
lega beðinn að tala við rann-
sóknarlögregluna á ménudag-
ínn.
Vildi nýjar sáttaumleitanir.
Hedtoft Hansen vildi þó ekki
að löggjafarvaldið gripi í taum-
ana, heldur óskaði hann eftir
að reynt væri að semja einu
sinni enn, hitt myndi reita
verkamennina til reiði. — For-
sætisráðherra sagði að svo mik-
ið væri búið að reyna að miðla
málum, að þeir möguleikar
væru brotnir. Hedtoft Hansen
sagði þá, að það væri skylda
allra að hlýða lögunum, og
væri það mikil ógæfa fyrir alla,
ef vissir hópar manna í þjóð-
fjelaginu virtu ekki sett lög.
Kommúnistar hóta
alsherjarverkfalli.
Þessi ummæli Hedtoft Han-
þess að kommúnistaleiðtoginn
Aksel Larsen hafði hótað alls-
nerjarverkfalli. ef þingið skerti
verkfallsrjettinn eins og hann
komst að orði.
Spánverjar fá 50
hveififarma
London í gærkveldi.
MATVÆARÁÐHERRA Spán
verja tilkynnti í Madrid í dag,
að Spánverjar ættu á næst-
unni von á fimmtíu skipsförm-
um af hveiti frá Argentínu.
Sagði ráðherrann, að nokkur
skipanna væri þegar komin og
væri verið að skipa upp úr
þeim í Valencia og fleiri höfn-
sen vökíu mikla athygli vegnaum Sþánar. — Reuter.
Er ú slitna upp
úr samnmgum
London í gærkveldi.
í SK Y GGILEGA horfir í
Teheran í samniingum milli
stjórnar Persa og fulltrúa Az
erbeijanmanna. Átti aðalfull-
trúi Azerbeijanmanna tal við
forsætisráðherra Persa og var
sendiherra Rússa viiðstaddur
og reyndi að fá forsætisráð-
herrann til að láta undan Az-
erbaijanmönnum og veita
þeim ýmsar ívilnanir. Forsæt-
isráðherrann, Gavam es Sult-
ani, neitaði öllum kröfum Az-
erbeijanmanna og Rússa. Tal
ið er að það sje að siltna upp
úr samningunum.
„Afturhaldstal“ í Tabriz.
Útvarp Azerbeijanmanna
hjelt því fram í kvöld, að
stjórnin í Teheran færi eftir
undirróðri „afturhaldsafla“,
sem spiltu fyrir öllum samn-
ingum við Azerbeijanmenn
Var svo sagt í útvarpinu, að
samningamennirnir myndu
bráðlega snúa aftur heim til
Tabriz, þar sem engir samn-
ingar tækjust vegna fyrr-
nefndra „afturhaldsafla“. —
Frjettariarar í Teheran segja
að ekki sje annað sjáanlegt,
en að samingarnir fari algjör
lega út um þúfur. '1
Oryggisráð —
Þjóðabandalag
New Yofk í gærkveldi.
EINN af kunnustu blaða-
mönnum hjer í borg ritar í dag
í blaðið New York Herald á
þessa leið um Öryggisráðið og
Þjóðabandalagið sáluga:
„Á laugardaginn kemur verð
ur Öryggisráð hinna sameinuðu
þjóða að ákveða, hvoit það
heldur áfram að fordæma vopn
aða íhlutun Sovjetríkjanna í
Persíu, hvort Örvggisráðið þýð
ir öryggi, eða hvort það á að
vera bergmál af þjóðabanda-
(agmu sáluga.“
„Sú yfirlýsing, að Rauði her-
inn sje farinn frá Persíu, eftir
að hafa svikist um það þrisvar,
hefir ekkert gildi. Ofbeldið hef
ir verið framið, og ef Örvggis-
ráðið ákveður að láta slíkt við-
gangast, hefir það tekið for-
dæmi Þjóðabandalagsins, sem
ekkert gat gert til varðveislu
öryggi smáþjóðanna."
—Reuter.
Lögþingið hafnar
tillögum Dana
Þórshöfn, Færeyjum í gær.
Einkaskeyti til Mbl. x
Á SÍÐASTA fundi Lögþings-
ins, þar sem stjómarskrármál-
id var rætt, var tillögum dönsku
stjórnarinnar hafnað sem sam-
komulagsgrundvelli af Fólka-
flokknum og jafnaðarmannin-
um Jakupsstovu, en aðrir þing-
menn greiddu ekki atkvæði.
Síðan var frumvarp um að
láta þjóðaratkvæði fram fara
innan 15. september samþykt.
Verður þar kosið um annað
tveggja fullt sjálfstæði eða til-
boð ríkisstjórnarinnar. Það er
undir því koinið, hvort þetta
frumvarp verður að lögum, að
umtmaðurinn skrifi unair það.
—ER
Englendingar unnu
Svisslendinga 4:1
London í gærkveldi.
í DAG fór fram á Stamford
Bridge vellinum í London lands
kapple:kur í knattspyrnu milli
Englendinga og Svisslendinga
og urðu úrslit þau, að Englend-
ingar unnu með fjórum mörk-
um gegn einu. í fyrra hálfleik
var ekkert mark skorað og er
yfir 20 mínútur voru liðnar af
síðari hálfleik stóðu leikar enn
0:0, en skömmu síðar settu
Svisslendingar mark. Nokkru
eftir kvittaði Carter fyrir Eng-
lendinga, sem síðan fengu yfir-
hönd í leiknum og skoruðu enn
3 mörk. Gerðu þau þeir Carter,
Lawton og Brown. — 75.000
áhorfendur voru að leiknum, og
jþótti hann ágætur. — Reuter.