Morgunblaðið - 27.06.1946, Page 1
16 síður
Í3. árgangur. 140. tbl. — Fimtudagur 27. júní 1946 InnfoldarprentBmiðja h.t.
Þjóðin slær einhuga, skjaldborg um
lýðveldið unga
Forysta Sjálfstæðisflokksins heillarík í utanríkis- og
atvinnumálum
Ræða Bjarna Benediktssonar við
umræðurnar á þriðjudagskvöld
Bjarni Benediktsson, borgarstjóri
Bidauii kpsiir
sijérn sína
London í gærkveldi.
BIDAULT, hinn nýji for-
sæætisráðherra Frakka, kynti
í dag þinginu hina nýmynd-
uðu stjórn sína. Komst hann
svo að orði við það tækifæri,
að hann „vonaðist til þess
að stjórnarfar landsins myndi
verða komið á fastan grund-
völl í október næstkomandi11.
Einnig mælti hann nokkur
orð um De Gaulle og hrósaði
honum ákaflega. Kallaði Bi-
dault hann föður hins nýja
frelsis Frakklands. Að lokum
var samþykt traustsyfirlýs-
ing á stjórn Bidaults með 504
atkvæðum gegn 2.
— Reuter.
Fimleikasýsing-
tinni í Höfn vel
lekið af
áhorfendnn
Khöfn í gær.
Einkaskeyti til Mbl.
FIMLEIKASÝNINGIN í gær-
kveldi byrjaði með því, að
fimleikamennirnir sungu þjöð-
söngva Dana og íslendinga.
Formaður leikfimissambands
Dana bauð fimleikamennina
velkomna og ljet í ljósi gleði
sína yfir því að sjá íslendinga
aftur eftir svo langan tíma.
Vonaði hann að samvinnan yrði
náin og góð í framtíðinni.
Fjölmargir áhorfendur voru
að sýningunni og hrifning var
mikil, ákaft lófatak eftir hvert
'atriði. — Blöðin minnast ekki
á sýninguna nema fyrirfram.
-—- Fimleikamennirnir flugu á-
leiðis til London í morgun.
—Páll.
O-iistinn er
sem fyr lisli
Sjálfstæðis-
flokksins
Stofnun lýðveldins
ber hæst.
VIÐ ÞESSAR fvrstu alþingis-
kosningar í hinu íslenska lýð-
veldi er mönr.um skylt að gera
sjer grein fyrir helstu úrlausn-
arefnunum, bæði þeim, sem að
höndum hafa borið á síðasta
kjörtímabili og hinum sem
framundan eru. Enda er hvort-
tveggja, að fulltrúum þjóðar-
innar er skylt að gera henni
reikningsskil gerða sinna og að
framtíðin verður eigi á öðru
byggð en fortíðinni.
Af þeim málum, sem leyst
hafa verið á síðasta kjörtíma-
bili, ber sjálfa lýðveldisstofn-
unina lang hæst. Að lokum varð
nálega öll þjóðin sammála um
hana. Enda hvarflaði hugur
hennar aldrei í því mikla máli.
Hitt er satt, að um skeið voru
sumir þeir, sem vænta hefði
mátt forustu af, ærið hikandi
og rjeðu eindregið frá því; að
þjóðin fylgdi óskum sínum og
vilja. Stjórnmálaþýðingu hafði
hreyfing þessi einungis að því
leyti sem Alþýðuflokkurinn eða
viss öfl innan hans settu sig
þar í forustu. Nú eftir á segj-
ast þessir menn aðeins hafa
viljað að fyrirmælum sambands
laganna væri hlýtt, en ekkert
hafa haft á móti lýðveldisstofn-
un á þeim tíma, er hún varð.
En þessi afsökun fær ekki
breythsjálfunv staðreyndunum.
Það var þegar afráðið fyrir
haustkosningarnar 1942, að lýð
veldi skyldi eigi stofnað fyrr
en á árinu 1944.
Lýðveldisstofnun fyrr kom
ekki til greina og þessvegna
þurfti enginn að berjast á móti
henni. Einkunnarorð þessara
manna voru og þá: „Það verð-
ur að tala við Dani“, „það má
ekki fára illa með kónginn" o.
s. fl’V.
Gott, að Gylfiifjekk
ckki að ráða.
Enda fór hr. Gylfi Gísl.a-
son þá ekki dult með hug sinn
í þessu máli. Hann beitti sjer
árið 1943 fyrir útgáfu bókar,
sem nefndist: Ástandið í Sjálf-
stæðismálinu. Á s. 32—35 í bók
þessari er grein eftir hr. Gylfa
með fyrirsögninni: Frestun
sambandsslita til styrjaldar-
loka. Grein þessi fjallar öll um
það, hve hættulegt höfundur-
inn telur að stofna lýðveldi 17.
júní 1944. Orðrjett segir höf-
undurinn: „Jafnvel þótt íslend-
ingar hefðu öðlast rjett til slíkra
aðgerða, álít jeg að ekki ætti að
neyta hans“, Hr. Gylfi gleið-
Ietraði þá þessa aðvörun sína
gegn lýðveldisstofnun 1944, svo
að enginn væri í vafa um, að
hún væri einmitt kjarni máls
hans.
Hvernig hefði nú farið,
ef þjóðin hefði hlýtt ráðum þess
ara manna? Ef hún hefði frestað
lýðveldisstofnun fram yfir upp-
gjöf Þjóðverja. Er hugur Dana
um þessar mundir slíkur, að
auðvelt hefði verið að semja
um fullt frelsi okkur til handa
við þá? Hefði íslendingar nú
haft betri aðstöðu til að fá við-
urkenningu sórveldanna en þeir
höfðu 1944? Er eklti meir en
hugsanlegt, heldur beinlínis
líklegt, að nú hefði hagsmuna-
togstreitan milli stórveldanna,
sem þá lá niðri, vegna styrj-
aldarinnar, blandast inn í þetta
mál? Eða er nokkur íslending-
ur svo skyni skroppinn, að
halda, að auðveldara hefði ver-
ið að fá í senn viðurkenningu
á endurreisn lýðveldisins og j
standa á móti beiðni Banda- 1
ríkjanna um herstöðvar hjer á
landi? Svo má lengi spyrja, en
svarið verður aðeins eitt: Is-1
lendingar máttu ekki seinni
vera um stoínun lýðveldis síns.
Jeg skal ekki hjer fara að
þakka neinum einstaklingum
eða flokkum aðgerðir þeirra 1
þessu máli. Það 'er vissulega
ekki þakkarvert. þó að maður
bregðist ekki þjjóð sinni á slíkri
stundu. Best væri og að geta
gleymt, að nokkur hafi brugð-
ist. En þegar helstu undan-
haldsmennirnir, þeir, sem vildu
hafa stjórnmálalegan hag af
afstöðu sinni þá, koma nú fram
sem umbótámenn og segjast
vera boðberar hins nýja tíma,
er óumflýjanlegt, að þjóðin hug
leiði hver staða hennar væri
nú, ef hún hefði fylgt þeim í
þessu máli, og hvort líklegt sje,
að þeir verði hollráðari í öðrum
málum, sem flóknari eru en
þétta, sem hvert barn í stjórn-
málum átti frá upphafi að
kunna skil á.
Enda kom cram í ræðu
hr. Gylfa Gíslasonar full-
komin vanþekking á stjó’’nmál
Framh. á bls. 6. ■
Sföðugf ðngþveiti í
■ ■
Oryggisráði.
New York í gærkveldi.
SVÆSNAR deilur urðu í
Öryggisráðinu út af Spánar-
málunum, og gerðist margt
einkennilegt á fundinum. —
Fyrst lagði dr. Ewatt, full-
trúi Ástralíu fram tillögu um
það, að ráðið hefði eftirlit
með Spánarmálunum. Mætti
þetta mikilli mótspyrnu af
hálfu Pólverja og Rússa, og
sagði Gromvko, að hann gæti
samþykt tillöguna með þeirri
að ráðið tæki málin fyrir
fyrir ekki síðar en þann 1.
september. — Tillaga Ewatts
var samþykt óbreytt með 9
atkvæðum gegn tveim, full-
trúa Rússa og Pólverja.
Gromjko með neitunarvald.
Þegar þetta hafði gerst,
sagði Gromyko, fulltrúi
Rússa, að hann beitti neitun-
arvaldi. Úrskurðaði forseti
að þetta væri ekki hægt í
slíku máli sem þessu. þar sem
það væri dagskrármál. Var
síðan greitt atkvæði um úr-
skurðinn og rjettmæti hans
og voru 6 með því að úrskurð
urinn væri rjettur, en tveir á
móti. — Kom það þá fram í
íundarsköpum, að þetta væri
eltki nægilegur meiri hluti og
endaði fundurinn þannig án
riokkurrar niðurstöðu.
— Reuter.
í ÞJÓÐVILJANUM í gær
er eftirfarandi klausa:
— „Ræður sósíalisla
vöktu. alþjóðarathygli.
- Hinar afburðasnjöllu
ræöur fulltrúa Sósíal-
istaflokksins í gær-
kveldi Iiafa vakiS al-
þjóðarathygli.....“
ÞETTA HLÝTUR að hafa
verið skrifað um sama
leyti og verið var að
halda ræðurnar. Hvað-
an ætli Þjóðviljanum
hafi á því stigi máls-
ins komið vitneskjan
um að ræðurnar hafi
vakið slíka athygli(!)
SVO MÆLA BÖRN SEM
VILJA.