Morgunblaðið - 27.07.1946, Síða 1
Bl. érgangur.
166. tbl. — Laugardagur 27. júlí 1946
IsttÆðldiarprentsmiðja h.t
Dansks iandsiiSsþjáUax'imm:
\
ÍSLENDINGAR VEL AÐ SIGRIKOMNIR ÞRÁTT F7RIR
MALARVÖLL OG ÚHEPPNI
hyltur eifir upplcst-
Hwinn í
POUL REUMERT las upp
„Pilatus11 eftir Kaj Munk í
Gamla Bíó í gærkvöldi fyrir
troðfullu húsi og mikilli
hrifningu áheyrenda. Að
upplestrinum loknum hyltu
áheyrendur hann með lófa-
klappi og ferföldu húrra-
hrópi. Ætlaði fagnaðarlátun-
um aldrei að linna.
Áður en upplesturinn hófst
mælti Poul Reumert nokkur
orð til áheyrenda. Þakkaði
gestrisni þá, sem Dönum
hefði verið sýnd hjer á landi,
„hvort sem þeir væri sund-
menn, knattspyrnumenn eða
upplesarar11. Poul Reumert
bárust margir fagrir blóm-
vendir, en form. Leikfjel. Rvík-
ur, Brynjólfur Jóhannes-
víkur, Brynjólfur Jóhannes-
son þakkaði listamanninum
með nokkrum orðum fyrir
komuna og þessa stórbrotnu
kvéldstund.
Annar upplestur
á miðvikudag.
Ákveðið er að þau hjónin,
Anna Borg og Poul Reumert
lesi upp saman n.k. miðviku-
dag. Frú Anna ætlar að lesa
á íslensku Bergljót eftir
Björnson og leikur Rögn-
valdur Sigurjónsson undir á
píanó. Poul Reumert les
„Fugl Phöenix11 eftir Kaj
Munk.
Um fleiri upplestra þeirra
hjóna hjer verður" ekki að
ræða að þessu sinni.
Hjer sjest forseti Ítalíu, Nicol a, koma út úr bíl sínum fyrir
uían þinghúsið í Róm.
t'mygpilpí §6iuí
ISLAHÐSMET
í þrístökbi.
NÚ HEFIR 9. keppandinn
bæst í hóp þeirra íslensku
frjálsíþróttamanna, sem valdir
hafa verið til að keppa á Ev-
rópumeistaramótinu í Osló. Er
það Stefán Sörensson frá Hjer-
aðssambandi Þingeyinga. Stökk
hann í gærdag 14,09 m. í
reynslukepni, á vegum Oslo-
nefndarinnar. Er hjer um nýtt
ísl. met að ræða, því hið stað-
festa met er 14,00 m., sett af
Sig. Sigurðussyni, KV, fyrir 10
árum síðan.
Msurice Chevalier
fi! Svíþjéðar.
28. ÁGÚST næstkomandi
mun hinn þekti franski leik-
ari, Maurice Chevalier koma til
Stokkhólms til þess að leika
þar sem gestur í tvær vikur.
Hann mun leika á China-revue
í Stokkhólmi. — Líklegt er tal
ið, að Chevalier muni einnig
koma til Noregs og Danmerk-
ur, er hann heldur heim, að lok
inni dvöl í Stokkhólmi.
Ný barnasaga
byrjar í dag.
NY barnasaga hefst í blað-
inu í dag. Er hún tekin úr
þjóðsagnasafni Ólafs Davíðs-
sonar, sem Þorsteinn M. Jóns
son á Akureyri gaf út í fyrra-
vetur, en þar eru sem kunn-
i’gt er mörg æfintýri við
hæfi barna. Sagan um Bauka-
Stebba mun skemta þeim
ekki síður en margar aðrar í
þessu safni.
Engar landakrðfur
f-riðarráðstefnan í París
hefst á mánudag
Fjölmennusf sendisveit frá Rússum.
PARÍS í gærkvöldi. — Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá REUTER.
FRIÐARRÁÐSTEFNA 21 þjóðar mun hefjast síðdegis
á mánudag í Luxembourghöllinni í París. Fregnir herma,
að aðstoðarutanríkisráðherrar Bretlands, Bandaríkjanna,
Rússlands og Frakklands muni koma saman í höllinni ár-
degis á mánudag.
Bidault flytur ræðu.
Bidault, forsætisráðherra
Frakklands, mun setja ráðstefn
una með ræðu. Kemur hann
fram sem fulltrúi frönsku þjóð
arinnar, en ráðstefnan fer
fram á franskri grund, eins og
áður segir.
Rússar fjölmennastir.
Öllum undirbúningi undir
ráðstefnuna er nú að verða lok
ið, og hafa ráðstafanir verið
gerðar til þess að sem best fari
um ^ulltrúana á ráðstefnunni
og aðstoðarmenn þeirra. Vitað
er, að sendinefndir margra
þjóða verða mjög fjölmennar,
en þó mun sveit Rússa verða
fjölmennust.— Munu verða 1
henni um 300 manns. I sendi-
nefnd Bandaríkjanna verða um
200 manns.
iorin oslitið ævintyri
irá npphaii til enda
•
DANSKA BLAÐIÐ „Politiken11 frá deginum í gær
barst hingað til bæjarins með flugvjel í gærkvöldi. í blað-
inu birtist viðtal við Sophus Nielsen, þjálfara danska liðs-
ins, sem kom hingað til lands með dönsku knattspyrnu-
mönnunum. Er hann mjög hrifinn af viðtökunum hjer á
landi og segir, að ferðalagið allt hafi verið óslitið ævin-
týri. Hann segir, að íslendingar hafi verið vel að því
komnir að vinna þriðja og síðasta leikinn, þó að Dönun-
um hafi að vísu verið malarvöllurinn nokkur fjötur um
fót. Þá verði eigi heldur komist framhjá því, að Danirnir
hafi verið nokkuð gjöfulir. Markmaðurinn, Ove Jensen,
hafi verið illa upplagður. Tvö fyrstu mörkin hafi verið
klaufamörk og hleypt óstyrk í liðið. Nielsen segir, að það
sje fjarri sjer að gera lítið úr knattspyrnukunnáttu ís-
lendinga. Hann hafivorðið hrifinn af henni. íslendingar
standi framar í þeirri íþrótt en til dæmis Finnar. — Hjer
fer á eítir greinin, eins og hún birtist í „Politiken11.
„Óslitið ævintýri".
Danska landsliðið, sem gist
hefir ísland, kom heim frá
Stokkhólmi í gær. Frá Reykja
vík var flogið beint til Stokk-
hólms með Skymasterflugvjel.
Dvalist var í sænsku höfuðborg
inni einn dag, en síðan var hald
ið heim til Kaupmannahafnar.
Ferðin hefir verið framúrskar-
andi ánægjuleg, og þátttakend
ur komu heim með margar end
urminningar. . Sophus Nielsen,
landsliðsþjálfari danska knatt-
spyrnusambandsins, talar um
ferðina af mikilli hrifningu:
— Þessi för hefir verið ó-
slitið ævintýr, alt frá því er við
stigutn um borð í Dronning A1
exandrine og þangað til við
komum á járnbrautarstöðina í
Kaupmannahöfn í morgun. —•
Skipsferðin til íslands var dá-
lítið erfið til að byrja með, og
allmargir leikmannanna voru
sjóveikir, en þeir sjóuðust, og
þegar við komum til Færeyja,
þar sem við stóðum við einn
dag, voru allir orðnir stál-
hraustir. — í Færeyjum bauð
stjórn knattspyrnusambandsins
þar okkur í skemtilega bílferð
um eyna. Þegar við komum til
Reykjavíkur, mátti heita að all
ur bærinn væri samankominn
á hafnarbakkanum til þess að
taka á móti okkur, og þegar r
land var komið, bauð borgar-
stjórinn okkur innilega vel-
komna.
Ottawa í gærkvöldi.
MACKENZIE KING, forsæt-
isráðherra Kanada, hefir flutt
útvarpsræðu, þar sem hann
ræðir væntanlega þátttöku
Kanada í friðarráðstefnunni,
sem mun hefjast í París næst-
komandi mánudag. Sagði hann,
að kanadiska sendinefndin færi
til ráðstefnunnar með það eitt
í huga að vinna að. því að
tryggja frið og rjettlæti í heim-
inum. Kanadastjórn myndi
ekki bera fram á ráðstefnunni
neinar kröfur um landaíviln-
anir eða stríðsskaðabætur úr
hendi hinna sigruðu. —Reuter.
Sllpsljéri og yfir-
vjelstjéri ráénir á
„Ingólf Arnarson"
S J ÁV ARÚTVEGSNEFND
Reykjavíkurbæjar hefir ráð-
ið skipstjóra og yfirvjelstjóra
á hinn nýja togara bæjarins:
Ingólf Arnarson.
Skipstjóri hans verður
Hannes Pálsson, Hringbraut
155. Hann hefir verið skip-
stjóri á bv. Gyllir. Yfirvjel-
stjóri var ráðinn Þorkell
Sigurðsson, Bergþórugötu 59.
Hann hefir verið fyrsti vjel-
stjóri á bv. Tryggvi gamli.
Tapleikurinn.
— Hvernig stóð á því, að
við töpuðum síðasta leiknum?
— Já, til þess liggja nú
ýmsar ástæður. í fyrsta
Framh. á 2. síðu.