Morgunblaðið - 27.07.1946, Qupperneq 11
t
Laugardagur 27. júlí 1946
Fjelagslíf
MEISTARAMÓT
ÍSLANDS
í frjálsíþróttum
hefst 6. ágúst n. k. Fyrirkomu
lag mótsins verður þannig:
— Þriðjudaginn 6. ágúst: 200,
800, 5000 m. hl., 400 m. grinda
hl., hástökk þrístökk, kúlu-
varp og spjótkast. — Miðviku
daginn 7. ágúst: 100, 400, 1500
m. hl., 100 m. grindahl., lang-
stökk, stangarstökk, kringlu-
kast og sleggjukast. Fimmtu-
aaginn 8. ág.: Fimmtarþraut.
— Föstudaginn 9. ág.: 4x100
og 4x400 m. boðhl. — Laugar-
daginn 10. ágúst: Tugþraut
(fyrri hluti) 10 km. hlaup. —
Sunnudaginn 11. ágúst Tug-
þraut (síðari hluti). — Þátt-
taka tilkynnist Í.R.R. viku
fyrir mótið. — Stjórn í. R.
Drengjameistaramót í. S. 1.
hefst í dag kl. 4 á íþróttavell-
dnum.
Skemmtileg og spennandi
keppni.
Síðari hluti mótsins hefst
kl. 2 e. h. á sunnudaginn.
Frj álsíþróttanefnd K.R.
Tapað
Fyrir þrerpur dögum tapaðist
„R ALK0 ‘ ‘ - ar mbandsúr
hjer í bænum. Finnandi er
vinsamlega beðinn að gera að
vart í síma 6215. Fundarlaun.
SJÁLFBLEKUNGUR
hefur tapast. Uppl. í Bygging
arfjelaginu Brú, sími 6298 eða
á kvöldin 5137.
Kaup-Sala
MINNIN G ARSP J ÖLD
barnaheimilissjóðs fást hjá
Steindóri Björnssyni, Sölv-
hólsgötu 10, sími 3687.
MOTUÐ HfTSGÖGN
keypt ávalt hæsta verði. — Sðtt
heim. — Staðgreiðsla. — Sími
8691. — Fomverslunin Grettia-
götu 48.
Vinna
TAKIÐ EFTIR!
Tveir fagmfenn geta tekið að
sjer að innrjetta hús utan við
bæinn eða í sveit. Upplýsing-
ar á Grenimel 14, laugardag
og mánudag.
HREIN GERNIN G AR
Vanir menn til hreingerninga
Sími 5271.
HREIN GERNIN G AR
Jón og Bói,
sími 1327
hreingerningar
Birgir og Bachmann,
sími 3249.
Minningarspjöld
barnaspítalasjóðs Hringsins
fást í verslun frú Ágústu
Svendsen, Aðalstræti 12.
MOHOUNBIiAÐIÐ
11
<2) agbó L
208. dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 5,30.
Síðdegisflæði kl. 17,52.
Næturlæknir er í læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Lyfjabúð-
inni Iðunn, sími 1911.
Næturakstur annast Hreyf-
ill, sími 1633.
Messur á morgun:
Dómkirkjan. Messa kl. 5. Sr.
Jón Auðuns.
Hallgrímssókn. Messað í Aust-
urbæjarskólanum kl. 11 f. h.
Sr. Sigurjón Árnason.
I kaþólsku kirkjunni: I
Reykjavík hámessa kl. 10; í
Hafnarfirði kl. 9.
Lágafellskirltja. Messað verð-
ur kl. 14. Sr. Hálfdán Helga-
son.
Söfnin. í Safnahúsinu eru
eftirtöld söfn opin almenningi
sem hjer segir: Náttúrugripa-
safn: sunnudagaM%—3 e. h.
og á þriðjudögum og fimtudög-
um kl. 2—3. Þjóðminjasafnið
opið sömu daga kl. 1—3. Skjala
safnið er opið alla virka daga
kl. 2—7 og Landsbókasafnið
alla virka daga kl. 10—10.
Brúðkaup sitt halda í dag
ungfrú Hulda Steinunn Val-
týsdóttir (Stefánssonar) og
Gunnar Hansson (Þórðarsonar)
stud. arch. að Laufásvegi 69.
Sjera Friðrik Friðriksson ann-
ast hjónavígsluna.
Þórður Albertsson fulltrúi
UNRRA í Griklandi er nýkom-
inn flugleiðis til bæjarins.
Dvelur hann hjer í sumarfríi
um tveggja vikna tíma.
Hjónaband. í dag verða gef-
in saman í hjónaband af sjera
Jóni Auðuns ungfrú Bryndís
Sigurðardóttir, Hverfisgötu 6,
Hafnarfirði, og Einar Sigur-
jónsson rakari, Unnarstíg 3,
Hafnarfirði. Heimili ungu hjón
anna verður að Tjarnarbraut
29, Hafnarfirði.
Iljónaefni. Nýlega hafa op
inberað trúlofun sína ungfrú
Hulda Jónatansdóttir símamær,
Akureyri og Jón M. Jónsson
klæðskeri í Reykjavík.
Hjúskapur. I dag verða gef-
in saman í hjónaband, af sjera
Sigurbirni Einarssyni dósent,
þau ungfrú Guðrún S. Ilafliða-
dóttir, Hverfisgötu 64A og sr.
Arngrímur Jónsson, sófenar
prestur að Odda í Rangárvalla
sýslu.
Hjónaband. Gefin hafa ver
ið saman í hjónaband af sr.
Jóni Auðuns ungfrú Guðrún
Haraldsdóttir og Knud Henry
Petersen, veitingaþjónn. Enn-
fremur ungfrú María Haralds-
dóttir og Eiríkur Gíslason, bif-
reiðarstjóri. — Brúðirnar eru
systur.
Soröncmendur og menn
þeirra og aðrir vinir hafa á-
kveðið að halda frk. Elisabeth
Vestergaard forstöðukonu
kveðjusamsæti næstkomandi
þriðjudag þ. 30. þ. m. kl. 1V>
e. h.. Þátttakendur gjöri svo vel
að skrifa sig á lista, fyrir kl. 4
e. h. mánudaginn þ. 29. þ. m. í
Bókaverslun Sigfúsar Eymunds
sonar.
Skipafi’jettir. Brúarfoss fór
frá Reykjavík kl. 22,00 í gær-
kvöldi til Leningrad um Leith
og Kaupmannahöfn. Lagarfoss
kom til Reykjavíkur þann 24.
júlí.frá Gautaborg. Selfoss er
á Akureyri í dag. Fjallfoss er
í Reykjavík, fer hjeðan kl. 1
á morgun vestur og norð-
ur. Reykjafoss kom til Reykja-
víkur 21. júlí frá Leith, fer á
Laugardag 27. júlí til Ant-
werpen. „Buntline Hitch“ fór
frá Reykjavík 20. júlí til New
York. Salmon Knot kom til
New York 17. júlí á að fara
þaðan 27. júlí til Halifax. True
Knot fór frá New York 18. júlí
til Reykjavíkur. Anne kom til
Middlesbrough 20. júlí. Lech
kom til Reykjavíkur 24. júlí
frá Hull. Lublin fór frá Leith
í gær. Horsa er í Hull.
ÚTVARPIÐ í DAG:
8.30— 8,45 Morgunútvarp.
12.10—13.15 Hádegisútvarp.
15.30— 16.00 Miðdegisútvarp.
19.25 Samsöngur (plötur).
20.30 Upplestur: — „Eldur í
Kaupinhafn“, sögukafli eft-
ir Halldór Kiljan Laxness
(Lárus Pálsson leikari).
20.55 Einsöngur (Ævar R.
Kvaran).
21.15 Upplestur: Kvæði (Jón
Norðfjörð leikari).
21.30 Tónleikar: „Þyrnirósa",
lagaflokkur eftir Tschaikow-
sky (plötur).
22.00 Frjettir.
22.‘05 Danslög.
24.00 Dagskrárlok.
Áform að siofnun
Náttúruverndar-
fjelags.
UNDANFARIN ár hefur all
mikið kveðið að skemdum
görðum af völdum unglinga,
sem hafa spillt og sundrað
gróðri, er átt hefur að fegra
og prýða krignum heimili
manna hjer í Reykjavík
Virðist semj þessi skemmdar
störf unglinganna aukist með
ári hverju og valdi fólki meiri
og nrinni skaða og áhyggjum
Við höfum athugað þetta mál
frá ýmsum hliðum og komist
að raun um, að helstu mögu
leikar til að afstýra þessari
skemmdarhneigð og ófnenn-
ingu, sje góður fjelagsskapur
Við höfum því í hyggju að
gera tilraun til að stofna fje-
lag, í þeim tilgangi að efla
og glæða náttúrufriðun hjá
þátttakendum í fjelagsskapn
umj, og kenna unglingum að
þekkja náttúruna í kringum
sig og umgangast hinar ein-
stöku tegUndir hennar og
virða tilverurjett þeirra, hvort
heldur jurtir eða dýr eiga í
hlut. Reynt verður að útvega
fjelagsmönnum náttúrufærðis
leg rit, sem gætu aukið áhuga
þeirra á‘ störfum náttúrunnar.
Bæði stúlkur og drengir
eiga jafna þátttöku í þessum
væntanlega fjelagsskap. Ár-
gjaldið höfum við ákveðið að
eins 5,00 kr., fyrst um sinn,
er greiðist í fyrstu viku sum-
ars. Yngri börn en 8 ára verða
ekki tekin í fjelagið.
Þeir, sem vilja styðja að
væntanlegri stofnun náttúru-
verndarfjelags hjer í Reykja-
vík, riti nöfn sín á lista, sem
er til sýnis í bókaverslun ísa-
foldar og Lárusar G. Blöndals
við Skólavörðustíg.
Við undirritaðir tökum á
móti gjöfum og áheitum frá
mönnum, sem vildu styrkja
'jelagsskapinn á þann veg.
Guðmundur Davíðsson,
Jón Árnfinnsson,
garðyrkjumaður.
SENDISVEINN
óskast um vikutíma til að leysa af í
sumarfríi. Vinnutími kl. 6—12 síðd.
Morgunblaðið !
Hý verzlun
opnar í dag með keramik (handmálað), postu f
lín (handmálað), rammar, húsgögn, skraut-
vörur 0. fl. —
Þórsbúð
Þórsgötu 14
(hornið Baldursgötu og Þórsgötu).
HITABRIJSAR
væntanlegar bráðlega.
ícfýerf; ^JJriiótjánóóon Co., h.f. i
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐRÍÐUR Á. ÁRNADÓTTIR,
andaðist að heimili okkar, Ullarnesi, Mosfellssveit,
þann 26. þessa mánaðar.
Marta Hjaltadóttir, Jakob Narfason,
og börn.
Elsku litli drengurinn okkar oq bróðir,
' EINAR,
andaðist á Landsspítalanum 26. þ. m.
Ásta Stefánsdóttir, Bjarni Einarsson,
og systkini, Seljaveg 33.
GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON,
fyrrum hjeraðslœknir í Stykkishólmi, Ijest að Spring
hill á Trinidad, hinn 22. þ. m.
Reykjavík, 25. júlí 1946.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sturla Jónsson.
Jarðarför móður okkar,
MARGRJETAR ÁRNADÓTTUR,
jer fram mánud. 29. júlí og hefst með húskveðju á
heimili hennar, Bræðraborg, Stokkseyri, kl. 1,30.
Marta Jónsdóttir,
Viktoria Jónsdóttir.
Alúðarfyllstu þakkir til allra þeirra, sem sýndu
hluttekningu, við andlát og jarðarför mannsins
míns og föður okkar, og teng[daföður,
sjera BJARNA HJALTESTED.
Stefani Hjaltested,
börn og tengdabörn.
Okkar hjartanlegustu þakkir fyrir auðsýnda
vináttu og samúð, við andlát og jarðarför konunnar
minnar, móður okkar og ömmu,
GRÓU ANDERSSON.
Reinhold Andersson,
börn og barnabörn.