Morgunblaðið - 07.08.1946, Síða 1
IX. árgangur.
174. tbl. — Miðvikudagur 7. ágúst 1946
íasMdsirprentsmiðj a h.t.
Friðarráðstefnan:
ÁKVAR
Auknar flugsamgöngur
varaniegum hefmsfrSði
James H. Doc’i'He hershöfð-
JV ÁUKINS MEIMHiUTA
Stiílka brennist
á fæti í hver
ingi
\
EINN AF KUNNUSTU hershöfðingjum og flugmönnum
Bandaríkjamanna, James H. Doolittle, sem m. a. stjórnaði
fyrstu loftárásinni á Tokio, kom hingað til bæjarins um helg-
ina á leið sinni til Parísar. Hann er nú forstjóri í flugdeild
Shellolíufjelagsins. Til íslands kvaðst Doolittle vera kominn
til að heilsa upp á gamla kunningja’ og til að fræðast.
ísland mikilvægur
tengiliður.
Blaðamenn frá Reykjavíkur-
blöðunum hittu Doolittle hers-
höfðingja í gærdag í Tripoli-
herbúðunum og ræddu við
hann um stund. Er hann var
spurður hvern þátt hann teldi
að Island myndi eiga í flug-
samgöngum framtíðarinnar
svaraði hann því á þessa leið:
Til þess að svara þeirri spurn
ingu verður að byrja á byrjun-
inni. Auknar flugsamgöngur
geta orðið einn snarasti þáttur-
inn í varanlegum heirtisfriði.
Flugið eykur kynni milli þjóða
og kynningin er einn aðalþátt-
ui’inn í friðarstarfseminni. Þær
vegalengdir, sem áður voru
farnar á dögum, eða vikum eru
nú farnar á klukkustundum.
A þenna hátt verður ísland
mikilvægur áfangi í auknum
kynnum milli þjóða.
— En er það ekki rjett, að
stefnt sje að því að fljúga beint
milli Evrópu og Ameríku, án
viðkomu á Islandi?
— Að nokkru leyti er það
svo, segir Doolittle, en hinsveg-
ar vilja flugmenn hafa áfanga
á þessari leið, ef á þarf að
halda og hinsvegar stefna flug-
fjelögin að þvi að haga föstum
ferðum sínum þannig, að hægt
sje að koma sem mestum far-
angri og farþegum í vjelarnar.
Það er gert með því að hafa
áfangana styttri og minni
bensínbirgðir í vjelunum. Það
munar ekki svo mikið um ör-
fáar klukkustundir í slíkum
hraðferðum.
Doolittle.
Líst vel á sig hjer.
í gærmorgun fór Doolittle í
flugferð yfir ísland með North-
cut ofursta, yfirmanni á Kefla-
víkurflugVellinum. Hann hefir
einnig skoðað sig um í bifreið.
Hann segist vel skilja ,,að í
þessu klettótta landi með hin-
um fögru grænu dölum“ sje
vagga sjálfstæðrar og harð-
gerðrai' þjóðar. i
RÍKISSTJÓRN Eire sótti í
dag um upptöku í UNO
(bandalag sameinuðu þjóð-
anna). Upptökubeiðnin verð-
ur lögð fyrir allsherjarsam-
kundu bandalagsins, sem
kemur saman í New York 23.
september n.k. Ef samkundan
fellst á beiðndna, verður hún
lögð fyrir öryggisráðið til
fullnaðarsamþykktar.
ta't. ... — Reuter.
A SUNNUDAG vildi það
slys til vdð Geysir, að stúlka
fjell niður um gangbretti sem
lá yfir hver og brendist mjög
á fæti. Stúlka þessi er dönsk
og er hjer á feroalagi með
foreldrum sínum, Ruth Jo-
hansen, að nafni, til heimilis
Drápuhlíð 23.
Þetta gerðist rjett fyrir há
degi. Var hún á gangi upp
við Skálann. Ætlaði hún að
ganga yfdr trjebretti, sem ligg
ur yfir einn af hverunum. —
Var hún komin nokkuð út á
gangbrettið er það brast und
an fæti hennar. Fjell hún með
annan fótinn niður í hverinn
og brendist upp fyrir hnje.
Ekkert var til af sjúkraum-
búðum eða lyfjum, en kona
ein er þarna var á ferð hafði
eitthvað af slíku með sjer.
Var hringt til Reykjavíkur og
náð í sjúrkabíl og stúlkan flut
í Landsspítalann. Þar var gert
Hörð deila Byrnes
og Molotov
á fundi dagskrárnefndar
að sárum hennar og hún síð-
an flutt heim til sín.
Móðir hennar er íslensk, frú
Guðmunda Johansen. Frúin
hefur ekki til íslands komið
í 26 ár.
Ssifrgil
UM hádegi í gær varð mað
ur fyrir vörubifreið á Suður
landsbraut og viðbeinsbotnaði
Hann heitir Þorlákur Hálf-
dánarson, Skothúsvegi 7. —
Hann var á leið til bæjarins
og yar á reiðhjóli. Er hann
var kominn á móts við bensín
sölu Stillds við Laugaveg, ók
10 hjóla vörubifreið framhjá
honum. Vörupallur hennar
rakst í Hálfdán. Tókst. hann
upp af hjólinu og fjell framm
yfdr sig í götuna og viðbeins-
brotnaði. Þá hlaut hann
nokkrar skrámur.
Það má vera að bílstjóri
vörubifreiðardnnar hafi ekki
vitað um slysið, því hann ók
áfram og það gredtt, að bif-
reið, sem reyndi að ná númeri
hennar tókst ekki að ná hennd
Það er ósk rannsóknarlög-
reglunnar, að allir, sem ein-
hvejar upplýsingar gætu gef
dð komi til viðtals hið fyrsta.
PARÍS í gærkvöldi. — Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá REUTER.
DAGSKRÁRNEFND friðarráðstefnunnar sat þrjá fundi
í dag til þess að ræða hið mikilsverða atriði, hvort 2/3
atkvæða eða aðeins einfaldan meirihluta þurfi til fulln-
aðar samþyktar einstakra málefna, sem ráðstefnan fær til
úrlausnar. Það vakti sjerstaka athygli í dag að fulltrúi Jú-
góslafíu lýsti því yfir, að stjórn Júgóslafíu myndi ekki
telja sig bundna af neinum ákvörðunum friðarráðstefn-
unar nema því aðeins, að bak við þær væru að minnsta
kosti tveir þriðjungar atkvæða.
Fyr í dag Kom til allharðrar orðasennu milli Bvrnes,
utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Molotov, utanríkis-
ráðherra Rússa.
Samkvæmt frjettatilkynn-
ingu frá ríkisstjórninni afhenti
Thor Thors sendiherra íslands'
í Washington, í umboði ríkis-
stjórnar íslands, bandalagi
hinna sameinuðu þjóða inn-
tökubeiðni Islands í bandalag-
ið. Þetta var þann 3. þessa mán-
aðar.
í einkaskeyti til Morgun-
blaðsins segir að þann 5. ágúst
Þegar síðast frjettist til hafði
fulltrúi Nýja-Sjálands borið
fram miðlunartillögu, þess efn-
is, að til samþykktar allra
meii’i háttar mála nægði ein-
faldur meirihluti. Þessi tillaga
var feld með 11 atkv. gegn 9,
en einn fulltrúi sat hjá.
Molotov
lýsti þeim skilningi sínum á
fundi dagskrárnefndarinnar, að
tvo þriðjunga atkvæða þyrfti
til þess að ákveða, hvort ein-
faldur meirihluti eða tveir
þriðjungar atkvæða dygði fil
hafi sjerstök nefnd tekið fyr- I
[ ákvörðunar um málefni ráð-
stefnunnar. Kvaðst hann í þessu
ír mntokubeiðm Islands og i . . , „ _
. ., _ , T„T„ , , efni styðjast við orð San Frans
sex annara þjoða í UNO. Nefnd i .
þessi mun leggja fram álit sitt
fyi'ir öryggisráðið þann 21.
ágúst.
Frá frjettaritara vorum á
Siglufirði:
SÍLD hefir ekki borist að
ueinu ráði síðan á laugardag,
til hinna ýmsu síldarverk-
smiðja á Norðurlancli. Nema
til Djúpuvíkur, þangað mun
eitthvað Jáiítið hafa borist.
Veður hefir verið slæmt á
öllu vedðisvæðinu. Flotinn
hefir því leitað vars eða hafn
ar. Er höfnin hjer nú alveg
íull af skipum.
Verksmiðjurnar hjer hafa
nú orðið að hætta bræðslu.
Eitthvað mun enn vera til af
síld í þróm Raufarhafnar-
verksmiðjunar.
Á Siglufirði var í gærkvöldi
NA-stormur og rigning.
I isco sáttmálans. McNeil, aðal-
fulltrúi Breta, sagði, að þessi
skilningur Molotovs væri fjar-
stæða, og í sama streng tóku
Byrnes og Dr. Evatt, fulltrúi
Ástralíu, sena litu svo á, að
einungis einfaldur meirihluti
gæti í þessu efni samrýmst anda
og'tilgangi sáttmálans.
Orðascnna.
Á fundi dagskrárnefndarinn-
ar deildu þeir allhart Byrnes og
Molotov. Byrnes sagði Molo-
tov hafa viljað, að utanríkis-
ráðherrarnir fjórir legðu tillög-
ur sínar fyrir ráðstefnuna. —
Öðrum þjóðum skyldi ekki leyft
að bera fram fullgildar tillögur
til breytinga.
Molotov kvað það satt, að
hann hefði viljað leggja tillög-
ur utanríkisráðherranna fyrir
friðarráðstefnuna en hann hefði
alltaf viljað gefa gaum öllum
tillögum, hvaðan sem þær
Framh. á 2. siðu.