Morgunblaðið - 22.09.1946, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 22.09.1946, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 22. sept. 1946 — Frjáisíþróttamótið Frh. af bls. 1 þó sjerstaklega Oslo-farana og þakkaði hann þeim þann heiður, sem þeir hefðu unnið landinu. Sjerstaklega þakkaði hann Ev- rópumeistaranum okkar, Gunnari Huseby, fyrir frammistöðuna. Á mótinu var ekkert íslands- met sett, enda tæplega að búast við því, þareð veður var heldur kalt og hlaupabrautin þung. — Tvö drengja met voru aftur á móti sett. Haukur Clausen bætti enn drengjamet sitt í 200 m hlaupi og Sveinn Björnsson setti drengjamet í 400 m grinda hlaupi. Helstu úrslit í gær urðu ann- ars sem hjer segir: 200 m hlaup: 1. Finnbjörn Þorvaldsson, ÍR, 22,8 sek., 2. Haukur Clausen, ÍR, 23,1 sek. (nýtt drengjamet). 3. Reynir Sigurðsson ÍR, 24,0 sek. og 4. Þórarinn Gunnarsson, ÍR, 24,5 sek. Fyrra drengjametið var 23,2 sek. Kúluvarp: 1. Gunnar Huseby KR, 14,52 m., 2. Vilhj. Vil- mundarson KR, 13,59 m., 3. Sigurður Sigurðsson, ÍR, 13,50 m. og 4. Friðrik Guðmundsson, KR, 13,18 m. 800 m. hlaup: — 1. Óskar Jónsson, ÍR, 1:59,5 mín., 2. Þórður Þorgeirsson, KR, 2:04,1 mín., 3. Páll Halldórsson, KR, 2:04,2 mín. og 4. Stefán Gunn- arsson, Á, 2:09,2 mín. Hástökk: — 1. Skúli Guð- mundsson, KR, 1,85 m., 2. Örn Clausen, ÍR, 1,75 m. og 3. Gunn- ar Stefánsson, KR, 1,60 m. — (Fleiri keptu ekki). Spjótkast: — 1. Finnbjörn Þorvaldsson, ÍR, 51,28 m., 2. Friðrik Guðmundsson, KR, 49,23 m., 3. Gísli Kristjánsson, ÍR, 43,49 m. og 4. Ásmundur Bjarnason, KR, 46,58 m. Langstökk: — 1. Torfi Bryn- geirsson, KR, 6,71 m., 2. Örni Clausen, ÍR, 6,57 m., 3. Björnj Vilmundarson, KR, 6,40 m. og 4. Daníel Einarsson, UMFR, 5,80 m. 400 m. grindahlaup: — 1. Brynjólfur Ingólfsson, KR, 1:01,1 mín., 2. Sveinn Björns- son, KR, 1:03,4 mín. (Nýtt drengjamet) og 3. Björn Vil- mundarson, KR, 1:05,1 mín. — Fleiri keptu ekki. Fyrra drengja metið, sem Haukur Clausen, ÍR, setti í fyrra, var 1:03,6 mín. Reyk j avíkurmeistaramótið heldur áfram í dag kl. 4. — Verður þá kept í 100 m. hlaupi, stangarstökki, kringlukasti, 400 m. hlaupi. þrístökki, 1500 m. hlaupi, sleggjukasti og 110 m. grindahlaupi. —Þorbjörn. Handrilakröfumor bráðiega afhugaSar K.höfn í gærkveldi. Einkaskeyti til Mbl. í GREIN, sem birtist í danska blaðinu ,,Information“ í gær, segir, að danska stjórnin muni væntanlega á næstunni taka til meðferðar handritakröfur ís- lendinga. Samkvæmt skoðun Arups prófessors verði sjer- fræðingar að fara í gegnum handritasafnið, áður en Danir geti lagt fram tilboð sín. Kröf- ur íslendinga hafi í upphafi verið mjög víðtækar. Ef til vill sje rjett að sýna íslendingum skilning, að því, er snertir kröf- ur þeirra til handrita af íslensk um uppruna. Önnur handrit beri hinsvegar ekki að afhenda. —PáU. Bæjarbyggingar Frá frjettaritara vorum á ísafirði, laugard. BÆJARSTJÓRN ísafjarð- ar samþykkti á fundi sínum á miðv.dagskv. með 9 samhlj. atkv., tillögu frá Sig. Bjarna- syni og Haraldi Guðmunds- syni, svohlj.: „Bæjarstj. sam- þykkir að fela bæjarstjóra að láta þegar hefja byggingu þeirra 12 íbúða, sem valinn hefur verið staður við Fjarð- arstræti, og að ráða yfirsmið við byggingarnar“. Bæjarstjórn ísafjarðar mun vera fyrsta bæjarstjórn- in, sem samþykkt hefur, að notfæra sjer þriðja kafla laga um opinbera aðstoð við byggingar íbúðarhúsa 1 kaupstöðum og kauptúnum. 11 nfir sveinar í Nfjar hraSflugsfiS- raunlr London í gærkveldi. Á MORGUN eiga að fara fram í Suður-Englandi tilraun- ir í hraðflugi. Ný tegund flug- vjela með loftþrýstihreyflum verður reynd. I tilkynningu um tilraunirnar segir, að ekki verði reynt að hnekkja meti í hrað- flugi, heldur sje ætlunin ein- ungis að reyna, hve hart flug- vjslar þessar komist. Ef árang- urinn verði góður, sje hinsveg- ar ráðgert að gera tilraunir til að hnekkja hraðflugsmetum, og verði þá farið að samkvæmt al- þjóðareglum. — Reuter. SVEINSPRÓF í matreiðslu- iðn og framreiðsluiðn fór fram í Reykjavík að Hótel Garður, s.l. miðvikudag Og fimtudag. — Þessir luku prófi í framreiðslu- iðn: Hermann Vigfússon, Jón- as Þórðarson, Kristmundur An- ton Jónasson, Ólafur Guðbjörns son, Ólafur Jónsson (Þórscafé), Páll Arnljótsson, Sigurður Sig- urjónsson og Trausti Runólfs- son. — í matreiðsluiðn luku prófi: Aðalsteinn Guðjónsson, Anton Líndal og Kristján Ein- arsson. Prófdómar voru skipað- ir eftirtöldum mönnum í mat- reiðsluiðn: Kaj Ólafsson, Lúð- vík Petersen og Tryggvi Þor- finpsson og var hann form. dómnefndar. í framreiðsluiðn- voru prófdómarar þannig skip- aðir: Janus Halldórsson, Edm. Eiriksen, er var form. próf- nefndar og Henry Hansen. — Prófin fóru fram fyrir tilstilli Matsveina- og veitingaþjónafje lags íslands. arsan Söng- skemlun í G!. Bíó FRÚ MARÍA MARKAN Ost- lund gistir borg vora um þessar mundir eftir margra ára dvöl í þrem heimsálfum. Hún er víð- förlasta og frægasta söngkona, sem ísland hefir átt, og hefir borist af henni mikið frægðar- orð hvar sem hún hefir farið og sungið. Meðal annars hlotnaðist henni sá heiður að syngja við Metropolitan óperuna í New York. Það er ástæða til að fagna svo góðum gesti, er hún kemur heim aftur og syngur fyrir landa sína og bjóða hana vel- komna. Og skal það einnig gert hjer. Mönnum er enn í fersu minni hinn glæsilegi söngur .Maríu Markan áður en hún settist að erlendis. Það er því ekki að undra, þó að eftirvænting reyk vískra áheyrenda væri spennt til hins ítrasta nú, þegar hún ljet aftur til sín heyra hjer heima eftir sigurför sína. Skorti og ekki neitt á að söngkonunni væri fagnað mjög hjartanlega af troðfullu húsi áheyrenda, bæði með dynjandi lófataki svo og heilu blómahafi alt, frá upp- hafi tónleikanna og þar til síð- asti tónninn sloknaði. Söngskráin var samansett af aríurn, þrem ísl. lögum og svo erl. lögum. Gafst söngkon- unni nokkurt tækifæri til að sýna list sína frá ýmsum hlið- um, en jeg saknaði þarna ein- hvers hinna stóru .meistara í sönglagagerð.Væntanlega á frú in eftir að syngja lög eftir Schu bert, Schumann, Brahms eða Hugo Wolf fyrir okkur síðar. Framan af söngskránni hreif mig mest píanósöngur frúarinn ar, sem var oft mjög yndisleg- ur, og vil jeg sem dæmi nefna litla íslenska þjóðlagið „Amma gamla“, sem Hallgrímur Helga son hefir útsett einkar smekk- lega. En það mun eflaust að einhverju leyti mega kenna um snoggri loftlagsbreytingu, að söngurinn naut sín ekki altaf, var ekki alveg hreinn á köflum, og línurnar nokkuð óskýrar. — Einnig bar stundum á erfiðleik um í dýptinni, eins og söng- konunni væri erfitt fyrir um suma tónana. En það dylst eng um, að hjer er á ferðinni mikil söngkona, gædd geysimiklum raddmöguleikum, skapmikil og stórbrotin. Kom það best fram í tveim síðustu aríunum eftir Verdi, einkum þó hinni íyrri úr „Mætti örlaganna“, sem var sungin af mikilli sniid, og minti sú meðferð mig á „tinda, er mæna að sólarglóð“ líkt og skáldið kemst að orði. Þetta var mikilfenglegur söngur. Frits Weisshappel ljek undir. Hann er traustur og góður und- irleikari, en hjer hefði hann mátt beita sjer meira á köflum, meira við skap söngkonunnar. Frúin söng mörg aukalög og loks „Faðir vor“, eftir Malotte. Það hefði átt vel við, að áheyr- endur hefðu þá risið úr sætum í stað þess að klappa. Forseti Islands heiðraði fræg ustu söngkonu íslands með nær veru sinni. P. í. Busch og Serkin komu til Reykjavík- ur í gærmorgun TÓNSNILLINGARNIR Adolf Busch og Rudolf Serkin komu til Reykjavíkur kl. 8 í gærmorgun flugleiðis frá New York, eftir skjóta ferð. Með þeim kemur einnig kona Serkin og dóttir Busch, frú Irene Serkin. Komu þessara heimsfrægu tónsnillinga hefir verið beðið með eftirvæntingu, því að engum, sem hlýddi á tónleika Busch hjer í fyrrasumar, mun úr minni líða. Tónlist- arunnendur hyggja og gott til þess að hlýða á leik Serkins, sem talinn er einn allra fremsti píanósnillingur veraldarinnar. Fréttamenn hittu lista- mennina og frúna í gær að jheimili Ragnars Jónssonar forstjóra, form. Tónlistarfje- lagsins, en á vegum þess eru snillingarnir hingað komnir til nljómleikahalds. SERKIN Rudolf Serkin er einstak-. lega yfirlætislaus og blátt á- fram maður, hógvær og næst 'um feiminn. Hann er fæddur ií Tjekkóslóvakíu, en hefur dvalist í Bandaríkjunum und anfarin tíu ár og verið þar í stöðugum ferðum til hljóm- leikahaids. Serkin kvaðst hafa hlakkað til að sjá ísland og kynnast íslenskum áheyr- endum, því að Busch, tengda- jfaðir hans hefði verið stór- .hrifinn af komunni hingað í fyrra. Hann ræddi nokkuð ,um hina amerísku útgáfu bókar Kiljans, „Sjálfstætt fóik“, sem eins og kunnugt er kom nýlega út á vegum útgáfufyrirtækisins „Book of the Month Club“ í Banda- ríkjunum. Sagði hann, að bók jinni hefði verið tekið með jmiklum ágætum, og sjálfur jhefði hann notið hennar í rík jum mæli, enda þótt hann |Væri ekki viss um, að hún igæfi pjetta mynd af íslenzku þjóðlífi, eins og það er í dag. Serkin ljek fyrir frjetta- roennina „Scherzo“ eftir Mendelssohn, og var unun á að hlýða. — Frú Serkin fetar í fótspor föður síns. Hún er sögð ágæt- u.r fiðluleikari, þótt ekk hafi hún leikið opinberlega. BUSCH Fiðlusnillinginn Adolf Busch er óþarft að kynna ís- lendingum. Þegar hann kom hingað í fyrra sumar, ljek hann sig inn í hugi og hjörtu ailra, sem á hann hlýddu. Hann segir líka, að íslenskir áheyrendur hafi hrifið sig, því að sjaldan eða aldrei hafi hann leikið fyrir beri hlust- endur. Hann ferðaðist tölu- vert um landiö í fyrra og er hrifinn af náttúrufegurð inni. Einkum fannst honum mikið til Gullfoss koma, og kvaðst hann vona, að þangað gæti hann farið með dóttur sinni og tengdasyni, þegar veður væri fagurt. FIMM HLJÓMLEIKAR í REYKJAVÍK Serkin og Busch munu á þrem hljómleikum leika allar 10 fiðlusónötur Beet- hovens. Þeir hljómleikar verða í Gamla-Bíó n.k. mánu dag, fimmtud. og föstud. Auk. þess munu þeir leika saman í Hafnarfirði, væntanlega n..k. þriðjud. og miðvikud. Serkin mun svo annan mánu dag og þriðjudag leika einn á tveim hljómleikum með sama „prógrammi“ fyrir styrktarfjelaga Tónlistarfje- lagsins. Viðfangsefni Serkins á hljómleikum þessum verða eftir Bach, Beethoven, Schu- bert, Schumann, Debussy, Mendelsohn og Chopin. Að loknum hljómleikum í Rvík og Hafnarfirði munu lista- mennirnir fara til Akureyrar og halda þar saman eina hljómleika, að líkindum um miðja aðra viku. — Auk þess er vonast til þess að þeir leiki útvarpið. HJER í HÁLFAN MÁNUÐ L<istamennirnir ráðgera að dveljast hjer í hálfan mán- uð, en fara síðan heim til Bandaríkjanna. Meðan þeir dveljast hjer í Rvík, munu þeir búa í gistihúsinu á flug- vellinum. — í gærkvöldi fóru Busch og Serkin-hjón- in til Þingvalla í boði Tón- listarfjelagsins. Arabar v!!ja sjálf- London í gærkvöldi. Á FUNDINUM í London um Palestinumálin var í dag skip- uð nefnd, til að athuga gagn- tillögur Araba um lausn Pale- stínudeilunnar. Tillögur Araba eru á þann veg, að Palestina verði gerð að sjálfstæðu, full- valda ríki, en Gyðingar þeir, sem þar dveljast nú, njóti sömu rjettinda og aðrir landsmenn. En er ekkert vitað um þátt- töku Gyðinga í Palestinufund- inum, en svo getur farið að fundum verði frestað þar til Bevin utanríkisráðherra, get- ur snúið aftur til London, til að taka að sjer forystu áð- stefnunnar. —Reuter. Ókunnar flugvjelar OPINBERLEGA var tilkynt í Aþenu í dag, að erlendar flug vjelar, sem komu úr norðurátt, hafi hvað eftir annað flogið yf- ir grískt land í mið- og austur- Makedoníu 18. september s.l. 19. sept. sást til sprengju- flugvjelar yfir eyjunni Thesos Flugvjelin þekktist ekki og hvarf í norðurátt. —Reuter’.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.