Morgunblaðið - 11.10.1946, Síða 10

Morgunblaðið - 11.10.1946, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIB Föstudagur 11. okt. 1946 eiiimimmmiiimiiiiiiiiiiiMiiiiiiiimNiiiiMiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiimiiiiiiinimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiii BLÓÐSUGAN | Cftir Jok n Cjooclwin, □IMIIIIMII!lllllimillMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIMIMIIMIMIIIIII iiiiiiiiiMiiiiiiiiMiiiimiiMiiiiiiiiiiiiimmtiiiiiiiimiimiiiiimiH 9. dagur — Jeg get sagt þjer það eitt, svaraði Steinberg, að jeg hef sjálfur þrælað eins og skepna að reyna að drífa upp þessa peninga hjer í borginni. En það skrítna hefir skeð, að enginn einasti almennilegur banki vill lána eyri út á þær tryggingar, sem við ráðum yfir. Einhver, sem er óþarflega fróður um okkur, hefir brugðið fyrir okk- ur fæti. Craven bölvaði í hálfum hljóðum. — Steinberg, sagði hann í hálfum hljóðum, — þú hefir ekki viljað það hingað til, en jeg sje ekki, að nema eitt sje um að gera úr því, sem komið er: við verðum að fara til Gordons. Digri maðurinn þagði augna- blik, og beit fast á vörina. — Þessa okurstofnun rjett hjá kauphöllinni — sem þessi kerl- ing stendur fyrir, sem er kölluð Blóðsugan. Er það nú niður- læging. -— Það er að minsta kosti ríkasta okurstofnun heimsins og hlýtur því að hafa pening- ana. — Já, og djöfullegasta blóð- suga í víðri veröld. Þú veist hvernig venjulega fer fyrir þeim, sem þangað leita. Stein- berg hægði á sjer. — En, nátt- úrlega ef ekki er annað fyrir hendi .... Heldurðu, að þú getir fengið skildinginn þar? — Því býst jeg við, ef við erum allir á einu máli og jeg fæ fullkomið umboð fyrir okk- ur alla. Vitanleg^ yerðum við að greiða okur\%jgJ^ En hins- vegar verðum vi^^ð fá pen- ingana hvað sem það kostar. Jeg get reynt. — Gerðu það þá og það strax. Það er seinasti og einasti mögu- leiki okkar og gangi það, get- um við enn sigrað, þrátt fyrir alt. En vertu bara fljótur. Og Steinberg bætti við, gremju lega: — Heyrðu, Craven. Ein hver óvinur okkar er að reyna að koma okkur fyrir kattarnef .... og það verður svei mjer ekki annað sagt en að hann hafi keypt hentuga tímann. Sir Melmoth beit saman tönnunum og leit á fjelaga sinn. — Það er satt, sagði hann, — og ef jeg vissi hver hann væri, skyldi jeg sjá um, áð eiga einum óvininum færra innan sólarhrings. Hann hugsaði sig um. — Getur það verið, frú Garth? —Nei, það kemur ekki til mála svona fljótt. Og .... samt . .. .hvernig hefði mjer getað dottið í hug, að þær væru eins eitraðar og þær hafa þegar sýnt sig vera. Hann ljet fallast niður á stól, eins og hann vissi ekki af Stein- berg. — Hvar hefi jeg sjeð þessa konu áður? tautaði hann allt í einu. Sir Melmoth sat dálitla stund hreyfingarlaus og starði út í bláinn. Það var eins og hann væri að reyna að grafa upp einhverja eldgamla fortíðar- mynd um. úr hugarfylgsnum sín- V. KAPÍTULI. Klukkan var langt gengin sjö um kvöldið þegar frú Enid Gárth kom frá Cornhill og heim til sín í Berkely Terrace. Hún virtist vera í ánægðu skapi yfir dagsverki sínu við stjórn bankans og var ekki laust við, að sjá mætti sigur- gleði í augum hennar. Nú bar ekkert á þreytu hjá henni. Eftir svona margra klukkustunda vinnu, virtist hún meir en fær um að sigr- ast á hvaða erfiðleika, sem fyrir kynni að koma.... Með- an hún var að taka af sjer hanska'na í hliðarherberginu, þar sem brjef og blöð biðu hennar, kom Margaret inn. Frú Garth þurfti ekki annað en líta á hana snöggvast, síðan gekk hún hratt til hennar. — Hvað gengur að þjer, elsk- an mín? Hefur nokkuð komið fyrir? Segðu mjer það strax, ef eitthvað er. — Það er rjett, jnamma; það hefur komið nokkuð fyrir. Jeg veit ekki hvað þú munir segja um það. Síðan sagði hún móður sinni, stuttort og rólega, • viðskifti þeirra Cravens, bæði þegar hann fór, kvöldinu - áður og síðan í garðinum um daginn. Frú Garth dró andann djúpt og vatt hanskana milli handa sjer. Eitt andartak var hún hugsi. — Jeg vildi gefa mikið til þess, að þetta hefði ekki skeð, sagði hún. — Þetta hefði jeg síst af öllu viljað. — Jeg var til neydd, svar- aði Margaret. — Jeg veit varla einu sinni núna, hvað jeg sagði eða gerði. Frú Garth kinkaði kolli. ■— Jeg get ekki áfellst þig fyrir það, telpa mín. — Maður er ekki með sjálfum sjer þeg- ar svona kemur fyrir, og þú ert dóttir mín. En .... — Við skulum ekki koma að efninu sem átti að vera gleymt og grafið, tók Margaret fram í. Nú var hún orðin miklu kaldari og einbeittari en móðir hennar hafði verið lengi. Það var eins og hún væri að tala um eitt- hvert einskisvert efni. — Fyr- irgefðu, mamma .... Frú Garth leit á dóttur sína með ánægjusvip. — Það gerir að minsta kosti enda á öllu þessu leiðindamáli, hvað þig snertir, og við það er þó nokkuð unnið. Svo ekki fleiri orð um það. Hú faðmaði dóttur sína blíðlega. — Og nú ættirðu að gera mjer eitt til þægðar, Margaret. Farðu til Selby með morgunlestinni, og vertu þar að minsta kosti fá- eina daga. Taktu stúlkuna þína með þjer. Þar ertu meðal vina og hefir nóg af hestum. Reyndu að koma þjer burt úr borginni og jafna þig. Því hefirðu gott af. — Það mátt þú best vita, mamma. Auðvitað geri jeg eins og þú segir mjer. Margaret fór daginn eftir með morgunlestinni til Selby herrasetursins, sem var eignur jörð móður hennar. Sama dag klukkan tíu um morguninn, stundvíslega, stje frú Garth út úr opna vagnin- um sínum við aðaldyrnar á Garths-banka í Cornhill. Hún líktist nú ekki glæsilegu kon unni, sem hafði gengt húsmóð- ur skyldunu.n á dansleiknun í Berkely Terrace tveim kvöld- um áður. Nú var á henni kaup- sýslusvipurinn, andlitið kulda- legt og út úr því skein ein- beittni og dómgreirtd. Frú Garth gekk rakleitt fram hjá buktandi dyraverðin- um, og inn í stóru skrifstofuna- með trjeþiljunum á efri hæð- inni. Hún hringdi á fulltrúa sinn. Hinn biskupslegi ytri maður Calverleys var einhvernveginn ekki í sínum venjulegu felling um. Hann leit út eins og mað ur, sem er búinn að þræla hálfan annan sólarhring — s^m líka var sanni nær. — Jeg sje, hr. Calverley, að Western Unions hafa komist niður í einn og einn fjórða í gærkvöldi. Umboðsmenn okk- ar hafa hætt að selja í dag.' Calverley stundi. — Öllu, sem bankinn átti af Western Unions hefir verið dempt á markaðinn, sagði hann — og árangurinn varð sá, sem jeg hef sagt yður. Skipunum yðar hefir auðvitað verið hlýtt út í æsar. Hann þagði andar- tak. — En-jeg er hræddur um, að við töpum á þessu. — Ekki grænum eyri, svar- aði húsmóðir hans. — En hefir komið svar við orðsendingu okkar viðvíkjandi Sir Melmoth Craven? Fulltrúinn hneigði sig. — Já allsstaðar að. Við höfð- um nauman tíma, en tókst samt. Fyrir hádegi á þriðju- dagmn var orðsending send hverjum banka, sem nokkuð kveður að, þess efnis, að Garth & Trelawnes hefðu samkvæmt áreiðanlegum upplýsingum á- kveðið að eiga engin viðskifti við Craven og rjeðu öðrum til þess sama. Skeytið var auðvit- að á dulmáli með kennimerk- inu á. Það var rjett eins og Calver- ley ætlaði að bæta við með söknpði: „Þá er vonlaust um Craven“. Því eins og hann vel vissi, hafa allir heldri bankar með sjer svo öflugt samband, að orðsending frá einum þeirra var nóg til að loka fyrir öll lán til hlutaðeigandi manns, og það án þess, að það yrði uppvíst, hverjum um væri að kenna. Ástæðuna til þess arna vissi hann ekki og háfði verið svo skynsamur að spyrja aldrei um hana. Hann stjórnaði daglegri starfssemi bankans, en frú Garth ákvað stefnu hans í fjármálum. — Þetta hefir gengið prýði- lega hjá yður, Calverley. Jeg býst ekki við, að mín þurfi neitt við í dag, svo jeg ætla að fela yður bankann, það sem eft- ir er dagsins. Calverley fór út. Frú Garth studdi höndum undir höku sjer og stundarkorn sat hún niðursokkin í hugsanir sínar og starði fram fyrir sig. Strákurinn og einbúinn Eftir E. V. LUCAS 17. nú með nýjum augum. Og þegar jeg stóð þarna við bát- mn, fór mig að langa afskaplega til þess að fara burtu af eynni. — Já, námfús geturðu verið, hr. Ágúst, sagði skipstjór- inn og enn kipptist hann við af hlátri. — Já, og svo skreið jeg niður í körfuna, hjelt einsetu- maðurinn áfram dálítið skömmustulegur. — Bravó! þrópaði Kjammi, þetta var ágætt. En ertu ekkisvangur? — Svangur? át skipstjórinn eftir. Það skyldi jeg’ nú halda. Bryti, bryti, komdu með eitthvað handa herra Ágúst að borða. * Brytinn kom þjótandi inn í káetuna og varð allur ein augu þegar hann sá hinn ókunna. Þegar skipstjórinn sá það, hvernig honum varð við, fór hann aftur að skelli- hlægja. Vertu ekki hræddur, sagði hann við brytann. Hann er ekki afturgenginn! — En jeg sá ekki þenna herramann koma um borð, sagði brytinn, þegar hann loksins gat komið einhverju orði upp. — Nei, sagði skipstjórinn, ekki sá jeg það heldur. Og það sá það víst ekki nokkur maður. Herra Ágúst hefir sjerstaka aðferð til þess að stíga á skipsfjöl. Að þessu hló einbúinn líka og þá fór brytinn að átta sig og kom bráðlega fneð ágætan kvöldverð handa Ágústi. — Jæja, þá hafði jeg það af að strjúka, Kjammi, sagði gamli maðurinn, og enginn kennari gat náð mjer þegar jeg strauk. — Nei, það er ekki mikil hætta á því að þú látir ná þjer, svaraði Kjammi. . — Já, nú erum við saman aftur, sagði gamli maðurinn. En þegar við erum komnir til Englands, skulum við fyrst almennilega leika okkur. — Það verður gaman, gamli Geitarskeggur, sagði Kjammi hlægjandi. , ENDIR. Lávarðinum hafði verið boð- ið að borða hjá sóknarprestin- um og fjekk eftirfarandi brjef- leg skilaboð frá honum daginn eftir: „Kæri vinur: Sendi þjer hjer með luktina þína. Gerðu mjer þann greiða að skila aftur búr- inu, sem páfagaukurinn er í“. * — Maðurinn minn er horf- inn, hrópaði konan og horfði bænaraugum á lögreglustjór- ann. Hann fór út um hádegið í gær óg hefir ekki sjest síðan. Hjer er mynd af honum. Jeg krefst þess að þjer finnið hann strax. Lögreglustórinn skoðaði myndina augnablik og leit svo á konuna. — Hvers vegna? spurði hann. ★ — Eru nokkrir sniðugir þjóf ar í þessum bæ? — Sniðugir þjófar? Um daginn stal einn buxunum mín- um og hengdi lóð 1 axlaböndin, svo jeg tæki ekki eftír því, að þær væru farnar. ★ . Biskup nokkur gekk sjer til skemtunar gegnum smáþorp í Englandi, varð þyrstur á leið- inni og bað bóndakonu að gefa sjer vatn að drekka. Konan var feimin og til að hjálpa henni, sagði biskupinn: •— Þetta er ágætis vatn. —• Hvaðan fáið þjer það? Og gamla konan svaraði: — Frá herra biskupnum, pumpan mín. Heitir hverir finnast aðeins á íslandi, Nýja Sjálandi og í Bandaríkjunum. ★ Ungur maður kom til æsku- stöðva sinna, eftir átta ára fjar- veru, og varð hnugginn, þegar hann sá engan að taka á móti sjer. Eftir skamma stund sá hann þó á bryggjunni hafnar- vörðinn, sem verið hafði kunn- ingi hans allt frá æsku. Hann gekk til hans og ætlaði að fara að heilsa honum hjartanlega, þegar sá síðarnefndi leit spyrj- andi á ferðatösku hans og sagði: — Sæll og bless, Jón, ertu að fara eitthvað? ★ Móðirin — Og þú, Dóri minn, hvort vilt þú búðing eða ís? Dóri — Búðing. Faðirinn (reyiiir að kenna honum kurteisi) — Búðing hvað. Dóri — Búðing fyrst. I W*$nÚA VkorL ciuá hæstarjettarlCgmaður i AðaMræti ». Sími 1878.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.