Morgunblaðið - 18.10.1946, Qupperneq 12
VEÐURUTLITIÐ: Faxaflói:
SA-kaldi og víða stinnings-
kaldi. Sumstaðar rigning, öðru
hverju.
0mft
DOMUR um fiðluleik Ibolyka
Zilzer. — Sjá bls. 7.
Föstudagur 18. október 1946
Vafnleiðslupípur
eisiau
STEINÞÓR Guðmundsson
gerði um það fyrirskipun til
borgarstjóra á bæjarstjórnar-
fundi í gær, hvað liði fram-
kvæmdum við hina nýju
Gvendarbrunna vatnsveitu. og
hvenær búast mætti við að hún
yrði fullgerð.
Borgarstjóri sagði, að fyrir-
tepurn Steinþórs væri eðlileg, og
um málið væri þetta að segja
m. a.:
Gengið var frá pöntunum á
pípunum í vatnsveitu þessa í
mars. Ef pípurnar hefðu feng-
ist afhentar á þeim tíma, sem
upprunalega var gert ráð fyrir,
þá hefði verið hægt að ljúka
verkinu fyrir áramót.
Með tilliti til þess, að píp-
urnar kæmu á rjettum tíma,
hefi jeg hvað eftir annað, sagði
borgarstjóri, átt tal um það við
bæjarveerkfræðing, hvort ekki
væri rjett, að flýta skurðgreft-
inum, með því að fjölga vinnu
flokkum við hann.
En um það leyti, sem þetta
var í ráði, kom brjef frá selj-
andanum 'í Englandi, sem sel-
ur okkur pípurnar, þar sem
hann segir, að sjer þyki leitt
að þurfa að skýra frá því, að
vegna skorts á stálplötum, þá
geti hann ekki afgreitt pípurn-r
ar fyr en á næsta ári.
Samkvæmt síðara brjefi hef-
ir þó ræst úr þessu, svo nú er
búist við að pípurnar fáist af-
greiddar í febrúaarlok.
Vatnsveitustjóri heldur því
fram, að hægt muni vera að
Ijúka verkinu svo sem mánuði
eftir að síðasta afhending fer
fram. En jeg tel varlegra að
búast ekki við því, að vatns-
veitunni geti verið lokið fyrri
en með vorinu.
Jeg mun sagði borgarstjóri,
að endingu, fylgjast vel með
öllu er snertir þetta mál, og
leggja á það ríka áherslu, að
verkinu verði hraðað svo sem
framast er unt.
émamiaÉéli
Lítill drengur tellur
át aS hryggju
drukknar
UM KLUKKAN 5,30 í fyrrakvöld vildi til sorglegt slys suður
' Innri-Njarðvíkum. Sex ára gamall drengur fjell út af bryggju
og drukknaði. Hann hjet Gylfi Gíslason.
Miklar éeirðir í Ben-
galhjeraðé
London í gærkvejdi.
ÁKAFAR óeirðir hafa brot
ist út víða um Bengalhjerað
í Tndlandi og er ástandið talið
hið ískyggilegasta. Tveir af
ieiðtogum þjóðþingsflokksins
hafa iagt af stað þangað, til
þess að athuga ástandið. Ekki
hefir énn frjettst hversu mik-
ið manntjón hefir orðið í róst-
um þessum.
Wavell' varakonungur Ind-
lands er kominn til Bombay,
en þar hefir verið mjög róstu-
samt í sex undarfarnar vikur.
"Varakonungurinn ætlar að
kynna sjer hvað valdið hefir
óeirðum þessum og einnig
hefir rannsóknarrjettur verið
settur á laggirnar, til þess
að rannsaka tildrög óeirðanna
og hverjir beri ábyrgð á þeim.
— Reuter.
Rafmagnslaust í
Vínarborg
Vín í gærkveldi.
ALT rafmagnskerfi Vínar-
borgar gjörbiiaði í dag, og
gengu engir sporvagnar og í
nótt mun verða koldimt í
borginni af þessum orsökum.
Þessi rafmagnsskortuur hafði
verið yfirvofandi í nokkra
daga, en orsakirnar. eru þær
að ár eru mjög litlar vegna
mikilla þurka og ennfremur
hitt, að lítið er um eldsneyti
handa vjelstöðvum. — Reuter
StoliS frá kerfoga-
frúnni af Windsor
í NÓTT sem leið var brotist.
inn í hús það í Bretlandi, sem
hertogahjónin af Windsor
dvelja í meðan þau eru þar í
landi, en þau eru alveg ný-
komin. Stolið var miklu- af
skartgripum, sem hertoga-
frúin á, og er talið að þeir
hafi verið fleiri þúsund sterl-
ingspunda virði. Húsið sem
hjer um ræðir er uppi í sveit
og lánaði lávarður einn her-
togahjónunum það. — Reuter
Gylfi litli var að veiða nið-
ur á bryggju, er slysið vildi til.
Með honum var tíu ára gömul
systir hans. Með hverjum hætti
hann fjell út af bryggjunni, er
ekki vitað. Systir hans hljóp
þá þegar til þess að ná í hjálp
og barst hún fljótlega, og
drengnum var náð skömmu
síðar upp á bryggjuna. Var
hann þá meðvitundarlaus. Lífg-
unartilraunir voru þegar hafn-
ar og læknir sóttur. Hann kom
eftir um það bil 20 mín. Hjelt
hann lífgunartilraunum áfram
í nærri þrjár klukkustundir,
en árangurslaust.
Gylfi var sonur Gísla Guð-
mundssonar, fyrsta vjelstjóra
við hraðfrystihús Eggerts Jóns-
sonar, og Guðlaugar Högna-
dóttur. Þau hjónin eiga þrjú
börn. Gylfi var næst yngstur,
þriggja systkina.
Mf Ijósmyndasiofa
Hjer í bæ hefur verið opn-
uð ný ljósmyndastofa og er
hún til húsa í Bankastræti 2.
Eigendur hennar eru Ingi-
björg Sigurðardóttir. Hún
veitir stofunni forstöðu og
Adda Sigurjóns.
Ljósmyndastofan er búin
öllum nýtísku tækjum og
húsakynni eru hin vistlegustu
IjrsmíM jelagið yefur Sjómanna
vandeða turnklukku
klukka sinnar fegundar
hier á
INNFLYTJENDASAMBAND úrsmiðafjelags íslands afhenti í
gær formlega Sjómannaskólanum að gjöf vandaða turnklukku,
sem þegar hefir verið sett upp í turn Sjómannaskólans. Klukk-
unni fylgja og 12 kenslústofuklukkur, sem fylgja með í gjöfinni.
Fór afhending gjafabrjefsins fram í hádegisverðarhófi, sem
stjórn úrsmiðafjelagsins hjelt að Hótel Borg í gær, og þar sem
meðal gesta voru Pjetur Magnússon fjármálaráðherra, Emil
Jónsson siglingamálaráðherra, Bjarni Benediktsson borgarstjóri,
Friðrik Ólafsson, formaður skólanefndar Sjómannaskólans o. fl.
Ræðumenn.
Jóhann Ármann Jónsson, for
maður I. U. I., stjórnaði hóf-
inu og afhenti gjöfina. Aðrir
ræðumenn voru: Emil Jónsson
ráðherra, Friðrik Ólafsson skóla
stjóri, Ásgeir Sigurðsson skip-
stjóri, Bjarni Benediktsson borg
arstjóri, Árni B. Björnsson og
Björn Björnsson stórkaupmað-
ur frá London, sem annaðist
innkaup á klukkunni. Las hann
upp brjef frá Sir Allan Gordon
Smith, sem er forstjóri Smiths
Clock Ltd., sem smíðaði klukk-
una. Tveir sjerfræðingai frá
firmanu, Mr. James og Mr. Gil-
bert unnu að uppsetningu henn
ár hjer, en þeir eru nýlega farn
ir aftur til Englands.
Lýsing á klukkunni:
Turnklukka Sjómannaskól-
ans í Reykjavík er með fjórum
skífum, hátt á annan metra
(168 cm) að þvermáli, einni á
hverri hlið turnsins. Þær ganga
allar fyrir einu verki, sem
stendur á miðju gólfi á sömú
hæð. Verk þetta er af nýrri
gerð, mjög sterklegt, gjört af
stáli og kopar. Stálrör ganga úr
verkinu út af skífum fjórum og
tengjast þær vísunum, en þeir
standa óvarðir utan á skífun-
um.
í stórviðri þarf mikinn kraft
til þess að stjórna vísunum og
er rafmagnsmótor. sem komið
er fyrir í sambandi við verkið
látinn annast það starf. Dregur
hann kJukkuna upp á nokk-
urra mínútna fresi. Bili raf-
magnsveitan, heldur klukkan
þó áfram að ganga rúma þrjá
tíma. Að innanverðu við úr-
skífurnar, sem eru úr ljósu ó-
palgleri, er komið fyrir Ijósa-
útbúnaði, sem kviknar á þegar
dimt er orðið, og gerir þær lýs-
andi. — Mun þetta vera fyrsta
turnklukkan hjer á landi, sem
lýst er upp á þenna hátt.
„Móður klukkan“.
■ Ef staldrað er við í turninum
og horft á hjólaverk klukkunn
ar virðist það fyrst í stað
standa kyrt, en nákvæmlega
tvisvar sinnum á mínútu hverri
færist „líf“ í verkið, hjól og
spaðar taka að hverfast og vís-
arnir færast fram um hálfa mín
útu. Hjer er „sál“ klukkunn-
ar að verki, móðurklukkan ná-
kvæma, sem a heima á annari
hæð hússins og sendir boð með
rafmagnsstraumi til turnklukk-
unnar og hinna tólf stofu-
klukkna. sem henni eru undir-
gefnar, víðsvegar um skólann.
Færist þá hver þeirra fram um
hálfa mínútu. Móðurklukka
þessi er af mjög fullkominni
gerð, með sekúndudingul úr
„Invar“-stáli, en stáltegund sú
er ónæm fyrir hitabreytingum,
sem annars rugla ganginn. —■
Ennfremur virðist gerð þessi
vera laus við þan nannmarka
á eldri klukkum, sem orsakar
gangskekkju vegna þykknandi
olíu.
Móðurklukkan, ásamt öllum
þeim klukkum, sem við hana
eru tengdar — þær geta skift
tugum — gengur fyrir 30 volta
rafstraumi, óháðum bæjar-
straumnum að öðru leyti en því,
að rafgeymarnir hlaðast sífelt
úr bæjarkerfinu jafnmikilli
orku og klukkurnar eyða, en
geta þó gengið nokkrar vikur
þótt bæjarstraumsins missi við^
Hleðslutækið er stórt og auð-
velt að stilla á mismunandi
orkueysðlu.
Háskélafyrirleslrar
um sænska skáldið
Slrindberg
SÆNSKI sendikennarinn við
Háskólann, Peter Hallberg,
byrjar í dag á erindaflokki um
August Strindberg. Verða fyr-
irlcstrarnir í þessum flokki
alls 6, og verða þeir allir haldn
ir á sama tíma, á föstudögum
kl. 18,15—19 I II. kenslustofu
Háskólans. Er öllum heimill að-
gangur að erindum þessum.
Eins og kunnugt er, er Strind
berg eitt mesta skáld Svía. Með
sögu sinni „Röda rummet“
(1879) ruddi hann fyrstur hinni
nýju raunsæisstefnu braut x
sænskum bókmentum. — Stíll
hans veldur straumhvörfum x
listrænni meðferð sænskrar
tungu. Áhrifa hans sem leik-
ritaskálds gætir víða í bók-
mentum langt fyrir utan landa-
mæri Svíþjóðar. í hinni frægu
sjálfsævisögu „Tjánstekvinnans
son“ hefir hann gefið furðan-
lega hispurslausa mynd' af líf;
sínu og starfi.