Morgunblaðið - 21.12.1946, Side 7

Morgunblaðið - 21.12.1946, Side 7
Laugardagur 21. des. 1946 MORGUNBLAÐIÐ ^ * Einar Arnórsson skriíar um REISUBÓK JÓNS ÓLAFS- SONAR INDlAFARA Reisubók Jóns Ólafssönar Indía- * fara, samin af honum sjálfum 166'1, 1—II. — Rókfellsútgáfan 191+6. 17. öldin er öld niðurlægingar í flest- um efnum á Islandi. Ilún hefst á ein- hverjum mestu harðindum, sem yfir landið hafa komið, eftir jþví sem Björn á Skarðsá segir í annálum sínum. Ðanska verslunareinokunin hefst í upp- hafi aldarinnar. Almenningur verður }>ví volaðri og fátækari sem fram á öldina líður, og einokunarverslunin veldur þar mestu um. Einstakar ættir eiga þó mikið jarðagós, enda sóttust þeir, sem tekjur höfðu afgangs þörfum sínum, mjög eftir jörðum, með því að afgangseyrir þeirra varð ekki ávaxtað- ur með öðrum hætti. Lúterski „rjett- tninaðurinn“ hafði fest rætur meðal almennings, en „pápisk“ villa var upp- rætt. Fólkið var ákaflega guðhrætt. Það sótti kirkju, gekk til altaris og bað guð í heimahúsum. En samt sögðu kennimennirnir því, að það væri ótta- lega syndugt, jafnvel svo svndugt, að guð hlyti að senda yfir það sóttir og harðindi til þess að hegna því og k'nýja það til yfirbótar. Myrkrahöfðinginn og árar hans voru ákaflega voldugir á þessari öld og höfðu í þjónustu sinni galdramenn og aðra stórsyndara, sem unnu voluðum drottins sauðum alls- konar tjón. Fólkið, jafnt alþýða sem æðri menn, grjet og grjet í tíma og ótíma, og ekki skrifuðu menn svo brjef- snepil, að ekki væri þar í vafið ákalli til guðs og þakkárgerðum, og var svo einnig um brjef, sem nú mundu vera kölluð embættisbrjef. Fekking í nátt- lirufræðum var vitanlega engin að kalla, og hugmyndir manna um ýmis náttúru- fyrirbæri því inar fáránlegustu. Fugl- ar með járnklær og járnef syntu t. d. á hverum og laugum, og höfðu menn auðvitað séð slík undur. Helvíti var undir Heklu, enda höfðu menn sjeð bæði ára djöfulsins og sálir fordæmdra í Heklueldum, eins og vænta mátti. Trúgirni manna var vitanlega tak- markalítil. Samgöngur við útlönd voru ekki aðrar en þær, að eitt skip kom á ári, þegar vel var, á þær hafnir, sem einokunarkaupmennirnir skyldu sigla á, og svo stálust menn út í ensk, frönsk eða hollensk fiskiskip eða hvalveiða- skip, sem hjer stunduðu veiðar um- hverfis landið, og voru þó slík skipti með mikilli áhættu, því að öll mök við ,,framandi“ þjóðir voru harðlega bönnuð og þungar refsíngar lengstum við lagðar. Auðvitað mátti enginn sigla út af landinu, nemá hann hefði til þess vegabrjef umboðsmanns konungs, enda tækifærin fá til slíkra ferða. Menn sigldu því lítt út af landinu, nema í embættiserindum og svo nokkrir menn til náms. En þó bar það ósjaldan við, að menn kæmust í fiskiduggur og færu með fiskimönnum erlendum til útlanda. Umgengnisvenjur þeirra tíma, bæði í orðum og athöfnum, mundu nú þykja að ýmsu leyti kjánalegar og aflægisleg- ar. Málfar manna var þegar á 17. öld orðið allspillt og mengað dönsku og lágþýsku, en þó var tungan alls ekki þá orðin svo spillt sem á 18. öld og jafn- vel á fyrra hluta 19. aldar. Hungur, klæðleysi og holdsveiki voru fyrirbæri liversdagsins, en fólkið var furðanlega þolinmótt, af því að það trúðk því, að allt þetta mótlæti væri að guðs vilja verðskuldað „syndastraff“. Konungs- valdið hafði látið greipar sópa um eign- ir klaustranna, svo að konungur var nú orðinn mestur jarðeigandi á Jslandi. Búendur á jörðum konungs voru kvöð- um hlaðnir (hestlán, mannslán, skips- áróður á útvegi landsdrottins, dagslátt- ur hjá honum o. s. frv.), enda var svo á mörgum jörðum biskupsstólanna og einstakra auðmanna. Húsakostur al- mennings var inn hraklegasti, svo sem hlaut að vera í byggingarefnasnauðu lanai, en innflutningur timburs, járns og bvggingarefna almennt var því nær enginn. Hreinlæti lilaut því að verða óhægt, í nioldarkofum, sem hlutu að leka í hverri skúr. Valdhafarnir liugs- uðu um það eitt að rýja landsmenn, bæði með einokunarversluninni, skött- um, jarðarafgjöldum og kvöðum. Em- bættisrekstur allur, þar á meoal dóm- gæsla, \ ar ákaflega bágborinn, og refs- ingar harðar og miskunnarlausar fyrir mörg verk, sem nú eru refsilaus, og at- hafnir, sem að eins voru framdar í ímvndun manna, svo sem galdraverkin. En þjóðarsálin varð þó ekki drepin. Ennþá höfðu rnargir alþýðumenn fróð- leikslöngun á sína vísu og fengust við bókstörf. Menn skrifuðu upp sögur og ýmiskonar fróðleik við kertistýrur og lýsiskolur með bók á knjám eða kistli^ ortu rímur o. s. frv. Og* nokkur höfuð- skáld fæddi þessi einkennilega öld, svo sem kunnugt er. En enginn fræðimað- ur og ekkert skáld verður skilið og metið, nema menn þekki nokkuð allt samtíðarástand í landi hans. Verður að meta þessa menn og verk þeirra með hliðsjón af menningarástandi tímans. Það, sem nu þykir barnalegt og kjána- legt, var ef til vill á tímum skáldsins og rithöfundarins tíska, sem engum þótti athugaverð. Þeir, sem nú eru uppi og eitthvað láta eftir sig skráð, mega allt eins búast við því, að það, sem þeir láta eftir sig, verði eftir nokkur hundruð ár eða jafnvel skemmri tíma, talið kjánalegt og hlægilegt, þótt það hafi verið góð og gild vara á vorum dögum. Fyrir því megum vjer nú ekki furða oss á máli eða efni þeirra rita, sem fyrri alda menn hafa leift oss, heldur megum vjer vera þeim þakklátir fyrir flest allt, sem frá þeim hefur geymst. Oss mundi nú þykja fólk 17. aldar, siðir þess og lífshættir allir með mikilli furðu, ef vjer mættum sjá það allt alveg eins og það var. Oss mundi ógna sýn tötrum búins flökkulýðs og holds- veikra manna. Furðu vora mundi fá tækt alls almennings vekja og auður og skart nokkurra höfðingja og ríkis- manna og venslaliðs þeirra. Oss mundi þykja allt þetta fólk harla kynlegt. Það talar, hugsar og skrii'ar — þeir fáu, sem skrifandi eru — allt með öðrum hætti en nú gerum vjer. Einn þessara kynlegu manna er Jón Olafsson Indíafari. Hann er fæddur 1593 og deyr 1679. 22 ára ræðst hann til utanfarar á enskri fiskiduggu vestur við ÍSafjarðardjúp, dvelst um stundar- sakir í Englandi, fer þaðan til Ivaup- mannahafnar, kemst þar í herlið kon- ungs (Kristjáns fjórða), fer með kon- ungi nokkrar ferðir, ræðst til Austur- Indía, dvelst þar um stund, r^tar í ým- | is ævintýri, er einu sinni settur í blá- * turn og óvinur hans vill fá hann dæmd- an til dauða fyrir lognar sakir. Eftir 11 ára vist .fer Jón síðan til Islands og ílendist lijer. Ferðabókin er raunveru- lega brot úr ævisögu Jóns, saga hans sjálfs um 11 ára bil. Hún segir að vísu margt frá ferðum Jóns, en mikill hluti liennar segir frá dvöl hans í Danmörku. Kennir þar margra grasa, því að þar korna margií, sumir nafnkunnir menn, við sögu, og háitum manna þeirra tíma er mjög vel lýst, bæði beinlínis og óbeinlínis. Bókin er stórmerkt heimild- arrit um nýlcndu Dana í Austur-Indíum og Kaupmannahöfn milli 1620 og 1630 og háttu nmnng þar. Þar koma og fá- einir Islendingar við sögu, þar á meðal sýslumennirnir íslenzku, sem ut- 1 an fóru 1619 á fund konungs til þess að fá lagfæringu á verslunarháttum landsins. Jón Indíafari segir víðast skýrt frá og greinilega. Orðfar hans er að von- um dönskumengað, en víða bregður fyrir fallegri íslensku. Fnisögnina mun- „Lokun iðngreinanna“ í SAMBANDI við endurtekin blaðaskrif um „lokun iðnaðar- ins“, þykir rjett að birta opinberlega eftirfarandi yfirlit um fjölda iðnnema í árslok 1945, o. fl. Nám hafið: um vjer nu kalla víða barnalega, en hún er sauikvæm tíðarandanum. Vera má, að Jón kríti stundum liðugt, mis- minni og gleymi lika stundum því, sein ástæða hefði verið til að segja. En þetta verður allt afsakað. Máður, sem var iafn „forsóktur“ og framaður og Jón Indíafari og hafði svo margt sjeð og reynt, sem samtíðarmenn hans hófðu ekki hugmynd um, hafði sjálfsagt freist- ingu til þess að krydda frásagnir sínar nokkrum „sjómannasögum". Sjálfur var hann líka trúgjarn að sinna tíma hætti, og þurfti ekki heldur að óttast gagn- rýni lesenda simia eða áheyrenda. Er frásögn lians öll in skemmtilegasta og að mörgu leyti stórfróðleg. Sá, sem byrjar á lestri bókarinnar, mun ó- gjarna vilja leggja hana frá sjer, fyrr en hann hefur lesið hana til enda. Guðbrandur Jónsson bókai’örður hef- ur annast útgáfu bókarinnar. Er hún nú gefin út eftir eiginhandarriti höf- undar, én til eru eða til hala verið með vissu um 20 handrit af henni. Er ljóst af því, að ævisögubrotið hefur náð mikilli lýðkylli. Annars hefði hún ekki verið svo oft rituð upp. Guðbrandur hefur skráð skýringar við hvern kapí- tula. Felst í skýringum þessum mikil vihna, enda hefur þar komið sjer vel verkmennska höfundar þeirra og fjöl- fræði. Loks hefur Guðbrandur skrifað langan og f; íðlegan formála, ]iar sem hann gerir handrit bókarinnar um- talsefni og greiðir úr þeim atriðum í sambandi þar við, sem nauðsynlegt, er úr að greiða, enda þar tekið röggsam- Iega á fleirum efnurn. PrentviIIur eru þar nokkrar, en meinlitlar. Frágangur allur á bókinni er góður, en betur ]iætti mér, ef útgefandi vandaði roeir málfar en hann gerir, og má ]>ó eltki skilja ]<au orð mín svo, að hann standi ekki fylli- Iega á sporði öllum fjölda manna, sem íslensku ritu, í því efni. Sannleikurinn niun vera sá, að engum okkar hefur tekist ennþá að þvo af tungunni þau óhreinindi, sem höfðu grómtekið hana á 18. iild og fyrra hluta innar li). Og s*att að segja sýnist meðferð íslenskrar tuhgu í ræðu ög riti ekki hafa batnað síðustu árin. Sum blöðiu okkar og út- varp, bæði sumir fyrirlesarar og.frjetta- stofan veita í þessu efni ið versta for- dæmi. Blöð og útvarp „finna“ menn t. d. bæði seka og saklausa og flestir skrifa nú „niður“ og sumir tala um „niðurskrift", en áður hjet það að skrifa eitthvað upp. Og menn „fundu" menn ekki áður seka eða saklausa, heldur dæmdu þá seka eða sýkna. Og s\'0 mætti lengi relcja. Finna má að málfari okkar. allra, og er öllum skylt að veita, vinsamlegar bendingar og taka þeim vel. Lúka skal línum þessum með þökk- um til Bókfellsútgáfunnar og Guð- brands bókavarðar Jónssonar fyrir út- gáfu ævisögubrotsins. Mun engan, sem les það, iðra þéss, enda er það tví- mælalaust eitt inna merkustu rita, sem birt hafa verið á þessu ári. Einar Arnórsson. 1942 1943 1944 1945 Alls Reykjavík .... 178 192 225 345 940 Akranes . ... 10 *7 12 14 43 Akureyri .... 17 27 34 26 104 Árnessýsla . ... 4 4 6 8 22 Barðastrandarsýsla . . . . 1 2 2 8 13 Gullbringusýsla .... 6 9 1 14 30 Hafnarfjörður .... 17 12 14 26 69 Vestmannaeyjar .... 10 16 6 16 48 Siglufj. og Eyjaf j arðarsýsla ... . 9 11 9 16 45 ísafj. og ísafjarðarsýslur . .. . . 17 19 18 12 C6 - Snæfellsnessýsla .... 2 0 3 0 5 Neskaupst. og Múlasýslur .... 0 1 5 13 19 Mýrasýsla .. .. 0 2 .0 0 2 Þingeyjarsýslur .... 1 1 3 6 11 Skaftafellssýslur .... 0 1 0 0 1 Rangárvallasýsla 0 0 1 0 1 Seyðisfjörður 0 0 0 1 1 Alls 272 304 339 505 1.420 Samkvæmt reynslu undan- farinna ára, má telja að 100— 120 nemendur, auk þeirra sem hjer eru taldir hafi um síðustu áramót verið byrjaðir nám, en samningar þeirra ókomnir til Iðnaðarfulltrúa, og hafa þá iðn- nemar á öllu landinu verið rúm lcga 1500. Á þessu ári mun tala þeirra fara a. m. Is. upp í 1800, með því að einungis um 270 ljúka námi, en nú þegar er sýnilegt, að tala nýnema verður á sjötta hundrað. Þá fer hjer á eftir yfirlit um iðnnemafjölda í Reykjavík um síðustu áramót, sUndurl. eftir iðngreinum: Bakarar .................... 9 Bifreiðasmiðir ............ 25 Bifvjelavirkjar............ 38 Blikksmiðir ............... 12 Bókbindarar ............... 19 Glerslíparar ............... 1 Gull- og silfursm.......... 13 Hárgreiðslukonur .......... 38 Hrásk. og rak.............. 14 Hattasaumakonur............. 7 Húsasmiðir .............. 168 Húsgagnabólstrarar........ 13 Húsgagnasmiðir ............ 44 Járniðnaðarmenn........... 185 ...... 19 ...... 6 ...... 5 ...... 5 ...... 35 ...... 1 ...... 1 ...... 2 FRABÆRT MARMELAÐI TIL SÖLU: 500 tonn eplamarmelaði a d. kr. 2,00, 10 tonn jarðarberjamar- melaði a d. kr. 3,15, 25 tonn Hindberjamarmelaði a d. kr. 3,00. Alt pr. kg. brutto fyrir netto. Fob. Odense. Góð af- greiðsla. — Fengers Konserves fabrik, Haarby — Fyn (Dan- mark). MÁLARASVEINN, SAUMA- KONA og KLÆÐSKERI óska eftir atvinnu, nú þegar, helst í Reykjavík. — Tilboð, merkt „4348“ sendist Normanns An- nonce Bureau, Odense, Dan- mark. Klæðskerar ............ Kvenklæðskerar ....... Ljósmyndarar .......... Ljósprentarar ......... Málarar ............... Matreiðslumenn ....... Mótorsmiðir .......... Myndskerar ............ Múrarar.................. 40 Netagerðarmenn ........... 5 Pípulagningarmenn....... 38 Prentarar ............... 66 Rafvirkjar .............. 74 Skinasmiðir ............. 26 Skósmiðir . . . . ^teinsmiðir Ursmiðir....... utvarosvirkjar Veggfóðrarar Á þessu ári mun heildartala iðnnema í Reykjavík hækka verulega. 170—180 ljúka námi, en yfir 400 byrja. Mest er fjölg unin í byggingaiðngreinunum og munu yfir 200 piltar hefja nám á þessu ári í byggingaiðn- aðinum hjer. Má gera ráð fyr- ir að#í lok þessa árs verði í Reykjavík um 220 húsasmíða- nemar, 100 rafvirkjanemar, 60 málf'-anemar, 70 múraranemar, 40 pípulagninganemar, en í járn iðnaði og skipasmiði um 230 nemendur. í árslok 1942 var tala iðn- nema á öllu landinu sem næst 600. í árslok 1946 verður hún eins og áður segir varla undir 1800 og hcfir þá þrefaldast á fjórum árum, en fjórfaldast síðan Iðnaðarfulltrúar tóku til starfa 1938. Af þessu yfirliti munu allir sjá, að það er fjarri ,lagi, að tala um lokun iðngreinanna nú síðustu árin. Að vísu eru enn nokkrar takmarkanir um tölu iðnnema, einkum í nokkrum hinna 'smærri iðngreina, en þó fer þeim ört fækkandi, sem beita slíkum hömlum, enda eins og yfirlitið ber með sjer mjög ör fjölgun iðnnema síð- ustu árin. Er nú komið svo, að fjöldi meistara hefir þá sögu að segja, að mikil tregða sje á að fá pilta til náms í ýmsum iðngreinum, og hafa þó kjör nemendanna batnað verulega síðustu árin. Með því fyrirkomulagi, sem hjer er á þessum málum, þ. e.- meistarakenslunni, takmarkast tala iðnnema að sjálfsögðu af því að lokum, hve meistarar vilja taka marga nemendur. — Enginn getur skyldað þá til neins í því efni. Samkvæmt nú- gildandi lögum mega þeir hafa 1 nema móti hverjum fullgild- um iðnaðarmanni og er sú tala ekki nærri alstaðar fullnotuð. Nú liggur fyrir Alþingi frv., þar sem gert er ráð fvrir að nemendatalan takmarkist af því einu, hver skilyrði eru á hverj- um vinnustað til að veita full- nægjandi kenslu. Þegar það er orðið að lögum, ætti alt tal um lokun að vera úr sögunni, enda nálgast nú þegar, að svo sje í reyndinni. Rvík 29. nóv. 1946. F.h. iðnaðarfulltrúanna Krisíjón Kristjónssan. ® Sje békin ayglýst, ® fæs! hún í Békabúð m Lárusar Biöndal.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.