Morgunblaðið - 07.01.1947, Síða 2

Morgunblaðið - 07.01.1947, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 7. jan. 1947 Breskur togarí strandar í Grindavík f ---------- Öllum nema skipstjóra bjargað r ---------- í ÆGILEGU BRIMI strandaði breski togarinn „Lois“ í Hraunsvík í Grindavík á sunnudagskvöld. Fyrir frábæran dugnað björgunardeildar Slysavarnafjelagsins tókst að bjarga fimmtán mönnum af sextán manna áhöfn togarins. Það var skipstjórinn Smith, 46 ára, sem drukknaði. ®---------------------- Stúlkur verða skipsins varar. Um klukkan 9 á sunnudags- kv'öld, er tvær stúlkur á bæn- um Hraun í Grindavík voru á leið til mjalta, urðu þær þess varar, að skip hafði strandað þar undan landi. Skyggni var mjög slæmt og varla heyrðist í eimpípu skipsins. Komnir eftir hálftíma. Formanni björgunardeildar- innar í Grindavík var þegar til- kynt strandið. Mun um það bil hálftími hafa liðið þar til sveitin kom á vettvang. Hið strandaða skip var þá um það bil 100 metra undan landi og lá þvert í brimgarðinn áf stjórnborðssíðu, en öðru hverju gengu sjóar yfir það. Fjara var á. Björgunarlínu var skotið af línubyssu og hæfði hún í fyrsta skoti. Það var Arni Magnús- son vjelstjóri sem skaut. — Nokkru síðar hófst björgunin og gekk hún prýðilega. — Um miðnæ.tti var búið að bjarga 15 mönnum. Öllum ómeiddum en nokkrir þeirra voru ofðnir tals- vert hraktir. Þá var einn eftir skipstjórinn er starðið hafði í stjórnpalli allan tímann meðan á björgun manna hans stóð. — Skipstjórinn. ætlaði að fram- mastri, en þar var línan sett föst. A leiðinni tók hann út. — Fer tvennum sögum af með hverjum hætti hann hafi drukn að. Er því ýmist haldið fram, að hann hafi hrasað á þilfar- inu, eða að sjór hafi tekið hann, er hann var að komast að björg unarstólnum. Fluttir að Hrauni. Skipbrotsmenn voru nú allir fluttir að Hrauni. Af sumum var mikið dregið og varð að flytja þá á bílum. Að Hruni búa bræðurnir Magnús og Gísli Haf liðasynir. Þar hafði verið safn- að af næstu bæjum, þurrum föt nm handa skipbrotsmönnum og var búið að þeim ein vel og kostur var á. Botnvörpungurinn „Lois“ var frá Fleetwood, 112 rúmlestir að stærð. Hann var bygður árið 1917. I fyrrinótt færðist skipið tals vert nær landi. Og í gær gengu Grindvíkingar þurrum fótum á fjöru út að skipinu. Það er mik- ið brotið. Töldu þeir stjórnborðs síðuna vera ónýta með öllu, en bakborðssíðan lítið skemmd. — Ekki hafði þá yfirbygging skipsins brotnað svo teljandi væri. Skrifstofa Slysavarnafjelags- ins skýrði Morgunblaðinu svo frá í gær, að loftskeytastöðin hefði heyrt neyðarmerki togar- ans kl. 9.10 um kvöldið. Þá var SVFÍ þegar gert aðvart. Þegar björgunarsveitinni í Grindavík var tilk. strandið, var þar orðið kunnugt um það og deilain að undirbúa sig undir björgunar- starfið. TJARNARBÍÓ: % „Lundúnaborg í lampaljósi" NAFNIÐ á þessari kvikmynd á ekkert skylt við efni hennar. En nöfn kvikmynda skifta vit- anlega minstu máli, ef eitthvað er í þær varið, að efni til og leik. Þetta er ensk kvikmynd, gerð eftir skáldsögunni „Fanny by Gaslight“. Sagan fjallar um unga stúlku, laundóttur frægs bresks stjórnmálamanns á tím- um Viktoríu drottningar. — Er sagt frá örlögum hennar. Kvikmyndin er vel gerð og vel tekin, en leikurinn þó best- ur. Enskar kvikmyndir eru að fá á sig gott orð, enda leggja Bretar á það mikla áherslu að koma kvikmyndaiðn sinni í gott horf. Breskir kvikmyndafram- leiðendur er^i lausir við marga af stórgöllum Hollywood. Nöfn eins og James Mason verða án efa brátt eins kunn meðal kvik myndahúsgesta og Clark Gable, Tyrone Power og hvað þeir nú heita.Það er ekki lögð eins mik- il áhersla á það í enskum kvik- myndum að hafa hetjurnar „súkkulaðisæta11 eins og í Holly wood. — Aðalkvenhlutverkið leikur Phillis Calvert og gerir það vel. Þetta er góð kvikmynd, þó hún teljist ekki með hinum svonefndu „stórmyndum“. AfaHundur Grótlu AÐALFUNDUR Skipstjóra- og-Stýrimannafjelagsins Grótta var haldinn á sunnudagskvöld. í stjórn voru endurkosnir Val- garður Þorkelsson, form. Ágúst Sveinbjarnarson ritari og Hall- dór Halldórsson gjaldkeri. Með- stjórnendur voru kjörnir Agnar Ilreinsson og Kristinn Þor- steinsson. Fundurinn samþykti tillögur vegna laganna um að- stoðina við smábátaútveginn og enn fremur tillögu vegna skýrslu skipaskoðhnarstjóra um Borgeyjarslysið. Handfökur í Madrid MADRID: — Fjórir menn hafa. verið handteknir í Madrid og sakaðir um að hafa komið fyrir sprengju í kjötsölubúð! Lögreglan segir mcnfnina hafa gert þetta samkvæmt skipun kommúnista. Minnisvarði síra Jóhanns Þorkels- sonar Á SUNNUDAGINN var kl. 2 e. h. var afhjúpaður minn- isvarði á leiði sjera Jóhanns Þorkelssonar dómkirkjuprests. Hófst athöfnin með því, að Magnús V. Jóhannesson yfir- framfærslufulltrúi hjelt ræðu, þar sem hann gat þess, að fermingarbörn sjera Jóharfns frá árunum 1905 og 1906 hefðu gefið minnisvarðann. Talaði ræðumaðUr um starf sjera Jó- hanns og þau áhrifsem hann hefði haft á æskuna hjer í bænum og fór fögrum orðum um hans blessunarríka starf. Var síðan^ minnisvarðinn af- hjúpaður. í!r það steinkross og á hann letrað nafn sjera'Jó- hanns, konu hans og sonar þeirra. Að því loknu söng dóm- kirkjukórinn undir stjórn dr. Páls ísólfSsonar sálminn ,,Jeg gleðst af því jeg guðs son á“. Þá hjelt sjera Bjarni Jónssorj, ræðu og mintist sjera Jóhanns og hins frábæra prestsstarfs hans. Þaklcaði gefendum og bað börnum sjera Jóhanns, bæði nærstaddra og þeirra. er erlendis dvelja allrar blessun- ar og heilla. Að ræðu sjera Bjarna lokinni söng kirkjukór- inn „Son guðs ertu með sanni“. Talaði þá loks frk. Þuríður, dóttir sjera Jóhanns og þakk- aði gefendum þessa veglegu gjöf og þann hug, sem hún sýndi. Flutti hún og þakkir og kveðjur frá fjarstöddum systk- inum sínum. Var athöfnin öll hin hátíð- legasta og voru viðstaddir nokkrir prestar og allmargir bæjarbúar. Ótlast matarskorts í London vegna verkfalls London í gærkvöldi. ÓTTAST ER AÐ til mat- vælaskorts kunni að koma í London, ef ekki rætist úr ólög legu verkfalli, sem vörubíl- stjórar hafa gert hjer í borg- inni. Er talið að um 5000 bíl- stjórar hafi lagt niður vinnu. Bílstjórarnir segja, að þeir liafi gert verkfall vegna þess, að það hafi nú tekið atvinnu- málaráðuneytið 9 mánuði að gariga frá samningum um kaup og kjör vörubílstjóra. Talsmaður ráðuneytisins ljet hinsvegar svo ummælt í dag, að eriginn óþarfa dráttur hefði orðið á þessu máli. ••— Reuter. Marshall kallaður heim frá Kífia Washington í gærkveldi. TRUMAN FORSETI hefir kallað heim sendiherra Barida ríkjanna í Kína, Marshall hershöfðingja, en hann var sendur til Kína til þess að reyna að koma á sættum milli kommúnista og miðstjórnar- innar kínversku. Maí fær tundur- dufl í vörpuna Á LAUGARDAG fjekk botnvörpungurinn Maí tund- urdufl í vörpu er skipið var að veiðum um það bil 50 sjóm norður af Ritur. Þetta gerðist um kl, 5 síðd. að duflið kom í vörpuna og urðu skipverjar þess ekki varir fyr en það skail á dekkið innan um fiskinn. Þegar var haldið til ísa- fjarðar, en í fylgd með Maí var togarinn Drangey, og komið þangað um miðnætti. Tundurduf lasj erf ræðingur Skipaútgerðar ríkisins á ísa- firði Guðfinnur Simundsson fór til móts við Maí á varð- bátnum Finnbjörn. Við athugun kom í ljós að duflið var óskaðlegt, því sjór hafði komist inn í það. En til frekara öryggis ljet Guðfinn- ur skipverja yfirgefa skipið meðan athugunin fór fram. Klukkan rúmlega hálf eitt um nóttina fór skipið aftur á veið ar. Þetta er ll.tundurduflið sem Guðfinnur kannar og eyði- leggur. 223 visfmenn á Elliheimilinu VIÐ ÁRAMÓTIN . voru 223 vistmenn á Elliheimilinu Grund að því er segir í ársskýrslu heimilisins. Karlmenn eru þar 158, en 65 konur. Á árinu dóú 42 vistmenn, 25 konur og 17 karlmenn. Meðalaldur þeirra, sem ljet- ust á árinu var 77 ár og fjórir mánuðir, konur 77 ár, en karlar 77 ár og 10 mánuðir. Meðal- dvalartími var 2 ár og 77 dagar. Greiðsla á vistgjöídum skift- ist þannig, að bæjarsjóður Reykjavíkur greiddi fyrir 120 manns, önnur hreppa og bæjar- fjelög fyrir 13 manns, 38 greiddu sjálfir og vandamenn fyrir 52. Leifað að hermanna- grafreitum HAMBORG: — Yfirmaður breska flugliðsins í Þýskalandi hefur beðið Þjóðverja um að- stoð við að reyna að finna grafreiti um 20.000 breskra flugmánna, sem skotnir voru niðu? yfir Þýskalandi á styrjald arárunum. í heimsókn í Singapore LONDON: — Tedder mar- skálkur, yfirmaður breska flughersins, kom nýlega til Singapore ásamt konu sinni. Marskálkurinn kannaði fluglið Breta á staðnum. LONDON: — Reiknað hefir verið út að það taki 25 ár að hreinsa til í rústum Berlínar. Kostnaðurinn er áætlaður 2.7 miljarðir marka. Hrundir húsveggir í Berlín eru 70 millj. rúmmetra, þar af hefir 1,7 millj. verið komið burt. KosÆði það 67 millj. marka. Fjöldi Reyhvíkinga á skíðum um s.l. helgi ■ FJÖLDI Reykvíkinga, svo hundruð skifti, fóru á skíði um síðustu helgi. Snjór er tölu- verður efra núna, en þó ekki eins mikill og um jólin. Færi var heldur þungt og veður leið- inlegt, krapableyta. Gera má ráð fyrir að við snjó komuna í fyrrinótt og í gær, hafi færi batnað að mun og að skíðafæri verði gott um næstu helgi, ef ekki hlánar. Vegurinn upp að Kolviðarhóli og Skíða- skólanum hefir verið ágætur. Boðskapur Trumans Frh. af bls. 1 heldur og fyrri fjölda margar aðrar þjóðir í heiminum. ‘ \ Aðstaða Bandaríkjamanna. Forsetinn sagði, að til þessa hefðu Bandaríkjamenn hjálp- að sveltandi þjóðum betur en nokkur önnur þjóð heimsins og flutt meira af matvælum til þeirra, en allar aðrar þjóðir í heiminum samanlagt. Þessu. yrði að halda áfram. Bandaríkjamnn hefðu ekki gert skyldu sína gagnvart heiro. ilislausu fólki í Evrópu og úr því væri nauðsyn að bæta. Frá því í maí í vor hefð.u aðeins 5000 manns fluttst til Banda- ríkjanna frá Evrópu. Forsetinn bað þingið að gera sjer ekki erfiðara fyrir að stjórna, en þyrfti að vera og bað stjórnmálaflokkana að hafa sem besta samyinnu um velferð landsins. I Asbjömsona œvintýrin. — g I Sígildar bókmentaperlur. i: I Óglejrmanlegar íögux bamanna. - 1 i Góð gleraugu eru íyrir i öllu. í Afgreiðum flest gleraugna f | recept og gerum við gler- | augu. • § Augun þjer hvílið með gleraugum frá TÝLI H. F. Austurstræti 20. = _________________________ :

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.