Morgunblaðið - 24.01.1947, Page 1
34. árgangur
19. tbl. — Föstudagur 24. janúar 1947
Isafoldarprentsmiðja h.f«
ÁSTRALÍA ANDVÍG ÞÝSKRI STJÚRN Á NÆSTUNNI
FRANSKAR TILLÖGUR UM FRAMTÍÐ ÞÝSKALANDS
Orilsending
Frakka til Breta,
sjeð úr lli kiíi fjarSægð
-•>
manna og Rússa
Washington í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
I orðsendingu, sem franska
stjórnin hefir sent stjórnum
Bandaríkjanna, Bretlands og
Rússlands, gerir hún það að til-
lögu sinni,. að dregin verði upp
ný stjórnarskrá fyrir Þýska-
land, en samkvæmt henni verði
þýska ríkisþingið lagt niður, og
bandaríkjakerfið, líkt og það
var á dögum Bismarcks, tek-
ið upp á ný.
LANDSÞING.
I orðsendingu sinni gera
Fi'akkar ráð fyrir því að hin
ýmsu þýsku ríki hafi allveru-
lega sjálfstjórn enda þótt sjer
stakt landsþing fari með
fjármál, flutninga, póst og
síma og sumt það, sem við
kemur utanríkismálum.
Ætlast er til þess, að þing-
hvers sambandsríkis tilnefni
fulltrúa á sjerstaka ríkjasam-
kundu, sem svo árlega kjósi
forseta. Forsetinn á svo fyrir
sitt leyti að útnefna menn í
ríkisstjórn, sem fara á með
mál þau, sem talin eru upp
hjer að ofan.
G ETA SAMIÐ UM
UTANRÍKISMÁL.
Samkvæmt frönsku tillög-
unum, á hvert sambandsríki
að ráða yfir sínu eigin lög-
regluliði, að tilnefna dómara
i þýskan hæstarjett og hafa
rjett til að skipa sendiherra
erlendis og semja um utanrík
ismál.
Sambandsríkjunum er bann
að að sameinast í eina heild,
líkt' og gert var eftir ósigur
Þýskalands í styrjöldinni
1914—18.
Þess er vænst, að frekari
skýringar verði gefnar á til-
lögum þessum, eftir að
Georges Bidault,, hinn nýji ut
anríkisráðherra, hefur haft
tíma til að kynna.sjer þær.
Kengdi sig í kjailaranum
BERLÍN: — Kona banda-
rísks liðsforíngja, sem dvelur
í Nunberg, hengdi sig fvrir
nokkru í kjallaranum í húsi
þeirra. -liji
FYRIR nokkru var gerð tilraun vestur í Ameríku til að ljós-
mynda jörðina úr V-2 sprengju, sem skotið var rúmlega 100
km upp í loftið. Tókst þessi tilraun mjög vel. Sjerstakur út-
búnaður var ó myndavjelinni, sem Johns Hopkins háskólinn
hafði útbúið og kom myndavjelin niður í fallhlíf, að vísu nokk-
uð brotin, en myndirnar voru heilar. Við þessa tilraun var notuð
DeVry kvikmyndavjel. Myndin hjer að ofan er af um 40.000
fermílum af yfirborði jarðar.
lliirlegur kolo-
skortur í Evrópu
London í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunbl. frá Reuter.
FORMAÐUR evrópísku kolasamtakanna, J. Eaton
Griffith, sagði í dag, að kolaskorturinn í Evrópulöndunum
væri mjög alvarlegur. Hann sagði blaðamönnum, að skort
urinn mundi verða sá sami í alllangan tíma', og vanda-
málið mundi ekki verða leyst á komandi ári.
Minkandi
kolaútflutningur.
Meginástæðuna fyrir þessu,
sagði hann vera þá, að Bretar
hefðu því nær alveg hætt að
flytja út kol, en framleiðsla
Þjóðverja hefði minkað til
muna.
Fyrir stríð, sagði Griffith,
lögðu Bretar til 30% og Þjóð-
verjar 40% af öllum kolum
þeim, sem Evrópulöndin fluttu
inn. í dag er svo komið, að
Bretland hefur næstum hætt út
flutningi og Þjóðverjar flytja
út minna en.helming þess, sem
þeir gerðu fyrir stryjöldina.
Pólland flytur út aðeins um
7% af því, sém var fyrir stríð.
Bandaríkin.
Griffith tók fram, að Banda-
ríkin hefðu aldrei flutt mikið
af kolum til Evrópu.fyrir styrj-
öldina, enda næsta óeðlilegt, að
flytja kolin 3000 mílur yfir At
lantshaf. Nú er liins vegar svo ' — Reuter
komið, að Evrópuþjóðirnar
kaupa þaðan um 20 miljón
tonn á ári.
[ru þjóðverjar úfærir m ú
stjórna sjer sjáifir?
London í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunbl. frá Reuter.
W. R. Hodgson, leiðtogi sendinefndar Ástralíu á fundi
fulltrúa utanríkisráðherranna í London, hjelt því fram
í dag, að Þjóðverjar væru ófærir um að stjórna sjer sjálf-
ir. í sambandi við hina tilvonandi friðarsamninga við
Þýskaland, sagði hann stjórn sína líta svo á, að enga þýska
stjórn bæri að mynda næstu árin. Telur ástralska stjórnin,
að ótækt sje með öllu, að flýta myndun þýskrar stjórnar,
en kynna ætti þó fyrir þýsku þjóðinni ákvæði friðarsamn-
inga þeirra, sem Þýskalandi yrði látið samþykkja.
^Bráðabirgðastjórn.
Ástralía vill þó, að sett verði
Nýr sendihsrra
WASHINGTON: — Öldunga
deildin samþykti nýlega með
samhljóða atkvæðum skipun
Max Gardners í sendiherraem-
bættið í London. Gardner, sem
var útnefndur aL Truman, er
64 ára að aldri.
Viðræðum Dana
og Breta heldur
London í gærkvöldi
S AMNIN G AUMLEITÚN-
UM milli Dana og Breta held
ur áfram 1 London. en opin-
berlega hefur verið tilkvnt að
líkur sjeu fyrir því, að um-
ræðum þessum ljúki ekki fyr
en í næstu viku.
Danska sendinefndin hefur
nú skift sjer niður í þrjár und
irnefndir, og ráeða þær sam-
tímis við verslunarráðunéytið
fjármálaráðuneytið og mat-
vælaráðuneytið.
Russar seilast eft-
ir ítökum í finskum
fyrirtækjum
Stokkhólmi í gærkv.
RÚSSAR hafa stungið
upp á því við finnsku
stjórnina, að þeir fái helm
ing hlutafjárins í þeim
hlutafjelögum, er stjórn-
in stendur að. Telja þeir
að með þessu megi ganga
frá kröfum þeim, sem þeir
hafa gert til þýskra inn-
eigna í Finnlandi.
Fregn þessari, sem kem
ur frá áreiðanlegum heim
ildum, fylgir það, að
finnska stjórnin hafi á sín
um tíma samþykt að af-
henda Rússum allar þýsk-
ar inneignir í landinu, en
þær munu vera um 6,000
miljón finnskra marka
virði. I samræmi við sam-
komulag þetta, lagði stjórn
in samsvarandi upphæð
inn á reikning Rússa í
finnska ríkisbankanum.
Eins og sjá má af of-
angreindu, gerir rúss-
neska stjórnin nú tilraun
til að ná ítökum í hluta-
fjelögum Finnlandsstjórn-
ar og vill fá að kaupa
helming skuldabrjefa þess
ara fyrirtækja.
—Reuter.
á laggirnar nokurskonar bráða
birgðastjórn fyrir alt Þýska-
land, og vill þá að stuðst verði
við ákvæði Potsdamráðstefn-
unnar. Telur ástralska stjórn-
in, að best muni fara á því, að
utanríkisráðherrarnir komi
sjer saman um, hvernig best
verði að haga því millibilsá-
standi, sem líða kann, frá því
að gengið hefur verið frá frið-
arsamningunum, þar til ábyrg
þýsk stjórn hefur verið mynd-
uð.
•v
Smáþjóðirnar og
friðarsamningarnir.
Hodgson gerði einnig grein
fyrir því, hvernig stjórn sín
teldi að best mætti gefa smá-
þjóðunum tækifæri til að hafa
hönd í bagga um samningu
friðarsamninganna, eða við um
ræður um bráðabirgastjórn
Þýskalands. Taldi hann smá-
þjóðirnar að minsta kosti eiga
heimtingu á því, að frjálsar
umræður um friðarsamningana
færu fram, áður en þeir yrðu
endanlega samþyktir.
Aðal landamæramálin, sem
Hodgson sagði að stjórn sín
teldi að bæri að leysa, eru
pólsk-þýsku landamærin, Saar,
Ruhr og Rínarlönd.
Tsaldaris tilkynnir
nýja stjórnar-
myndun
Aþenu í gærkv.
CONSTANTIN Tsaldaris, for
sætisráðherrn Grikklands, til-
kynti í kvöld, að búið væri að
mynda nýja samsteypustjórn
og ráðherralistinn myndi verða
birtur þinginu á morgun. Sjö
af átta þingflokkum Grikk-
lands' munu eiga ráðherra í
hinni nýju stjórn.
•— Reuter.