Morgunblaðið - 02.03.1947, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 02.03.1947, Blaðsíða 8
VI O K u U H B J AÐÍB Sunnudaí>ur 2. mars 1947 Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Simi 1600. Áskriftargjald kr. 10,00 á mánuði innanlands._ kr. 12,00 utanlands. í lausasölu 50 aura eintakið, 60 aura með Lesbók. Skynsamleg tillaga GREININ „Fljótandi síldarþrær“, eftir Kjartan J. Jó- hannsson lækni á ísafirði, sem nýlega birtist hjer í blað- inu hefir vakið verðskuldaða athygli. Greinarhöfundur bendir á brellur síldarinnar síðustu árin, þar sem hún hefir aðallega haldið sig á austurhluta veiðisvæðisins, við Langanes og þar fyrir austan. Þetta hafi valdið því, að Raufarhafnarverksmiðjan hafi ekki haft undan, og hafi því stjórn Síldarverksmiðja ríkisins orðið að skylda skipin (a. m. k. hin stærri) til þess að sigla með afla sinn til Siglufjarðar. En þetta hafi að sjálfsögðu tafið skipin frá veiðum og haft þær afleið- ingar, að afli þeirra hefir orðið mun minni en annars hefði orðið. Hinsvegar hafi verksmiðjurnar við vestanvert veiði- svæðið ekki fengið nema brot af þeirri síld sern þær gátu unnið úr. Það sje því ekki vöntun síldarverk- smiðja fyrir Norðurlandi, sem okkur vanhagi um nú í augnablikinu, heldur þurfi að finna hagkvæmt ráð til þess að losa smærri skipin við langa siglingu með afl- ann og dreifa verkefninu milli síldarverksmiðjanna. ★ Síðan segir greinarhöfundur: „Þetta er lang auðveldast að gera með tveimur hæfi- lega stórum flutningaskipum, sem útbúin væru með afkastamiklum „löndunartækjum“ til þess að taka við aflanum frá 2—4 skipum í einu. — Þau þyrftu að taka a. m. k. 10—20 þúsund mál hvort og helst að geta kælt a. m. k. helming af því magni, svo að þau þyrftu aldrei að fara með slatta eða minna en rúmlega hálffermi. Skipin þyrftu auk þess að vera útbúin þannig, að þau gætu losað aflann í land með svipuðu móti og verk- smiðjurnar. Auk þess væri tiltölulega auðvelt að hafa söltunarstöð um borð í skipunum til að salta það besta úr aflanum. Aðalkosturinn við þessa aðferð er sá, að stofnkostn- aður er tiltölulega lítill, miðað við að byggja stóra síld- arverksmiðju, hvort heldur væri á sjó eða landi. En venjulega gæti notagildið orðið svipað. Auk þess kæmu skipin að fullum notum sem flutningaskip þann tímann, sem þau ekki væru bundin við þenna starfa, því breýt- ing á þéim væri ekki öllu meiri heldur en nú er á íiskiskipi, er þau skifta um frá þorskveiði til síldveiði og öfugt“. ★ Þessi tillaga greinarhöfundar verðskuldar vissulega fylstu athygli. Ýmsar tillögur hafa komið fram til úrlausnar á þessu •oandamáli. M. a. sú, að reisa nýja stóra verksmiðju austan á Langanesi. Ríkið er nú í þann veginn að Ijúka ■'úð byggingu tveggja verksmiðja (á Siglufirði og Skaga- strönd), sem talið er að kosta muni um eða yfir 40 milj. króna. Þetta verða mjög afkastamiklar verksmiðjur, auk þess sem margar eru fyrir. Það er því vafalaust rjett hjá Kjartani lækni, að það eru ekki verksmiðjur á Norð- urlandi, sem okkur vantar nú í bili, heldur hitt, að finna hagkvæmt ráð til þess að dreifa verkefninu milli verk- smiðjanna. Frá leikmannssjónarmiði virðast hinar „fljótandi síldarþrær“, sem Kjartan^stingur upp á geta leyst þetta verkefni. Þessvegna er tillaga hans verð fylstrar athygli. Það er í raun og veru þessi aðferð, sem við höfum verið að framkvæma undanfarið í sambandi við síld- veiðarnar í Kollafirði og í grend við Reykjavík. Veiði- skipin hafa losað síldina í stærri skip, sem síðan hafa flutt aflann til Siglufjarðar, Þessi aðferð er vitanlega ekki til frambúðar að því er Faxasíldina áhrærir, vegna hinnar löngu vegalengd- ar. En þetta vísar okkur leiðina. Með sama fyrirkomu- lagi fyrir Norðurlandi á sumrum og hentugum skipum til flutninga, mætti stórauka veiðiafköst bátanna. \Jihverji ihriýar: ÚR DAGLEGA LÍFINU • Ósmckkleg fram- koma. HINGAÐ til lands eru fyrir skömmu komnir tveir ungir skáksnillingar til að keppa við okkar bestu menn í þessari í- þrótt. — Hefir kepnin farið fram fyrir opnum dyrum og fjöldi áhorfenda fylgst af á- huga með leikjunum. Hinir erlendu gestir eru eink ar blátt áfram og viðmótsþýðir menn. Vinalegir í allri fram- komu og lausir við allan hroka eða gorgeir, þótt frægir sjeu fyrir list sína víða um lönd. — Fyrir þeim er skákin auðsjá- anlega íþrótt, þar sem taka ber því, að besti maðurinn sigri. — En í sambandi við kappskák- ina hefir komið fyrir leiðinleg atvik og ósmekkleg framkoma áhorfenda. — í hvert skifti, sem það kemur fyrir að Islend ingur vinnur skák, eða gerir jafntefli, relta áhorfendur upp gleðihróp mikil, klappa og hrópa húrra, en þegaf gestirn- ir vinna þá er dauðaþögn í salnum. — • Óþarfa rembingur. ÞAÐ er vitanlega gleðiefni hverjum Islending, að við skul um eiga skákmenn á borð við færustu menn erlendis í beirri íþrótt og það ber að fagna slíku. — En það verða falskir hljómar í gleðihrópunum þegar þau koma fram, eins og þarna í Mjólkurstöðinni. — Ef nauð- svnlegt er að láta tilfinningar sínar í ljósi með ópum, eins og á veðreiðum, eða knattspyrnu- leikjum, þá ætti að vera nóg að klappa fyrir sigurvegurun- um og þá jafnt hvort hann er erlendur eða innlendur. í dag helaur skákmótið á- fram. — Skákstjórinn ætti þá að nota tækifærið og biðja á- heyrendur að láta gleði sína og óþaría rernbing í Ijós á viðkunn anlegri hátt, en tíðkast hefir til þessa á skákmótinu. — • - Forstjóri Tóbakseinkasöl - unnar. ÚT af fyrirspurn, sem kom fram hjer á dögunum um starf Sigurðar Jónassonar, forstjóra Tóbakseinkasölunnar, hef-ir hann látið mjer í tje eftirfar- andi upplýsingar: Sigurður sagði upp starfi sínu í desember s. 1. hjá Tó- bakinu, en varð að hafa sex mánaða fyrirvara til að losna úr starfinu og verður því for- stjóri til 1. júlí n. k. — Ennþá hefir honum ekki verið tilkynt hver verða eigi eftirmaður hans og því ekki fengið tæki- færi til að setja hann inn í starf ið, eða getað á annan hátt geng ið frá málum í Tóbakinu, þann ig að ekki komist truflun á starfsemina. — Að öðru leyti telur hann ó- sjer pð láta af störfum þar, þegar búið sje að ganga frá því hvernig verði um stjórn fyrir- tækisins í framtíðinnii ,,.Jeg hefi verið ráðinn for- stjóri Olíufjelagsins h.f., sem er aðaleigandi Hins ísl. Stein- olíuhlut.afjelags og mun það væntanlega verða' starf mitt fyrst um sinn“. Þetta er svar Siguroar Jónassonar. • í eftirmiðdagskaffi. ÞESSA dagana streymir fólk ið í Sjálfstæðishúsið við Aust- urvöll til að drekka eftirmið- dagskaffi. — Það er orðið eins og í gamla daga, þegar veit- ingahúsin voru yfirfull af fólki í eftirmiðdögunum, sem kom til að fá sjer hressingu, sýna sig og sjá aðra og hlusta á góða tónlist. Aðdráttaraflið í Sjálfstæðis- húsinu eru þeir Carl Billich píanóleikari og Þorvaldur Steingrímsson fiðluleikari, seni leika fyrir gestina klassiska tónlist. — Billich er austurrískur mað- ur, giftur íslenskri konu. Hann eignaðist hjer fjölda marga vini og aðdáendur er hann Ijek á Hótel Island fyrir stríð. Eftirmiðdagskaffið í Sjálf- stæðishúsinu setur sinn svip á bæjarlífið. Og það var vel tíl fundið hjá forstjóra veitinga- hússins að fá hljómlistamenn til að skemta gestunum. Veitingamenn hjer í bænum ættu að gera sjer það ljóst, að það er hægt að fá gestina til að koma þegar þeir finna, að eitthvað er gert fyrir þá. —- • Verður páskaferð í snjó? SKÍÐAFÓLKIÐ í Reykjavík er farið að örvænta um að það komist á skíði á páskunum, en þá er nærri heil vika frí fra störfum hjá skrifstofu og versl unarfólki og fleirum. Nokkur brjef hafa mjer bor- ist frá ungu fólki, sem vill ólmt að efnt verði til ferðar ti-1 ísa- fjarðar á páskunum, því þar sjeu góðar skíðabrekkur og ferðalög Reykvíkinga þangað, þegar farin hafa verið, hafi gefist vel. — Þá er bara að drífa sig í að koma þessu í kring. Reyna að fá hentugt skip fyrir sann- garnt verð. — Það stendur á- byggilega ekki á fólkinu og sennilega að færri komist rneð en vilja. — Það er ekki til neins að skrifa meira um þetta. Það er fram" kvæmdin ein sem dugar. MEÐAL ANNARA ORÐA . . . . -O „María átfi lífið lamb" ÞANN 11. febrúar s.l. hjeldu Bandaríkjamenn hátíðlegt 100 ára afmæli hins mikla hugvits- manns Thomasar Edison. Hann fæddist í Milan í Ohio-fylki. Foreldrar hans hjetu Samuel og Nancy. Föðurætt hans var hollensk. Hafði afi hans, John Edison, komið til Vesturheims frá Hol- landi. Hann settist aö í Nova Scotia og þar fæddist Samuel sonur hans. Hann átti síðan heima norðanvið Erie-vatnið, en varð þar viðrioinn uppreisn artilraun, og sá sjer vænst að flytja suður fyrir landamærin. Settist hann að í Ohio og gift- ist skömmu síðar Nancy Eliot. Hún hafði verið kenslukona. Þau bjuggu í Miían, er þeim fæddist sonurinn, er skírður var Thomas. Þar lifði Thomas I litli sín fyrstu 7 æfiár, og fjekk þar fyrstu kenslu hjá móður i sinni. Hún hafði betra lag á að kenna honum en skólakennar- ar hans. Þegar Edison var 11 ára gsmall byrjaði hann að vinna t fyrir sjer, sem blaðadrengur. i SeldLhann blöð í járnbrautar- lest, einnig bækur og ávexti. r gerði hann sjer litla hand- 1 pressu og prentaði blað, sem hann seldi farþegunum. Fjekk Tmnn að vera með þetta dót sitt í vngni þeim. sem hafður var fyrir farangur farþeganna. Þar byrjaði hann ýmsar tilraunir. Þetta varð til þess að einn dag kviknaði í öllu saman hjá hon- um. Þá varð lestarstjórinn svo vondur, að hann gaf drengnum rokna löðrung og fleygði hon- j um út úr lestinni. Þá gerðist Edison símritari.' Við það verk fann hann endur- bætur á símsenditæki því, sem þá var notað. Seldi hann „West ern Union“ þessa nýung sína, fyrir 40 þúsund dollara. Hafði hann hugsað sjer, að heimta 5.000 dollara fyrir hana, en fengi hann ekki svo háa upp- hæð, ætlaði hann að gera sig ánægðan með 3,000. Er hann hafði fengið svo mikla peninga-| milli handa gaf hann sig allan við tilraunum til umbóta á ýms um tækjum. Með Alexander Graham Bell gerði hann nú umbætur á talsímanum. Hann fjekk hugmyndina að hljóðritanum af leikfangi, sem hann af hendingu hafði hönd j á. Það var mynd úr pappa, sem sett var í hreyfingu, með því að hrópa í gegnum trekt. Veitti hann því athygli, að myndin hreyfðist þeim mun hraðar, sem hann hrópaði hærra. Datt honúm þá í .hug, að gera áhald, sem tæki við hljóðbylgjunum. Fr hann hafði unnið að til- raunum þessum í marga mán- uði, kallaði hann á aðstoðar- menn sína, til þess að láta þá sjá árangurinn af erfiði sínu. Þeir voru mjög forvitnir, en höfðu litla trú á, að erfiði hans myndi bera nokkurn árangur. Hann setti staniolpappír á öx- ul, sem var látinn snúast og festi nál við öxulinn, sem nam við pappírinn. Hrópaði hann síðan gegnum lúður ,,María átti lítið lamb“. Flutti hann síðan nálina til baka og ljet öxulinn aftur hreyfast. Þegar náli11 straukst að nýju eftir pappírn- um, heyrðist sagt mjög veikuna rómi: „María átti lítið lamb“- Með því var sýnt, að byrjunar- örðugleikarnir voru yfirunnir. Hann notaði 40 þúsund doll- a/a í tilraunir, áður en hann gat gert fyrsta rafmagnsglóð- arlampann. Hp.nn var fullgerð- ur haustið 1879. En veðmál eitt varð upphaf- ið að því. að hann tók að gera kvikmyndir. I Californíu höfðu tveir menn veðiað um fótaburð hesta á spretti. Annar þeirra fullyi'ti að hestar kæmu niður með alla fætur í einu. er þeir væru á spretti. Hann Ijet Ijós- myndasm'ð taka 40 myndir af hesti á hreyfingu. Edison sá myndir þessar. og ákvað að gera mvndir af Kreyfingurn fólks. Uppaf bví varð kvik- myndavjelin til. »

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.