Morgunblaðið - 31.05.1947, Page 1

Morgunblaðið - 31.05.1947, Page 1
FLUGVJELIN RAKST Á FJALL í ÞOKU ALLIR SEM f HENNI VORU FÓRUST Þingi breska Verka- mannaflokksins lokið London í gærkvöldi. SÍÐASTI dagur flokksþings breska Verkamannaflokksins var í dag, og einkum rætt um húsnæðisvandræði, flóttafólk í Bretlandi og notkun vinnuafls stríðsfanga. I sambandi við húsnæðismál- in komu fram kvartanir um of háa leigu og sölu byggingarefn- is á svörtum markaði. — Kom fram tillaga um það, að komið yrði á fót húsnæðismálaráðu- neyti, en húsnæðismál hafa til þessa heyrt undir heilbrigðis- málaráðuneytið breska. Tillaga þessi var feld, eftir að heilbrigðisráðherrann hafði flutt ræðu, þar sem hann gerði grein fyrir störfum ráðuneytis ,síns. Um lækkun húsaleigu sagði ráðherrann, að slíkt væri ekki æskilegt að svo komnu máli, því slíkt mundi ekki ger- legt, án þess að auka byrði skatt greiðenda. —Reuter. sSerSliiss- punda sek! fyrii gjaldeyrisbrot London í gær. BRESKUR sjóliðsforingi og kona hans hafa verið dæmd í 41,500 sterlingspunda sekt fyrir 'gjaldeyrisbrot. Þau hjónin voru sökuð um að hafa eitt 20,000 pundum meira á meginlandi Evrópu og í Egyptalandi en þeim var heim ilt. Munu þau í Egyptalandi hafa látið mann nokkurn, sem grunaður er um óleyfilega gjaldeyrisverslun í stórum stíl, fá allháa upphæð af sterlings- pundum. Ákærandi rjettarins sagði sj óliðsforingj anum, að hefði það ekki verið sökum hinnar ágætu frammistöðu hans í styrjöld- inni, hefði hann verið dæmdur í fangelsi, auk fjársektarinnar. Þar sem flugvjelin fórsi. Á UPPDRÆTTINUM sjest íTjeSinsíjörður og Hestfja!!. Slysstaðurinn er við Torfuvoga. ÖRIN BENDIR á Hestfjall við Hjeðinsfjörð, en mymlin er tekin af sjó og er af Nesnúpi fyrir ofan Siglunes (lengst til vinstri), Hestfjalli og Hvannadalsskriðum. Líklegf að 120 hafl farisf í ilugslysum EKKJUR FYRIR NASISTA- DÓMSTÓL HAMBORG: — Tilkynt hefur verið, al ekkjur þeirra Gorings og Franks, sem teknir voru af lífi eftir Núrnberg- rjettarhöldin, hafi verið hand- teknar og muni verða dregnar fyrif nasistadómstól. Hins veg- ar er borið til baka, að ekkja Fricks ráðherra, hafi verið sett í fangelsi. Washington í gær. • GEYSIMIKIL flugslys hafa orðið siðustu 36 klukkustund- irnar og er óttast, að 120 manns hafi als látið lífið. Mesta slysið í flugsögu Banda ríkjanna varð þannig í New York á fimtudagskvöld, er far- þegaflugvjel, sem var að leggja af stað frá La Guardia flug- velli til Cleveland með 48 manns innanborðs, hrapaði til jarðar á flugvellinum. Þrjátiu og átta manns fórust, en þeir tíu, sem af komust., liggja á sjúkrahúsi. j I Japan fjell flugvjel til jarð- ar með 41 manns innanborðs. Er hjálparleiðangur á leið á slysstaðinn, en óttast er að allir | í flugvjelinni hafi farist. j Þá berast og fregnir frá Hol- I landi, þar sem ein af vjelum j hollenska flughersins hrapaði l til jarðar, með þeim árangri, ! að 14 menn misstu lífið. Loks eru fregnir um flug- slys í Suður Ameríku og Al- aska. Á fyrri staðnum er óttast um afdrif um 40 manna, en í J , ’ Alaska er Jiriggja flugmanna I saknað. — Reuter. Búið að flytja 24 lík til Akureyrar DOUGLASFLUGVJELIN, sem var á leið til Akureyrar rakst á Hestfjall í Hjeðinsfirði á fimtudag og fórust allir þeir, sem í vjelinni voru. Catalínaflugbátur, sem fór að leita, fann vjelina, eða það sem eftir var af henni í fjallinu um klukkan 8,30 í gærmorgun. Voru síðar sendir leiðangr- ar frá Ólafsfirði og Siglufirði á staðinn og náðu þeir 24 líkum og voru þau flutt til Akureyrar. Talið er, að það, sem vantar sje undir flugvjelarhlutum, en leiðangurs- menn hreyfðu þá ekki, þar sem skoðunarmenn eiga eftir að koma á staðinn til að rannsaka. Læknirinn á Ólafsfirði taldi, að öll líkin væru þekkjanleg, þótt sum væru mikið sködduð. Slysið bar að allt í einu. Ekki er nokkur vafi talinn á 'því, að þetta hörmulega slys hafi boríð að allt í einu og að þeir, sem í vjelinni voru, hafi látist undir eins er flugvjelin skall á hamraveggnum. Spreng- ing mun hafa orðið í vjelinni um leið og hún rakst á fjallið og eldur komið upp í henni. Það styrkir þá trú, að slysið hafi borið bráðan að, að ekkert heyrðist í loftskeytatækjum vjelarinnar, eftir að hún var á Skagafirði og talaði við Akureyri. Síðustu kveðjurnar. Flugvjelin flaug lágt yfir Siglunes og er hún fór yfir Reyð- arárbæinn, sem stendur norðvestan undir nesinu, veifuðu far- þegar til fólksins, sem stóð úti og horfði á flugvjelina fljúga yfir. Skygni var þá um einn kílómetri, en rjett í því rak yfir þoku- mökk og sýrti í lofti. Hvernig slysið bar að. Það verður að sjálfsögðu ekkert sagt með neinni vissu hvern- ig þetta sviplega flugslys bar að. Ljóst er aðeins að það er dimmviðri, sem er orsök þess. En flugfróð r menn hallast að þeirri skoðun, að er flugvjelin kom fyrir mynni Hjeðinsfjarðar, hafi þokan verið svo svört, að flugvjelin hafi ekki treyst sjer til að halda inn á Eyjafjörð og því snúið við og þá beygt til hafs til að forðast fjöllin. En til þess að geta áttað sig á Siglunesinu, varð hann að komast eins nálægt því og • unt var. Við þetta getur flugvjelin hafa borist fyrir norðaustíin vmdinum inn í mynni Hjeðinsfjarðar og lenf á fjallinu. Er þetta að sjálfsögðu getgáta, þar sem eng- inn er til írásagnar um atburðinn. En það styrkir trú manna að þannig hafi þetta verið, að flugvjelin Jiggur þannig í klettaskorunni, að hún snýr upp á við, sem bendir til þess að flugmennirnir hafi orðið varir við fjallið á síðustu stundu, og þá reynt að stefna flugvjelinni svo að segja beint upp 1 loftið til að reyna að forðast árekstur, en það hafi þá orðið um seinan. — f' Vjelin liggur í klettagili. Það voru þrjár flugvjelar, sem fóru til að leita að hinni týndu Douglasvjel, strax og fór að ljetta til fyrir Norðurlandinu í tyrrinótt. Tvær Catrdínavjelar og ein minni vjel. Það voru flugmenn í annari Catalínavjelinni, sem komu auga á flakið af Douglasvjelinni í fjallinu og tilkyntu það með loftskeytum. Var þá þegar Ijóst, að lítil von var að nokkur maður væri lifandi við vjelina. Strax voru gerðir út leiðangrar á vjelbátum frá Ólafsfirði og Siglufirði. Var hjúkrunarlið í báðum bátunum og læknar og auk þe's talsverður mannafli. Framh. á bls. 2

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.