Morgunblaðið - 08.06.1947, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 08.06.1947, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ Sunnudagur 8, júní 1947! ] Sr. Friðrik Hallgrímsson 75 ára EINN af vinsælustu mönn- iim íslensku prestastjettarinnar sjera Friðrik Hallgrímsson fyrv dómprófastur er 75 ára hinn 9. }).rn.. Hann er fæddur í Reykja yík 9. júní 1872, sonur Hall- gríms bisltups Sveinssonar og konu hans Elínar Maríu Bolette f. Feveile. Stúdent varð hann 1891 og lauk embættisprófi við Ka upmannah. há skóla 1897. Hann var vígður 12. október 1898 prestur til Holdsveikra- spítalans í Laugarnesi, en varð prestur að Htskálum árið eftir og gegndi því starfi til ársins 1903. Það sama ár fór hann til Vesturheims og gerðist prest ur íslendinga í Argyle-byggð og starfgði þar til ársins 1925, er hann hvarf heim og gerðist annar prestur við Dómkirkjuna í RejAjavík, uns hann Ijet af störfum síðla árs 1945. Hann var prófastur í Kjalarnes-próf- fastsdæmi 1938—1941 og síðan dómprófastur í Reykjavik. Hann hefir gegnt mörgum trún aðarstörfum auk prestsstarfsins Hefir meðal annars setið í stjórn Prestafjelags íslands frá 1926 og síðan. Hann átti sæti i útvarpsráði 1931—1935. Auk þess hefir hann starfað í stjórn fjölmargra fjelaga og ávalt reynst hinn nýtasti maður í hverju starfi. Hann hefir jafn framt embætti sínu gefið sig allmikið að ritstörfum. Má af ritum hans meðal annars nefna Biblíusögur, Winnepeg 1919, Pislarsagan, ásamt stuttum skýringum og sjö föstuhugleið ingum, Rvik 1929, Kristinfræði bók handa fermingarbörnum 1930, Kristur og mennimir, Rvík 1935. En mestra vinsælda af bókum hans munu þó hafa notið unglingabækur hans ög eru þær orðnar margar. Má þar nefna: Sögur handa börn- nm og unglingum I.—V., Rvík .1931—’35. Síðan má heita að nær því árlega hafi komið út barna og unglingabækur, sem hann hefir þýtt eða endursagt, eða að minsta kosti átt drjúgan þátt í. Sjera Friðrik er kvæntur (5/7—1900) Bentínu Hansínu Björnsdóttur, hinni mætustu konu. 1 raun og veru gjörist þess ekki þörf að kynna landsmönn um sjera Friðrik Hallgrímsson Hann er vel kunnur megin- þorra manna víðsvegar um landið. 1 preststarfinu ávann hann sjer vinsældir bæði í Vest urheimi, meðan hann dvaldi þar í sínum stóra söfnuði í Reykjavík og meðal áheyrenda sinna út um landið, því hann er einn þeirra presta, sem hvað oftast hafa talað í útvarp hjer hjá oss. Og það eru ekki aðeins hinir .fulltíða menn, sem á hann hafa hlustað. Ef til vill voru þeir fáir, eða engir, sem hörnin höfðu meira yndi af að hlusta á en hann. Hann var og er vin- ur barnanna, enda einhver besti bamafræðari, sem þjóðin é. Síglaður er hann, fullur af áhuga og starfsþrótti, þótt hann hafi nú sagt af sjer em- bætti. Um skeið hefir hann starfað fyrir Þjóðræknisfjelagið með sívakandi áhuga og ár- vekni og enn gegnir hann prestsþjónustu í Kópavogshæli. Þeir eru margir, sem hlýlega hugsa til sjera Friðriks um þess ar mundir. Menn gleyma ekki fagurri framkomu hans í hinu mikilvæga lífsstarfi hans, vin- áttu hans og góðvild í allra garð. Vjer óskum þess öll, sem hann þekkjum að forsjón Guðs megi vaka yfir honum og að framtíð hans verði björt og fög ur, eins og fortíðin hefir oftast verið honum. Sjera Friðrik er bjartsýnn og lund hans ljett og glöð. Ef til vill á þetta sinn þátt í því hversu unglegur hann er og röskur í hreyfingum. Hvar sem sjera Friðriks er minnst, er hans minnst sem mikilhæfs sonar þjóðar sinnar og hins besta drengs. Sigurgeir Sigur&sson. íslenskum stúdenl- um boðln þálttaka í mótt í Finnlandi 1 ÁGÚSTMÁNUÐI í sumar verður haldið norrænt stúdenta mót í Finnxandi. Hefst það í Ábo þann 14. ágúst, en síðan verður haldið til Helsingfors, og mun mótið standa yfir í nokkra daga. Ef einhverjir stúdentar, ungir eða gamlir, kynnu að eiga ferð um þessar slóðir, væri æskilegt, að þeir gætu komið þar fram fyrir hönd íslenskra stúdenta. Alls hefur íslenskum stúdentum verið boðið að senda 20 full- trúa, en vegna erfiðleika á far- kosti og gjaldeyrisfátækt, er ekki heppilegt að hvetja menn til slíkrar farar án annarra er- indagjörða. Þeir, sem hafa í hyggju að dveljast í Finnlandi eða ná- grenni um þessar mundir, eru vinsamlega beðnir að gera stúdentaráði aðvart í síma 5959 (kl. 5—7 alla virka daga nema laugardaga), ef þeir vildu vera viðstaddir á móti þessu. (Frá stúdentaráði). Cellóténleikar Eriing Bl. Bengfsens ERLING Blöndal Bengtsson, hinn ungi dahski celloleikari, hjelt tónleika í Trípoli á mið- vikudaginn var við sæmilegá aðsókn og geysi mikla hrifn- ingu áheyrenda. -— Þegar hann ljek hjer í fyrsta sinn í fyrra ritaði dr. Edelstein ítarlega grein um þennan unga cello- snilling í Mbl. og er í rauninni engu við þá umsögn að bæta. .■í>að verður ekki ofsögum sagt af hinni geysimiklu kunnáttu og músíkgáfum Bengtssons. — Fingra- og bogatækni hans er í alla staði fullkómin og svo bæt- ist þar við hinn þróttmikli og fagri cellotónn hans. Hann er að þessu leyti í allra fremstu röð celloleikara. Tónleikarnir byrjuðu með cellokonsert Schumanns, op. 129. Þetta verk verður varla talið meðal bestu verka tón- skáldsins, og á það að því íeyti sammerkt við sum af síðustu verkum Schumanns, en þó er að sjálfsögðu Víða mikil fegurð í því fólgin. Bengtsson Ijek þetta verk með miklum yfir- burðum. Túlkun hans bar vott um mikla innsæisgáfu og stíl- tilfinningu, og hygg jeg að hin- ar mlklu músíkgáfur hafi kom- ið hjer best í ljós og notið sín best, vegna hins romantíska innihalds verksins. D-dúr Svíta Bachs, fyrir cello án undirleiks, er mjög erf- itt verk viðfangs. Það er upp- haflega samið »fyrir „Viola pomposa", 5 strengjað hljóð- færi, sem Bach fann sjálfur upp. Það gefur því að skilja, að erfitt er að spila það á hið fjór-strengjaða cello. — Frá tæknilegu sjónarmiði var þetta mikla verk snildarlega spilað, svo að fáir munu leika það eft- ir. Hitt er ekki tiltökumál, þótt jafn ungur maður eigi enn erfitt með að gera slíku risaverki eftir Bach þau músíkölsku skil, sem það krefst. Þannig var Sxítan nokkuð „rubato“ spiluð á köfl- um og sumstaðar einnig slakt á henni í rammanum. Eftir hljeið komu svo smærri lög eftir Schubert, Valensin, Chopin, Cassado o. fi. — Hjer gafst hinum unga listamanni tækifæri til að sýna á ný töfra sína í ýmsu ljósi og frá ýmsum hliðum. Og Bengtsson er sann- kallaður galdramaður á hljóð- færi sitt. Bengtsson er gæddur svo frá- bærum náðargáfum að víst má telja að hann verði einn af mestu cellistum samtíðarinnar. Tækni hefur hann þegar á við þá sem fremstir eru, svo að öllu ætti að vera borgið. P. /. Kristbjörg Jónsdóttir frá Stokkseyri Minningarorð Eifff hermálaráðuneyti WASHINGTON: — Hermála -nefnd öldungadeildar Banda- ríkjanna hefir orðið sammála um nauðsyn þess, að sameina herstyrk landsins undir einu ráðuneyti. Dregið var í happdrætti Hall veigarstaða 1. apríl. Þessi núm- er hlutu vinningá: 10020 Mál- verk eftir Kjarval. 10107 Mál- verk eftir Svein Þórarinsson. 4788 Radering eftir Guðmund Einarsson. 12344 Leirmunir eftir Guðmund Einarsson. 4420 Stofuborð. 6167 Sjalhyrna. 6570 Íslendingasögují. 9767 Rit- 1 safn Jónasar Hallgrímssonar. 10605 Bókin um manninn.1 15874 Ljósakróna. 645 Raf- magnskamína. 11195 Hveiti- sekkur. 9001 Kjötskrokkur. 6888 Næla. 5805 Barnaföt. — Vinninganna sje vitjað til frú Kristínar Sigurðardóttur. Bjark argötu 14. í DAG er til moldar börin á Stokkseyri frú Kristbjörg Jóns- dóttir ekkja Sigurðar heitins Einarssonar, sem dó 28. des. 1944. Kristbjörg var fædd að Apa- vatni í Grímsnesi þ. 22. febr. 1859. Foreldrar hennar voru hjónin, Jón Jónsson og Kristín Daníelsdóttir. Var Kristbjörg ein af 12 systkinum og sú síð- asta þeirra að kveðja jarðlífið. Kristbjörg ólst upp á Apa- vatni hjá móðurbróður sínum, Vigfúsi. Er hún var um tvítugt fór hún að Eyvík í Grímsnesi til Einars Einarssonar og Guð- rúnar Sigurðardóttur. Árið 1895, þ'ann 31. maí, giftist hún Sigurði, syni Einars. Voru því aðeins sjö mánuðir til gullbrúð kaups þeirra hjóna, er Sigurð- ur dó. Sigurður og Kristbjörg hófu búskap að Hömrum í Gríms- nesi. En árið 1898 fluttust þau til Reykjavíkur. Dvöldu þau þar eitt ár og fluttust þaðan að Hofi á Kjalarnesi. Þar bjuggu þau 4 ár en settust því næst að á Stokkseyri og bjuggu þar ó- slitið þar til Sigurður ljest. Stundaði Sigurður lengst af verslunarstörf á Stokkseyri, fyrst fyrir eigin reikning, og síðan um 20 ára skeið sem starfsmaður hjá kaupfjelaginu Ingólfi. Síðustu árin hafði hann á hendi símagæslu fyrir Guð- rúnu dóttur sína, sem var stöðv arstjóri á Stokkseyri um all- mörg ár. Eftir lát Sigurðar hvarf Kristbjörg til einkadótt- ur sinnar, Guðrúnar, sem gift er Olafi Jóhannessyni kaup- manni á Grundarstíg 2 hjer í borg. Einkasonur Kristbjarg- ar, Kristmundur, sem var lækn- ir í Reykjarfjarðarhjeraði, ljest árið 1929. Kristbjörg ljest 1. þ. m. eftir eins mánaðar legu, og var það hennar lengsta sjúk dómslega á æfinni. Með Kristbjörgu sál. er fallin í valinn gagnmerk kona. Hver, sem kynntist henni hlaut við kynninguna að styrkjast í trúnni á mannlífið, því að Kristbjörg var sterk sönnun fyr ir gildi' þess. Það einkenndi hana, meðal annars, að öllum leið betur í návist hennar en ella, og var orsök þess að jeg held, hið hreinskilna og. glaða viðmót hennar við hvern,-sem í hlut átti. Kristbjörg var sístarfandi á meðan kraftar leyfðu, enda framúrskarandi mikil búsýslu- kona. Hún var alin upp við sveitastörf og búskap höfðu þau hjón með^höndum leng^t af æf- innar, nema allra síðustu árin. Var áhugi hennar fyrir sveitar- störfum svo mikill, að síðustu æfiár hennar hjer í Reykjavík fylgdist hún í anda með því, sem gerðist í sveitinni á hverj- um tíma og ræddi um, hvað þá og þá liði sveitaverkum, hvenær voryrkjur byrjuðu, hvenær kýr mætti leysa út á vorin o. s. frv. Ekki var minna um vert stjórn og dugnaður Kristbjarg- ar innanhúss. Hún hafði löng- um allerfitt heimili, því að gamalmenni voru hjá þeim hjónum langdvölum. Maður hennar barðist einnig við mik- ið heilsuleysi síðustu ár æfinn- ar» Allt þetta reyndi mjög á hið mikla starfsþrek Kristbjargar. Heimili þeirra hjóna var um langan tíma aðalgististaður á Stokkseyri, án þess að þau rækju gistihús í venjulegri merkingu þess orðs. Var það aðeins gestirisni þeirra, er þessu rjeði, svo og hitt, að heimilið hafði þann myndar- brag á sjer að fornum þjóð- legum sið, að geta tekið á móti og hýst þá, er að garði bar, án þess að gera ráð fyrir end- urgjaldi. Hjálpsemi Kristbjargar við fólk í alls konar vanda, var við brugðið. Ef veikindi bar að garði í nágrenninu varihennar jafnan leitað, því að hún var fædd hjúkrunarkona, þótt ekki væri hún lærð í þeim efnum, nema að því leyti, sem æfing og eðlisgáfur komu til. Eru ótaldar allar þær vökunætur, er' hún átti yfir veikum ná- grönnum. Hygg jeg, að í því efni eigi margur henni mikið að þakka. Kristbjörg átti því láni að fagna, að vera heilsuhraust alla æfi, alt til þess, er hún lagðist banaleguna. Ilún var glaðlynd með afbrigðum og hafði ágætt lag á að koma öðrum í gott skap. Hún var fjörleg í fram- komu og ljett á fæti, þar til fætur biluðu síðustu árin, og bognaði ekki fyrir ellinni, enda gekk hún teinrjett til hins síð- asta. Hún var trúmanneskja mikil, sannorð og hreinskilin, góðviljuð og samúðarrík og mátti ekki vamm sitt vita í neinu, enda ætlaði hún ekki öðr- um, nema gott eitt. Um Kristbjörgu á Stokks-' eyri vil jeg að síðustu mæla hin frægu orð: Hennar minnist jeg jafnan, er jeg heyri góðrar konu getið. S. H. Reykvíkimgar í kvöld kl. 10 Verður dans- leikur í Sjálfstæðishúsinu. — Heimdellingar efna til þessa dansleiks til ágóða fyrir hús- byggiúgarsjóð sinn. Aðgöngu- miðar verða seldir í anddyri Sjálfstæðishússins frá kl. 5 e.h.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.