Morgunblaðið - 08.06.1947, Side 12
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói:
ííarðaustanstinningskaldi. Ví5-
ftsí Ijettskýjað.
126. tbl. — Sunnudagur 8. júní 1947
í DAG segja allir sannle;
Dagsbrúnarmcnn „Já“ í at-.
kvæðagrciðslunni um miðlunaij
tillögu sáttanefndar.
Fjárhagsaðstoð Bandaríkjanna
ti! |sess al fyrirbyggja kreppu
Truman vill aukin dollaralán
NEW YORK
ALLT BENDIR nú til þess, að herferð bandaríska utanríkis-
ráðuneytisins til að fá Bandaríkjamenn til að trúa því, að við-
skiftakreppa í heiminum kunni hrátt að hafa mjög slæm áhrif
á efnahag Bandarikjanna, sje nú að ná hámarki sínu og verði
á næstunni eitt af meginmálum bandarískra stjórnmálamanna.
Truman forseti mun brátt
fíytja útvarpsræðu um þetta
mál, en með því hyggst hann
reyna að ávinna þeirri skoðun
sinni fylgi, að nauðsynlegt sje
aö veita allmörgum þjóðum
aukin dollaralán, til að bjarga
við gagnkvæmum viðskiptum
þessara þjóða og Bandaríkj-
anna.
MÍSMUNUR Á INN- OG
ÚTFLUTNINGI.
Herferð Trumansstjórnarinn-
ar byggist aðallega á því, að
Bandaríkjamenn flytja nú út
árlega vörur fyrir 4,000,000,000
dollara, en kaupa í staðinn er-
lendis fyrir minna en helming
þessaiar upphæðar.
FJÁRHAGSAÐSTOÐ
NAUÐSYNLEG.
Ráðherrar í stjórn Trumans
flj/tja nú hverja ræðuna á fæt-
uí' annari, þar sem þeir vara
við því, að efnahagskeríi heims
ins kunni að hrynja í rúst, ef
Bandaríkjamenn styrki það
ekki með fjárhagslegri aðstoð.
En þess er vænst, að ef Tru-
man flytji ræðu fyrir alþjóð,
þar sem hann einnig varar við
þessari hættu, muni það hafa
það í för með sjer, að republik-
anameirihlutinn á þingi yrði að
grípa til einhverra raunhæfra
aðgerða. (Kemsley).
AOA fer aukaferð
með íslendlnga
AMERÍSKA FLUGFJELAG-
IÐ American Overseas Airlines
hefir ákveðið að fara aukaferð
með íslendinga frá New York
til Keflavíkur og frá Keflavík
til Norðurlanda. Er þetta gert
vegna mikillra 'eftirspurna eft-
ir ferðum að vestan til íslands
og vegna þess að fjelaginu hef-
ir ekki tekist að flytja alla, sem
vilja fara með flugvjelum þess
til Norðurlanda.
Þessi aukaflugvjel kemur á
miðvikudag til Keflavíkur frá
Ameríku og heldur áfram sama
dag til Kaupmannahafnar og
Stokkhólms. Getur hún tekið
25 farþega hjeðan austur.
Með vjelinni að vestan er
væntanlegur Thor Thors sendi-
herra.
Fleiri sæti frá Islandi.
' Þá hefir AOA ákveðið að
framvegis skuli sex sæti í vjel-
um fjelagsins ætluð farþegum
hjeðan til Norðurlanda, en
hingað til hafa sætin aðeins
verið tvö, sem víst hefir verið
um í hverri ferð.
Skétehús byal
i ECjos
Frá^frjettaritara voru
í Kjós.
Á ALMENNUM hreppsfur.di
er haldinn var fyrir nokkru um
skólabyggingu," var - samþykkt
að hefja byggir.gu á þessu ári.
Er nú hafinn undirbúningur að
því. Byrjað er á að leggja veg
af aðalvegi, að þeim stað er
byggir.gin á að standa. Og er
það um 80 m. frá aðalvegi. Skól
anum hefir verið valinn staður
í Valdastaðalandi, niður við
Laxá. LTm það bil Vi km. aust-
ur frá Laxárbrú. Verður þetta
heimavistarskóli, ásamt kenn-
aiaíbúð. Byggingin verður 2
hæðir. Á neðri hæðinni verður
íbúð ráðskonu, borðstofa, eld-
hús, geymsla, smíðaherbergi, 2
kenslustofur og 4 heimavistar-
herbergi. En á efri hæð skólans
vcrður íbúð skólastjóra, aðal-
kenslustofa, áhalda og geymslu
herbergi og 4 herbergi fyrir
börn. Grunnflötur hússins verð
ur um 300 ferm. Teikningu að
byggingunni gerði Óskar Sveins
son, að tilhlutun fræðslumála-
stjóra, og hefir' hún verið sam-
þykkt.
Kona breyfisl
í karlmann
New Dehli í gær.
FERTUG Hindúakona, nokk
urra barna móðir hefur breyttst
í karlmann, að því er skýrt var
frá hjer í New Dehli í dag.
Breyting þessi á líkama kon-
unnar mun hafa byrjað fyrir 12
árum síðan, og að því er lækn-
ar hjer í borg skýra frá virðist
breytingin nú vera því sem næst
fullkomin. — Reuter.
Þorflnnur karlsefni
í Hljómskálagarð-
inum
HOGGMYND EINARS JONS
SONAR af Þorfinni karlsefni,
sera er eign Reykjavíkurbæjar,
verður reist í Hljómskálanum
einhvern næstu daga og verð-
ur afhjúpuð 17. júní. Verður
höggmyndin sennilega í litla
hólmanum syðst í garðinum.
Mynd þessi var í deild ís-
lands á heimssýningunni í New
York 1939. ^
ViðræSur hcfjasl á
ný í NewDehii
New Dehli í gær.
VIÐRÆÐUR hófust á ný í
morgun milli Mountbattens,
varakonungs Indlands, og ind-
versku stjórnmálaleiðtoganna
um valdaafsal Breta í Indlandi.
Var til tekið þar sem frá var
horfið á mánudaginn var. —
Framkvæmdanefnd flokks Mú-
hameðstrúarmanna situr nú á
fundprn, en ráð flokksins mun
koma saman á mánudag til
þess að skila endanlegu áliti
um tillögur bresku stjórnarinn-
ar. —r Reuter.
Matmælaráóslefna
í París
Londan í gær.
SIR John Boyd Orr, forstjóri
j Matvæla- og landbúnaðarráðs
i Sameinuðu þjóðanna (FAO),
hefur boðið meðlimaríkjum
ráðsins og nokkrum ríkjum öðr
um til ráðstefnu um matvæla-
ástandið í heiminum, einkum
þó kornskortinn. Ráðstefnan
fer fram í París og hefst 9. júlí
n.k. — Reuter.
Lesbókin i daa
Hún hefst á skemtilegri
fcrðasögu frá Sviss til
Rómaborgar, eftir rithöf-
undinn Guðrúnu Jónsdótt-
ur frá Erestbakka. Næst
er grein eftir Sigurð
Björnsson frá Veðramóti:
„Vísur um Gönguskörð“.
Þá er sagt frá því hvernig
menn lærðu að búa til
skyr, en síðan eru nú 5000
ár. — Þá er sagt frá nýj-
ung í skólamáluin Breta
— brjefaskiftum milli
skólabarna og siglinga-
manna. Þá eru molar,
Fjaðrafok og margt fleira.
iðlunartillögur
TILLÖGIR
sátianefndar til lausnar á vinnudeilu verkamannn-a
fjelagsins Dagsbrúnar og Vinnuveitendafjel. íslands.
Samningur deiluaðila frá 1. mars 1946 framlengist
með eftirfarandi breytingum:
1. Við 5. gr. Á eftir orðunum „útskipun á ís“ komi
uppskipun saltfisks, steypuvinna við uppsteypun húsa,
vinna við kalk og krít, 25 smálestir og þar yfir, í sömu
tilfellum og sementsvinna.
2. Við 5. gr. Á eftir orðunum: „Fyrir stjórn á vjel-
skóflum og ýtum“ komi: stórum dráttarbifreiðum og
kranabílum, enda stjórni bifreiðastjóri bæði bifreið og
krana.
3. Við 5. gr. Aftan við 3. málsgr. lcomi: Grunnkaup
í eftirvinnu í lægsta flokki reiknast kr. 3,98.
4. Við 5. gr. Á eftir 4. málsgr. komi ný málsgr. svo
hljóðandi:
Tímakaupsmenn, er unnið hafa samfleytt eitt ár eða
lengur hjá sama atvinnurekanda, eiga rjett á þeirri
vinnu, sem til fellur hjá honum, hafi þeim ekki verið
sagt upp sarfi með eins mánaðar fyrirvara. Sje ekki
næg vinna fyrir alla slíka menn hjá atvinnurekandan-
um, skulu þeir jafnan ganga fyrir, er lengst hafa unn- *
ið þau störf, sem um er að ræða. Á sama hátt er verka
manni, sem þessara hlunninda nýtur, skylt að tilkynna
með mánaðar fyrirvara, ef hann óskar að hætta störf-
um hjá atvinnurekanda sínum.
5. Við 26. gr. Greinin orðist svo:
Samningur þessi gildir frá og með 9. júni 1947 og
er uppsegjanlegur með mánaðar fyrirvara, þó ekki fyrr
en miðað við 1. október 1947.
Reykjavik, 6. júní 1947.
Torfi Hjartarson.
Gunnlaugur Briem. Guðmundur /. Guðmundsson.
★
TILLÖGUR
sáttanefmdar til lausnar á vinnudeilu verkámanna-
fjelagsins Dagsbrúnar og Reykjavíkurbæjar.
Samningur deiluaðila frá 1. mars 1946 framlengist
með eftirfarandi breytingum:
1. Við 5. gr. Orðin: „og afgreiðslúmenn í sandnámi“
falli niður þar, sem þau eru nú í greininni.
2. Við 5. gr. Á eftir orðunum: „og pramma-*og slipp-
vinnu“ komi: afgreiðslumenn í sandnámi bæjarins og
vinnu í rörsteypu bæjarins.
3. Við 5. gr. Við orðin: „sigtis- og kjafthúsvinnu í
grjótnámi“ bætist: og sandnámi.
4. Við 5. gr. Á eftir orðunum „7 tonna vörubifreið-
um“ komi: stórum dráttarbifreiðum, steypuvjelum í
rörsteypustöðinni, ijörublöndunarvj el um í malbikunar-
stöð grjótnámsins.
5. Við 5. gr. Á eftir 1. málsgr. komi ný málsgr. svo
hljóðandi:
Nætur- og helgidagavarðmönnum skal greiða kr.
34,00 fyrir 12 stunda vörslu. Varðmennimir eiga frí
7. hvert varðtímabil, án kaups, en gegni þeir þá varð-
störfum, skal greiða vörsluna með tvöföldu kaupi.
6. Við 5. gr. Á eftir 4. málsgr. komi ný málsgr. svo
hljóðandi:
Tímakaupsmenn, er unnið hafa samFleytt eitt ár eða
lengur hjá bænum, eiga rjett á þeirri vinnu, sem til
fellur þar við störf þau, er þeir hafa unnið að stað-
aldri, hafi þeim ekki verið sagt upp starfi með eins
mánaðar fyrirvara. Sje ekki næg vinna fyrir alla slíka
menn hjá bænum, skulu þeir jafnan ganga fyrir, er
lengst hafa unnið þau störf, sem um er að ræða. Á
sama hátt er verkamanni, sem þessara hlunninda nýt-
ur, skjdt að tilkynna með mánaðar fyrirvara, ef hann
óskar að hætta störfum hjá bænum.
7. Við 15. gr. Greinin orðist svo:
Samningur þessi gildir frá og með 9 júní 1947 og
er uppsegjanlegur með mánaðar fyrirvara, þó ekki
fyrr en miðað við 1. október 1947.
Reykjavik, 6. júní 1947.
Torfi Hjartarson.
Gunnlaugur Briem. GuSniutidur /. GuÖmundsson.
4 «