Morgunblaðið - 22.06.1947, Page 12
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói:
REYKJAVÍKURBRJEF er á
Vkstan eða suðvestan kaldi.
Skýjað, rigning sumstaðar.
pi0rgnttípm©iip
137. thl. — Sunnudagur 22. júní 1947.
bls. 7.
Þrjú skip selja
ísfisk fyrir
Vz milj.
SÍÐAN ellefta jjní þar til 20.
júní, hafa aðeins þrjú skip selt
ísvarinn fisk á markaðí í Bret-
landi.
Skipin eru þessi: Faxi með
2546 kit er seldust fyrir 7862
sterlingspund, Helgafell með
3468 kit, fyfir 9703 sterlingsp.
Og Júní 2112 kit fyrir 6010
pund. — Hafa því þrír togarar
landað 8.126 kit af fiski og sam
anlagt söluverð 23.575 pund,
eða því sem næst í íslenskum
krónum 615 þúsund.
Þrír bestu kúluvarparar Evrópu
Sænski kúluvarparinn Roland Nilson, sem kemur hingað á veg-
um ÍR síðast í þessum mánuði, kastaði á móti í Nyköbing á
sunnudaginn var, 15,29 metra, sem er nákvæmlega sami ár-
angur og Gunnar Huseby hefir náð á þessu ári. Það má búast
við harðri keppni hjer mil'Ii þeirra kappanna, þar sem besti
árangur þcírra áður er cinnig jafn eða 15,69 metrar.
BYRJAÐIR
SALTFISKVEIÐAR.
Togaraflotinn er nú sem óð-
asta að undirbúa saltfiskveiðar
og eru sex togarar þegar byrj-
aðir. Að sjálfsögðu mun einhver
afturkippur koma í veiðarnar
vegna verkfallsins.
KOMAST EKKI ÚT.
Nú liggja hjer í Reykjavíkur-
höfn 8 togarar, sem ekki geta
komist til veiða vegna verkfalls
ins, eða fengið aðra nauðsyn-
lega afgreiðslu. Tveir eða þrír
togarar munu nú vera á-leið til
Englands með ísvarinn fisk.
Landbúnuððfsýn-
ingin opnuð n. k.
laugardag
NEFND sú er annast hefur
allan undirbúning að Landbún-
aðarsýningunni hefur nú ákveð-
ið, að næstkömandi laugardag
kl. 2,30 síðdegis skuli sýningin
opnuð.
Við það tækifæri fer fram at-
höfr, sem forseti íslands, ríkis-
stjórn og annað stórmenni verð-
ur viðstatt.
fslendingar í Slokk-
hólmi minnast
17. júní
ÍSLENSKA stúdentafjelagið
í Stokkhólmi hjelt á þriöjudag-
inn hóf í tilefni af þjóðhátíðar-
tíeginum 17. júní. Davíð Stefáns
son, skáld flutti í hófinu minni
Islands, Benedikt Waage minni
forseta íslands, en Bárður Dan-
íelsson minni kvenna. Ættjarð-
arlög voru sungin og ljek Sig-
fús Ilalldórsson undir á píanó.
Forseta ísland var sent heilla-
skeyti frá samkomunni.
Lisfviiiyr láfinn,
WASHINGTON: — Forstjóri
útgáfufyrirtækisins Scribner,
Maxwell Perkins, sem á sínum
tíma studdi mjög að framgangi
rithöfundanna Wolfe, Heming-
way og Lardner, er nýlega dá-
inn^ 62 ára áð aldri.
Dauðaslys á
Akureyri
Akureyri, laugardag.
Frá frjettaritara vorum.
ÞAÐ sviplega slys vildi til
hjer á Akureyri í gærdag, að
fimm ára drengur varð undir
bíl og beið bana af. Drengur-
inn hjet Grjetar Ólafsson.
Slysið var um kl. 4, á móts
við Tunnuverksmiðjuna við
Hafnárstræti. Vörubíllinn A-
278 var á leið frá skipshlið til
verksmiðjunnar með tunnuefni
Eins og fyrr segir var bíllinn
kominn á móts við verksmiðj-
una, er Grjetar litli varð undir
bílnum. Hann var meðvitund-
arlaus er að honum var komið
og var hann þegar fluttur í
sjúkrahús, en þar ljest hann
skömmu síðar.
Biskup á kirkjujHiKi-
ið í Lundi
BISKUPINN yfir íslandi,
Sigurgeir Sigurðgson og próf.
Asmundur Guðmundsson voru
meðal farþega með „Drottning-
unni“ til Kaupmannahafnar, í
fyrrakvöld.
Biskup og próf. Ásmundur
verða fulltrúar hinnar íslensku
þjóðkirkju á alþjóðakirkju-
þingi því er fram fer í Lundi
í byrjun júlí.
lagfirskir bændur í
boimsókn
SKAGFIRSKIR bændur og
konur þeirra leggja af stað í
kynnisferð til Suðurlands á
morgun. Nálægt því hundrað
marins taka þátt í förinni. —
Fyrstu nóttina verður gist á
Hvanneyri, síðan haldið um
Þingvöll til Laugarvatns, þaðan
um Sámsstaði austur að Kirkju-
bæjarklaustri og komið til
Reykjavíkur á laugardag.
Skagfirðingarnir verða hjer
um kyrt í tvo daga, meðai ann-
ars við að skoða Landbúnaðar-
sýninguna, en halda svo heim-
leiðis. í ferð þeirri um Suður-
land verður Ragnar Ásgeirsson
ráðunautur leiðbeinandi þeirra.
ístenskur (ulltrúi
á fiskimálaráð-
slefnu S. Þ.
MATVÆLA- og landbúnað-
arstofnun Sameinuðu þjóðanna
(FAO) hefur boðað sjerfræð-
inga frá tíu löndum til fiski-
málaráðsteínu í Róm 23. júní
n. k. Mun fjallað um þau vand-
kvæði, sem nú eru á dreifingu
fisks, þrátt fyrir alvarlegan
skort á matvælum einkum eggja
hvítuefnum. Veldur þessu bæði
skortur á flutningatækjum og
kæligeymslum og einnig gjald-
eyrisvandræði.
Verkefni ráðstefnunnar verða
því aðallega að athuga horfur á
framleiðslu og neyslu fisks í
Evrópu árin 1947—48, reyna að
vandræðum og stuðla að auk-
bæta úr flutninga- og geymslu-
inni framleiðslu síldar og auk-
inni hraðfrystingu fisks.
Hálfdán Bjarnason, aðalræð-
ismaður íslands -í Genúa, mun
sitja ráðstefnu þessa af hálfu
íslands.
Frjettatilkynning
frá utanríkisráðuneytinu.
r
FJÖLTEFLI fór fram í Mjólk
urstöðinni á föstudagskvöldið
var. Keppti Ásmundur Ásgeirs-
son við 30 skákmenn. — Hann
vann 15 skákir, gerði 6 jafntefli
en tapaði 9. Þessir níu, sem sín
töfl unnu voru þeir Jón Einars-
son, Ólafur Friðriksson, Friðrik
Ólafsson, Eiríkur Marelsson,
Sveinn Kristinsson, Þorvaldur
Jóhannesson, Guðmundur Guð-
mundsson, Theódór Guðmunds-
son og Magnús Guðmundsson.
Fiygslys.
ISTAMBUL: Pan American
flugvjel fórst nýlega hjá Meya-
dine og Ijetu 15 manns lífið.
Samskonar flugvjel var á sama
t,íma að flytja bandaríska rit-
stjóra umhverfis hnöttinn og
var á þessum slóðum, er slysið
skeði. Var á tímabili haldið, að
sú flugvjel hefði farist, en síð-
ar kom í ljós, að svo var ekki.
Viðskipta-
samninpr Svia
ofj Islendinga
undirritaður
FIMTUDAGINN 19. júní und
irrituðu Bjarni Benediktsson
utanríkisráðherra og Claes Kön
ig sendifulltrúi Svía samkomu-
lag um viðskifti milli íslands og
Svíþjóðar, sem bygt er á við-
ræðum milli íslenskrar og
sænskrar neíndar í Reykjavík,
dagana 30. apríl til 20. maí. —
Samkomulag þetta gildir frá
undirskriftardegi og til 31. mars
1948.
í erindum, sem fylgja við-
skiftasamkomulaginu, eru á-
kveðnir útflutningskvótar frá
Svíþjóð fyrir símastaurum og
staurum til rafveitu, girðinga-
staurum, söguðu og hefluðu
timbri og síldartunnum. Hins-
vegar skuldbinda ísl. stjórnar-
völd sig til að veita útflutnings-
leyfi til Svíþjóðar fyrir ákveðnu
magni af saltsíld og dilka- og
ærkjöti.
Tilmælum Svía um sjerstök
hlunnindi fyrir sænsk síldveiði-
skip hjer við land var svarað á
þá leið, að íslendingar gætu
ekki veitt nein rjettindi, sem
væru ósamræmanleg fiskveiði-
löggjöfinni.
Frjettatilkynning
frá utanríkisráðuneytinu.
Síldarverksmiðjur
semja
SAMNINGAR um kaup og
kjör verkamanna í síldarverk-
smiðjum utan Siglufjarðar hefj
ast í dag.
Samningsaðilar eru annars-
vegar Síldarverksmiðjur ríkis-
ins, Hjalteyrarverksmiðjurnar,
síldarverksmiðjan á Dagverðar-
eyri og Krossanesverksmiðjan,
hinsvegar verkalýðsfjelög á
þessum stöðum.
Samningarnir fara fram á Ak
ureyri.
Stassen vil! aðstoða
Evrópu strax
Washington í gær.
HAROLD STASSEN, væntan
legt forsetaefni republikana í
kosningunum næsta ár, hefur
tjáð blaðamönnum, að hann
telji það þola enga bið, að
Bandaríkjamenn ljái Evrópu-
búum hjálparhönd.
Stassen sagði þetta, er hann
ræddi um hjálpartilboð Mars-
halls, utanríkisráðherra. Sagð-
ist hann líta svo á, að Banda-
ríkin ættu þegar í stað að ljá
Evrópulöndunum efnahagslega
aðstoð, enda væri ekkert unnið-
við það að bíða.
Taldi hann velferð Banda-
ríkjamanna undir því komið, að
aðstoðin yrði látin í tje þegar í
stað. — Reuter.
Verfcalýðsfjelagið í
Borgamesi neitaði
allri samúð með
verfcfallinu
KOMMÚNISTAR halda á-
fram að beita Verkalýðsfjelagið
í Borgarnesi þeim bolabrögð-
um, er þeir geta við komið.
Einsog við er að búast frá mönn
um, sem hafa sett sjer það
mark að virða að vettugi lýð-
ræðið, hvort heldur er í þjóð
fjelaginu, eða innan einstakra
fjelaga.
Til þess.^ að taka af allan vafá
um það, hvernig afstaða fjelags
manna er gagnvart Dagsbrún-
arvérkfalli kommúnista, eru
hjer birtar tillögur þær sem
bornar voru undir atkvæði
fjelagsmanna á fundi þeim sem
haldinn var í fjelaginu þann
15. júní.
Þar bar formaður fjelagsins
Jónas Kristjánsson fram svo
hljóðandi tillögu:
„Fundur í Verkalýðsfjelagi
Borgarness haldinn 15. júní
1947, vill um leið, og það heit-
ir Dagsbrún stuðningi sínum í
yfirstandandi vinnudeilu, með
vinnustöðvun hjá þeim aðilum,
sem Dagsbrún á í deilu við,
óska henni heilla og sigurs í
baráttu hennar“.
Þessi tillaga var felld með
48 atkvæðum gegn 8.
Ingimundur Einarsson bar þá
fram svohljðandi tillögu:
„Fundur í Verkalýðsfjelagi
Borgarness haldinn 15. júní
1947, ákveður að hafna þeim
tilmælum Alþýðusambands ís-
lands, að fjelagið veiti Dags-
brún stuðning með samúðar-
verkfalli“.
Tillaga þessi var samþykt,
með 44 atkvæðum gegn 6.
Hjer er afstaða fjelagsmanna
svo skýrt mörkuð, að ekki verð
ur um vilst. Fjelagið hafnar til
mælum frá Alþýðusambandinu,
um afgreiðslubann, með því að
fella fyrri tillöguna, sem for-
maðurinn bar upp, og hafnar'
tilmælunum um samúðarverk-
fallí, með því að samþykkja
síðari tillöguna.
Truman undirritar
friSarsamninga
Washington.
TRUMAN, forseti Bandaríkj-
anna,%undirritaði í dag friðar-
samninga við ítalíu, Búlgaríu,
Ungverjaland og Rúmeníu, en
ameríska öldungadeildin hafði
fyrir nokkrum dögum síðan
.staðfest samningana.
Truman sagði við þetta tæki-
færi, að undirskrift samning-
anna markaði tímamót í sögu
ítölsku þjóðarinnar, og gæti
hún nú litið vonbjörtum aug-
um á framtíðina. Enda þótt:
samningarnir væru ekki í fullu
samræmi við þær óskir, sem
Bandaríkjamenn gerðu sjer um
efni hans, sagði forsetinn þó að
hann mundi skapa þann grund-
völl, sem hin sterka, frjálsa og
lýðræðissinnaða ítalía ætti að
standa á. — Reuter.