Morgunblaðið - 09.07.1947, Page 1
34. árgangur
-151. tbl. — Miðvikudagur 9. júlí 1947.
íaafoldarprentsmiðja h.l
Breskar hersveitir fara frá llalíu
Fyrir skömmu var undirritað í Rómaborg samkomulag um brottflutning breskra hermanna frá
Itaiíu. Á niyndinni sjást við athöfnina Sir Noel Charles, sendiherra Breta í Róm, en yst til hægri
ítalski utanríkisráðherrann, Sforza greifi.
Bandaríkin hafa fram-
leitt 2,350,000
bifreiðar í ár
Litlar tækniiegar breytingar
Jóhann Sæmunds-
son prófessor í lyf-
læknisfræðí
Á RÍKISRÁÐSFUNDI höldn-
um 8. júlí, sem var 100. fundur
frá stofnun lýðveldisins veitti
forseti íslands Jóhanni Sæ-
mundssyni prófessorsembættið í
lyflæknisfræði í læknadeild Há-
skóla Islands.
Washington í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
SAMKVÆMT opinberum skýrslum, framleiddu bandarískir
bifreiðaframleiðendur 2,350,000 bíla fyrstu sex mánuði þessa
árs. Þar af voru 901,000 vöruflutningabifreiðar, en á þeim er
nú mikill skortur og áætlað, að þörf sje á aukinni framleiðslu
þeirra, til þess að koma í veg fyrir vandræði.
Á sama tíma í fyrra smíðuðu
Bandaríkjamenn 1,015,000 bif-
reiðar, en þess má geta til sam-
anburðar, að á sex mánuðum
1941 voru í Bandaríkjunum
framleiddir 2,995,000 bílar.
Litlar breytingar.
Líkur benda til þess, að nýj-
ar gerðir af fólksbifreiðum
komi ekki á markaðinn fyrr en
næsta ár. Er þetta einkum
vegna kostnaðar, sem slíkt
mundi hafa í för með sjer, sök-
um mikillar eftirspurnar eftir
núverandi tegundum og skorts
á efni einkum stáli.
Ytra útlit.
Álitið er, að breytingar næsta
ár muni ekki verða á tækni-
legum útbúnaði, heldur frekar
á ytra útliti bifreiðanna. For-
stjóri Fordverksmiðjanna hef-
ur þó látið í ljós þá skoðun,
að víðtækar breytingar verði
gerðar á bifreiðum 1948, og
nýir bifreiðaframleiðendur hafa
þegar birt áætlanir um bíla-
tegund, þar sem vjelin verður
aftan í.
Nýir ræðismenn
Forseti Islands hefur skipað
þá Sigurd Dundas ræðis-
mann íslands í Lissabon og Jos-
eph Senders ræðismann íslands
í Anverpen. Þá var William C.
Trimble veitt viðurkenning sem
ræðismaður Bandaríkja Ame-
ríku með aðsetri í Reykjavík.
Ennfremur var þeim Pjetri
Thoroddsen hjeraðslækni í Nes-
hjeraði og Sigurmundi Sigurðs-
syni hjeraðslækni í Bolungavík-
urhjeraði veit lausn frá embætti
frá 1. október n. k. að telja.
Þá voru ennfremur gefin út
bráðabirgðalög um breyting á
lögum nr. 116 7. nóv. 1941, um
útgáfu krónuseðla og bráða-
birgðalög um viðauka við lög
nr. 67 1947, um eignakönnun.
Óbreytf vísifala
KAUPLAGSNEFND og Hag-
stofa hafa reiknað út vísitölu
framfærslukostnaðar fyrir júlí-
mánuð og reyndist hún vera ó-
breytt, eða 310 stig.
Atomvopn verða
eyðilögð
New York í gærkv.
ATOMNEFND Sameinuðu
þjóðanna hefur í meginatriðum
fallist á þá tillögu Rússa, að
öll atómvopn verði eyðilögð. •—
Hefur verið skipuð sjerstök
undirnefnd, til að ganga end-
anlega frá tillögunni.
Bretland, Kanada, Kína, Pól-
land og Brasilía studdu rúss-
nesku tillöguna, en Bandaríkin
og Frakkland tóku enga endan
lega afstöðu til málsins.
Fulltrúi Sýrlands í atómnefnd
gerði þá athugasemd við tillögu
Rússa, að friðurinn í heiminum
yrði betur trygður, ef væntan-
legur herstyrkur sameinuðu
þjóðanna fengi að hafa atom-
vopn undir höndum, en Gro-
myko, rússneski fulltrúinn,
mótmælti þessu.
—Reuter.
25 drepnir í (alcutta
Calcutta í gær.
TIL mikilla óeirða kom hjer
í Calcutta í gær, en þeim lauk
svo, að 25 manns ljetu lífið.
Óeirðirnar brutust út, þegar
verið var að jarðsetja lögreglu-
mann, sem myrtur hafði verið.
I dag fjellu flutningar um
borgina því nær alveg niður.
Auknar innflutn-
ingshömlur líklegur
í Bretlendi
Neðri málstofan ræðir
auknar sparnaðar-
ráðstafanir
Bevin og Morrison llyija ræður.
London í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunbl. frá Reuter.
ÞEIR Herbert Morrison og Ernest Bevin, fluttu ræður í Lon-
don í dag. Talaði Morrison í neðri málstofu breska þingsins,
er framhaldsumræður urðu um nauðsyn þess, að Bretar reyndu
enn að spara við sig ýmsar nauðsynjar, en Bevin utanríkis-
ráðherra, ræddi hjálparþörf Evrópu. Telja ýmsir frjettamenn,
að með ræðu sinni hafi Bevin verið að gera lokatilraun til þess
að fá ríkisstjórnir allra þeirra 22 landa, sem boðið hefur verið
á Parísarfundinn á laugardag, til að taka boðinu.
Rússar fylgjandi rit-
skoðun
London í gær.
BRESKA blaðið „Daily Mirr
or“ skýrir frá því, að fulltrúi
Rússa í þeirri nefnd Samein-
uðu þjóðanna, sem fjallar um
prentfrelsi, hafi lagst eindreg-
ið gegn því, að ritskoðun yrði
á dagskrá allsherjar blaðaráð-
stefnunnar, sem halda á næsta
ár.
Lomakin, fulltrúi Rússa,
skýrði afstöðu sína þannig, að
hann teldi þá aðeins vera hægt
að afnema ritskoðun, að fyrst
yrði tekið fullt tillit til stjórn-
arfarsins í hverju einstöku
landi fyrir sig.
Lewis sigraði
JOHN L. Lewis leiðtogi kola
námumanna, hefur nú knúið í
gegn nýjan samning við eig-
endur námanna qg telja frjetta-
menn, að þetta sje einhver
stærsti sigurinn, sem verkalýðs
leiðtogi hafi unnið í Banda-
ríkjunum í fleiri ár. Fá verka-
menn samkvæmt hinum nýja
samningi mjög verulegar kjara
bætur.
Samningurinn mun að öllum
líkindum hafa það í för með
sjer, að verð á kolum hækki
um meir en dollar tonnið.
Vilja hjálpa Indverjum.
NEW DEHLI: — Grady, sendi-
herra Bandaríkjanna í Indlandi,
ljet svo um mælt í viðtali við
blaðamenn í gær, að hann væri
þess fullviss, að verslunarfrömuð-
ir í Bandaríkjunum væru hlyntir
því, að iðnaður í Indlandi yrði
styrktur.
*Óhagstæður verslunarjöfnuður.
Ræða Morrison í neðri mál-
stofunni var löng og kom hann
víða við. Sagðist hann ekki vilja
dylja það, fyrir þing'mönnum,
að svo kynni að fara, að Bretar
þyrftu að minka innflutning
sinn um allt að því 25 prósent.
Ekki gagði hann þó stjórnina
mundi gera þetta fyrr en í ýtr-
ustu neyð en benti jafnframt á,
að verslunarjöfnuður Breta er
nú óhagstæður um 450 miljón
sterlingspund.
Matvælj handa Þjóðverjum.
Sem svar við gagnrýni þeirri
sem fram hefur komið um ó-
hófseyðslu breska dollaraláns-
ins í Bandaríkjunum, skýrði
Morrison frá því, að átta pró-
sent af eyddu lánsfje hefði til
þessa farið til matvælakaupa
handa Þjóðverjum. Annað, sem
valdið hefði erfiðleikum, bætti
hann við væri vaxandi verðlag
í Bandaríkjunum.
Þurfa ekki að skammast sín.
Morrison lauk ræðu sinni með
því að lýsa yfir því, að Bretar
þyrftu engan veginn að skamm
ast sín fJrir afköst þjóðarinn-
ar s.l. 18 mánuði og skoraði
loks á þjóðir Evrópu að taka
höndum sarrian til þess að sigr-
ast á erfiðleikunum.
Bevin vongóður.
Bevin utanríkisráðh., sagði
meðal annars í ræðu sinni, að
það gæfi ástæðu til bjartsýni,
að ákveðið hefði nú verið að
snúa sjer að efnahagserfiðleik-
um þeim, sem væru megin-
ástæðan fyrir vandræðum Ev-
rópulandanna. Sagði hann það
fjarstæðu, að með Parísarfund-
inum væri verið að gera tilraun
til að skifta Evrópu í tvo hluta,
en hitt væri staðreynd, að álf-
unni væri að blæða út.