Morgunblaðið - 09.07.1947, Blaðsíða 6
í * I
MORGtnfBLAÐIÐ
Miðvikudagur 9. júlí '1947
! '6
ftttsntiMftMfr
Útg.: H.f. Árvakur, Rpyíijavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson
Ritstjóri: Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.)
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson
Auglýsingar: Ami Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla,
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 10,00 á mánuði innanlands.
kr. 12,00 utanlands.
í lausasölu 50 aura eintakið, 75 aura með Lesbók.
Sigrar og ósigrar
„ALÞÝÐUSAMTÖKIN hafa unnið mikinn sigur“, seg-
ir Þjóðviljinn í gær, er hann ræðir um niðurstöður hinna
nýafstöðnu verkfalla.
Enda þótt alt, að heita má, sem Þjóðviljinn segir um
þessi mál, sje fjarstæður og endileysa, má að nokkru leyti,
til sanns vegar færa þessi orð blaðsins. Rjettar er þó:
Að þjóðin hefur unnið sigur í verkföllunum. En komm-
únistarnir er áttu upptökin að verkföllunum og ætluðu
sjer að vinna á þeim gull og græna skóga, völd og ver-
aldargæði hafa tapað.
Kommúnistar hafa tapað áliti hjá mörgum þeim, sem
áður hjeldu að þeir ynnu fyrir verkafólk og launastjettir
landsins. Þeir hafa sannfært alþjóð um að fylgi þeirxa
hlýtur hjer á eftir að fara hraðminkandi. Kommúnistar
hafa leitt í ljós, hver hugur landsmanna er til ofbeldis-
verka. Þeir ætluðu sjer með „verkfallsöldunni“ að brjót-
ast til valda í landinu, þvert ofan í vilja mikils meirihluta
þjóðarinnar. Og hafa upp úr þessu brölti sínu fengið álits-
hnekki hjá fyrri fylgismönnum og djúpa fyrirlitningu
meðal þeirra, sem af verkfallabröltinu hafa sjeð ofan í
botn á því hyldýpi ofbeldishneigðar og erlendrar þjónk-
unar, er einkennir allar gerðir kommúnista.
Það er mikill sigur fyrir Alþýðusamtökin í heild sinni
og fyrir framtíðarhag þess fjelagsskapar, að svona skuli
vera komið fyrir kommúnistum.
★
Úr því Þjóðviljanum er hugleikið að tala um sigur í
sambandi við nýafstaðin verkföll, þá má vera að rit-
stjórar hans hafi í huga hið fornkveðna, að „sá, sem yfir-
vinnur sjálfan sig, er meiri en sá, sem yfirvinnur borgir“.
Vissulega enduðu deilurnar með því, að kommúnistar
unnu bug á ofstopa sínum og mikillæti, er þeir t. d. báð-
upst undan því, að Fjelagsdómur yrði uppkveðinn yfir
þeim, og gerðum þeirra í Þróttardeilunni á Siglufirði.
Þegar kommúnistar efndu til upphlaupa og æsinga þar
ekki alls fyrir löngu, gegn hjeraðssáttasemjaranum Þor-
steini M. Jónssyni, út af miðlun þeirri í deilunni þar, er
hann bar fram, þá voru þeir ekki þesslegir, að biðja um,
að fá að ganga orðalaust að þeim kjörum, sem sáttasemj-
ari hafði gert að tillögu sinni.
Þegar sömu kommúnistar heimtuðu að sami sáttasemj-
ari yrði rekinn frá störfum, vegna tillögu sinnar, en
verkamenn, sefn greiddu henni atkvæði, áttu að vera eins
konar „vargar í vjeum“, þá var það talið heldur ólíklegt
að forsprakkar kommúnistanna, sem þannig ljetu, krypu
nokkrum dögum síðar frammi fyrir hinum deiluaðilanum,
til að komast hjá að þeir fengju uppkveðinn þann dóm,
sem þeir þá vissu að þeir áttu skilið, og ekki var umflú-
inn á annan hátt, en menn sæju gustuk á hinum sárt iðr-
andi- kommúnistasprautum.
★
Það er að sjálfsögðu einkamál kommúnistannaa, með
hverjum hætti þeir unnu slíkan stórsigur á ofstopa sínum
og stærilæti. En mönnum út í frá þykir það ekki nema
trúlegt, að þar hafi það haft nokkur áhrif, hve slæmar
undirtektir allt verkfallabröltið fjekk hjá meginþorra
verkalýðsfjelaganna, er höfðu óskir og fyrirmæli Alþýðu-
sambandsstjórnarinnar að engu, eða jafnvel samþykktu
mótmæli, gegn aðgerðum kommúnista í aðalstjóm verka-
lýðsfjelaganna.
★
Sennilega er það engin tilviljun, að hin fróma ósk kom-
múnistanna um að sleppa við Fjelagsdóm, kom rjett á eft-
ir að sjómenn allvíða á landinu, höfðu tekið ráðin um
síldarkjörin í sínar hendur og neituðu að láta kommún-
istgjna í stjórn Alþýðusambands íslands fara höndum um
kaupgjaldsmál sín.
★
Þegar allt kemur til alls, mun það sönnu næst, að verka
fólkið í landinu hafi unnið sigur yfir kommúnistum.
UR DAGLEGA LIFINU
Gestur í Reykjavík.
„ÞAÐ ER ERFITT að vera
gestur í Reykjavík“. — Þetta
sagði aðkomukona við mig í
gær. Hún hefir verið hjer í
bænum í nokkra daga að leita
sjer lækninga. Það er nú fyrir
það fyrsta hjer um bil ómögu-
legt að fá gistingu. Veitinga-
húsin eru yfirfull og afgreiðsl-
an gengur seint vegna þess að
það er of fátt fólk við af-
greiðslu á flestum stöðum. Mat
urinn er ekki góður um há-
sumarið hjer í Reykjavík og
það er erfitt að Ijúka erindum
við menn, sjerstaklega ef það
eru „háttsettir“ menn. sem tala
þarf við. Þeir hafa svo mikið
að gera þegar þeir eru í bæn-
um; að það er nærri ómögulegt
að ná tali af þeim, en verst er,
að þeir eru fæstir við vinnu um
hásumarið. Hafa öðrum hnöpp-
um að hneppa, að því er virð-
ist“.
Þetta sagði gesturinn um okk
ur Reykvíkinga.
Innanbæjarbrjef
4 daga á leiðinni.
ÖNNUR AÐKOMUKONA,
sem jeg hitti og einnig er hjer
til að leita sjer heilsubótar,
sagði mjer sínar farir ekki
sljettar. Hún hafði farið til
læknis, en sá hafði aftur vísað
henni á sjerfræðing og kvaðst
hann myndi senda starfsbróð-
ur sínum sjúkdómslýsingu kon
unnar í pósti. Þetta var á fimtu
degi og konan hefir síðan feng-
ið vitneskju um, að brjefið fór
í póst hjer á föstudagsmorgni.
Konan fór bæði föstudag og
laugardag til sjerfræðingsins,
en hann gat ekki gert neitt fyr-
ir hana, þar sem hann hafði
ekki fengið brjefið með sjúk-
dómslýsingunni. Leið svo fram
á mánudag, að þá kom loks
brjefið til læknisins. Það hafði
með öðrum orðum verið 4 daga
á leiðinni. Þetta þótti konunni
löng bið í höfuðstaðnum.
En svo er verið að hæla sjer
af því, að brjef frá Lóndon,
Kaupmannahöfn og New York
berist viðtakendum í hendur
tveggja og þriggja daga gömul.
e
Víða pottur brotinn.
BRJEF HEFIR mjer borist
úr einum nágrannabæ Reykja-
víkur. Þar segir m. a.: „Það er
gaman að lesa pistlana þína,
Víkverji minn. Þakka þjer fyr-
ir þá. Þú hefir vafalaust kom-
ið mörgu góðu til leiðar t. d.
í þrifnaðar og hreinlætismálum
Reykjavíkur. En mikið þætti
mjer vænt um, ef þú vildir
benda á, að það er víðar pottur
brotinn í þessum efnum en í
höfuðborginni. Það er erfitt að
halda hreinu hjá sjer lóðum og
öðru úti í þorpunum. Þar sem
jeg er fyllist alt af papírsrusli
og öðru, jafnóðum og maður er
búinn að þrífa til“.
Ekki skal jeg efa, að brjef-
ritari fari með rjett mál, enda
hefir mjer aldrei dottið í hug,
að Reykvíkingar einir væri
sóðar og slóðar í hreinlætis-
málum: Það sem talið er fara
illa hjer á oft við víða annars-
staðar á landinu.
•
Heilbrigðissamþyktin.
BÆJARSTJÓRNIN hefir tek
ið fyrir til fyrstu umræðu „upp
kast að Heilbrigðissamþykt fyr
ir Reykjavíkurkaupstað“, eins
og það heitir.
Þetta er heljarmikill doð-
rant. 146 vjelritaðar síður. Því
miður hefir mjer ekki unnist
tími til nema rjett að renna aug
unum yfir verkið, en þar kennir
augsýnilega margra grasa. Og
ef alt verður samþykt, sem þar
er sagt — nei, jeg á við fram-
fylgt, eftir að það hefir verið
samþykt. Þá verður hvorki
blettur nje hrukka á hreinlæt-
inu í Reykjavíkur-,,kaupstað“.
9
Iðnþingið og
matmálstíminn.
NÝAFSTAÐIÐ Iðnþing gerði
samþykt um, að æskilegt væri
að athuga hvort ekki væri
heppilegt, að breyta matmáls-
tímum og kaffitímum frá því
sem nú er.
Þetta er eitt af „mínum mál-
um“, sem jeg hefi. hvað eftir
annað rætt um hjer í dálkun-
um. þó ekki sje jeg upphafs-
maður hugmyndarinnar á neinn
hátt. Það munu einmitt vera
iðnaðarmenn, sem fyrstir komu
auga á, að það væri heppilegt
að breyta matmálstímum og
kaffitímum.
Kanski það fari nú að koma
skriður á þetta mál. Það væri
hreint ekki ónýtt.
9
Búrekstur í bænum.
FYRIR NOKKRUM árum var
sögð saga um merkan Reyk-
víking, sem var að veiða lax.
Hann átti að hafa fest öngul
sinn í folaldi, sem var á beit
við ána og varð .manninum þá
að orði: „Hvað eru líka þessi
folöld að flækjast upp í sveit“.
En jeg vil nú snúa þessari
spurningu við og spyrja hvað
öll þessi húsdýr sjeu að gera
hjer í bænum. Allir túnblettir,
að örfáum almenningsgörðum
undanteknum eru fullir af
kúm. Á kvöldin er ekki hægt
að þverfóta fyrir beljum á sum
um götum bæjarins og í sum-
um úthverfum bæjarins, sem
nýbúið er að byggja ný og góð
hús er ekki líft fyrir fjósaþef.
Hversvegna er ekki búfjeð
haft í sveit?
U m ... m m m. m , ■ — —. 1 mmmmmmmmmmmmm ....... — -
MEÐAL ANNARA ORÐA . . . .
Sameinuðu þjóðirnar ræða kynþáltaofsóknir
SKRIFSTOFA Sameinuðu
þjóðanna hefir nýlega borið
fram tillögu um alþjóðaráð-
stefnu með það fyrir augum að
koma alþjóðalögum á um að
hindra og hegna fyrir þjóða-
útrýmingu og þjóðflokkaof-
sóknir.
Að undirbúningi þessa máls
hafa starfað ritari sameinuðu
þjóðanna og ýmir sjerfræðing-
ar, m. a. prófessor Henri Don-
nedieu de Vabres, sem var
franski meðlimur Núrnberg-
dómstólsins, prófessor Vespasi-
an Pella fyrverandi sendiharra
Rúmena í Haag og prófessor
Raphael Lemkin, sem bjó til
sjerstakt orð yfir kynþáttaof-
sóknir, sem nú er að verða við-
urkent sem alþjóðaorð „Geno-
cide“.
Koma í veg fyrir
kynþáttaofsóknir.
I tillögunum að ráðstefnunni
er bent á það í innganginum,
að tilgangurinn með ráðstefn-
unni sje að koma í veg fyrir
útrýmingu þjóða af kynþátta-
legum, þjóðlegum, tungumála-
legum, trúarlegum eða stjórn-
málalegum ástæðum.
Það er hægt að skilja á milli
þriggja tegunda af kynþátta-
ofsóknum (genocide).
1) Líkamleg genocide: að
dreþa eða koma fórnardýrun-
um í slíkar aðstæður að það
hlýtur að leiða til dauða eða
missi heilsunnar. (Dæmi um
slíkt eru kvalafangabúðir, pynd
ingar, sultur og tilraunir á
mönnum).
2) Líffræðileg „genocide“.
Verk, sem koma í veg fyrir
fjölgun og banna heilum þjóð-
um að lifa frjálsu fjölskyldu-
lífi. (Undir þessu er geldingar,
eyðing fjölskyldna, hjóna-
bandshindranir).
3) Menningarleg „genocide“:
að eyða ýmsum sjereinkennum
hjá einhverjum flokki eða að
hindra andlegt líf og menningu
hans. Undir þennan lið fellur
m. a. eftirfarandi:
a) Barnaþjófnaður með það
fyrir augum, að færa þau í aðra
menningu.
b) Að fjarlægja með valdi
menn, sem eru fulltrúar vissr-
ar menningar svo sem rithöf-
undar o. fl.
c) Kerfisbundin eyðing lista-
verka, listasafna, bókasafna,
kirkna, sögulegra skjala og
annara menningarverðmæta.
d) Bann við notkun sjálfs
móðurmálsins jafnvel í heima-
húsum.
Það er taliö, að hægt sje að
eyða þjóðum ekki aðeins líkam
lega heldur og andlega.
Glæpur gegn mann-
kyninu.
Ráðstefnan á að fastákvarða,
að „genocide“ sje glæpur gegn
mannkyninu" alveg eins og
verslun með menn og þræla-
hald. Þetta myndi þýða að dóm
stólar hvaða lands, sem er geti
dæmt menn sem hafa drýgt
eða valdið „genocide“ jafnvel
þótt það hafi verið drýgt í öðru
landi og ef það er í sjerstaklega
stórum stíl á að fara með málið
fyrir alþjóðadómstól.
Þá er bent á að það verði
verkefni öryggisráðsins að
stofna sterkan slíkan dómstól.
Auk þess getur öryggisráðið
með því valdi, sem það nú
hefir komið í veg fyrir „geno-
cide“ hvar sem er í heiminum.
Gíralaus bilreið
London í gær.
WILLI Messerschmidt próf.,
sem stóð fyrir smíði bestu or-
ustuflugvjela Þjóðverja á stríðs
árunum, heldur því nú fram,
að hann hafi fundið upp gíra-
lausa bifreið og úr, þar sem að
eins þrír hlutir þurfi að hreyf-
ast. Þá segist hann einnig hafa
gert uppdrætti að tilbúnum
skýjakljúfum.
Messerschmidt, scm er 49
ára gamall, verður að líkindum
dreginn fyrir nasistadómstól.