Morgunblaðið - 09.07.1947, Side 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 9. júlí 3947
i Sextugur: Guðmundur
!
| Magnússon, skipstjóri
í DAG, 9. júlí, er hinn góð-
kunni vestfirski skipstjóri Guð
mundur Magnússon, Bræðra-
borgarstíg 4, sextueur.
Hann er fæddur í Kálfavík
í Skötufirði við Isafjarðardjúp,
sonur þeirra merkishjónanna
Magnúsar Bárðarsonar og Mar-
grjetar Sigurðardóttur, sem
bjuggu þar Jengi, en fluttust
um aldamótin síðustu til Bol-
ungavíkur. Þar hóf afmælis-
barnið sjómennsku sína, sem
hann svo gerði að lífsstarfi
sínu. Var Guðmundur 15 eða
16 ára er hann gerðist- háseti
hjá hálfbróður sínum, Halldóri
Benediktssyni, alkunnum sjó-
sóknara. Var Guðmundur fljót-
ur að tileinka sjer hin traustu
og læknu handtök afburða-
mannsins og hefir hann notið
þeirra æ síðan í allri sinni sjó-
mennsku.
Sjómannsferill Guðmundar
hefir að sjálfsögðu fylgt þró-
uninni í íslenskum útgerðar-
málum, farið af árabát á skútu,
af skútu á vjelbát og togara.
Var hann um skeið háseti á tog
ara hjá Páli Matthíassyni, hinn
alþekkta, eða til ársins 1915,
en þá braut Guðmundur í blað.
Fór hann þá út til Kaupmanna-
hafnar og sá um smíði á sínum
eigin bát, m.s. Kveldúlfi, sem
var 25 smálesta skip, en það
var talið allstórt skip í þann
tíð. Sigldi hann Kveldúlfi sjálf-
ur til Islands. Kann jeg ekki
nöfn skipverja hans öðrum en
Jiinum þekkta vísindamanni
Níels Dungal. En hann var mat
sveinn á heimleiðinni. Á Kveld
úlfi var Guðmundur skipstjóri
um tólf ára bil, enda lengst við
þann bát kendur, eða þangað
til hann, árið 1927. fluttist til
Reykjavíkur og keypti nokkru
seinna m.s. Hermóð. Var hann
síðan skipstjóri á honum til árs
íns 1939. Þá hætti Guðmundur
sjómensku, en heldur þó áfram
útgerð á Hbrmóði, allt til þessa
dags, og alltaf með sínum frá-
bæra dugnaði og bagsýni.
Annars læt jeg mjer nægja
að segja það eitt um álit manna
á sjómannshæfileikum Guð-
mundar Magnússonar, að hann
var alltaf talinn einn í hópi
hinna vestfirsku Guðmunda,
en þeir voru, sem kunnugt er,
metnir álíka í skipstjórastjett,
og nafnar þeirra í læknastjett.
Mjer, sem þessar línur rita,
er og kunnugt um það, að Guð-
mundur er aðgætinn kappsmað
ur að hverju sem hann geng-
ur, enda aldrei fengið hið
minnsta áfall á hinni löngu sjó-
mannsæfi sinni. Hann er fullur
áhuga á starfi sínu. Hann er
trygglyndur vinum og vanda-
mönnum, hjálpfús og greiðvik-
inn.
Guðmundur er giftur Guð-
rúnu Guðmundsdóttur frá Eyri
í Ingólfsfirði, hinni mestu sóma
og ráðdeildar konu. Hafa þau
hjón eignast 6 börn og eru 5
þeirra á lífi, öll hin mannvæn-
legustu.
Það er, sem betur fer, óhætt
að segja að bjart hafi verið
yfir æfi þessa ágæta afmælis-
barns og á jeg, og við vinir
hans allir, þá ósk heitasta, að
sú heiðríkja megi endast það
sem eftir er æfidagsins.
Kr. Á.
Mf rasfvelaráS-
siefna S. Þ.
ANDERSON, landbúnaðarráð
herra Bandaríkjanna, sem nú
er staddur í Þýskalandi, verður
leiðtogi bandarísku fulltrúanna
sem taka mun þátt í ráðstefnu,
er Sameinuðu þjóðirnar hafa
boðað til 9. júlí og fjalla á um
kornframleiðslu í heiminum.
Matvæla og framleiðslusjer-
fræðingar frá bandaríska land
búnaðarráðuneytinu verða ráð
herranum íil aðstoðar.
Fimm mínúfna krossgáfan
SKÝRINGAR
I Lárjeít: — 1 efsta — 6 stefna
— 8 tvíhljóð — 10 tala erl. '—
11 v;tnsþró — 12 töframaður
•— 13 tveir eins — 14 þrír
saman — 16 titill.
Lé.ðrjett: — 2 tveir hljóðstaf-
ir — 3 verkur — 4 tveir eins
— 5 plata — 7 greiða — 9 ísk-
ur — 10 fjölda — 14 drykkur
— 15 mælir.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárjett: — 1 hafur — 6 ólm
'— 8 æf — 10 ha — 11 songvar
— 12 tt — 13 FR. — 14 mér
— 16 belti.
Lóðrjett: — 2 A.Ó. — 3 flug-
vél — 4 um — 5 læsti •— 7
karrý — 9 föt — 10 haf — 14
me — 15 rt.
•iniumiMiiMitiiiiiiiiuimiiMMiiiimiMMimmMnimiH*
5
| _ Ungur verkfræðingur
| sem dvalið hefir 12 ár er-
Ílendis, óskar eftir
íbúð
í bænum. 1—2 herbergi,
eða 3 herbergi með eld-
húsi, geta komið til greina.
Jafnvel ein stör stofa. —
Tilboð sendist Mbl. merkt
„Verkfræðingur — 157“.
Auglýsendur
afhuglð!
| að ísafold og Vörður er [
i vinsælasta og fjölbreytt- i
[ asta blaðið í sveitum lands [
[ ins. Kemur út einu sinni i
i í viku — 16 síður.
«nunnmimii(iimfMmiiiifiimnm«mim(rmmiiiHinxi
BEST AB AUGLYSA
f MORGUNBIjAÐINTU
Sextug
Helga Eggertsdóttir
í DAG á sextugsafmæli merk
og atorkusöm sveitakona, hús-
freyjan á Melum í Melasveit,
Helga Eggertsdóttir. - Hefir
Helga gengt húsmóðurstörfum
á Melum í nærfelt aldarfjórð-
ung. Fyrir 24 árum reistu þau
Guðmundur Guðjónsson bóndi
á Melum og Helga bú á þessu
forna prestssetri. Fluttu þau
þangað frá Gufunesi við Reykja
vík.
Hefir á þessu árabili verið
hrundið í framkvæmd á þessari
jörð óvenjulega stórfeldum um-
bótum í ræktun og húsabygg-
ingum.
Á Melum er mikið landbrot.
Fyrir öllu landi jarðarinnar,
sem að sjó veit, eru margra
mannhæða sjávarbakkar. Er
það því með öllu ofvaxið mann-
legum.mætti að fá viðspornað
landbrotinu. Hefir svo á land-
ið gengið að eigi sjest nú urm-
ull eftir af hinum fornu bæj-
arhúsum prestsetursins, kirkju-
stæði eða kirkjugarði. Alt er
þetta landsvæði komið í sjó.
Fjell það í hlut núverandi Mela
bónda að færa þar byggðina í
annað sinn. Hafa bæjar og pen-
ingshús verið reist á öruggum
stað með frábærum myndar-
brag. Eru hús þessi öll úr
steini, tvílyft íbúðarhús og
gripahús stór og vönduð enda
er þar nú rekið stærst kúabú
í Borgarfjarðarsýslu utan
Skarðsheiðar. Hefir og ræktun-
inni. skilað áfram að sama
skapi.
Á mannmörgu sveitaheimili
þar sem, mikið er færst í fang
um framkvæmdir, eins og hjer
á sjer stað, mæðir mikið á hús-
freyjunni. Er hennar hlutur
jafnan stór, að sjá öllu far-
borða innan húss og grípa auk
þess til þess hendinni að ljetta
undir með störfum utan bæjar
þegar mikið liggur við um anna
tímana. Hefir Helga jafnan int
þetta hlutverk af hendi með
hinum mesta dugnaði, forsjá og
fyrirhyggju. Enda er hún kona
mjög áhugasöm og afkasta
mikil um öll störf en jafnframt
frábærilega umhyggjusöm og
nærgætin húsmóðir. Gekk hún
í móðurstað fjórum ungum son
um Guðmundar og hafa þeir
allir til skamms tíma unað í
föðurhúsum og lagt þar fram
mikinn skerf til hins þróttmikla
athafnalífs sem ríkt hefir og
ríkir á þessu myndarheimili.
Einn son hafa þau eignast,
Helga og Guðmundur, sem er
uppkominn í heimahúsum.
Helga er ættuð úr Breiða-
fjarðareyjum, fædd og uppalin
í Fremri-Langey. Stundaði
Eyjólfur faðir hennar, sem bjó
þar allan sinn búskap, jöfnum
höndum sjómensku og landbún
að, eins og títt var um hina
fornu eyjabændur.
Helga var glaðlynd kona og
dagfarsgóð, fróðleiksfús og
minnug vel. Hún er kona Ijóð-
elsk og er það ekki að ólíkind-
um, því hún á að telja til ná-
innar frændsemi við margt
merkisskálda vestur þar. Má
þar tilnefna skáldajöfurinn
Matthías Jochumson, og syst-
urnar Herdísi og Ólínu Andrjes
dætur. Helga lætur enn ekki
ásjá, þrátt fyrir þenna aldur og
langan vinnudag. Vinnur hún
enn störf sín af áhuga og kost-
gæfni sem ung væri.
Á sextugsafmælinu munu
vinir og kunningjar þessarar
merku og atorkusömu konu
minnast hennar með hlýjum
hug og hinum bestu árnaðar-
óskum.
P. O.
LANDSMÓT III. fl. í knatt-
spyrnu hefst nk. laugardag í
Hafnarfirði. Sjö fjelög hafa til
kynt þátttöku sína í mótinu, þar
á rneðal Keflvíkingar, sem taka
nú í fyrsta sinn þátt í opinberu
landsmóti í knattspyrnu.
Hin fjelögin, sem taka þátt
í mótinu eru: KR, Fram, Valur,
Vikingur, Hafnfirðingar og Ak-
urnesingar.
Er þetta fjölmennasta landsmót
þetta fjölmennasta landsmót,
sem haldið hefur verið í þess-
um aldursflokki.
Ráðstefna Randaríkjanna.
RIO DE JANEIRO: — Brasilíu-
stjórn hefur boðið öllum ríkjum
Amaríku, að Niearagua undan-
skildu, til ráðstefnu 15. ágúst.
I-f
&
£ £t &
* Eflir Roberf Sform
/V1-/VSR. PLEcD WA$ £0 CROCKED! "
Hi$ ViONEV eZEV.ZQ T0 CCMS íq
EA-SV.mI- I DECIDED TO BLACK/4A!L
MlM... I WENT BACK TO T-!£ 0FFICE,
TO RE,V.0V£ CE-RTAIN pAp£K5>
V FRa-i1 TrlE 0AFF!, ^
r I HEARD F00TE>T£P$
INTHE C0RRID0R- I TH0U6HT
!T MlöHT BE VR. PLEED , ‘QO
JI &NAPPED OFF THE LlGHT
AND HID IN THE ClOAK
CL05-ET IN tífr OFFlCE... Jk
míf
Pf W
Wm?-.
ý Frale: Pleed var mesti þorpari. Hann virtist hafa
<V
•>ts%vo litið fyrir því að afla sjer peninga. Jég ákvað
stofunnar, til þess að ná vissum skjölum úr pen-
ingaskápnum hans. Jeg heyrði einhvern fyrir ut-
þessvegna Ijósið Cg faldi mig í skápnum. Einhveft
kom inn .... það var .... Ókunn rödd: Jeg! . i
að reyna að hafa fje út úr honum. Jeg fór til .skrif- an, datt í hug að það væri máske Pleed og slökkti