Morgunblaðið - 09.07.1947, Síða 12
in irí
ú Horni
Hrúfafjörður fulfur af
sííd
FRJETTARITARI Morgun-
blaðsins á Siglufirði símaði í
gærkvöldi að skip, er væru á
veiðum frá Gjögurtá að Horni
hefðu orðið vör við síld. Einnig
hafa skip, sem voru vestar-
lega í Húnaflóa og á Haganes-
vík með einhverja veiði.
Veður fer nú batnandi fyrir
Norðurlandi og er mikiil fjöldi
skipa að halda á miðin.
SEINT í gærkvöldi bárust
Morgunblaðinu þær frjettir frá
Borðeyri, að Hrútafjörður væri
fullur af síld. Töldu kunnugir
menn þar að aldrei myndi hafa
Sjest eins mikil síld þar og torf-
ur þjettar.
„Englandsfararnir"
Atriði úr norsku kvikmyndinni, sem sýnd verður hjer í sumar.
Norska kvikmyndin
Níels P. Dungal
prófessor kominn
heim
NIELS P. DUNGAL prófessor
og frú hans, komu heim frá
Ameríku í fyrradag.
Dungal próf. dvaldi eitt ár í
Ameríku til að kynna sjer nýj-
ungar í læknavísindum, lækna-
mentun o. fl. Hann skrifaði
nokkrar greinar í amerísk
læknablöð á meðan hann var
fyrir vestan.
Græiifðfidsleið-
anyur kemur
hjer vi
n
rarmr
w
Englandsfa
sýnd um land allt
Guðrún Brunborg ætlar að siofna sjóð
við Háskóla íslands
NORSKA KVIKMYNDIN ,,Englandsfararnir“, scm gerð er
eftir skáldsögu Sigurd Evenmos og vakið hefir mikla athygli
hvarvetna, sem hún hefir verið sýnd, verður sýnd hjer á landi
víðast hvar, þar sem kvikmyndahús eru, á þessu sumri. Það
er frú Guðrún Brunborg frá Osló, sem kemur með kvikmynd-
ina og stendur fyrir sýningunum. Verði ágóði af sýningunum,
rennur hann til sjóðs, sem frúin ætlar að stofna við Háskóla
Islands og sem verja á til að auka kynni og menningarsambönd
Norðmanna og íslendinga.
DANSKUR Grænlandsleið
angur kom hingað til lands í
gær með Catalínaflugbát og
lenti flugvjelin á Keflavíkur-
flugvelli.
Tveir vísindamenn voru með
flugvjelinni, en aðrir tveir voru
komnir fyrir fáum dögum. Flug
vjelin mun væntanlega fara
hjeðan í dag áleiðis til Græn-
lánds.
Tveir vísindameiin fara á
morgun til Akureyrar, en þang
að er búist við að rannsóknar-
skip leiðangursins, Gothaab og
Gamma, komi í vikulokin. Skip-
in munu svo bíða lags við að
komast að norð-austurströnd
Grænlands, í svonefndan Lock-
fynefjörð, en þar verða aðal-
stöðvar leiðangursmanna.
Aðalmarkmið leiðangursins
er að kortleggja Pearylönd.
Foringjar leiðangursins eru
þeir cand. pol. Ebbe Munck og
greifinn Eigil Knuth.
Engar grammófónplötur.
WASHINGTON: — Samband
hljómlistarmanna mun segja upp
samningum sínum við grammó-
fónplötufyrirtækin frá 31. desem-
ber n.k.
Sjóður Olavs Brunborg.
Guðrún Brunborg ferðaðist
hjer um landið í fyrrasumar
og hjelt fyrirlestra og sýndi
kvikmyndir til ágóða fyrir sjóð
sem hún hefir stofnað til minn-
ingar um son sinn, Olav Brun-
borg, ungan stúdent, sem ljest
í þýskum fangabúðum.
Er sá sjóður nú orðinn 50000
krónur og ætlar frú Brunborg
að láta staðar numið að sinni
með söfnun í þann sjóð.
Skipulagsskrá hefir enn ekki
verið samin fyrir sjóðinn, en
það verður gert, er frúin kem-
ur heim til Oslo í haust. Sjóð-
urinn verður í vörslu Oslo-há-
skóla og verður varið til að
styrkja íslenska og norska stú-
denta við háskólann.
„Englandsfararnir“.
,,Englandsfararnir“ er löng
kvikmynd, tekur nærri 2 klst.
að sýna hana. Hún segir frá bar
áttu Norðmanna á styrjaldar-
árunum og er um leið einkar
fögur ástarsaga. Höfundurinn
hefir tekið efni í söguna úr dag
lega lífinu í Noregi á hernáms-
árunum.
„Jeg ætla mjer ekki að fara
að halda uppi neinum stríðs-
áróðri“, sagði frú Brunborg í
viðtali við Morgunblaðið, en
jeg veit, að þessi kvikmynd er
einhver sú besta, sem gerð hef-
ur verið á Norðurlöndum“.
Ekki er enn fullákveðið hve
nær myndin verður frumsýnd
hjer í Reykjavík, en ef til vill
verður það um líkt leyti og
Norðmenn koma hingað á
Snorrahátíðina.
Frú Brunborg hefir látið
prenta smárit „prógram“ með
myndinni og látið þýða „Sög-
una um dauðann“, og „Sagnir
um lífið“.
Það er kvikmyndafjelagið
Snorrefilm, sem tekið hefur
myndina. Leikstjóri er Thorolf
Sandö. Helstu leikarar eru:
Elisabet Bang, Jörn Ording,
Knut Wigest, Ola Isene og
Lauritz Falk.
í höfninni
ÞAÐ er mikið að starfa niður
á höfn um þessar mundir. Mikill
f jöldi skipa er að losa vörur, en
önnur bíða -þess að komast að.
1 innri höfninni liggja t. d. 8
vöruflutningaskip, meðal þeirra
eru eitt kolaskip og timburskip
og matvöruskip frá Kanada. Þá
eru í innri höfninni 11 togarar,
sem eru að losa kol, én aðeins er
hægt að afgreiða fjóra í einu. í
vestur hluta hafnaiinnar er svo
mikill f jöldi smærri skipa.
Á ytri höfninni eru 5 flutn-
ingaskip sem bíða þess að kom-
ast að við bryggjurnar.
Fjögurra manna nefnd velur
ísl. landsliðið
23 merni þegar valdir lil æfinga
SÍÐASTLIÐINN laugardag skipaði Knattspyrnusamband ís-
lands fjögurra manna nefnd til þess að velja landslið það, sem
keppa á við landslið Norðmanna, er kemur hingað í þessum
mánuði. í nefndinni eru: Guðjón Einarsson, form., Jóhannes
Bergsteinsson, Hans Kragh og Jón Sigurðsson.
----------------------------9>
Kynnisfðrö Heim-
dallartii ísafjarðar
HEIMDALLUR hefir ákveðið
að fara í kynnis- og skemtiferð
til ísafjarðar um Verslunar-
mannahelgina. Farið verður
sennilega í flugvjelum og lagt
af stað hjeðan úr Reykjavík eft
ir hádegi laugardaginn annan
ágúst og komið aftur á mánu-
dagskvöld.
í sambandi við þessa ferð
verður efnt til funda og skemt-
ana á ísafirði og ef til vill víðar
þar um slóðir.
Þetta er í fyrsta sinn sem
Heimdellingar fara í slíkar ferð
ir í flugvjelum og er sennilegt
að þessi nýbreytni mælist vel
fyrir og marga fýsi að taka
þátt í förinni, en ekki mun
reynast kleift að taka nema
takmarkaðan fjölda.
Sparnaður í opinberum rekstri.
WASHINGTON: — Truman for-
seti hefur undirritað lög, sem
mæla svo fyrir, að skipuð skuli
tólf manna nefnd til þess að at-
huga starfsemi allra opinberra
stofnana í Bandaríkjunum með
það fyrir augum að koma á sparn-
aði í rekstri og umbótum á starfs.
Néfnd þessi tók þegar til
starí'a og hefir nú valið 23
menn, sem væntanlegt lands-
lið verður síðan valið úr. Til
þess að þjálfa þessa menn,
hefir hún ráðið sænska knatt-
spyrnukennarann Roland Berg-
ström, sem kennt hefur hjá
Víking í sumar.
Knattspyrnumennirnir eru
þessir: Albert Guðmundsson,
Val, Birgir Guðjónsson, KR,
Gunnlaugur Lárusson, Víking,
Hermann Hermannsson, Val,
Karl Guðmundsson, Fram,
Haukur Ósk.vsson, Víking,
Ríkard Jónsson, Fram, Ellert
Sölvason, Val, Svein Helgason,
Val, Sigurður Ólafsson, Val,
Sæmundur Gíslason, Fram, Þór
liallur Einarsson, Fram, Her-
mann Guðmundsson, Fram,
Hörður Óskarsson, KR, Ari
Gíslason, KR, Ólafur Hannes-
son, KR, Kristján Ólafsson,
Fram, Óli B. Jónsson, KR,
Guðmundur Sigurjónsson, Val,
Guðbjörn Jónsson, KR, Haf-
steinn Guðmundsson, Val,
Daníel Sigurðsson, KR, og Ant-
on Sigurðsson, KR.
Norska landsliðið kemur hing
að 22. þ. m„ en landliðsleik-
urinn verður 24. júlí. Auk þess
munu Norðmennirnir keppa
hjer aukaleiki svipað og Dan-
irnir s.l. ár.
Fram Islandsmeistari 1947
Vann á jainiefli við KR 2:2
SlÐASTI LEIKUR Knattspyrnumóts Islands fór fram í
gærkvöldi milli Fram og KR, og endaði sá leikur með jafn-
tefli, 2:2. Mótið hefur því farið þannig, að Fram hefur hlotið
flest stig og unnið nafnbótina Islandsmeistari í knattspyrnu
1947.
Að leiknum í gær loknum
afhepti Agnar Kl. Jónsson, for-
mað^r Knattspyrnusambands
íslands, sigurvegurunum verð-
laun sín, en sleit mótinu síðan
með stuttri ræðu.
Heildarúrslit mótsins urðu
þau, að Fram hlaut 7 stig og
skoraði 7 mörk gegn 4. Valur
hlaut 6 stig og skoraði 8 mörk
gegn 2. KR hlaut 5 stig, skoraði
8 : 6. Víkingur hlaut 1 stig,
skoraði 4 : 7 og Akurnesingur
1 stig og skoruðu 3:11.
Nýr sendiherra Sýrlands.
WASHINGTON: — Nýr sýrlensk
ur ráðherra, Khoury að nafni, er
kominn til Washington. Mun hann
ganga á fund Marshall utanríkis-
ráðherra, áður en hann afhendir
Truman forseta embættisskilríki
sín.
Jákvæli svarfrá
12 ríkjum
London í gærkvöldi.
TÓLF RÍKI hafa nú svarað
játandi boði Frakka og Breta
um þátttöku í ráðstefnu um
viðreisnartillögu Marshalls, sem
hef jast á í París á laugardaginn
kemur. Austurríki og Sviss til-
kyntu í dag þátttöku sína. —•
Skeyti frá Helsinki hermir, að
Paasikivi, forseti Finnlands,
ræði nú við utanríkisráðherra
landsins um Parísarráðstefnuna.
Mjög miklar líkur eru taldar til
þess, að Rúmenar, Pólverjar og
Ungverjar taki ekki þátt í ráð-
stefnunni. — Reuter.