Morgunblaðið - 02.08.1947, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 02.08.1947, Blaðsíða 8
8 MORGVNBLAÐJÐ Laugardagur 2.t ágúst 1947 Enn nokkur ummæli um Finnlands- sýningar Ármanns Hjer fara á eftir nokkrir finnskir blaðadómar um sýningar Ármenninganna á Hátðarleikjum Finnlands, auk þeirra, sem áður hafa verið birtir: „HAFIÐ þið heyrt Guðmund- ar Ágústssonar getið? Nei, tæp- lega. En á íslandi er hann mun þekktari. Hann er nú bestur allra þar í þjóðaríþrótt lands síns, glímunni. Mjer var for- vitni á að vita, hvernig þessi maður liti út. Tveir háir og myndarlegir menn gengu fram í bláum ullar- klæðnaði, sem fjell alveg að líkamanum. Þeir tókust tökum og sýningin byrjaði. Þeir hjeldu í belti hvors annars, lyftu hvor öðrum í loft upp og reyndu að koma bragði fyrir keppinautinn og fella hann á gólfið, en í því er vinningurinn fólginn. Fall telst, er maðurinn liggur flatur, en ekki ef hann kemur höndum fyrir sig. Hetjan okkar er 29 ára bónda sonur frá íslandi, og er í Glímu- fjelaginu Ármann í Reykjavík. í fimm ár hefur hann staðið uppi ósigraður. Engum hefur tekist að fella hann. — Glímur hans hafa aldrei tekið meíra en tvær mínútur. Og þegar þessi maður stóð fyrir framan mig á grasflötinni, fannst mjer eins og jeg stæði andspænis einum riddara sögunnar. Takið vel eftir glímunni, þeg- ar ykkur gefst kostur á að sjá hana, það borgar sig“. „Strax að hnefaleikakeppn- inni lokinni gafst okkur kostur ★ á að sjá íslensku glímuna. Þessi þjóðaríþrótt íslendinga er skemmtileg og minnir mikið á fjölbragðaglímu (fribrottning), nema hvað hún getur talist meiri íþrótta-„leikur“, en venju- leg keppni. Hún vakti mikla at- hygli óhorfenda". ★ „Sýning íslensku fimleika- stúlknanna frá Glímufjelaginu Ármanni var svo rösklega gerð og örugg undir stjórn Jóns Þor- steinssonar, að það var eins og um karlmenn væri að ræða. Æf- ingar þeirra á háu slánni voru svo vel gerðar, að þær stóðu jafnvel Svíunum framar. Hreyf- ingarnar voru öruggar, hreinar og fimar og valdið á líkamanum undravert. Sýningin endaði með æfingum hæðst uppi á stólpun- um, þar sem stúlkurnar hreyfðu sig eins öruggar og þær væru niðri á gólfi“. Ráðstefna um koiaframleiðsluna London í gærkv. ÁKVEÐIÐ hefur verið að halda í næstu viku í Washing- ton bresk-bandaríska ráðstefnu um aukningu kolaframleiðsl- unnar í Ruhr. Bretar hafa þegar lýst yfir, að þeir vilji að umræðurnar verði á það breiðum grund- velli, að tekin verði til með- ferðar ýmiskonar vandamál í Ruhr, eins og t. d. matvæla- og húsnæðisskorturinn og vöntun in á vjelum til kolavinnslu. Verði ofangreind atriði rædd, munu Bretar leiða athygli Bandaríkjamanna að því, að ef ekki sje hægt að útvega þessa hluti annarsstaðar en frá Banda ríkjunum, þá verði Bandaríkja menn sjáífir að bera kostnað- inn, sökum þess að Bretar eigi enga dollara til. fimm mínúina krossgáian SKÝRINGAR Lárjett: — 1. Bresta — 6. fóru — 8 ending — 10 röð — 11 ávextir — 12 hljóðfæraleik- ari — 13 kennari — 14 lengdar- eining — 16 fat. Lóörjett: — 2 kyrrð — kaup- staður — 4 hvað — 5 æla — 7 lita — 9 kveikur — 10 las — 14 frumefni — 15 tveir eins. Lausn á síðustu krossgátu Lárjett: — 1 rósir — 6 111 — 8 T. v. — 10 u u — 11 heyvagn — 12 Ag. — 13 gn — 14 ana — 16 brauð. Lóörjett — 2 ól — 3 Slavana — 4 il — 5 úthaf — 7 sunna — 9 veg — 10 ugg — 14 ar — 15 au. Sýningin í kapellu háskélans ÞEGAR þú horfir á fagurt landslaf í fjarlægum löndum eða listaverk, sem lyfta huga þínum upp yfir allt ljótt, þá kemur þjer stundum í hug, að þú eigir vini langt i bprtu, sem mundu njóta þess af öllu hjarta að sjá hið sama og þú. Og inni fyrir hjá sjálfum þjer bólar á sársauka vegna þess, að aðrir skuli ekki hljóta hin sömu gæði og þú. Farðu spður i háskóla. Sjáðu kertaljósm Ipga .mpð ljúfum blæ. Farðu inn í anddyri kap ellunnar og sjáðu gluggamynd ina af stúlkunni sem krýpur frammi fyrir ljósgeislanum. Fyrir neðan myndina er opin kista, þar sem þjer er velkomið að leggja nokkra upphæð til þeirra, sem í myrkri siíja. Og hví skyldir þú ekki hugsa um þá á þessarri stundu? Þú hefir komið inn í kap- elluna sjálfa, staðið þar við um stund og látið listaverkin hafa áhrif á huga þinn. Þau hafa ákveðinn boðskap að flytja þjer, og þá ert úr undarlegum málmi gerður, ef ekkert bráðn ar í hjarta þinu við þessi áhrif. En til eru menn, sem búa í fjarlægu landi og ekki geta not ið þess, sem auga þitt gleður í dag. Land þeirra er land blind ingjanna, — myrkrið. Þaðan sjer enginn glitrandi mynd hindarinnar, sem þráir vatns- lindir, nje les passíusálma — versið á höklinum fagra. Og þó eru íbúar myrkralands ins ekki lengra burtu en svo að þú getur rjett þeim hönd þina, m.a. með því að leggja þinn skerf í kistuna undir gluggan- um. Og þá gengur þú í lið þeirra manna, og þess fjelags- skapar sem vill opna ljósinu leið til blindingjanna. Far þú suður í háskóla og sjáðu sýningu frú Unnar Ölafs dóttur, fremur í dag en á morg un. Óðar en varir er tækifærið gengið þjer úr greipum. Hafðu augu þín opin fyrir því sem þar er að sjá. — Nem siðan staðar við kistuna undir glugganum og minnstu þess, að til er ljós, sem ekki þarf augnanna við til að kpmast inn í mannssálirnar, — ljós kær- leikans. Jakob Jónsson. Nýjar álögur á Breta miðaðar við eitt ár Heimflufnlngur breskra hermanna i LONDON í gærkvöldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. STJÓRNMÁLAFRJETTARITARAR telja, að ráðstafanir þær, sem breska stjórnin hyggst gera til að ,ráða fram úr efna- hagsörðugleikum Rreta og tilkynntar verða af, Attlee forsætis- ráðherra í næstu viku, muni að minnsta kosti miðast við eitt ár. Jafnvel þótt Bretar kunni að hafa mikið gagn af viðreisnar tillögum Marshalls, telja frjettaritararnir, að hinar nýju álögur á bresku þjóðina geti ekki staðið skemur. — Meðal anfiara orða Framh. af bls. 6 jafnan neitað því vegna þess að eftir það gæti hann aldrei von- ast til að komast í hásætið í Rúmeníu. Þegar Karol var að skilja við drotningu sína Hel- enu fekk hann það orð á sig að vera mikill kvennamaður. Blaðamaður, sem nýlega skrif- aði um ævi hans í bandarískt rit reynir að hrinda þessu af honum. Hann segir: Magda hefir verið trygg honum í 23 ár, sama hvað yfir hefir geng- ið. Karol hefur ekki litið á nokk ura aðra konu síðan hann kynt ist henni í full 23 ár, og það er meira en hægt er að segja um marga aðra. Þau hafa verið framúrskarandi trygglynd. » Að lokum giftust þau. En snemma í júlí, nú í ár, varð Magda skyndilega veik. Hún varð skaðlega blóðlaus og þótt hún væri glöð og kát var hún samt en föl eins og dauð- inn. - Karol kallaði alla bestu vini sína út í íbúðina í Copacabana. Hann talaði lágt við þá og vís- aði þeim síðan inn í svefnher- bergið. Þar lá Magda veik, læknarnir sögðu, að hún myndi ekki eiga langt eftir ólifað. í viðurvist sex votta giftist hinn landræki konungur Mögdu. — Hún fekk titilinn Helena prins- essa af Rúmeníu. Blaðamenn sögðu, að konungurinn hefði grátið, þegar athöfnin fór fram, en síðar var því mótmælt. En Mögdu batnaði og hálfum mánuði eftir þennan atburð var hún komin á fætur aftur. Breskir hermenn heim. Breska stjórnin stendur i sam bandi við Bandaríkjastjórn varðandi brottflutning verulegs hluta herafla síns í Gi'ikklandi og Italiu. Með þessu hyggst stjórnin vinna tvennt, skera niður útgjöld ríkisins og afla atvinnuvegunum vinnuafls. — Bretar hafa lýst því yfir, að þeir muni flytja brott her. sinn í Grikklandi svo fljótt sem framast verði við komið, en i ítölsku friðarsamningunum er svo kveðið á, að bresku her- sveitirnar í landinu skuli vera farnar 90 dögum eftir staðfest ingu samninganna. En þetta tekur þó ekki til 5000 manna herafla Breta i Trieste-fríríkinu — Ekki er kunnugt um, að Bretar hugsi sjer að draga’úr herafla sínum í Þýskalandi. Ætluðu að sfeypa sijérninni Rangoon í gærkvöldi. 1 OPINBERRI tilkynningu Burmastjórnar, sem birt var í dag, segir, að mqrð ráðherr- anna sjö hafi verið liður í alls herjarsamsæri til þess að steypa stjórninni af stóli. Enn fremur er tekið fram, að allt bendi til þess, að þeir, sem sök eigi á morðunum, sjeu meðal þeirra, sem handteknir hafi verið. — Attlee, forsætis,ráð- herra Bretlands, sagði í breska þinginu í dag, að ástandið væri nú' orðið sæmilega rólegt, og væri það mest að þakka mynd un nýrrar bráðabirgðastjórnar sem nyti stuðnings mikils meirihluta þjóðarinnar. — Reuter. Efflr Robert Slorm 7HANK4- Maðurinn: Jæja, jeg vona þú veiðir einn stóran. Kalli: Þakka þjer fyrir. Maðurinn (hugsar): Kúnst ugur náungi. Hvers vegna' sétli hann hafi byrjað Bíðum við . . . Ætli þetta geti verið maðurinn, að fiska, þegar ýeiðitímanum er næstum lokið. — sem lögreglan lýsti eftir?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.