Morgunblaðið - 14.09.1947, Qupperneq 1
12 síður og Lesbók
34. árgangur
208. tbl. — Sunnudagur 14. september 1947
bníoldarprentsmiðja h.í.
Þjóðviljinn. sannar, að
Þinarsagðiósattvísvitandi
ÞJÓÐVILJINN birtir í gær a. m. k. þrjár skamma-
greinar um Bjarna Benediktsson. Eru þær teygðar vfir
margar síður blaðsins með mismunandi stóru ietri og mis-
munandi svörtum umgerðum. Alt er efni þeirra þó hið
sarna: Angistarvein sakbitinna manna, sem í'engið hafa
hirtingu í alþjóðar augsýn íyrir opinber ósannindi.
Óþverraorð Þjóðviljans um Bjarna Benediktsson eru
ómerk ómagaorð, sem ekki eru svaraverð. Sannleikurinn
verður ekki hulinn þó að ósannindamennirmr sletti auri
í allar áttir.
Einar Olgeirsscn. sjer það ráð vænst að leiða umræð-
urnar að öðru en um var deilt. Hann byrjar að tala um
Unilever-hringinn breska og er lesendunum vist ætlað að
halda, að Bjarni Benediktsson sje hluthafi hans eða þjónn!
Ritstjóri Þjóðviljans reynir hinsvegar að hjarga æru
Einars með því að prenta upp úr fundargerðum utan-
ríkismálanefndar glefsur um ýmislegt'annað en það, sem
um er deilt. Enginn hefur efast um það, að í utanríkis-
málanefnd hafi verið rætt hámark lýsismagns og fiskj-
ar, sem Bretar keyptu. Þá hefir margoft verið sagt frá
'því, að Einar Olgeirsson hafi verið á móti samningsgerð
við Breta í heild.
Þjóðviljinn eyðir löngu rúmi til að sanna þessa og aðrar
auðsæjar staðreyndir. Með því vinnur hann íiðeins eitt:
Að sanna, að Einar Olgeirsson sagði ekki aðeins, ósatt
heldur gerði hann það beinlínis vísvitahdi og gegn betri
vitund. Því að úr því, að Einar og Þjóðviljinn höfðu sjálfar
fundargerðirnar undir höndum hlutu þeir að sjá, að þar
var skýrum stöfum skráð með hverjum hætti freðfiskur-
inn var seldur og að Einar fann aldrei að því atriði út
af fyrir sig.
Þessu til sönnunar skulu birt hjer á ný hlið við hlið
ósannindi Einars Olgeirssonar í Þjóðviljanum 11. sept. s. 1.
og sannleikurinn eins og hann er skráður í fundargerð
utanríkismálanefndar 2. apríl s. 1.
Lygin:
í yfirlýsingunná segir Einar
Olgeirsson m. a.: „Akvæðin um
að sala á svo og svo miklu
magni af liraðfrystum fiski
væri eyðilögð, ef ekki fengist
nóg síldarlýsi kom aldrei fram
á fundum utanríkismálanefndar
28. mars, 2. apríl og 10. apríl.
Um þessi ákvæði fjekk jeg því
ekkert að vita á þcssum fund-
um, og ekki fyrr en eftir á að
ríkisstjórnin hafði tekið ákvörð
un upp á sitt eindæmi, að semja
á slíkum grundvelli.“
Sannieikurinn:
I fundargerðinni frá 2. apríl
er bókað eftir Bjarna Benedikts
syni: „Ráðherrann skýrði frá
símskeyti því, sem borist hafði
frá sendinefndinni í London 27.
mars, þar sem skýrt cr frá, að
Bretar hafi gert þau tilboð, að
kaupa 45% af síldarlýsismagn-
inu á £95 og að þeir vildu
kaupa allt að 12000 tonn hrað-
frysts fiskjar fyrir llúzd. mið-
að við þorskflök, og 14d. miðað
við ýsuflök, en þó þannig að
þeir kaupa aðeins 1 tonn af fisk
flökum gegn 2 tonpum af lýsi“.
Kröfugöngur í
París í gær.
FREGNIR berast stöðugt rim
áframhaldandi kröfugöngur í
ýmsum borgum Frakklands til
að mótmæla hinu háa verð-
lagi og litla matarskammti.
Frjettaritari Reuters, sem
staddur var í Cherborg segir,
að svo mikið æði hafi grinið
kröfugöngumennina þar, að
þeir hafi rænt nautgripum og
svínum og farið með þau til
sláturhúsanna. — Reuter.
Karachi í gær.
KÓLERUFARALDUR hefir
brotist út í flótamannabúðum
í Pakistan. Hafa 400 manns
sýkst þar, og af þeim hafa 40'
dáið. Er þetta talið mjög al-
varlegt mál og er alt gert til
að reyna að koma í veg fyrir
útbreiðslu farsóttarinnar.
í Karachi er enn umferða-
bann vegna hina sífeldu óeirða.
Lögreglulið borgarinnar hefir
enn verið aukið. — Reuter.
lússneskum hermönnum bunnuð
li umgungust unnui iélk
17 ára prinsassa
i jicir jiai, eru þeir taidir
svikarar oy Eandráiamenn
PARlS.
YFIRHERRÁÐ RÚSSA í Moskva hefur sent fyrirskipanir
til allra herstjórnenda sinna í Þýskalandi og Austurríki, þar
sem sagt er að herráðið líti alvarlegum augum á hið slæma
siðferði rússneskra hermanna á þessum svæðum og bannar
herráðið algjörlega, að rússneskir hermenn umgangist nokkuð
almenning i þessum ríkjum.
S5 ' v"'
Margaret
Rose, vngri dóttir
bregku konutigshjónanna,
varð nýlega 17 ára.
London í gær.
BRESKUR tundurspillir og
flugvjelar leita nú að fiskiskipi
sem stolið var á austurströnd
Bretlands fyrir viku siðan. Skip
ið sást í gærkvöldi skammt frá
Sussex. Talið er líklegt, að þýsk
ir stríðsfangar hafi stolið því og
hyggist komast til Frakklands
og þaðan til Þýskalands.
— Reuter.
emm pjOðusMiin
her sinn
BANDARÍKIN eru að íhuga
að veita Sameinuðu þjóðunum
aðgang að herjum sínum „til
þess að koma á friði og öryggi“
í NorðurrGrikklandi.-
Þessi ráðagerð er hluti af al-
mennum aðgerðum Bandaríkj-
anna á Allsherjarþingi Samein
uðu þjóðanna, sem George
Marshall, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna mun skýra frá
á fundum með fulltrúanefnd-
um Bandaríkjanna um helgina.
Fundur, sem byrjar á þriðju
dag,- er talinn munu hafa úr-
slitaáhrif um það, hvort hægt
verði að bjarga hinu símink-
andi áliti alheims á Sameinuðu
þjóðunum.
Skýrsla Bandaríkjanna
um gríska vandamálið
Rússar komu j veg fyrir lausn þess
. WASHINGTON í gær.
BANDARISKA utanríkisráðuneytið þirti í dag skýrslu um
Sameinuðu þjóðirnar og gríska vandamálið. Segir f formála að
skýrslunni, að Bandaríkin lí*,i svo á, að eitt af alvarlegustu
vandamálunum í dag sje hætta sú, sem steðji að stjórnmála-
legu frelsi í Grikklandi og sjálfstæði landsins.
^Skipan Kourasoffs
Samkvæmt þessu hefur
Kourasoff hershöfðingi, yfir-
foringi hernámsliðsins í Aust-
urríki gefið eftirfarandi tilskip
un til allra undirforingja
sinna:
Fylgja bo rga ralegum
sko&unum
Nú undanfarið virðist sem
allstór hópur rússneskra her-
manna sje farinn að fvlgja
borgaralegum lífsskoðunum.
Eftir að hafa komist í kynni
við fólk í þessum löndumllafa
margir þeirra orðið andvígir
stjórn Rússlands og sumir jafn
vel orðið svikarar og landráða-
menn. Margir hafa algjörlega
gleymt trúnaðareið sínum og
þeir eru farnir að umgangast
útlendinga eins og vini, fara
með þeim á konserta og í næt-
urklúbba.
Frerhsta menning
veraldar(!)
- Þannig eru þessir menn
komnir inn á braut smánarinn
ar. Þeir gleyma, að þeir eiu
fóstraðir upp við aga fremsta
menningar veraldarinnar,
menningu Marx-Lenin-Stalin-
ismans.
Auk þess hafa sumir her-
menn með viðkynningu við er-
lendar konur flækt sig svo í
ótta við hegningu, að þeir eru
orðnir beinir landaráðamenn.
Kourusoff lýkur tilskipmi-
inni með því að banna strang-
lega öll samskipti hermanna
við íbúa landanna, og eftirlit
verður hert meðal hermann-
anna.
Neitunarvald Rússa.
Skýrsla þessi er í þremur
köflum, en henni fylgja auk
þess ýms mikilsverð skjöl. Kafl
arnir eru um (1) sögu rann-
sóknarnefndar þeirrar, sem Ör
yggisráðið skipaði til að rann-
saka árekstrana á landamær-
um Grikklands; (2) niðurstöð-
ur og samþyktir nefndarinnar;
og (3) aðgerðir Öryggisráðsins
í málinu. Notuðu Rússar þrí-
vegis neitunarvald sitt í ráð-
inu, til þess að koma í veg fyr-
ir ákvarðanir meirihlutans til
lausnar vandamáli þessu.
Veittu aðstoð.
Anvar kafli skýrslu þessar-
ar, sem fjallar um sönnunar-
gögn í málinu, sýnir greini-
lega, að 11 meðlimir rann-
sóknarnefndarinnar eru sam-
mála um, að Júgóslafía, Búlg-
aría og Alþanía hafa hjálpað
grísku uppreisnarmönnunum.
Safcaruppgjöfin
samþykkl
Aþena í gær.
GRÍSKA þingið samþykkti í
dag eftir heitar umræður frum
varp stjórnarinnar um sakar-
uppgjöf. Er nú í ráð' að prenta
dreifimiða, þar sem skýrt er
frá sakaruppgjöfinni, og varpa
þeim úr flugvjelum yfir hjeruð
þau, sem grísku uppreisnar-
mennirnir ráða í. — Reuter.