Morgunblaðið - 14.09.1947, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 14.09.1947, Blaðsíða 3
Sunnudagur 14. sept. 1947 MORGUTSBLAÐIÐ § Landsfundur norskra SÍÐASTLIÐIÐ vor barst stjórn „Fjelags íslenskra menntaskólakennara“ brjef frá „Norsk lektorlag“ (Fje- lagi norskra mennta skólakenn- ara), þar sem því var boðið að senda fulltrúa á landsfund í „Norsk lektorlag“ í Bergen 9. -—13. ágúst í sumar. Stjórn fjelags okkar hjer kaus undirritaðan til þess að mæta á fundinum, með því að jeg fór utan hvort eð var, til Stokk- hólms, á bindindis- og Reglu- þing, sem þar voru haldin í júlímánuði. Að loknum Stokkhólms-þing unum fór jeg til Kaupmanna- hafnar, og dvaldist þar viku- tíma. Því næst hjelt jeg til Nor egs. Á leiðinni hafði jeg nokk urra daga viðdvöl í Gautaborg, en kom til Oslo 4. ágúst. Var borgin þá í hátíðarskrúði, því að daginn áður hafði Hákon konungur VII. átt sjötíu og fimm ára afmæli. Höfðu menn prýtt hús sín um gjörvalla borgina, myndir af konungi voru nær því í hverjum glugga og af fjölskyldu hans. Konungsbókin, er samin hafði verið og gefin út fyrir afmælið, var í hverjum bókabúðarglugga Hvert blað og tímarit flutti greinar og myndir af konungi, og sjerstök hefti með myndum höfðu verið gefin út fyrir kon- ungsafmælið. Á afmælisdaginn ók konungur um borgina, tal- aði af svölum ins mikla, ný- reista ráðhúss Oslóar og varð mörgum sinnum að sýna sig á svölum hallar sinnar. Nýtur konungur einstakrar hylli allra stjetta og flokka jafnt í landinu svo að jeg hygg, að það nálgist eindæmi. Daginn eftir afmælið, 4. ágúst, var veisla á Akershus, í inum mikla kastala rjett utan við Osló. Auk konungs og fjöl- skyldu hans voru þar saman komnir allir erlendir sendiherr ar og aðrir trúnaðarmenn fram andi ríkja í Oslo, þingforsetar og fulltrúar hinna og þessara stjetta og stofnana. Að morgni 5. ágúst komu myndir úr veisl- unni í blöðunum. Þar á meðal sá jeg myndir af inum nýskip- aða sendiherra íslands í Oslo, hr. Gísla Sveinssyni, og frú hans, en hún var á íslenskum skautbúningi í veislunni. Jeg hafði stutta viódvöl í Oslo, hitti þar nokkra Góðtempl ara, sem jeg hafði verið með í Stokkhólmi, sat á fundi í Regl- unni og kom nokkrum sinnum í aðalveitingahús Templara í Oslo, í Keysergatan 1. Að morgni 8. ágúst hjelt jeg af stað frá Oslo áleiðis til Berg en. Jeg hafði heyrt mikið látið af því að fara með lestinni há- fjallabrautina miklu (Bergens- brautina), og jeg varð heldur ekki fyrir vonbrigðum. Náttúrufeguröin er mikil og fjölbreytt. Vegalengdin á braut inn milli Oslo og Bergen er 492 km. Hæst liggur bi'autin yfir sjávarmál skammt írá Finse, við Taugevatn, 1301 metra yfir sjávarmál. Þar eru miklar fann ir. Finse er járnbrautarstöð, og liggur hún 1222. metra yfir sjáv armál, hæst allra járnbrautar- stöðva í Nörður-Evrópu. 199 jarðgöng (tunnelar) eru á leiðinni fiá Oslo— Bergen, og Eftir Brynleif Tobíasson taka þau yfir 73 km. allrar vega lengdarinnar. Daginn, sem jeg fór þessa leið, var veður stillt og heitt af sólu, 35 stig Cels. var hitinn í skugganum um hádaginn. — Eimketill léstarinnar bilaði í Hallingdal, og urðum við að bíða þar nálega klukkustund eft ir nýjum. Náttúrufegurðin er hvað mest á þeim slóðum. En þessi töf olli því, að við komum ekki til Bergen fyrr en um miðnætti, og höfðum við þá verið 14 klst. á leiðinni frá Oslo. Formaður í „Norsk lektor- lag“, Arnulv Nygaard, rektor í Oslo, tók á móti mjer í Bergen og bauð mig velkominn með mikilli alúð. Þar var og hans önnur hönd, ritari fjelagsstjórn arinnar, Sigurd Stensholt, lekt- or í Oslo, er greiddi einnig fyrir mjer með mikilli vinsemd. Jeg fjekk herbergi á Hotel Norge, og lcið mjer þar mjög vel. Voru þar margir fundar- menn. Laugardaginn 9. ágúst var landsfundurinn settur í hátíða- sal Iðnaðarmannafjelagsins í Bergen. Salurinn blómum skreyttur. Útvarpshljómsveit undir stjórn Eivind Bull Hansen ljek hátíðar-polonaise eftir Svendsen. Nygaard rektor, formaður kennarafjelagsins, setti fundinn og bauð þátttakendur velkomna til 18. landsfundar kennara. Formaður upplýsti, að fjelags menn væri nú 1600 að tölu, en á landsfundinum mættu 140 full trúar — en þar að auki margir aðrir kennarar, svo að alls munu hafa setið landsfundinn rúmlega 250 manns. Formaður bauð gestina vel- komna, Fostervoll kennslumála ráðherra og Einar Boyesen stjórnardeildarstjóra, og svo aðra gesti, þ. á. m. írá hinum norrænu löndunum, Danmörku, íslandi og Svíþjóð. Formaður harmaði, að enginn væri mætt- ur frá Finnlandi. Gjaldeyris- vændræði* ollu því. Frá Dan- mörku og Svíþjóð voru tveir fulltrúar frá hvoru landi. Gestirnir þökkuðu og fluttu stutt ávörp, þ. á. m. jeg frá ís- landj. Þcnnan morgun var rætt Um einkamál fjelagsins, skýrslu miðstjórnar; reikninga, launa- mál o. fl. Borgarstjórnin í Bergen bauð nokkrum gestum í hádegisverð á Grand Terminus, og sátum við þar í stórveislu frá kl. 1 V> —5. Forseti borgarstjórnarinn- ar stjórnaði hófinu. Þar var kennslumálaráðherrann og fleiri herrar frá Oslo úr kennslu málastjórninni, stjórn kennara- fjelagsins, útlendu gestirnir og örfáir aðrir. Undir borðum róm uðu þeir mjög viðtökurnar á Snorrahátíðinni á íslandi, bæði kennslumálaráðherra. f orseti borgarstjórnar í Bergen og fleiri, sem höfðu verið við há- tíð’ahöldin og nú voru þarna staddir. Eii jeg gat nú sagt ið sama fyrir mig í Bergen, því að allar viðtökur þar voru með þeim á- gætum, að jeg fæ eigi ofsögum af því sagt. í þessum hádegisverði tóku þátt um 30 menn og konur. Þar var allt ríkulega fram reitt, og skorti hvergi á það, sem er fín asta krydd hverrar veislu, en það er alúð veitandans, vinsam legar og skemmtilegar viðræð- ur og góðra og menntaðra manna þægileg viðuivist. Um kveldið, stundu fyrir nátt mál, hjeldu kennararnir í „Norsk lektorlag" í Bergen öll um fundafulltrúum og gestum mikla veislu á Grand Hotel. Var þar fjörugt samkvæmi, veiting ar ágætar, ræður margar og bráðskemmtilegar, og veislu- stjórinn, yfirkennari eins menta skólans í Bergen, fyndinn og fjörugur. Einkenndi hann bæði urbanitas og humor. Mikill söng ur var í hófinu. Voru þar t.d. sungnir þjóðsöngvar allra Norð urlanda (okkar þjóðsöngur í þýðingu), og dáðist jeg að því, hve vel þeir höfðu æft lagið við hann. Mjer hlýnaði um hjarta- rætur, enda var jeg þar í góðra vina hóp —- og yfirleitt gerðu Norðmenn hlut íslands mjög góðan þessa funda og sam- kvæmisdaga, svo sem anríarra landa, er þar áttu fulltrúa. Sunnudaginn 10. ágúst var ekið með okkur gestina og aðra fundarmenn til Fana, ofan við Bergen. Var okkur sýndur bú- staður Chr. Michelsen, er var forsætisráðherra, þegar skilnað urinn fór fram milli Noregs og Svíþjóðar 1905, og Norðmenn telja frelsishetju sína. Er hús Michelsen nú þjóðareign, var gefið ríkinu og hefir konungur það til umráða og dvelst þar stundum. Heitir það Gamle- haugen. Ennfremur sáum við hús Edv. Griegs, tónskáldsins mikla, Trollhaugen, sem nú er varðveitt sem Grieg-safn. Þar fór fram einsöngur. — Um- hverfi þessara húsa beggja er heillandi, standa hátt, skógur í kring, og útsýn mikil og fögur Enn sáum við Fantoft staf- kirkju við Birkilund. Hún er frá 12. öld, áður hof. — Þennan dag, eins og alla aðra, sem jeg dvaldist í Bergen, var hiU og sólskin. Seinnipart dagsins var lands- fundinum haldið áfram, og flutti Eivind Esp rektor í Kongs berg, erindi, er hann nefndi „Bort med lekse- og höreskol- en“. Esp er kunnur í Noregi fyrir að vera róttækur í skólamálum á þann hátt, að gagnrýna mjög yfirheyrslur og lexíulærdóm í skólunum. Hann benti á, að nauðsyn bæri til að breyta skól unum. Nú væru þeir prófstofn arnir. Allt væri miðað við að fá góð próf, troða miklum fróðleik í nemendurnt,, en lítið væri gert til þess að ala þá upp til sjálfs- ábyrgðar. Aðalatriðið væri að undirbúa nemendurna til þess að fullnægja þeim kröfum, sem gera bæri til borgara í lýð- írjálsu landi, að gera þá að dug andi mönnum. Ef þetta ætti að takast, yrði kennclan að vera fólgin í því að temja hemendum starfsvenjur ala þá uppitil sjálfs stæðrar hugsunar, gefa þeim víðari sjóndeildarhring en nú, fá þá til þess að reyna að þekkja sjálfa sig, gera þá að sjálfstæð um og frjálsum mönnum, með áhuga á fjelagsmálum þjóðar sinnar. — Ræðumaður gagn- rýndi kennarana, taldi, að þeir væri fjarri lífinu, þeir vildu alltaf vera að gefa einkunnir. Með því móti komast r.emendurn ir að þeirri niðurstööu, að hlut- verk kennaranna sjo að sýna fram á illa lærðar lexíur. Svo er mest um vert að leika á kenn- arann! Skóiinn freistar þannig nemendanna til þess að nota ó- heiðarleg hjálpargögn. — Lát- um kennsluna vera í samtölum og umræðum um viðfangsefnið. Ræðumaður telur, að bogið sje við grundvöll eir.kunnagjaf arinnar, þegar einungis sje byggt á hæfiieika nemendanna til þess að segja sem nánast frá því, sem þeir hafa lært (re- ferere). Dugandi nemendans ætti að mæla eftir næfileikum hans til að hagnýta viðfangs- eða námsefnið og skilja það. Ræðumaður vill frjálsari kennsluform með ábyrgðina hjá nemandanum sjálfum. Skólinn á að þroska góða skapgerð (karaktera), en ekki gefa karaktera (einkunnir). — Svo mörg voru þau orð hjá rektor Esp. — Eins og kennar ar sjá, þeir sem þetta lesa, er ekki beinlínis um neitt nýtt að ræða í erindi rektorsins. Þetta höfum við oft heyrt áður, og enn sem fyrri — og þá einnig á landsfundinum í Beigen — var mikið rætt um þessi sjónarmið, og skoöanir mjög ólíkar. Hvern ig á t.d. að koma við umræðum milli kennara og nemenda um námsefni eins og latneska mál- fræði? Sumt er vissulega rjett og gott í gagnrýni Esps rek- tors á inum æðri skólum vorra tíma en annað er lika öfgakennt og óframkvæmanlept. Nýjar hugsanir og ný sjónarmið eru vissulega nauðsynleg á sviði kennslunnar ekki síður en ann ars stáðar, en það verður að prófa nýjungarnar og rannsaka, áður en gleypt er við þeim. Það kom fram i umræounum, sem voru langar og allnarðar, að talsvert margir efuðust um, að in „frjálsu form“ í skólunum, sfem Esp rektor benti á og mælti með, myndu leiða til góðs fyrir nemendurna. Erindi þetta og umræður voru mjög hressileg ar og átti Esp rektor marga samherja meðal rektorá og lektora fundarins. Rektorinn hjelt þvr fram, að kennslufyrirkomulagið í skólun um yrði að breytast þannig, að meiri ábyrgð væri lögð á herð- ar nemendunum en nú, og n.yndi það hafa í för með sjer meira líf og fjör í starfinu af hálfu neiT'.Qiirlanna. Aðalatriðið er þetta: Skólinn á að ala nem- endurna upp til þess að verða sjálfstæðir og dugandi menn. Mánudaginn 11. ágúst íóru fundarmenn með skipi kringum Aslrey, og tók sí ferð nálega fjórar ldukkustundir, og var hún einkar skemmtileg. Veðrið var bjart; hlýtt og stillt. Sam- ferðamennirnir glaðir, fræðandi og alúðaríullir. Seinni part dagsins var fund inum fram haldið í Sydneshaug en skóla. Voru þar fundir í deildum. Einn meðal kennara í norsku, annar meðal kennara í eðlisfræði og loks sameiginlegur fundur um landafræði. Kennslu tímum hefir verið fjölgað í landafræði upp á síðkastið. Um kveldið var jeg boðinn til And- ers Seim, rektors í Bergen, með nokkrum kollegum, og var for- kunnarvel tekið. Var það á- nægjuleg kvöldstund. . Þriðjudaginn 12. ágúst var eingöngu rætt um ir.nanfjelags mál á landsfundinum, en um kveldið bauð fjelagið „Norsk lektorlag“ okkur gestunum til veisla uppi á Floyen, og fjöl- menntu fúndarmenn þar, en Floyen er fjall fyrir ofan bæ- inn. Þar uppi á brúninni er veit ingahús mikið, og eru þar iðu- lega haldnar veislur. Útsýn af Floyen yfir borgina er mjög fögur. Upp er farið með vögn um, sem ganga eftir afarbrattri sporbraut. Þarna uppi á Floyen var mik- ill söngur yfir borðum og marg ar ræður fluttar. Við gestirnir urðum að flytja þar stuttar ræð ur. Veislustjórinn var með af- brigðum skemmtilegur. Fyndn- inr.i rigndi niður yfir okkur. — Eítir veisluna var stiginn dans til kl. 2i/2 unr nóttir.a. Miðvikudaginn 13. ágúst var haldið áfram deildarfundum í Sydneshaugen skóla. Voru þar sjer í flokki enskukennarar og stærðfræðikennarar í öðrum. Svo var sameiginlegur lokafund ur eftir hádegið. Kvaddi jeg þár — og rnælti þá á íslenska tungu, af því að ýmsir fundar menn höfðu beðið mig að flytja einhverntíma, áður en við skild um, stutta ræðu á íslensku. Jeg talaði hægt og skýrt, og sögðu mjer margir á eftir, að þeir hefðu skilið vel orö mín. Eigi fæ jeg lokið við þessa grein, nema geta innar einstöku gestrisni, sem kollegarnir í Bergen sýndu okkur gestunum og öllum aðkomumönnum. Undirbúningsnefndinni í Berg en hafði með ágætum tekist að tengja saman veislur, ferðalög og fundi. Starfsskránni var fylgt út í ystu æsar. Gætt var ítrustu stundvísi. Einstök alúð og gamansemi var hvarvetna á takteinum. Það kom fram í umræðunum, að ræðumennirnir voru sjer meðvitandi sinnar þjóðfjelags- legu ábyrgðar og vildu sem best gegna því hlutverki, «em þeir hafa tekist á her.dur fyrir þjóðfjelagið. Alls staðar varð maður var ins sama í Noregi: Athafnaþrá in og starfsviljinn var vakandi og samvinnuhugurinn sterkur og einbeittur. Glaðir og reifir munu Norðmenn, með áhuga sínum, tápi og vakandi vilja til alpjóöarheilla, lækna sárin fyrr en flestar eða allar stríðsþjóð- irnar og hefja land sitt og þjóð til gæfu og gengis á ný. Það er hollt og hressandi að gista slíka þióð. Jeg þakka „Norsk lektor- lag“ fyrir ina ógleymanlegu daga í agústsólinni í Björgvin, (Framhald á bls. 8)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.