Morgunblaðið - 14.09.1947, Page 5

Morgunblaðið - 14.09.1947, Page 5
í Sunnudagur 14. sept. 1947 MORGUNBLAÐIÐ 5 ’ Liicilii um IjeiaqsSieimlSI & '*lU Blekkingar framsóknar- manna hraktar FRAMSOKNARMENN hafa lagt á það mikla áherslu að eigna sjer framgang laganna um fjelagsheimili. Hafa marg- ar greinar verið skrifaðar um það í Tímann, þar sem farið er fögrum orðum um þá tniklu baráttu er Framsóknar- menn hafa háð fyrir þessu máli! Hjer á síðunni hefur verið bent á blekkingar Timamanna í máli þessu og hversu auðvirði- legur hlutur þeirra er í því. Verður hjer enn bent á nokk- urar staðreyndir og rógur Tím- ans hrakinn. Daníels-þáttur. Daníel Agústínusson ritar ný lega grein í Tímann, er hann nefnir „Málefnaþjófnað og sögufals“ og bregður ungum Sjálfstæðismönnum um hvoru- tveggja í sambandi við löggjöf um fjelagsheimili í sveitum. í grein sinni reynir hann að sanna þetta, en tekst það næsta óhönduglega, enda þótt hann be:'i „sögufalsi“ í þeim til- ge.ngL Greinarhöf. skýrir frá flr 'u því, er fram hefur kom- ið ' bessu máli af hálfu Fram- só' 'rflokksins, i’þróttanefndar rí’ : ’ ns og ungmennafjelag- ar ir hann íþróttanefnd hafa rr öetta mál og kveðst Dan- íe’ : Tan hafa skrifað grein í T; n um. þetl-r málefni 1P. jv’ ' "345. Mun hann telja grein sí " fyrstu röddir.a, er fram kf r um styrk frá hinu op- ir a um fjelagsheimili. Þá sl >r greinarhöf. rjettilega frá á!—a ungmennaíjelaganna í rr' ; þessu og bendir á ágæta gr ' \ er Skinnfaxi flutti um þr árið 1945. f '"an ræðir hann um „Þátt fr. ’"sóknar“ og skýrir frá því, að rválið hafi fyrst verið rætt innrn Framsóknarflokksins á flokksþingi 17. apríl 1944 og síðar í þingflokknum 25. febr. 1946. Þá getur Daníel þess að fulltrúarúðsfundur S. U. S. hafi samþykt seint í maí 1946“ að nauðsynlegt sje, að hið opin- bera styrki fjelög og fjelags- samtök æskunnar í sveitum landsins til að koma sjer upp fjelagsheimilum tu afnota fyr- ir starfsemi sína“. Hjer skýrir hann rjett frá að óðru leyti en því, að þetta var ekki í fyrsta sinn sem þetta mál var rætt á sambandsþingnm ungra SjálfsttæSismanna. Fmmkvæði S. U. S. Á sambandsþingi S. U. S. er haldið var á Þingvöllum 18.— 20. júní 1943 var samþykkt svo hljóðandi tillaga: „7. þing S. U. S. haldið að Þingvöllum og Reykjavík 18.— 20. júní 1943, telur nauðsyn bera til þess að skapa æsku . gveitanna betri skilyrði til fje- lagslífs en nú er. Skorar því þingið á Alþingi og ríkisstjórn að styrkja eftir megni þau æskulýðsfjelög, er vinna að því að reisa samkomuhús í sveitum landsins og telur æskilegt, að athugað sje, hvort eigi sje auð- ið að haga þeim framkvæmdum svo, að jafnframt sje hægt að nota húsin sem skólahús. Lítur þingið svo á, að bætt skilyrði æskunnar í sveitum landsins, til þess að halda uppi lírænu fjelagsstarfi, geti átt sinn þátt í því, að takmarka strauminn úr sveitunum til kaupstaðanna. Þessi ályktun kemur því fram ári áður en að flokksþing Fram sóknarflokksins hrcyfir málinu og tveimur árum áður en að Daníel Ágústínusson finnur sig tilkallaðan að skrifa um málið. Skrif ungra Sjálfstæðisnianna um málið. í grein, er Siggeir Björnsson, Holti á Síðu, skrifaði á Sam- bandssíðu S. U^ S. í Morgun- blaðinu í maí Í944, segir m. a. um þetta mál: „Ollum þeim, ei kunnugir eru í sveitum landsins, er kunn ugt hversu mikill hnekkir öllu góðu fjelags- og rkemmtanalífi það er hve óvíða er þar kostur á góðum samkomuhúsum, það húsnæði, er fjelögin verða víð- ast að búa við, eru kaldir og óvistlegir timburkofar. Einn salur, og þegar best lætur eitt eða tvö önnur herbergi. Bún- ingsklefar engir og aðstaða til veitinga erfið. Er hin mesta nauðsyn iað bæta úr þessu og þarf ríkið að styðja hlutaðeigendur til þess, að leysa þetta mál. Hjcr er ekki farlð fram á, að ríkið byggi fyrir fjelögin, held- ur að það styrki og örfi þau, til þess að hrinda þessu nau- synjamáli í framkvæmd og sýni þannig skilning og aðstoð við það ómetanlega menningar starf, sem unnið er, og hafið hefir verið af hálfu t. d. ung- menna- cg kvenfjelaganna í sveitum landsins við hin erfið- ust sldlyrði“. Á áttunda Sambandsþingi ungra Sjálfstæðismanna er hald ið var í Reykjavík 13.—19. júní 1945, var þetta mál enn þá tek- ið fyrir og gerði þingið eftir- farandi ályktun: ’ „Áttunda Sambandsþing ungra Sjálfstæðismanna telur nauðsyn bera til að bæta starfs skilyrði sveitaæskunnar. Skor- ar þingið því á rikisstjórn og Alþingi að hlutast til um, að ungmennaf jelög og önnur menn ingarsamtök geti íengið hag- kvæm lán og stuðning þess opin bera til þess að koma sjer upp samkomuhúsum, þar sem það verður talið hagkvæmast fyrir fjelagsstarfsemi í viðkomandi sveitum“. Þetta ætti að nægja til að sanna hverjir það voru, er áttu frumkvæði að framgang þessa máls. Auðvirðileg framkoma. Framsóknarmenn fengu fyrst verulegan áhuga á málinu, eft- ir að Sjálfstæðismenn höfðu fengið það samþykt á Alþingi. Þeir hafa því gert sig bera að málefnaþjófnaði og helgað sjer mál, er aðrir hafa barist fyrir og komið fram og treysta svo á það, að ef þeir endurtaki sömu lygarnar nógi oft, þá fari fólkið að trúa. En margar grein ar má Daníel Ágúst- ínusson og álíka heiðarlegir menn skrifa í Tímann um þetta mál, áður en að þjóð- in fer að trúa því, að Fram- sókn hafi átt þar eitthvað frum kvæði, eða haft þar einhvérja forustu. Ánægjuleg ferð Hehndelllnga á Snæfellsnes Heimdallur, fjelag ungra Sjálfstæðismanna efndi til kynn is- og skemtiferðar á Snæfells- nes um síðustu helgi. Lagt var af stað úr Reykjavík kl. 3 e. h. á laugardag og ekið upp í Ölver — skemtistað Sjálfstæðismanna á Akranesi. Veður var mjög gott, logn og sólskin og notuðu Heimdellingar sjer veðurblíðuna og gengu um nágrennið og skoðuöu hið fagra umhevrfi. Um kvöldið var svo farið á dansleik, er haldinn var í Reykholtsdal, en farið þaðan aftur í Ölver og gist þar um nóttinaa. Á sunnudagsmorgun kl. 10 var lagt af stað úr Ölver og komið til Stykkishólms um kl. 2. Var þar verið, það sem eftir var dagsins og fram á nótt og tekið þátt í aðalfundi Sambands ungra Sjálfsttæðismanna í sýslunni og hjeraðsmóti, sem Sjálfstæðismenn hjeldu þar um kvöldið. Farið var heim á mánu dagsnótt og komið til Reykja- víkur kl. 8 á mánudagsmorgun. Ferð þessi tókst í alla staði mjög vel pg var öllum þeim, er tóku þátt í. henni til hinnar mestu ánægju. Öflug flokksstarfsemi ungra Sjálfstæðis- manna á Siglufirði UNGIR Sjálfstæðismenn á Siglufirði hafa haldið uppi mjög fjölbreyttri og áhrifaríkri starfsemi í sumar. Hefur með- limatala fjelagsins margfaldast og er greinilegt að unga fólkið á Siglufirði hefur alveg snúið bakinu við hrunstefnu kommún ismans og skipað sjer í raöir hannar frjálslyndu og þjóð- ræknu íslensku áesku er vill sameina þjóðina til djarfhauga scknar fyrir betri lífskjörum og meiri menningu. Ungir Sjálfstæðismenn hafa gengist fyrir mörgum skemmti og útbreiðslusamkomum, er. vel hefur verið til vandað, enda hafa þær allar verið fjölsóttar. Fjelagið hefur einnig efnt til ferðalaga má þar m. a. nefna ferð til Skagafjarðar og Akur- eyrar. Ungir Sjálfstæðismenn hafa líka skrifað mikið í „Siglfirð- ing“ blað Sjálfstæðismanna á Siglufirði og haldið þár uppi stöðugri sókn á hendur andstæð ir.gunum, er mjög hafa kveink að sín undan skrifum þeirra. Hefur útbreyðsla blaðsins auk- ist mikið, enda hefui það verið vel skrifað. Hjer er birt stutt grein er nýlega birtist á Síðu ungra Sjálfstæðismanna í „Siglíirð- ingi“. Þeir, sem undanfarið hafa lesið málgögn kommúnista jafn aðarmanna og ímyndaðra fram 'sóknarmanna, hafa tekið eftir. því, að miklum hluta af blað- kosti sínum hjer á Siglufirði hafa þeir eytt í skammir út af skrifum blaðsins „Siglfirðing- ur“. Okkur er hjer gerður meiri heiður en við gátum gert okk tir vonir um að verða aðnjót- a'ndi af hendi þessara manna og óskum við af heilum hug, að slíkt haldi áfram. Taugaóstyrkur þoirra mun vera tilkominn af því að ungir menn hafa ritað mikið í blaðið en þó ekki ritað það eingöngu eins og þeir vilja halda fram, en jeg vil þó þakka þeim fyrir það álit, sem þeir virðast hafa á okkur F.U.S.-meðlimum. Ekki er það undarlegt, þótt flokkar þessir sjeu hræddir um framtíð sína, þar eð allir \’ita, að það er undir æskunni kom- ið, hvernig íramtíð hvers flokks verður, og þar sem æskan hef- ur ekki viljað fylkja sjer undir merki þessara flokka af eðlileg- um ástæðum, er það engin furða þó að „pabbarnir“ i flokkum þessum sjeu orðnir taugaóstyrk ir yfir fylgisleysinu meðal æsk- unnar. Það er nú þannig komið hjer, að Framsóknarflokkurinn á ekkert fylgi meðal æskunnar og jeg efast um, að hann eigi hjer einn einasta æskumann eða konu undir 25 ára aldri. Kotnm únistar eiga mjög litlu fylgi að fagna, eins og vera ber, meðal æskunnar hjer. Jafnaðarmenn eiga hjer nokkru fylg i að fagna, en það er þannig, að þeir geta hvergi „flaggað“ með því. Æskan hefur skilið að ef hún vill eiga bjarta og gæfuríka framtíð á hún að fylkja sjer í flokk sinn, Sjálfstæðisílokkinn. Það er flokkurinn sem mest og best hefur barist fyrir gæfu- ríkri framtíð æskunnar. Það er flokkurinn, sem barist hefur mest og best fyrir stofnun lýð- veldis á Islandi og fyrir áfram haldandi velgengni þess inn á við og út á við. Hann er eini flokkurinn, sem berst fyrir því a.ð stjett vinni með stjett, gagn stætt hinum flokkunum, sem vilja að stjett vinni gegn stjett. Þetta hefur þjóðin skilið, og þess vegna er Sjálfstæðisflokk- urinn lang stærsti flokkur lands ins. Þetta hefur æska landsins skilið, og þess vegna er lang mesti hluti hennar í fjelögum ungra Sjálfstæðismanna. • •miiiMiumimiHiinuiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiietiiiiiiiKit* 5 manna | Ford ’35 I í rierstaklega vel með far- j 1 inn, nýsprautaður og vel- j I útlítandi, er til sölu og = sýnis Bergstaðastræti 53, i kl. 3-7 e. h. 5 1 tiiunimnii«iiii»iiiiiimiMiiiiiiitm»»""ii""iM"Hii"tM» 1*i»w"'"<i»n»nM"iirnmnim«iiiaiuitinníHiijaBi«im j BókaBnereaa ( j Sjómannablaðið Víking- | ; ur til sölu frá byrjun. 8 | | fyrstu árgangarnir í hand I | bundnu skinnbandi. — | i Fyrsta flokks eintak. Vænt | I anlegum tilboðum sje skil \ í að til afgr. Morgunblaðs- | | ins. — | (M"MII»MM«»»»"0"t"t""c«»*l"*,l“,,,,U,U,,,,,,,,,,,,,,,,| BókamenBi* i Ef yður vantar í bóka- 1 skápinn Sjómanablaðið | Víking frá byrjun, þá | sendið tilboð til afgr. Mbl. \ 8. fyrstu árg. í hand- i bundnu skinnbandi. — i Fyrsta flokks eintak. i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.