Morgunblaðið - 17.09.1947, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 17.09.1947, Blaðsíða 12
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói: 30 ARA AFMÆLI Verslun lýtt met í beihlaupi Á INNANFJELAGSMÓTI Knattspyrnufjelags Reykjavík- ur, er haldið var í gærkvöldi, setti boðhlaupssveit fjelagsins nýtt ísl. met í 4 x 200 metra hlaupi. Tími sveitarinnar var 1:32,4 mín. Gamla metið sem í. R. átti var 1:32,7 mín. í sveit K. R. eru: Pjetur Sig- urðsson, Trausti Eyjólfsson, Magnús Jör.sson og Ásmundur Bjarnason. Heigafellsútgáfan gefur Barnaspílaía- sjóðnum HELGAFELLSÚTGÁFAN hef- ur ráðgert að gefa út framvegis fyrir jólin árbók fyrir börn, og verður efni hennar eingöngu valið úr prentuðum blöðum og bókum, jöfnum höndum bund- ið og óbundið mál, sem mest var haft um hönd í æsku þess fólks, sem nú er 40—60 ára. Bók þessi ber nafnið ,,Jóla- bókin“ og verður efnið að þessu sinni valið af Sigurjóni Jóns- syni lækni, ásamt útgefanda, en myndirnar allar gerir Halldór Pjetursson, listmálari. 5000 krónur af brúttó ágóð- anum af sölu bókarinnar vill forlagið bjóðast til að afhenda Hringnum, sem lítinn stuðning, til þess að koma fram þeirri hugsjón fjelagskvtnnanna, að reisa hjer veglegan barnaspít- ata. I þetta sinn verður haft eitt- hvað af auglýsingum aftan við bókina, og fylgir hjer með önn- ur ávísun að upphæð kr. 2,500, ágóði af auglýsingum. Vinnuveitenduf í Hafnarfirði segja upp samningum VINNUVEITENDAFJELAG Hafnarfjarðar og Hafnarfjarð- arbær, hafa fyrir nokkrum dög um síðan sagt upp samningum sínum við Verkamannafjelagið Hlíf þar í bæ. Samningarnir ganga úr gildi þann 15. októ- ber næstkomandi. Flugvjel Trumans í Kefiavik EINKAFLUGVJEL Trumans Bandaríkjaforseta kom til Kefla víkurflugvadar í gær. Flugvjel forsetans heitir The Indepen- dent og er hún nokkru stærri en Skymasterflugvjelarnar. 21 maður er með flugvjelinni. Komu þeir hingað frá Græn- landi og hjeldu áfram til Banda rikjanna í nótt er leið. Meðal manna þeirra er með flugvjel- inni komu, voru nokkrir hers- höfðingjar, þeirra á meðal yfir- maður ATC Harter hershöfð- íngi. Biðröð í Bankasfræti I \ S 4 > Dömubotnsur komu í Skóverslunma Skórinn í gærmorgun. KSukkan 7 byrjuöu konur hjer í hœnum að hópnst í'raman við verslunina. Biðröðin lengdist stöðugt og um kiukkan 9 náði hún nokkuð upp efiir Skólavörðustíg, eins og sjá má af mynd þessari. (I.jósm. Sig. Norðdahl). Fundarhlje á stjettaráð- stefnunni vegna nefndarstarfa STJETTARÁÐSTEFNAN, sem ríkisstjórnm kallaði saman til fundar s.l. fimmtudag 11. þ.m., hefur nú þegar haldið marga fundi. Hafa fleiri eða færri ráðherrar venjulega setið þá. Hefur ráðstefnan nú gert hlje til nefndarstarfa. Þegar ráðstefnan hófst, lagði ríkisstjórnin fram ýms gögn og upplýsingar fýrir hana, um nú verandi ástand í framleiðslu og gjaldeyrismálum þjóðarinn- ar. Síðan hafa fulltrúarnir ra:tt þessi mál, með hliðsjón af á- minstum gögnum, sem og því er ráðstefnan hefur aflað sjer til viðbótar, síðan hún hófst. Síðdegis í gær, var almenn- um umræðufundum ráðstefn- unnar frestað, og kosnar þrjár nefndir, til þess að kryfja ræki lega til mergjar hin ýmsu mál, sem hjer koma til greina, ef leysa á þann mikla vanda er leysa þarf. Samtímis var þess óskað, að ríkisstjórnin láti rannsaka sjer stök mál í þessu sambandi. Að lokurrt var fundarstjóra ráðstefnunnar, Ólafi B. Björns syni, falið að kalla ráðstefnuna saman að nýju, þegar hann teldi henta með hliðsjón af framansögðu. Ármenningur vann 10 km hlaupið MEISTARAMÓTI íslands í frjálsum íþióttum lauk í gær- kvöldi. Var þá keppt í 10 km. hlaupi. íslandsmeistari vai'ð Sig urgeir Ársælsson úr Glímufjel. Ármann. Hljóp hann vegalengd ina á 35:49,6 mín. HliS fyrir dollnra BELGRAD: — Tító marskálkur hefur sagt svissneskum blaða- mönnum, að hann sje feginn, að Sviss er þátttakandi í áætlun Marshalls. Hann sagði, að hann vonaði að fyrir bragðið myndi nokkuð af dollurum slæðast inn í Júgóslavíu frá Svisslandi. Handknaitleiks- flokkar í R fii Akureyrar NÆSTKOMANDI föstudag fara hjeðan til Akureyrar hand knattleiksflokkar fiá í. R. Það eru meistarafl. karla og meist- arafl. kvenna, sem taka þátt í þessari för. Handknattleiksráð Akureyr- ar sjer um móttökur I. R.-ing- anna og sömuleiðis um keppn- ina. í l^venflokki keppa I. R.- ingarnir við kvennalið „Þórs“, en í karlaflokki keppa þeir við úrval bæði úr K. A. t>g Þór. Kept verður bæði á laugardag og sunnudag. Spilað verður úti báða dagana og verður leiktími í karlaflokki 2x25 mín. en í kvenflokki 2x15 mín. í. R.- ingarnir munu koma aftur hing að til bæjarins á mánudags- kvöld. Fararstjóri þeirra er Sigurður Magnússon, en með þeim fer einnig þjálfari þeirra, Hennig Isachsen. „Englandsfararnir" sýndir i Tjamarbíó SÝNINGAB eru nú hafnar að nýju í Tjarnarbíó á hinni norsku stórmynd: Englandsfar arnir. Svo sem kunnugt er var myndin sýnd hjer í Beykjavík nú í sumar, en síðan hafa farið fram sýningar á henni um því nær land allt. Sýningarnar hafa verið vel sóttar, enda er myndin vel þess virði og málefni það er inn- gangseyri er varið í. Tvö slys í gær — Fimm menn slasast ---------------- 1 Bíl hvolfir og bifhjóli ekið úf af héum vegkanti. I GÆBDAG urðu tvö umferðaslys. Annað austur á svo-< nefndum Bolaöldum. Þar hvolfdi fólksbíl er í voru 2 karlmenn; og ein kona. Konan og annar mannanna, slösuðust og voru; bæði flutt í sjúkrahús. — Hitt slysið var á Ilafnarf jarðarvegL Bifhjól, sem á voru tveir karlmenn og ein kona ók út af veg* inum og meiddust öll sem á hjólinu voru meira og minna. Bolaöldum Þekktir listamenn koma til Reykjavíkur MEÐ Dr. Alexandrinu koma til landsins 3 erlendir fjölleika- menn. Einn af þeim, Speedy Larking er fjölleikamaður á heimsmælikvarða, ei hefur sýnt listir sýnar í flestum stór- borgum heims, m.a.: New York, Berlín, París, Breslau, Varsjá, Stokkhólmi, Oslo, Amsterdam, Buenos Aires, Kaupmannahöfn og víðar. Meðal fjölleikahúsa, sem hann hefur sýnt í eru: China Varietén, Stokkmólmi, Ambassadör, Kaupmannahöfn, Wintergarten, Berlín og Madi- son Square Garden, New York, er tekur 18,500 tilheyrendur. — Speedy er vel þekktur frá danska og ameríska útvarpinu. Dönsk og sænsk blöð tala um Speedy, sem stórbrotinn lista- mann og snilling. Fyrir nokkr- um árum hrósaði Hcover, fyrr- verandi Bandaríkjaforseti, Speedy fyrir framúrskarandi listamannshæfileika. Með hon- um kemur f jölleikaparið Tonny og Ronny (2 Ronnys), er hafa sýnt á bestu fjölleikahúsum Kaupmannahafnar. Kabarettsýningar munu hefj- ast föstudaginn 19. þ. m. og starfa að þeim, auk erlendu fjölleikamannanna, harmoniku- snillingurinn Einar Sigvalda- son, Baldur Georgs, töframað- ur. Ljósameistari verður Hall- grímur Bachmann. Hljómsveit Gunnars Jónssonar leikur á sýningunum. Knatfspyrnukapp- leikur á Akureyri KN ATTSP YRNUFLOKKUR frá ungmennafjelaginu Austra á Eskifirði er hjer á ferð um Norðurland og háði í gær knatt- spyrnukappieik við íþróttafje- lagið Völsungur á Húsavík. — Leikar fóru svo, að Völsungur sigraði með 4 mörkum gegn 1. Veður var gott. — H. Vald. Ógna með samvinnuslitum HAAG: — Fulltrúar verkamanna flokksins hollenska hafa ógnað með því, að þeir muni segja sig úr stjórnarsamvinnun'ni, ef hollenski herinn í Indónesíu fær fyrirskip- anir um að halda áfram árásum sínum. Slysið á Bolaöldum varð um kl, 2 í gærdag. Fólksbíllinn R-1271 var á leið til Reykjavíkur. Bíln- um ók maður að nafni Ingvar Jónasson til heimilis að Lamb- haga - í Rangárvallasýslu og skarst hann mikið á höfði. —* Stúlkán heitir Fjóla Guðmunds- dóttir, Þverveg 40 Skerjaíirði, Hún skarst á fótum og hand- leggjum. — Eigandi bílsins vafl ennfremur i bílnum, en hanrj slapp ómeiddur. Fór þrjár veltur Maður er var í vörubíl sínum við slysstaðmn hefur skýrt svo frá, að er bíllinn hafi nálgast, hafi hann sjeð hvar bílstjórinn misti stjóm á bílnum, snerist hann á götunni og fór yfir á vinstri vegarbrún, síðan yfir a hægri brún, rakst þar á vörubíl- inn og skemdi hann og kastaðist síðan fram af vegbrúninni. Fór bíllinn þrjár veltur áður erí hann stöðvaðist. Gísli Bjainason lögreglumað- ur á Selfossi fór fólkinu til að- stoðar og flutti það í Lands- spítalann. Var þar gert að sár- um þeirra Fjólu og Ingvars, en seinna voru þau flutt heim til sín. _ I A IIajnarjjaríiarvegi ' Slysið varð eitthvað á fimta tímanum. Tveir menn og ein kona komu brunandi á bifhjólinu X—-174 yfir Öskjuhlíðina og í hallanum fyrir ofan Þóroddsstaði kastað- ist hjólið út af veginum og kom niður í grjóturð. Þau sem á hjól inu voru slósuðust öll meira og minna. Voru þau flutt í Lands- spítalann, en ekki voru meiðslin svo alvarleg að ástæða þætti til að leggja nokkurt þeirra í spítal ann. Sá sem ók hjólinu heitir Böðvar Steinþórsson frá Minni- Borg í Grímsnesi. Farþegarnir. voru Arnbjörg Ingvarsdóttir, Eskihlíð C og Árni Magnússori til heimilis að sama stað. ^ Sigurður Jónsson varð númer sex. f 1 BRINGUSUNDI í Montq Carlo varð Sigurður Jónsson úrl KR sjötti maður af 17, sem kepptu. Ekki er vitað um tíma hans. Engar frjettir hafa borisf af Sigurði Jónssyni úr ’ Þing' eyjarsýslu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.