Morgunblaðið - 11.10.1947, Qupperneq 5
> 5 t I ’ ' ((!•'>'
MORGUNBLAÐIÐ
5.
1(33> >
Laugardagur lí. okt. 1047
„TÍIV1IMN“ ÞARF EKKIAÐ
VOLA VEGNA S. f. S.
Kaupfjelögin gera auknar
kröfur á erfiðum tímum
fiiaga um aukinn bensínskamt
á Eiækkuðu verði
-----—----- I
- i
10 miij. kr. tekjuauki fyrir ríkissjéð
í GÆR var lögð fram á Alþingi tillaga til þingsályktunar um
fyrirkomulag bensínskömmtunar og um söluskatt af bensíni til
einkabifreiða.
Flutningsmenn hennar eru þeir Ingólfur Jónsson og Sigurður
Bjarnason.
Þar er lagt til að einkabifreiðaeigendum verðj seldur auka-
skammtur af bensíni með hækkuðu verði, sem síðan verði tekið
með söluskatti í ríkissjóð.
Er tillagan á þessa leið:
------------------------«>
ÞAÐ er eftirtektarvert að á
sama tíma og viðskifti drag-
ast saman, hert er á öllum inn-
flutningshöftum og vörur skamt
aðar innanlands, skuli ,Tíminn‘
gera háværar kröfur um aukinn
innflutning handa kaupfjelög-
unum.
A tímum gjaldeyriseklu bið-
ur þetta blað um meiri vörur
handa samvinnufjelögunum —
meiri gjaldeyri, aukin fríðindi.
Blaðið kveinar og kvartar, bið-
ur og særir og jafnvel er haft
í hótunum af hálfu kaupfje-
laganna um að beita samtök-
um ef kröfur kaupfjelaganna
um aukna innflutningshlutdeild
nái ekki fram að ganga. Þetta
er lítill þegnskapur á tímum
alvarlegrar gjaldeyriskreppu.
Hverjir eyða gjaldeyrinum?
Eitt atriði í hinum þrálátu
árásum „Tímans“ á hendur
kaupmannastjett landsins er að
hún beri ábyrgð á gjaldeyris-
kreppunni Vitanlega er slíkt
fjarstæða. Gjaldeyriskreppan á
sjer margar orsakir og er ekki
hægt í því efni að skella skuld-
inni á nokkurn einstakan inn-
flutningsaðila. En það er alger
óþarfi af ,,Tímanum“ að hálda
því fram að S. í. S. hafi verið
afskift eða sje afskift um inn-
flutning.
A þessu ári gjaldeyriskrepp-
unnar sækir S. í, S. um að fá
aukinn innflutning á kostnað
annara innflytjenda og fær líka
mikið flutt inn.
I því sambandi er ekki öíróð
legt að athuga hvað S. í. S.
hefur flutt inn af aðeins einni
vörutegund — bifreiðum.
I Tímanum frá 18. júlí 1947,
er skýrsla Agnars Tryggvason-
ar framkvæmdastjóra vjela-
deildar S. I. S. Þar skýrir hann
frá biðreiðainnflutningi S. í. S.
á yfirstandandi ári og birtist
hjer megininnihald þess kafla:
„Um afgreiðslu á bifreiðum
er það að segja, að hún hefur
gengið treglega að því ér snert-
ir fólksbifreiðar, bæði frá
Bandarrkjunum og Bretlandi,
en upp á síðkastið hefir ræst
vel úr afhendingu vörubifreiða,
sjerstaklega Chevrolet vörubif-
reiða. Hafa á þessu ári komið
280 af þeim og 18 Bedford vöru
bifreiðar. Auk þess hafa verið
seldar, það sem af er þessu ári
70 nýjar Chevrolet herbifreið-
ar frá Bretlandi og 18 notaðar.
Samtals eru þetta 386 vöru-
bifreiðar. — — Til viðbótar
þessum 386 vörubifreiðum er
von á um 85 í viðbót frá Banda-
ríkjunum og um 12 frá Bret-
landi og eru hinar fyrnefndu
allar seldar samkvæmt leyfum,
sem kaupendur hafa afhent
Sambandinu. Afgreiðsla fólks-
bíla bæði frá Bandaríkjunum
og Bretlandi hefur hingað til
gengið mjög treglega. Hafa
ekki komið meira en 27 fólks-
bílar frá Ameríku, þar af 16
Chevrolet-bílar og 11 Buick-
bílar og 19 Vauxhall-bilar frá
Bretlandi það sem af er árinu.
— — Öafgreiddir eru um 85
fólksbílar frá Bandaríkjunum
allir út á leyfi. Frá Bretlandi
má gera ráð fyrir að komi 7
—18 fólksbílar í viðbót við þá,
sem þegar eru komnir. Hefur
Sambandið hingað til sjálft
fengið innflutnings- og gjald-
eyrisleyfi fyrir öllum breskum
vöru- og fólksbílum og ráðstaf-
að þeim án íhlutunar Við-
skiftaráðs eða Nýbyggingar-
ráðs.
Alls hafa verið seldar það
sem af er árinu 432 vöru- og
fólksbifreiðar og til ársloka eru
væntanlegar 170 bifreiðar alls.
Sala Sapibandsins á árinu 1947
verður því að líkindum um 600
bifreiðar“.
Svona stóðu þessi mál í júlí.
Af þes^um tölum um bifreiða
innflutning S. í. S. má sjá að
það fyrirtæki hefur síst af öllu
ástæðu til að kvarta undan því,
að hið opinbera afskifti það,
þegar um er að ræða þennan
innflutning. Það skal vitanlega
ekki dregið í efa að eitthvað af
þeim bifreiðum, sein taldar eru
fram, sjeu út af fyrir sig-nauð-
synlegar en fram hjá hinu verð
ur ekki gengið að þarna er um
stórfelda gjaldeyriseyðslu að
ræða. Auk þess má benda á það
sem Tíminn segir s.l. fimtudag
að talið er að bensíneyðsla nú
nemi að verðmæti um 6 milj.
króna á ári. Þess vegna hefur
verið gripið til mjög strangrar
skömtunar á bensíni,. en ekki
hefur ‘sú eyðsla minkað við
hinn stórfelda innflutnings SIS,
Tímanum ferst ekki að tala
iirai gjaldeyriseyðslu annara. —
Það er glöggt að S. í. S. hefur
í fylsta mæli aðgang að gjald-
eyrissjóðum landsmanna. Tím-
inn á eltki að vera að væla um
að S. I. S. sje nokkur hornreka.
Það er vafalaust rjett, sem blað
ið segir að S. í. S. hefur ekki
fengið til landsins allar þær
vörur, sem það hefði getað selt,
en það hafa aðrir innflvtjend-
ur heldur ekki fengið,
Það má geta þess, að áður
en innflutningshöftin hófust ár
ið 1931, eða með öðrum orðum
meðan verslun var frjáls, höfðu
kaupfjelögin ekki náð til sín
nema 10—12% af árlegum
heildarinnflutningi Á hafta-
tímanum, sem staðið hefur yfir
síðan, hefir sú hlutfallstala án
alls vafa stórlega hækkað,
enda er vitað mál að kaupfje-
lögin notfærðu sjer út í æsar
pólitíska aðstöðu sína í sam-
bandi við framkvæmd inn-
flutningshaftanna. Kaupfjelög-
in döfnuðu þegar höftin voru
ströngust en á sama tíma vegn-
aði öðrum innflytjendum ‘ver
og »,það er ekki að furða þó
..Tímanum" komi það undar-
lega fyrir sjónir, ef kaupfje-
lögin geta ekki einnig nú auk-
ið verslun sína á nýjum tímum
hafta og vöruskömtunar.
Verður Rex Slewart
að hætla við komu
sína hlngaði
LlKUR benda til, að hinn
heimsfrægi listamaður, blökku
maðuiánn Rex Stewart, sem
halda átti hjer jazzhljpmleika,
muni ekki koma hingað,' a.m.k.
ekki að sinni.
Þannig er mál með vexti, að
dómsmálaráðuneytið, hefur nú
ákveðið, að erlendir listamenn
skuli hvorki fá hjer landvistar-
nje skemmtanaleyfi. Með þessu
ætlar ráðuneytið að taka alveg
fyrir þann mikla straum alskon
ar listamanna sem verið hefur
hingað síðan í stríðslok. Lög-
reglustjórum um land alt mun
hafa verið falið að veita útlend
ingum engin skemmtanaleyfi.
Rex Stewart átti að koma
hingað á vegum Tage Aminen
drup verslunarstjóra hljóðfæra
versunarinnar Drangey. Höfðu
þeim Stewart og Ammendrup
samið svo, að Ammendrup
greiddi allan kostnað af ferð
Stewarts frá Bandaríkjunum til
Danmerkur og aftur heim til
Bandaríkjanna. Um dollárayfir
færslur vegna Stewarts er því
ekki að ræða. Undirbúningur
að komu Stewarts er fyrir
löngu hafinn.
Hvernig máli þessu lvktar
var ekki vitað í gærkvöldi. Blað
ið frjetti að hljóðfæraleikarar
hjer í bænum myndu bera
fram við dómsmálaráðherra ein
dregna ósk um að Stewart verði
veitt undanþága frá þessum
nýju ákvæðum, m. a. á þeim
forsendum að undirbúningur
að komu hans hafi fyrir löngu
verið hafinn.
Náist samkomulag um að
Stewart megi halda hjer hljóm
leika þá er búist við að hann
komi með Skymasterflugvjel-
inni Heklu n.k. mánudag.
Kyrehie í gærkveldi..
AF 28 MÖNNUMj sem voru
beðnir að athuga myndun nýs
ráðgefandi þings fyrir Cyprus,
voru fjórtán Grikkir sem neit-
uðu alveg, en aðeins sex Tyrk-
ir og átta Grikkir, sem tóku
boðinu. Lord Winster, land-
stjóri á Cyprus, sagði í dag, að
verið væri að athuga, hvort
gera ætti aðra tilraun til að
kalla saman ,slíkt ráðgefandi
þing. — Reuter.*
Alþingi ályktar að skora á
ríkisstjórnina að hlutast til um,
að þeim bifreiðaeigendum, sem
ekki nota bifreiðar sínar í þágu
framleiðslunnar eða í atvinnu-
skjmi, verði gefinn kostur á
að kaupa ákveðinn lítcafjölda
bensíns við hækkuðu verði. A
það bensín verði lagður sjer-
stakur söluskattur, sem renni í
ríkissjóð.
I greinargerð, sem fýlgir til-
lögunni er þannig komist að
orði:
Með tillögu þessari er lagt til,
að einkabifreiðaeigendum, sem
ekki nota bifreiðar sínar í þágu
framleiðslunnar eða í atvinnu-
skyni, verði heimilað að kaupa
aukinn skamt af bensini á hækk
uðu verði. Á þessa verslun verði
síðan lagður hár söluskattur, er
renni í ríkissjöO.
Útsöluverð á bensíni í Reykja
vík er nú 68 aura pr. lítra. í
innkaupi mun lítrinn hins veg-
ar kosta ca. 17 aura. Samkvæmt
tölum, sem fyrir liggja um
fjölda einkabifreiða, má telja
líklegt, að ef hámarkslítrafjöldi
til slíkra bifreiða yrði ákveðinn
200 lítrar á mánuði, mundi ben
sínnotkunin aukast við það frá
því, sem nú er ráðgert, um 500
—600 þús. lítra á mánuði. Það
þýðir aukna gjaldeyriseyðslu
um ca. 100 þús. kr. á mánuði
hverjum. Ef hið hækkaða verð
yrði 2 kr. pr. lítra á 600 þús.
lítrum, má gera ráð fyrir aukn-
um tekjum af sölunni, er næmi
alt að 900 þús. til einni millj.
kr. á mánuði, eða 10—11 millj.
kr. á ári. Þá upphæð telja flm.
rjett, að ríkissjóður taki í sinn
hlut með söluskatti.
Það, sem fyrst og fremst vak-
ir fyrir flutningsmönnum með
tillögu þessari, er að afla ríkis-
sjóði, sem nú berst í bökkum,
aukinna tekna á hagkvæman og
sanngjarnan hátt. Hjer er lagt
til, að á óþarfa eyðslu sje lagður
allþungur skattur. Að sjálfsögðu
kemur ekki til greina að selja
bifreiðaeigendum, sem vinna í
þágu framleiðslunnar eða hafa
bifreiðaakstur að aðalatvinnu,
bensín við slíku verði. Hins veg-
ar telja flm., að gera beri það,
sem unt er, til þess að tryggja
þeim nægilegt bensín við rjettu
verði.
Fólksaukning í Bandaríkj-
unum
WASHINGTON: — Tilkynt liefur
verið, að íbúatala Bandarikjanna
hafi verið um síðustu áramót 142,-
763,000, eða 2,279,000 fleiri en ár-
ið áður og ellefu milljónum hærri
en 1940.
AUGLYSING
ER GULLS IGILH
| IViáKverkasýnigxg
SIGURÐAR SIGURÐSSONAR
í Listamannaskólanum opin daglega frá kl. 10—10.
ASeins 3 dagar eftir
BÍLASKIPTI
% Nýr amerískur sendiferðabíll, yfirbyggður fæst í skipt-
um fyrir nýjan U. S. A. fólksbíl eða innflutningsleyfi.
<| Tilboð merkt: „Hagkvæmt" sendist afgr. Mbl. fyrir
þriðjudag.
EINKAUMBOÐSMAÐUR (heimagerður litur) ' |
Ein af stærstu verksmiðjum Noregs óskar eftir einka- I
umboðsmanni á Islandi. 4
»:
| PAKFARVEFABRIKKEN INDIGO, Rosendal, Norge. §
^niiflartningsleyfi j
w
T fyrir amerískri fólksbifreið óskast til kaups. — Tilboð •
T merkt: „H“, sendist afgr. Mbl. fyrir mánudagskvöld. j
\