Morgunblaðið - 22.10.1947, Side 1
34. árgangur 240. tbl. Miðvikudagur 22. október 1947 ísafoldarprentsmiðja h.f.
Sameinuðu þjóðirnarskipa nýja Balkannefnd
Norsku bæjarstjórnarkosningamar:
« ■ n ■
SÝNILEGT er nú, að borgaraflokkarnir norsku hafa bætt við
sig miklum fjölda atkvæða í bæjar- og sveitastjórnarkosningun-
um, sem fram fóru í Noregi s.l. mánudag. Hafa hægri flokkurinn
og borgaralegi sameiningarflokkurinn stóraukið fylgi sitt, en
l ommúnistar sýnilega tapað miklu. Fylgi alþýðuflokksins hefur
talsvert minkað.
Hjer fara á eftir tölur þær
yfir kosna fulltrúa, sem vitað
var unp eftir að búið var að
telja atkvæði í 375 kjördæm-
um, þar af 49 bæjum. Talan í
svigum sýnir samtals kðsna
fulltrúa í sömu kjördæmum
síðast er kosið var í Noregi.
Hægriflokkurinn 612 (414)
Vínstriflokkurinn 823 (666)
Borgaralegi same.fl. 860 (863)
Kristilcgi þjóðfl. 538 (493)
Ópólitískir og aðrir 610 (864)
Alþýðuflokkurinn 3100 (3277)
Kommúnistar 556 (667)
Bændaflokkurinn 657 (484)
Smábænd. og fiskim. 13 (63)
Kjörsókn var að þessu sinni
betri en við síðústu bæjarstjórn
arkosningar. Neyttu alls 75 af
hundraði atkvæðisrjettar síns,
en í Osló yfir 80 af hundraði.
Talningu atkvæða verður að
líkindum ekki lokið fyr en seinni
part dagsins í dag. En tölur þær,
sem hjer eru birtar, sýna ber-
lega, að fylgi kommúnista hryn-
ur nú sem óðast af þeim.
Sir Brian Robertson, hershöfð-
ingi, sem tekið hefir við stjórn
breska hernámssvæðisins í
Þýskalandi af Sir Sholto Dou-
glas.
Hefur hreinan meirihluta í korgarstjém
PARÍS í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
DE GAULLE hershöfðingi, mun á morgun (miðvikudag) birta
yfirlýsingu í sambandi við hinn glæsilega sigur flokks hans í
bæjar- og sveitastjórnarkosningunum á sunnudag. Urðu úrslit
kosninganna eins og kunnugt er þau, að flokkur hans, sem hann
kallar sameiningarflokk frönsku þjóðarinnar, varð stærsti flokk-
ur landsins, en það sæti höfðu kommúnistar skipað að undan-
förnu.
Fjórir stœrslu
Nákvæmari fregnir hafa nú
fengist af árangri kosninganna.
Arabar velja sjer
hershöfðingja
Virðasf sfaðráðnir í a8 hata S. i>. að engu
BAGHDAD í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
SAMKVÆMT góðum heimildum, hefur Fawzi el Kawakji,
foringi Arabauppreisnanna í Palestínu 1936 og 1939, verið kjör-
inn æðsti maður Arabahers þess, sem nú hefur verið stofnsettur.
Mun ákvörðun þessi hafa verið tekin á fundi Arabaríkjanna
sjö í Beirut.
Aðalbækislöð
Við fregn þessa er bætt, að
Taha A1 Hashima hershöfðingi,
fvrrverandi forsætis- og her-
varnamálaráðherra Iraq, verði
aðalráðunautur Kawakji, en
Damaskus mun verða aðalbæki-
stöð Arabaherjanna.
Stúdentar og hermenn flykkj-
ast nú undir merki Arabahers-
rns.
Þegar litið er á heildarútkomuna
kemur í ljós, að atkvæðin hafa
skipst á eftirfarandi hátt milli
fjögurra stærstu stjórnmáía-
flokkanna:
Atkv.
Sameiningarfl. De Gaulle 38%
Kommúnistar ............. 29%
Jafnaðarmenn ............ 19%
MRP (flokkur Bidaults) . 10%
París
París er meðal borga þeirra,
sem flokkur De Gaulles hetur
sigrað glæsilega í. Hlaut hann
52 af 90 sætum í borgarstjói n,
kommúnistar 25, jafnaðarmenn
átta og MRP fimm.
Vilja ekki samvinnu við
kommúnista.
PRAG: — Flokkur Socialdemo-
krata hefur tilkynt, að hann muni
ekki eiga stjórnmálalega sam-
vinnu við kommúnista. Þeir segja,
að hið nýstofnaða kommúnista-
bandalag' muni frekar spilla fyrir
lieldur en auka alþjóðasamvinnu.
----—--
Tsaldaris lýsir skipulögðum
árásum á Grikkland
FLUSHING MEADOWS, New York í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
ALLSHERJARÞING Sameinuðu þjóðanna samþykkti í kvöld
þá tillögu Bandaríkjanna, að stofnuð yrði ný rannsóknarnefnd
á Balkanskaga. Fjörutíu fulltrúar greiddu atkvæði með tillög-
unni, sex á móti en 11 sátu hjá. Áður en atkvæðagreiðslan fór
fram, höfðu þeir meðal annars tekið til máls dr. Evatt, utan-
ríkisráðherra Ástralíu og Constantin Tsaldaris, gríski utanríkis-
ráðherrann. Mæltu báðir ræðumenn eindregið með því, að þingið
samþykkti bandarísku tillöguna, en nefnd sú, sem fjallað hefur
um hana að undanförnu, er henni meðmælt. Rússar eru til-
lógunni bins vegar mjög andvígir og njóta þar fylgis leppríkaj
sinna.
--------------------,--------®
Brazilía slítur
Rússland
Reo de Janeiro í gærkvl
Einkaskeyti til Mbl.
frá Reuter.
UTANRÍKISRÁÐUNEYTI
Brazilíu tilkynnti í dag(. að
Brazilíustjórn hefði ákveðið að
slíta stjórnmálasambandi við
Rússland. Hafa Bandaríkin
fallist á að gæta hagsmuna
landsins í Sovjetríkjunum.
Talsmaður utanríkisráðu-
neytisins tjáði frjettamönnum,
að ákvörðun þessi hefði verið
tekin vegna svívirðilegra árása
rússneskra blaða á forseta
Brasilíu og her landsins.
Stjórnarvöldin í Brasilíu mót
mæltu árásum þessum í orðsend
ingu, sem Rússum var send, en
er það svar barst til baka, að
vegna óvinsamlegra ummæla,
sem í or,ðsendingunni fælust,
væri ekki hægt að taka hana
til greina, var rússnesku stjórn
inni tilkynnt, að Brasilía sæi
sjer ekki annað fært, en að
*
slíta stjórnmálasambandi við
Sovjetstjórnina. -—- Reuter.
Yerkíall í Skoflandi
London í gærkvöldi.
VERKFALL kolanámumanna
í Skotlandi breiðist nú ört út.
Voru það upprunalega um
6,000 menn, sem lögðu niður
vinnu, en í dag var tala þeirra
komin upp í 13,500.
Verkfallið hófst, er námu-
mönnum þótti ganga of seint að
afgreiða ■ kröfur þeirra um
launahækkun. — Reuter.
Spáir falli S. Þ., ef ...
Tsaldaris sagði meðal annars
í ræðu sinni: Ef fulltrúar alls-
herjarþingsins samþykkja ekki
tillöguna og viðhalda þannig
frumreglum stofnskrár S. Þ.,
mun stofnunin falla í rústir og
tapa trausti allra þjóða heims.
Slóttugri en fasistar.
Gríski utanríkisráðherrann
lýsti því yfir, að að tlrikklandi
steðjaði nú ný innrásarhætta,
en innrásarmennirnir væru
jafnvel slóttugri en fasistarnir
og nasistarnir á sínum tíma.
Nágrannarnir.
Nágrannar okkar í norðri,
hjelt hann áfram, starfa með
aðstoð fimtu hérdcildar, sem
þeir hafa komið á fót í Grikk-
landi. Innrás þessi stefnir að
því að sigrast á sjálfstæði okk-
ar. Á sama tíma sem þið heyrið
talsmenn þessara landa lýsa yf
ir sakleysi þeirra^ halda þau
áfram að senda meiri og meiri
vopn inn yfir' landamæri okkar,
vopn, sem notuð verða gegn
þjóð okkar. Konur, karlar og
börn falla fyrir þessum vopn-
um hvern dag, sem við eyðum
í umræður um málið.
Enginn friður í Grikklandi.
Evatt talaði á undan Tsaldar-
is og hjelt því meðal annars
fram, að rjett væri að koma á
fót rannsóknarnefndum til að
rannsaka deiiumál einstakra
landa og gefa Sameinuðu þjóð-
'urum skýrslur um málið. Hann
lýsti og þeirri skoðun sinni, að
Grikkland hefði í raun og veru
enn ekki verið frelsað undan á-
nauð styrjaldarinnar, en fyrir
íramlag sitt í nýlokinni heims-
styrjöld ætti gríska þjóðin vissu
lega skilið bæði frið og frelsi.
Skifting Palestínu
J E RÚ SALE M: — Arabar vona nú
að ákvörðun Sameinuðu þjóðanna
um skiftingu Palestínu nái ekki til
að'koma fram, þ. e. þeir álíta að
ekki fáist nægur meirihluti atkv.
-— eða % hlutar, sem þarf til þess
að málið verði samþykt á allsherj-
arþinginu.