Morgunblaðið - 22.10.1947, Side 8
8
trtORGVlSBLAÐItt
Miðvikudagur 22. okt. 1947
„£v&Sii.'&S$téLs
— Meðal annara orða
Framh. af bls. 6
handa sjúku barni sem árás?
Við Bandaríkjamenn erum ekki
þeirrar skoðunar.
• •
Atomsprengjan.
Hr. Vishinsky sakaði og
Bandaríkin um að ógna heim-
inum með atomsprengjunni . .
.. En við fjellumst á það á op-
inberum vettvangi, að fá hana
Sameinuðu þjóðunum í hendur,
með því skilyrði þó, að komið
yrði fyrst á fót alþjóðalög-
reglu og eftirlit yrði haft með
sprengjunni. En Rússland beitti
neitunarvaldi sínu. Hvers vegna
ekki eftirlit, hr. Vishinsky? Er
einhver með falin vopn? Og hví
ekki að koma upp alþjóðalög-
reglu? Hver hræðist lögregl-
una — nema glæpamaðurinn?
Land okkar, hr. Vishinsky,
er tilbúið að fallast á heiðar-
legt alþjóðaeftirlit — strax og
land yðar er reiðubúið. En fyr
ekki .... Við sögðum ykkur, að
við mundum ganga að alþjóða-
eftirliti, ef þið gerðuð það einn
ig. Enda þótt það mundi að
sjálfsögðu koma í veg fyrir
styrjöld, hafnaði land yðar boð
inu. Mjög svo einkennileg
framkoma stjórnarvalda, sem
segjast elska friðinn, hr. Vis-
hinsky.
• •
Hitlers-aðferð.
Sú yfirlýsing að leggja ætti
mig (og nokkra aðra Banda-
ríkjamenn) í járn, á ekki mikla
framtíð. Að hafa það á stefnu-
skrá sinni að fjötra fólk, ber
ekki tilætlaðan árangur. Hitler
reyndi það, og sjáið bara hvern
,ig fór fyrir honum og heimin-
<um. Hvers vegna takið þjer
það því ekki til athugunar að
gera Bandaríkjamönnum ekki
fleiri hlekki, heldur Rússum
færri? Áður en þjer farið að
segja okkur, hvað yður býr 1
brjósti, hr. Vishinsky, hvers
vegna ekki fyrst að gefa rúss-
nesku þjóðinni tækifæri til að
lýsa skoðunum sínum? Þar
sem þið þjóðfulltrúarnir viljið
ekki leyfa þjóð ykkar að tala,
hvernig vitið þið pá hvort hún
álítur ekki, að það sjeuð einmitt
þið, sem sjeuð stríðsæsinga-
mennirnir? Þjer segið að Winc-
hell mundi geta ritað betur, ef
hann kæmi til Rússlands. —
Hvernig getur handalaus mað-
ur skrifað á ritvjel, hr. Vis-
hinsky?
Þjer sögðuð einnig, að blaða
menn gætu haft aðgang að Rúss
landi — „jafnvel útvarpslygar-
inn Walter Winchell“. O, jæja.
Helen Kirkpatrick (erlendi
frjettaritarinn) benti á það í
grein sinni, að margir frjetta-
mannanna á blaðafundi yðar
hefðu „árangurslaust farið
fram á það að fá að koma til
Rússlands“.
Jeg sagði International News
Service (og New York Times)
s.l. laugardag, að jeg mundi
fús til að fara til Rússlands,
ef nokkuð af því, sem jeg gæti
sagt eða ritað kynni að hjálpa
til við að koma í veg fyrir það,
að til átaka kæmi milli landa
okkar.
En jeg mun ekki fást til að taka
þátt í neinum þessara vodka-
ferðalaga. Jeg mundi þó gjarn
an vilja heimsækja land yðar
— ásamt öðrum bandarískum
frjettamönnum og útvarpsfyrir
lesurum .... Og njóta sömu
gestrisninnar og mætt hefir
fólki Tass frjettastofunnar hjer.
Að geta farið hvert sem maður
vill, og þar fram eftir götunum.
Jeg hefi birt skrá yfir þá
blaðamenn, sem jeg gjarnan
vildi að tækju þátt í þessum
leiðangri. Meðal þeirra eru
sumir bestu vinir mínir, auk
hatrömmustu óvini minna. Jeg
samdi þessa skrá til að sýna
ykkur, að jeg mundi ekki geta
logið, jafnvel þótt jeg vildi,
þar sem svo margir af keppi-
nautum mínum gætu flett of-
an af lyginni. Ef yður var það
alvara að bjóða mjer til Rúss-
lands, þá er jeg reiðubúinn. Og
hr. Vishinsky, ef þjer getið
sannað það, að jeg sje lygari,
þurfið þjer ekkert annað að
gera. Kepinautar mínir munu
sjá um hitt.
• •
En hvað um yður?
Þegar öllu er á botninn
hvolft, hr. Vishinsky, er þó
hjer enn annað, sem þarf að
kryfjast til mergjar. Yfirlýs-
ing yðar er annaðhvort rjett
eða röng. Annað hvort erum
við George Marshall utanrík-
isráðherra og öldungadeildar-
þingmennirnir Austin og Mc
Mahon stríðsæsingamenn —
eða þjer eruð lygari.
Jeg er ekki það barnalegur
að álíta, að þjer hafið ætlað
þetta sem persónulega árás.
Þjer rjeðust sem hamstola mað
ur gegn einum meðlimi banda-
rísku frjettaþjónustunnar, því
ekkert er það til í víðri veröld,
sem þjer og hr. Stalin óttist
meir en ófjötraða ritvjel og
hljóðnema.
• •
Jeg og þjer.
En það er ekki jeg, sem ætti
að vera innan fjögra veggja.
Það eruð þjer_ hr. Vishinsky,
sem á þessari stundu standið
með bundnar hendur. Jeg get
sagt það, sem mjer býr í brjósti,
en þjer ekki. Ásamt 140 miljón
öðrum Bandaríkjamönnum, er
mjer frjálst að gagnrýna stjórn
arvöld okkar. En ef þjer, þriðji
valdamesti maður hinnar
kommúnistisku einræðisstjórn-
ar, gagnrýnduð yðar, þá yrðuð
þjer skotinn, og þjer vitið það.
Og nú skulum við segja all-
an sannleikann. Aðaláhyggju-
efni ykkar er ekki að koma í
veg fyrir, að Bandaríkjamenn
komist á snoðir um, hvað er
á seyði í Rússlandi. Þið þorið
ekki að láta rússnesku þjóðina
vita, hvað gerist í heiminum.
Þjer og kommúnistastjórn yð-
ar vitið, að einn sjálfstæður og
heiðarlegur bandarískur frjetta
maður með hljóðnema 1 Rúss-
landi er kommúnistaflokknum
hættulegri en nokkur atom-
sprengja .... Og þar, hr. Vis-
hinsky^ hafið þjer þó einu sinni
rjett fyrir yður.
Attlee hvefur iil
aukinnar framieiðsiu
CLEMENT Attlee forsætis-
ráðherra gat þess í ræðu, sem
hann hjelt hjer í dag í tilefni
af því að hann var gerður heið
ursborgari Birmingham, að ef
Bretar gætu framleitt sem svar
aði 10% meira af stáli, kolum
og landbúnaðarafurðum gætu
þeir bætt fjárhag sinn svo, að
þeir yrðu sjálfum sjer nógir-og
gætu bætt lifsskilyrði þjóðar-
innar til muna.
— Fimmtiígsaímæli
Framh. af bls. 5
sómi stjettar sinnar. Hann er
drengur góður, vinsæll og hjálp
fús.
Heill þjer fimtugum Harald
ur! Megi starfsorka þín lengi
endast landi og þjóð til gagns
og uppbyggingar.
S. G.
Fimm mínúfna krossgáfan
SKÝRINGAR
Lárjett: — 1 hirzla — 6 lang
borð — 8 ríki — 10 sólguð —
11 linast — 12 ráðherra — 13
eins — 14 flana — 16 falla.
Lóðrjett: — 1 Fyrstir — 3
fjeð — 4 íþróttafjelag — 5 sóði
— 7 hreysti — 9 drykkjustófa
— 10 ryk — 15 fangamark.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárjett: — 1 klína — .6 ása
— 8 af — 10 lá — 11 klofnar
— 12 ká — 13 kk — 14 öln —
16 úldna.
Lóðrjett: — 2 lá — 3 ísafold
7— 4 na — 5 takki — 7 barki
— 9 flá — 10 lak — 14 öl —
15 N. N.
Vilja fá nýja iðn-
skólabyggingu
FUNDUR haldinn í Fjelagi
málaranema i Reykjavík mánu
daginn 20. október 1947 sam-
þykkti eftirfarandi:
„Þar sem námsskilyrði iðn-
nema í Iðnskólanum í Reykja-
vík eru með öllu óþolandi sök
um hins ljelega húsakosts, bein
ir fundurinn þeirri áskorun
sinni til fjárhagsráðs, að það
veiti nú þegar umbeðið fjár-
festingarleyfi til hinnar nýju
Iðnskólabyggingar í Reykja-
vík.
Ennfremur skorar fundurinn
á öll samtök iðnaðarmanna í
Reykjavík, að þau beiti kröft
um sínum til þess að byggingu
hins nýja Iðnskólahúss verði
sem fyrst lokið.“
ALÞJOÐA SIMASKRÁ
ÍAlþjóða skrá No. 123368) sem nú er í undirhúningi
ÓSKAR EFTIR EINKALEYFÍ
(útgáfa og útbreiðsla)
FYRIR ÍSLAND
Kra/ist er öruggrar tryggingar•
Skrifið: ANNUAIHE TELEPHONIQUE INTERNATIONAL
12, Rue de la Victoire, PARIS (9e) FRANCE
—PERÓN
(Framhald af bls. 7)
,,endurskipuleggja“ verka-
hreyfinguna. Hann ljet hand-
taka flesta af helstu verkalýðs-
leiðtoganum og setti í stað
þeirra menn, sem hann valdi
sjálfur. Mörgum af verkalýðs-
leiðtogunum mútaði hann með
velborguðum stöðum í ráðu-
neyti sínu. Árangur af þessu
var tvenns konar: hann eyði-
lagði verkalýðshreyfinguna í
Arentínu sem sjálfstæða heild
og kom henni á vald ríkisins,
svo að aðstaða hennar er lík
aðstöðu verkalýðshrevfingar-
innar í Rússlandi, eins og Willi-
am L. Munger sýndi í grein-
inni „Hvernig Perón hneppir
árgentínskan verkalýð í þræl-
dóm“, í maíblaði Mercurys ’47,
og með lygum og loforðum um
gull og græna skóga ávann
hann sjer fylgi verkamanna, er
borgaði sig vel, þegar honum
fanst tími til kominn að takast
opinberlega á hendur forystu
hreyfingarinnar.
í janúar 1944 var önnur hern
aðarleg stjórnarbylting gerð í
Argentínu. í þetta skifti var
Edelmiro Farrell, hershöfðingi,
sagður forsprakkinn, en Porón
var, eins og áður ,aðalmaður-
inn. Farrell varð forseti, og Per
ón varð nú hernaðarmálaráð-
herra og varaforseti. Hann var
of hygginn til að hafa gleymt
áformum sínum um að skapa
sjálfum sjer stuðning hjá verka
lýðnum. Það var þá, sem harn
fyrirskipaði 30% launahækkun
í iðnaði, sem var í einkaeign,
fyrir utan eins mánaðar laun
í jólagjöf. Þetta hefur gert Per-
ón mjög vinsælan hjá iðnaðar-
verkamönnum; sém eru tals-
verður hluti íbúanna.
<——— - - -m— - - - - - — — - - • - — - - —... - , ... - - - ■■— --- - - - — ►
X-9 y 4/ v J EftirRobertStorm !
^ ---------------
wmm
J(vr. 1946, Kin^ Fcaturcs Syndicatc, Inc., World riehts rescrvcd.
TI1I-& 15 ONE OPcRATl0N
'THAT WOb'T Dú R5P0RTED IN
TME /dEDlcAL JCURNAL5 —
R NO,NE OP MV OLD MED-peLLOW'&'
COULC MAVc TOPPED ME... BUT
THEV WOULD FROWN ON THE
CIRCU//I5TANCE5 — E5PECIALLV
//IINE j
M/d-Ai... TM:í 15/, CRF/n' fjr
UV£R-U.P5.,..C:R S-tCOD 'S T-
5AME TVPSÍ /;::•} ;T 'C o
DIVVY A FEW CQZPÚ5CLC '
ý; Maðurinn (hugsar): Þetta er ein læknisaðgerð, þetta prýðilega. Enginn af starfsbræðrum mínum horfið í smásjána) þarna er Kalli heppinn. Við
ý; sem hvergi mun koma fram í læknaritunum — hefði getað gert þetta betur. En ekki er jeg viss höfum sömu blóðtegund. Það getur vel verið, að
vona jeg. Ekki svo að skilja, að mjer hafi ekki tekist um að þeim mundi lrka við allar aðstæður. (Hann hann þurfi blóðgjafar við.
.J