Morgunblaðið - 04.11.1947, Side 5
Þriðjudagur 4. nóv. 1947
MORGVTSBLáÐIÐ
5
fjelag ungra Sjálf-
smanna
að í A-Skafiafeils-
sýslu
Vík í Mýrdal, mánudag.
SÍÐASTLIÐINN sunnudag var
settur stofnfundur Fjel. ungra
Sjálfstæðismanna í V.-Skafta-
fellssýslu, en mjög mikill áhugi
hefur verið í sýslunni fyrir að
hefja öflugt fjelagsstarf.
Á fundinn sóítu ungir Sjálf-
stæðismenn úr flestum hreppum
sýslunnar, en þar var einnig
mættur Gunnar Ilelgason erind-
reki SUS. Siggeir Björnsson frá
Holti setti fundinn. Samþykt var
stefnuskrá fjejagsins og einnig
nokkrar tillögur um framfara-
mál sýslunnar.
1 stjórn fjelagsins voru kosn-
ír: — Siggeir Björnsson, Ilolti,
formaður, Valdimar Tómasson,
'Vík, gjaldkeri, Viihjálmur Eyj-
ólfsson, Hnausum, ritari og með-
stjórnendur Páll Jónsson, Vík og
Árni Jóhannesson, Gröf. Fund-
inum var síðan frestað í nokkra
daga. — Karl.
Akureyri mánudag.
KANTÖTUKÓR Akureyrar hélt
afmæliskonsert með aðstoð
Karlakófs Akureyrar í Nýja Bíó
kl. 2 e. h. í gær, en Kantötu-
kc. . inn er um þessar mundir bú-
in: að starfa að söngmáíum í
15 ' r og ætíð frá því fyrsta und-
ir Ijórn Björgvins Guðmunds-
sc: ’.r, tónskálds, og flutt á því
tí: bili mörg af stórverkum
hc •.
' etta sinn voru það streng-
le' .• Oratorio Björgvins, sem
kó n flutti. Einsöngvarar voru
B,: Baldvinsdóttir, Cigcíður
Sc II th, Guðmundur Gunnars-
sc: . Hreinn Pálsson, Hermann
St. nsson og Jóhann Konráðs-
so: Undirleik annaðist Lena
O: stedt.
., ert sæti var skipað í hús-
in. og tóku tilheyrendur söng
kc . ins með miklum ágætum.
— H. Vald.
Siiibiii
FYRIK nokkru geisaði ofsaveður í Florida, eins og getið var í
frjctlum. Hjer er mynd, sem íckin var eftir ofviðrið og sjest
hvernig umhorfs var.
ýiimg
ssonar
T sman undirbýr
hjálpartill&gur sínar
^ Washington í gærkv.
ROSS forsetaritari skýrði
frá Jþvi í dag, að Truman væri
nú byrjaður að undirbúa til-
lögur þær, sem hann*ætlaði að
leggja fyrir Bandaríkjaþing,
sem kallað hefir verið saman
til fundar þann 17. nóvember.
Talið er að Truman muni fara
fram á 4000 miljónir dollara
til aðstoðar Evrópuþjóðum.
Ekki ætlast Truman til, að þær
Evrópuþjóðii', sem hjálparinn-
ar verði aðnjótandi verði látn-
ar lofa einu eða neinu í sam-
bandi við aðstoðina.
Taft öldungadeilclarþingmað
ur hefir kallað saman flokks-
fund Republikana þann 4. nó-
vember. Frjettaritarar í Was-
hington gera ráð fyrir, að þing
íð geti hafa lokið umræðum um
aðstoðina við Evróþuþjóðirnar
fyrir 19. desember er þingmenn
fara í jólafrí.
— Reuter.
ÞETTA er önnur sýning Örlygs^
Sigurðssonar. Á þessari sýningu
hans eru 140 verk, olíumyndir,
teikningar o. fl., flest nýjar
myndir. Örlygur hefur teiknað
mikinn fjölda andlitsmynda og
flestar af þjóðþektum mönnum.
Örlygur er handlaginn og lipur
teiknari og nær vel svipbrigð-
um andlita með biýantinum. Þó
á hann enn eftir að þroskast á
því sviði.
Örlygur hefur, enn sem fyrr
gert allmargar skopmyndir Flest
eru það hugmyndir, scm þó
styðjast við veruleikann, svo
sem nr. 47 „Fimtíu ára stúdents
afmæli“, ,,Erfidrykkja“ o. fl.
Myndir þessar eru nokkuð sjer-
stæðar, en þó tæplega það besta,
sem hann hefur gert.
Landslagsmyndirnar sumar,
eins og t. d. „Kirkjan í Reykja-
hlíð“ eru betri listaverk og líka
raunhæfari. Litastigi hans er oft
ast nær nokkuð þungur, dökkir
bláir og brúnir litir. Þó eru í hin
um yngri myndum litir ljósari
og ljettari. Á jeg þar við myndir
þær, sem hann kallar „Ot um
bílgluggann*. Þetta eru alt mynd
ir málaðar á ferðalagi í sumar
um landið, og víst upphaflega
ætlaðar að vera frumdrög að
stærri verkum.
Þar sem Örlygur Sigurðsson
er jafn gáfaður, hugkvæmur og
fljótvirkur og hann er, ætti hann
ekki að aka jafn hratt og hann
gerir í vagni listarinnar. And-
litsteikningar hans eru of auð-
veldar. En þetta stendur alt til
bóta. Iíann hefur enn ekki beisl-
að klárinn. Hann á, vona jeg,
eftir að gera mikil verk í sviði
kímninnar, sem virðist vera
hans sjerstæða viofangseíni.
Orri.
)K
Bflmóíyruin sfolið
VEGAGERÐ ríldsins hefur vöru
skemmu eina upp við Rauða-
vatn. í sumar hafa innbrotsþjóf-
ar hvað eftir annað brotist þang
að inn.
Nú nýverið hefur verið brotist
þar inn. Hafa þar verið stolið
tveim Fordson-bílmóturum.
ungra
muin
Mlkill áli
ensra manna
STQFNAÐ var Samband ungra Sjálfstæðisroanna í Árnessýslu
að Selfossi síðastliðinn sunnudag. — Boðað hafði verið til fundar
ungra Sjálfstæðismanna í sýslunni, þar sem þeir mættu Eiríkur
Ein'arsson, alþm., og Jóhann Hafstein formaður landssamtaka
ungra Sjálfstæðismanna — S. U. S. — Á þessum fundi voru stofn-
uð fjelagssamtök ungra Sjálfstæðismanna í sýslunni. -— Gunnar
Sigurðsson í Seljatungu stjórnaði fundinum, en fundarrítari var
Guðmundur G. Ólafsson, Selfossi.
Vv'áshington í gær.
FULLTRÚAÞINGSNEFNDIN,
sem skipuð var til þess að rann-
saka áhrif kommúnista á kvik-
myndaiðnaðinum í Hollywood,
og sem einnig rannsakar „óame-
ríska“ starfsemi yfirleitt, byrj-
aði yfirheyrslur sínar í Was-
hington í dag. Hafa margir
kuniiir kvikmyndaleikarar ver-
ið kallaðir til að bera vitni fyrir
nefndinni. Var margt manna
fyrir utan þingnúsið til þess að
reyna að koma auga á kvik-
myndaleikarana, er þeir kornu
til að bera vitni. Tveir kvik-
myndaleikarar báru vitni fyrir
nefndinni í dag, þeir Adolphe
Menjou og Robert Taylor.
’ ■mr
Kommúnistar cru svikarar.
Adolphe Menjou sagði, að
kommúnistar reyndu öll brögð,
sem þeir gætu til að hafa áhrif
á kvikmyndaframleiðsluna.
Hann hvatti þingið til að upp-.
ræta alla kommúnista í Ame-
ríku. „Þetta er ekki pólitískur
flokkur, heldur svikarar, sem
hafa það eitt í huga, að koma
frelsi Bandaríkjamanna fyrir
kattarnef".
Neyddur til að leika í
áróðursmynd.
Robert Taylor sagði, að á
meðan hann var í ameríska flot-
anura í styrjöldinni hefði hátt-
settur embættismaður ríkis-
stjórnarinnar lagt mjög að sjer
að leika í kvikmynd, sem ekki
var annað en áróður fyrir Rússa.
Sagðist hann hafa átt bágt með
að neita að leika í þessari mynd
vegna stöðu sinnar í sjóliðinu,
og vegna þess hve maður sá var
háttsettur, sem lagði að honum.
Robert Taylor mun eiga hjer
við kvikmyndina „Óður Rúss-
íands“.
í upphafi íundarins gerði Jó-®~
hann Hafstein grein íyrir fje-
lagsstarfsemi ungra Sjálfstæðis-
manna og þeim öra vexti, sem
verið hefur á samiökunum síö'ari
árin. Eru nú starfandi fleiri fje-
lög ungra Sjálfstæðismanna en
nokkru sinni og jafnframt öfl-
ugri samtök þeirra. Hin mikla
vakning, sem fram kom í fje-
lagslííi ungra Sjálfstæðismanna
í bæjarstjórnar- og alþingiskosn-
ingum árið 1946, hefur haldið
stöðugt áfram. Síðan hafa verið
stofnuð ný hjeraðssambönd í
nokkrum sýslum og auk þess
bæst í landssamtökin 9. ný f je-
lög. Þá var í sumar stofnað fjórð
ungssamband ungra Sjálfstæðis-
manna fyrir norðan á Akureyri
og einnig í sumar stofnað Sam-
band fjelaga ungra Sjálfstæðis-
manna á Austurlandi.
Á fundinum var lagt fram
frumvarp að lögum fyrir Sam-
band ungra Sjálfstæðismanna í
Árnessýslu. Var frv. samþykt
og gengið endanlega frá stofn-
un samtakanna.
Við stjórnarkosningu voru
þessir kosnir í fyrstu stjórn Sam
bandsins: Gunnar Sigurösson,
Seljatungu, formaður, en með-
stjórnendur: Helgi Jónssón, Sel-
fossi, Jóhann Jóhannsson, Eyr-
arbakka, Jón Ólafsson, Geldinga
holti, Gunnar Björnsson, Hvera-
gerði, Magnús Siguröss., Stokks
eyri, og Guömundur G. Ólafsson
Selfossi.
Kosningu varastjórnar var
frestað til næsta íundar.
Nokkrar umræður urðu á
fundinum og tóku til máls Ólaf-
ur Jónsson, Selfossi, Magnús
Sigurðsson, Stokkseyri og hinn
nýkjörni formaður. Einar Páls-
son flutti kveðju frá ungum
Sjálfstæðismönnum úr Áshrepp-
um, sem höfðu ætlað að mæta
fleiri á fundinn, en forfallast.
Sigurður Óli Ólafsson kaupm.
á Selfossi flutti hinu nýja fje-
lagi árnaðaróskir og hvaðst
vænta þess að samtökum Sjálf-
stæðismanna í sýslunni mundi
verða mikill liðsstyrkur að þess-
um samtökum vngri mannanna.
Þá ræddi Eiríkur Einarsson
um stjórnmálaviðhorfið og að-
stöðu þings og stjórnar til úr-
lausnar aðkallandi vandamálum
í sambandi við hina miklu verð-
, þenslu og dýrtíð í landinu. Hann
rakti einnig gang ýmsra hjeraðs-
jmála og baráttu fyrir ýmsum
hagsmunamálum Árnesinga sem
hið nýja fjelag yrði að láta að
sjer kveða um til framgangs og
úrlausna.
Fundurinn var íæl sóttur og
mikill áhugi ríkir meðal hinna
ungu Arnesinga að efla þetta
nýja íjelag og treysta skipulag
þess til styrkari aðstöðu og á-
hrifa fyrir Sjálfstæðisstefnuna
í hjeraði.
FrjeffSr s
Ný tareinsun í Ung-
BUDAPEST í gær: — Ung-
verska stjórnin hefir tilkynt,
að komist hafi upp um njósna-
hrinjr í Ungverjalandi og hafi
margir menn viðriðnir það mál
verið handteknir. Erlendur
frjettaritari nokkur hafi fengið
fyrirskipun um að hverfa úr
landi. — Stjórnmálafrjettarit-
arar líta á þetta sem uppbaf
nýrrar pólítískrar hreinsunar í
landinu.
Ákærður fyrir njósnir.
LONDON í gær: — Breski
hermálafulltrúinn í Moskva, A.
Hilton, var handtekinn um
helgina er verkamenn í verk-
smiðju einni kærðu yfir því að
hann hafi verið að reyna að
taka myndir af verksmiðjunni.
Hershöfðinginn var tekinn fast
ur, en sleppt nokkru síðar er
það kom í ljós, að hann var
ekki með neina myndavjel á
sjer.
.
de Valera á ný í London.
LONDON í gær: — Eamorx
de Valera, forsætisráðherra
Eire er kominn til Londorv
ásamt þremur ráðherrum í
írsku stjórninni til að semja við
bresk stjórnarvöld um aukin
viðskifti íra og Breta. Vilja
Irar kaupa kol og vjelar af
Bretum. írsku ráðherrarnir áttu
tal yið Attlee í dag.
Segir stjörnu kommúnista
dalandi.
LONDON í gær: — Constan-
tin Tsaldaris, varaforsætisráð-
herra og utanríkisráðherra
og utanríkisráðherra Grikk-
lapds kom hingað í dag frá
BÍndaríkjunum og skýrði blaða
mönnum svo frá, að hánn væri
þess fullviss,. að yfirgangur
kommúnista í Grikklandi
myndi ekki eiga sjer langa sögu
hjeðan í frú. Kommúnistar eru
alstaðar einangraðir í lýðræðia
ríkjunum, eins og undanfarnar
kosningar sína, sagði hann. í
Grikklandi hafa kommúnistar
beitt sjer til að reyna að koroa.
í veg íyrir endurreisnina. *