Morgunblaðið - 04.11.1947, Síða 15
Þriðjudagur 4. nóv 1947
MORGUNBLAÐIÐ
15
)£<S^><®*®KSxSx®x$xíxíx$xex$xSxíxSxí*MK^s*Sx3
Fjelagslíf
Farfuglar!
Málfundadeildin.
Fyisti fundur vetrarins verður að
Fjelagsheimili V. R. (uppi) i kvöld
kl. 9.
Fjölmennið rjettstundis.
Stjórnin.
Framn.arar.
Innanfjelagsmót í handknattleik
lieldur ófram í kvöld kl 8,30. Allir
flokkar verða að mæta stundvíslega-
Nefndin.
I.O.G.T.
íþaka.
Fundur í kvöld kl. 8,30.
St. VerSandi nr. 9.
Fundur í kvöld kl. 8,30. Venju-
leg fundarstörf. Skýrslur og inn-
setning emhættismanna. Þriðji flokk-
ur sjer um fundinn. — Dansað eft-
ir fund. Æ. T.
Kaup-Sala
'AihugiZ.
Karlmannahattabúðin selur ýms-
ar fntnaðarvörur. Tekur gamla
hatta til viðgerðar. —- Aðeins hand-
unnin vinna. — Opið daglega frá
kl. 12—6.
NotuS húsgögn
og lítið slitin jakkaföt keypt hæst
verði. Sótt heim. Staðgreiðsla. Sími
6691. Förnverslunin, Grettisgötu 45.
PaS er ódýrara
eð lita heima. Litina selur Hjörtur
Hjartarson, Bræðraborgarstíg 1. Sími
4256.
Tapað
Kvenarmbandsúr tapaðist í gær
frá Kvennaskólanum eða í strætis-
vagni að Miklubraut eða að Guðrún-
argötu 10, Finnandi geri vinsam-
lega aðvart á Guðrúnargötu 10 eða
í síma 4819. — Fundarlaun.
Siljur eyrnalokkur með rauðum
steini hefur tapast frá Túngötu að
Oddfellowhúsinu. Finnandi vinsam-
lega skili honum á Sólvallagötu 29.
Gullarmband með emeleruðum
myndaplötum tapaðist í miðbænum
s. 1. sunnudagskvöld, óskast skilað
Barinn, Aðalstræti 8.
Kvsnngullúr... tapaðist föstudags-
kvöld með 10,30 Sogamýrarstrætis-
vagni inn að Tungu eða niður Nóa-
tún. Úrið er merkt eiganda. Finn-
andi gjöri svo vel að skila því á
Hátún 21.
Fundið
Óskilahestur.
Þann 15. okt. var seldur í Odd-
staðarjett jarpur dráttarhestur full-
orðinn. Mark: heilrifað, biti fr. h.
hálft af a. v. Rjettur eigandi getur
vitjað hestsins gegn greiðslu ófallins
kostnaðar. — Uppl. gefur lireppstj.
Lundareykjadalshrepps, Skálpastöð-
Vinna
RÆSTINGASTÖÐIN. Tökuin að
okkur hreingemingar. Simi 5113.
Kristján og Pjetur.
Húsnæði
Stór stofa til leigu fyrir reglu-
saman mann. Tilboð sendist Mbl.
fyrir 5. þ. m. merk: „500“.
Tilkynning
K.F.U.K. A'Saldeildin.
aumafundur í kvöld. Lesnar ferða
jminuingar. — Kaffi.
308. dagur ársins.
Næturlæknir í Læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Laugavegs
Apóteki, sími 1616.
□Helgafell 59471147, VI—3
75 ára varð 2. þ. m. Guðrún
Eiríksdóttir, verkakona, Hall-
veigarstíg 6A.
Ingibjörg Gísladóttir, áður til
heimilis á Lindargötu 60, en nú
til heimilis á Leifsgötu 21, er
sextug í dag.
Silfurbrúðkaup eiga í dag
Magnea Jónsdóttir og Bjarni
M. Einarsson, Stórholti 22.
Hjónaband. í dag verða gef-
in saman í hjónaband af sjera
Árna Sigurðssyni ungfrú Olafía
Ólafsdóttir og Jósef Björnsson
skrifstofum. c/o Magnús Víg-
lundsson. — Heimili brúðhjón-
anna er á Reynimel 55.
Hjónaband. 2. þ. m. voru gef
in saman í hjónaband af sjera
SFgurjóni Þ. Árnasyni, Stein-
unn Árnadóttir, Laugav. 159A,
og Ágúst Stefánsson, loftskeyta
maður Radiostöðinni í Gufu-
nesi. — Heimili ungu hjónanna
er á Laugaveg 159A.
Hjónaband. S. 1. laugardag
voru gefin saman í hjónaband
að Reynivöllum ungfrú Hulda
Sigurjónsdóttir frá Sogni í
Kjós og Karl Andrjesson, smið
ur á Neðra Hálsi.
Hjónaband. S. 1. laugardag
voru gefin saman í hjónaband
af sr. Jóni Thorarensen ungfrú
Vigdís Eiríksdóttir og Sigríður
Matthíasson. Heimili þeirra er
í Enginlíð 12.
Hjónaband. Á sunnud. voru
gefin saman í hjónaband af sr.
Jakob Jónssyni Magna Ólafs-
dóttir frá ísafirði og Torfi Sig-
urðsson frá Bæjum. Heimili
þeirra verður fyrst um sinn
að Reykjalundi, Mosfellssveit.
Hjónaefni. S. 1. laugardag
opinberuðu trúlofun sína ung-
frú Helga Helgadóttir frá Kálfa
felli og Jón Sigurðsson frá
Skálabæ, Eyjafjöllum.
í hjónaefnistilkynningu í
Mbl. í gær misritaðist föður-
nafn Óskars Guðmundssonar,
Hverfisgötu 102 (ekki Njáls-
götu 102), var hann sagður
Hannesson.
Fjel. Vestur-íslendinga held-
ur aðalfund sinn í Oddfellow-
húsinu næstkomandi fimtudag.
Eftir venjuleg aðalfundarstörf
verður kaffidrykkja, spil og
dans. Allir, sem dvalið hafa
vestan hafs geta gerst meðlimir
í þessu fjelagi.
Kynsúkdómavarnir. í frásögn
blaðsins, s.l. sunnudag, af aukn
ingu varna gegn kynsjúkdóma
hættunni, urðu nokkrar prent-
villur. Var sagt að Hannes Guð-
mundsson læknir hefði einn
manna fengist við kynsjúk-
j dómalækningar síðan þær hóf-
j ust fyrir 24 árum síðan. Þetta
er ekki rjett. Maggi Júl. Magg
læknir var kynsjúkdómalækn-
ir á árunum 1923 og 1928, en
frá 1928 til 1934 eru þeir báðir
starfandi læknar í þessari grein
Maggi Júl. Magg og Hannes
Guðmundsson. Síðan 1934 hefir
Hannes Guðmundsson verið
einn læknir.
Leikfjelag Reykjavíkur sýnir
gamanleikinn Blúndur og blá-
sýra annað kvöld kl. 8.
Fax-þegar með „Heklu“ frá
Reykjavík til Kaupmannahafn-
ar: Gunnar Jespesen, Ingibjörg
Bjarnason, Guðrún Kristjans,
Kensla
Píanó kennsla.
Uppl. í síma 1803 cua 6346.
Anna Reynis, Kristjana Sveins
dóttir, Weltsch, Helgi Hermann
Eiríksson, F. Szekely, Geir Stef
ánsson, Gunnar Guðjónsson og
frú, Boeskow, Kristján Bjarna-
son og Bjarni Oddsson og frú.
ÚTVARPIÐ í DAG:
12,10—13,15 Hádegisútvarp.
15,30—16,30 Miðdegisútvarp.
18.25 Veðurfregnir.
18.30 Dönskukennsla, 2. fl.
19.25 Þingfrjettir.
20.0 Frjettir.
20.25 Mendelsohn, 10 ára dán-
ardægur: a) Erindi: Róbert
Abraham. b) Tónlist eftir
Mendelsohn (plötur).
21.15 Smásaga vikunar: „Ljóna
búrið“ eftir Verner von
Heidenstam (Helgi Hjörvar).
21.45 Spurningar og svör um
íslenskt mál (Bjarni Vil-
hjálmsson).
22.00 Frjettir.
22.05 Jassþáttur (Jón M. Árna
son).
ásgeir Guðmunds-
son, hreppstjóri í
Æðey, sextugur
Þúfum, mánudag.
ÁSGEIR Guðmundsson, óðals-
bóndi og hreppstjóri í Æðey,
verður sextugur 5. þ. m.
Ásgeir er landskunnur bún-
aðarfrömuður og er heimili
þeirra systkina landskunnugt
fyrir myndarskap og rausn í bún
aði. Hafa þau systkini Sigríður,
Ásgeir og Halldór stýrt hinu
stóra búi nú um 40 ára skeið
með miklum ágætum og bætt
jörðina stórlega með húsabótum
og ræktun.
Auk hinna umsvifamiklu bú-
starfa hefur Ásgeir gegnt flest-
um opinberum trúnaðarstörfum
í sveit sinni um mörg undanfar-
in ár og verið dýralæknir í sýsl-
unni undanfarna áratugi. Hefur
hann í því efni verið sjerstak-
léga þarfur maður, sem unnið
hefur landbúnaði hjeraðsins mik
ilvægt og gagnlegt starf. Munu
margir hjeraðsbúar og vinir
hugsa hlýtt til hins kunna hjer-
aðshöfðingja á þessu merkisaf-
mæli hans og óska þess að mega
njóta hans ágætu starfa enn um
langt skeið. — Páll Pálsson.
Góður áranpr tolla-
ráðstefnunnar
í Genf
London í gærkvöldi.
Á MORGUN (fimtudag) verða
undirritaðir í Genf meir en 100
tollasáttmálar milli þeirra 23ja
þjóða, sem tekið hafa þátt í ráð-
stefnunni þar að undanförnu. Þó
er ekki líklegt, að samningar
þessir verði birtir opinberlega
fyr en 18. nóvember næstkom-
andi.
Herold Wilson viðskiftamála-
ráðherra, skýrði í þessu sam-
bandi frá því í neðri málstofu
breska þingsins í dag, að Bretar
hefðu á ráðstefnunni gengið frá
tollasamningum við 16 þjóðir
alls, meðal annars Bandaríkin.
Hefði breska stjórnin haft nána
samvinnu við önnur samveldis-
lönd 1 þessum efnum en samning
arnir yrðu bráðlega lagðir fyrir
þingið til samþyktar. — Reuter.
Jeg þakka hjartanlega fyrir vinsemd og virðingu sem
mjer var sýnd á fimtugs afmæli minu 30. f. m.
Geir Magnússort.
Innilegt þakklæti til allra er sýndu mjer vinsemd á T
§ sjötugsafmæli mínu 28. okt. 1947.
Kjartan Helgason,
Moshúsum, Miðnesi.
BEST AÐ AUGLÝSA I MORGUNBL4ÐINU
UNGLINGA
vantar til að bera út Morgunblaðið í eftir-
talin hverfi:
Bráðræðishol! Miðbæ
Brávallagöfu
ViS sendum blöSin heim til barnanna.
Talið strax við afgreiðsluna, sími 1600.
Konan mín
ÁSA KJARTANSSON
andaðist á Landsspítalanum 2. þ. m.
Jón Kjartansson.
Fósturmóðir og stjúpmóðir okkar
FRÚ ANNA HALLGRÍMSSON
andaðist að sjúkrahúsi Hvítabandsins aðfaranótt 2. þ. m.
SigríSur SigurSardóttir,
Axel L. Sveins,
Carl Hemming Sveins,
Hallgrímur Sveinsson.
Maðurinn minn
BJÖRN SIGURÐSSON,
trjesmiður
andaðist á heimili sínu, Baldursgötu 11, aðfaranótt
sunnudags.
Ingibjörg Oddsdóttir.
Jarðarför systur minnar
SOFlU DANIELSSON
fer fram fimmtudaginn 6. þ. m. og hefst með húskveðju
að heimili hennar Aðalstræti 11, kl. 1,30 e. h.
Leopoldina Eiríkss.
Jarðarför konunnar minnar
KRISTlNAR BÁRÐARDÓTTUR
frá Holti í Álftaveri
fer fram frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 5. þ. m. og
hefst í kirkjunni kl. 1,30 e. h. Athöfninni í kirkjunni
verður útvarpað. Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði.
Ágúst GuSmundsson.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og vináttu
við andlát og jarðarför
SUSÖNNU í. JÖNASDÖTTUR
hárgreiðslukonu.
ASstandendur.