Morgunblaðið - 06.11.1947, Qupperneq 1
EIVIM FLÝJA ANDSTÆÐINGAR RÚSSA
Heklu-fyririestur
Pálma vakli mikla
afhygli
Kaupmannahífn í gær.
Einkaskeyti til Mbl.
FYRIRLESTUR Pálma Hann-
essonar rektors í Landfræðifje-
laginu danska um Heklugosið,
sem hann hjelt í gærkvöldi vakti
mikla athygli og var mjög vel
sóttur. Var fyrirlesaranum tekið
með óvenjumiklu lófaklappi að
fyrirlestrinum loknum.
Blöðin skrifa um Heklukvik-
myndina, að hún sje stórkost-
leg og hrífandi.
Nörlund prófessor, formaður
Landfræðif jelagsins bauð Pálma
velkominn og ljet í ljós ánægju
sxna vfir því að íslenskir vís-
indamenn hefðu nú á ný tekið
upp fyrra samband við Dan-
mörku eftir einangrun styrjald-
aráranna. Nörlund prófessor
lýsti samúð Landfræðifjelagsins
vegna fráfalls Steinþórs Sigurðs
sonar magisters. Niels Nielsen
prófessor flutti hugnæma minn-
ingarræðu um Steinþór og lýsti
hinu mikla og mikilvæga vís-
indastarfi hans.
Áheyrendur risu úr sætum
sínum til að heiðra minningu
hins látna vísindamanns.
Samkvæmi, sem átti að verða
að fyrirlestri Pálma loknum,
var frestað vegna fráfalls Stein-
þórs Sigurðssonar. — Páll.
5. Þ. samþykkja
Kóreu-fillögu
Bandaríkjanna
Lake Success, N. Y.,
í gærkvöldi.
STJÓRNMÁLANEFND Sam-
einuðu þjóðanna samþykkti í
dag tillögu Bandaríkjanna um
að koma á laggirnar í Koreu
óháðri stjórn og kalla heim heri
Bandaríkjanna og Rússlands í
landinu ekki síðar en 90 dögum
eftir að stjórnarmynduninni er
lokið.
Bandaríkjatillagan var sam-
þykt með 46 atkvæðum gegn
engu, en í henni er einnig gert
ráð fyrir kosningum í Koreu
ekki síðar en 31. mars næsta
ár.
Stjórnmálanefndin feldi til-
lögu Rússa um að herir þeirra
og Bandaríkjamanna skyldu
fluttir úr landinu fyrir áramót.
Greiddu 20 atkvæði gegn til-
lögunni, sex með henni, en sjö
sátu hjá.
Að atkvæðagreiðslunni lok-
inni, tilkynntu Rússar og þeir,
sem með þeim greiddu atkvæði,
að þeir mundu ekki taka þátt í
atkvæðagreiðslu um bandarísku
tillöguna. — Reuter.
konungsfjölskyldan
Þetta er fyrsta ljósmyndin, sem tekin er af bresku konungs-
fjölskyldunni með tengdasoninn, Philip Mountbatten prins.
T ar myndin tekin í Buckinham-höll í London. Talið frá
vinstri eru Elizabcth ríkisarfi, Pliilip Mountbatten, Elizabeth
drottning, George konungur og Margaiet Rose prinsessa.
um
hjálp til Evrópu senn
tilbúnar
WASHINGTON í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
GEORGE MARSHALL utanríkisráðherra tilkynti í dag, að
hann myndi hafa tillögur sínar um aðstoð við Evrópuþjóðirnar
tilbúnar á mánudaginn kemur, og sameiginlegur fundur verður
haldinn í utanríkisnefndum beggja þingdeilda Bandaríkjaþings.
Marshall kvaðst einnig mundi hafa nokkur orð að segja í fullri
hreinskilni um ákveðin mál.
Unnið dag og nótt að
undirbúningi.
Marshall sagði ennfremur á
fundi sínum með blaðamönnum
í dag, að í utanríkisráðuneytinu
væri unnið dag og nótt að tillög
unum og væru ýms vandamál í
þessu sambandi erfið viðfangs,
en hann kvaðst búast við að
tillögurnar myndu liggja fyr-
ir í vikulokin.
ítali v'antar 100 miljón
dollara.
Ráðherrann - sagði, að það
V'feri rjett, að ítaiir bæðu um
100 miljón dollara og það áður
en hægt væri að ganga frá hjálp
inni í þinginu, en hann gat þess
ekki hvort nokkur ákvörðun
hefði verið tekin um beiðni
ítala.
Fer til London 20 þ. m.
Marshall sagði blaðamönnum
að það hefði verið ákveðið að
Framh. á bls 2
Jafnaðarmenn löp-
uðu 66 sælum í
skosku kosnlng-
unum
LOKATÖLUR i bæjar og
sveitastjórnarkosningunum
sem fram fóru í Skotlandi í
gær, voru birtar í kvöld. Sýna
þær, að jafnaðarmenn hafa als
tapað 66 sætum, en eins og
kunnugt er, fengu þeir mjög
slæma útreið í kosningunum í
Englandi og Wales s.l. laugar-
dag.
Jafnaðarmenn töpuðu meiri
hluta sínimi á níu stöðum, þar
á meðal í hafnarborginni
Dundee, exi John Strachey mat
vælaráðherra, er fulltrúi borg
arinnar á þingi.. — Reuter.
Leiðtogi óháða flokksins
ungverska í Vín
Taliðað uppræla eigialla andstöðu gegn
kommúnisfum í leppríkjum Rússa
Vínarborg í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
Eftir Hubert Harrison.
ZOLTAN PFEIFFER, formaður óháða flokksins í Ungverjalandi
(andstöðuflokkur stjórnarinnar), sem hvarf í ungversku þing-
byggingunni í gær, skömmu áður en hann átti að halda ræðu í
þinginu um kröfu opinbera ákærandans um að mál væri höfðað
gegn honum og hann tekinn höndum, er nú kominn til Vínar-
borgar, eftir því sem amerískir embættismenn hjer hafa tilkynt.
Það er fullyrt hjer, að það hafi verið Bandaríkjamenn, sem
skipulögðu og framkvæmdu „björgun" hans. Vínarblaðið „Wiener
Kurier", sem er undir eftirliti Bandaríkjamanna, segir, að Pfeiff-
er hafi komist yfir landamærin í gærkvöldi ásamt konu sinni og
dóttur.
Viðskiptasamningar
Brela og Dana
London í gærkvöldi. . .
SAMKVÆMT góðum heim-
ildum gerir breska stjórnin sjer
vonir um, að viðræður um versl
unarsamninga geti hafist að
nýju milli Danmerkur og Bret
lands innan skamms —- vænt-
anlega um mánaðamótin.
Síðustu tilraunir til sam-
komulags fóru út um þúfur í
byrjun október, þar sem Bret-
ar töldu sig ekki geta fallist á
verð það, sem Danir kröfðust
fyrir landbúnaðarafurðir sín-
ar. — Reuter.
Verkfall slöðvar
„Queen Mary"
London í gær.
FRESTAÐ var brottför Queen
Mary frá Southampton í dag,
vegna verkfalla um 200 af á-
höfn hennar. Verkfallið var boð
að skömmu áður en risaskipið
átti að leggja af stað til New
York. — Reuter,
Viðgerð á Liberfe
að Ijuka
París í gærkvöldi..
FRANSKA stórskipið Liberte,
sem sökk s.l. ár í höfninni í
Harve, var í dag hleypt úr þurr
kví. Á skipið innan skamms að
halda til Saint Nazarie, þar
sem lokið verður viðgerð þess.
Liberte tilheyrði áður Þjóð-
verjum og hjet þá F.uropa.
Ekki úr allri hœttu enn
Eitt af kvöldblöðunum í Buda
pest fullyrðir í dag, að Galor
Gulyas, ritstjóri blaðs Óháða-
flokksins, hafi flúið með hon-
um, en hann sást í þingbygging-
unni í Budapest í dag. Ekki hef-
ur tekist að ná símasambandi
við ungversku sendisveitina í
Vín í dag.
Ráðstafanir hafa verið gerðar
til þess að ekki komist upp hvar
Pfeiffer heldur sig, því það er
langt frá að hann sje úr allri
hættu og er ekki talið líklegt að
sagt verði frá verustað hans fyr
en hann er kominn á öruggan
stað.
Fjöldi ungverskra landflótta-
manna hefur nýlega horfið frá
Vínarborg, en það er talið að
þeir sjeu margir, sem tekist hef-
ur að flýja land undanfarið.
Hreinsun í leppríkjunum
Hjer í Vínarborg er flótta
Pfeiffers líkt við flótta pólska
bændaleiðtogans Stanislav Mi-
kolaczyk á dögunum.
Þeir, sem vel fylgjast með
stjórnmálum í Vín, telja að flótti
þessara og annara stjórnmála-
leiðtoga stafi af því, að í upp-
siglingu sje alls herjar hreinsun
í leppríkjum Rússa, frá Eystra-
salti til Miðjarðarhafs, og að
fyrirskipanir hafi komið um það
frá Moskva að eyða og útiloka
alla stjórnarandstöðu í þessum
löndum.
Vekur óróa
í Budapest hefur flótti Pfeiff
ers vakið óróa og flokksmenn
hans hafa flýtt sjer að tilkynna,
að þeir muni yfirgefa flokkinn
og ganga í aðra stjórnarand-
stöðuflokka, einkum flokk föð-
ur Baloghs, en aðrir þingmenn
Óháða flokksins hafa tilkynt að
Framh. á bls. 11.