Morgunblaðið - 06.11.1947, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 06.11.1947, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 6. nóv. 1947 MORGVNBLAÐIÐ 11 Fjelagslíí SKÁTAR (R.S.) Sjálfboðavirma um helg- ina í Henglafjöllum, ferð frá Skátaheimilinu laugar- dag kl. 6 síðd. Tilkynnið þátttöku föstudag. HAUKAR Æfingar hefjast næstk. föstudag: Kl. 7—8 3. fl. karla. Kl. 8—9 1. og 2. fl. kvenna. Kl. 9—10 1. og 2. fl. karla. Æfinga- tafla verður auglýst síðar. Stjórnin. Tilkynning Hjálprœ&isherinn. Söngsamkoma í kvöld kl. 8,30. FILADELFIA Almenn samkoma kl. 8,30. Árly Lund frá Færeyjum o. fl. aðkomnir tala. Allir velkomnir. K. F. U. M. — A.D. Fundur í kvöld kl. 8,30. Gunnar Sig urjónsson talar. Allir karlmenn vel- komnir. Á. F. U. K. — U.D. Fundur í kvöld kl. 8,30. Sjera Jó- hann Hannesson talar. Framhalds- sagan lesin. Allar stúlktir velkomnar I Qr Gm Z Þingstúka Reykjavíkur. heldur fund annað kvöld (föstudag 7. nóv.) að Fríkirkjuvegi 11. 1. Stigveiting. 2. Erindi, Einar Bjömsson. Aðstoð við drykkjumenn í Sviþjóð og Noregi. 3. önnur mál. Fjölsækið. stundvíslega. Æ.T.' St. Frcyja nn. 218. Fundur í kvöld kl. 8,30. Venjuleg fundarstörf. Innsetning emhættis- manna og fl. Fjelagar fjölmennið. Æ. T. Sl. Frón nr. 227. Fundur i kvöld kl. 8,30 á Fríkirkju- veg 11. Inntaka. Innsetning em- baettismanna og fleira. Kvikmynd og kaffi að fundi loknum. Æ. T. . Vinna RÁÐSKONA Roskinn maður einhleypur, óskar eft ir einhleypri ráðskonu. Tilboð merkt „Nóvember" sendist Morgunblaðinu. HREINGERNINGAR Tökum að okkur hreingemingar. Vanir menn. Fljót og góð vinna. Pantið i tíma. Sími 4109. Hreingerningar — Gluggahreinsun. Sími 1327 Björn Jánsson. HREINGERNINGAR Pantið í tíma. Simi 5571. GuSni Björnsson. RÆSTINGASTÖÐIN. Tökum að okkur hreingemingar. Sími 5113. Kristján og Pjetur. ^Xjx$x»<»<»<»<»<»<»<»^^<»<»^<»<^»<»^x$x»4 Fundið Peningabudda fundin. Uppl. í síma 2019 eftir kl. 4. Kaup-Sala Notufí húsgögn og lítið slitin jakkaföt keypt hæst verði. Sótt heim. Staðgreiðsla. Sími 5691. Fornverslunin, Grettisgötu 45. BEST AÐ ALGLfSA í MORGVNBLAÐIIW Sleinunn Krisljéns- dóftir frá Hraunhöf n 85 ára í dag FRÚ STEINUNN KRISTJÁNS- DÓTTIR frá Hraunhöfn verður 85 ára í dag. Hún hefur ferilvist, og hún er hress og kát að vanda, þó aldurinn sje orðinn þetta hár, en eitt og annað hafi orðið henni til mæðu síðustu árin, ástvina- og ættingjamissir, pg tjón, sem hún varð fyrir, í brunanum við Amtmannsstíg í fyrravetur. Það er að heita má óskiljanlegt öll- um, að hún skyidi komast lif- andi úr þeim háska, og ekki meira meidd en hún var, eftir að hafa fleygt sjer úr glugga á 2. hæð. Liðin eru yfir 30 ár, síðan hún misti mann sinn Albert Þórð- arson frá Fiskilæk og auga- steinninn hennar dótturdótturin Bertha Zoega fórst er Dettifossi var sökt. En Steinunn frá Hraunhöfn eignast alstaðar vini, þar sem hún er og fer. Lund hennar er þannig, mild og hlý. Og skemt- in er hún í tali, og kann frá mörgu að segja. Mun hún í dag fá margar hlýjar kveðjur, frá öllu því fólki, sem hefur kynst henni á hinni löngu ævi hennar, og lært að meta viðmót hennar og kosti. — Ungir Sjálfsteðismenn fFramhald af bls. ?v stjórnmálabaráttu ungra Sjálf- stæðismanna frá byrjun. Leggur fundurinn sjerstaka áherslu á þmr ályktanir Sam- bandsþings, er fela í sjer kröf- una um vernd og eflingu ein- staklingsfrelsis og lýðræðis í landinu og herhvöt til íslenskrar æsku um að sameinast gegn óvinum þessara dýrmætu mann rjettinda.“ „Fundurinn lítur svo á að breyta þurfi nú þegar lögum um almannatryggingar þar sem að með þeim sjeu lagðar þyngri fjárhagslegar byrgðar á ein- staklinga og sveitarfjelög en að undir verði risið. Skorar fund- urinn á Alþingi að taka lögin til gagngerðrar endurskoðun- ar“. „Fundurinn lýsir ánægju sinni yfir setningu, laganna um fjelagsheimili í sveitum og þakk ar Sambandi ungra Sjálfstæðis- manna fyrir ötula forustu fyr- ir framgangi þess máls. Telur fundurinn að stefna beri að því, að framlag ríkis- sjóðs til fjelagsheimilanna verði aukið frá því sem nú er ákveð- ið í lögum. 310. dagur ársins. Næturlæknir er í Lækna- varðstofunni, sími 5030. Næturvörður er í Laugavegs Apóteki, sími 1616. I.O.O.F. 5=129116814=9. III. Sigurjón Grímsson, fyrver- andi múrari, Njálsgötu 42, verð Ur 75 ára í dag. Hjónaband. Síðastl. laugar- dag voru gefin saman í hjóna- band af sjera Bjarna Jónssyni Anna Jóhannsdóttir og Magnús Jónasson skipasmiður til heim- ilis Óðinsgötu 13B, Reykjavík. Hjónaefni. Nýlega hafa op- inberað trúlofun sína ungfrú Ástdís Gísladóttir, Reykholti við Laufásveg, og Kristmund- ur Jakobsson, lofskeytamaður, Miðstræti 10 . Hjónaefni. S.l. laugardag op- inberuðu trúlofun sína ungfrú Þórhildur Sigurðardóttir, hár- greiðsludama og Friðrik Björns son, rafvirki, frá Sandgerði. Martin Larsen, sendikennari, flytur þriðja fyrirlestur sinn um ævintýri H. C. Andersen í kvöld kl. 6,15 í II. kenslustofu háskólans. Öllum heimill að- gangur. Happdrætti Háskóla íslands. Dregið verður í 11. flokki næst komandi mánudag. Þann dag verða engir miðar afgreiddir, og eru því aðeins 3 dagar eftir að kaupa miða og endurnýja. ÚTVARPIÐ í DAG: 20.20 Utvarpshljómsveitin (Þor arinn Guðmundsson). 20.45 Lestur íslendingasagna (Einar Ól. Sveinsson, pró- fessor). 21.15 Dagskrá Kvenrjettinda- fjel. íslands. Erindi. Frú Alcx andra Kollontaj (frú Stein- unn Pálsdóttir). 22.00 Frjettir. 22.05 Lög og Ijett hjal (Friðrik Sigurbjörnsson stud. jur. og aðrir). 23,00 Dagskrárlok. Pfeiffer Framh. af bls. 1 þeir muni segja af sjer þing- mensku. En þriðji hópurinn í flokki óháðra hjelt fund í dag og tilkynti að hann mundi halda áfram stefnu flokksins. Pfeiffer lá untlir ákœru Eins og venja er til þegar kommúnistar i leppríkjum Rússa vilja losna við andstæð- inga sína, höfðu þeir ákært Pfeiffer fyrir að hafa aðstoðað Þjóðverja. Var hann fyrir nokkr um dögum kærður fyrir að hafa hjálpað ungverskum SS-mönn- um undan refsingu laganna, er hann var dómsmálaráðherra í ungversku ríkisstjórninni í fyrra. Þá var flokkur hans und- ir ákæru fyrir meint kosninga- svik í þingkosningunum í ágúst í sumar. Mál Pfeiffers átti að taka fyr- ir í gær, en því var frestað þar til þingið hefði samþykt að svifta hann þinghelginni. — Á mánudaginn var nafn hans nefnt í sambandi við njósnamál er inn- anríkisráðuneytið tilkynti, að Joseþh Varga, einkaritari Pfeiff ers og George Stialino, sem sagður var meðlimur flokks hans væru viðriðnir, ásamt með öðrum og þar á meöal Elizabetli Pallos, sem áður var ritari í skrifstofu Associated Press í Búdapest. En það var upphaf svokallaðs njósnamáls, sem nú er á döfinni í Budapest. Jeg þakka hjartanlega fyrir vinsemd og virðingu sem mjer var sýnd á fimmtugsafmæli mínu 4. þ.m. Hermann Jónsson. Þökkum hjartanlega okkur auðsýnda vináttu á silfur- brúðkaupsdegi okkar 2. nóv. Ása og Bjarni Árnason_ Reykjavíkurveg 24, Hafnarfirði. UNGLINGA vantar til að bera út Morgunblaðið í eftir- talin hverfi: Bráðræðishol! Miðbæ Aðalsiræii ViS sendum blöSin heim til barnanna. Tabð strax við afgreiðsluna, sími 1600. tj 1 :ÍÍJ GUÐJÓN BJARNASON fyrverandi bóndi að Geitagib Örlygshöfn, andaðist 5. þ.m. Jarðarförin ákveðin siðar. ASstandendur. Utför móður okkar, INGIBJARGAR SIGURÐARDÓTTUR, fer fram frá Fríkirkju Hafnarfjaiðar, laugardaginn 8. þ.m. kl. 2. Blómasendinga er ekki óskað. En btil minn- ingargjöf til Bbndravinafjelagsins mundi vel þegin. Jenwy Sigrún Gubmundsdóttir, Sigur'Öur GúSmundsson Jarðaríör fósturmóður og stjúpmóður okkar FRU ÖNNU IIALI.GRlMSSON fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 7. þ.m. kl. e-h. Athöfninni i kirkjunni verður útvarpað. Sigríður Sigurðardóttir, Carl Hemming Sveins, Axel L. Svcins, Hallgrímur Sveinsson. HELGA ANTONSDÓTTIR FIAGAN verður jarðsungin föstudaginn 7. þ.m. Athöfnin hefst með húskveðju að heimili hinnar látnu Laufásveg 12 kl. 2,30 e. h. Jarðað verður í gamla kirkjugarðinum. Eiríkur Hagan, Mdrgrjet Magnúsdóttir, Anton Jónsson, og aðrir aSstandendur. Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðarför SÓLVEIGAR BJÖRNSDÓTTUR ASstandendur. Þökkum innilega auðsýnda samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför eiginmanns og föður okkar. GUNNLAUGS EIRÍKSSONAR Filippía Jónsdóttir og börn. Hjartanlegar þakkir vottum við öllmn þeim mörgu, fjær og nær ,sem á margvíslegan hátt sýndu okkur samúð og hluttekningu við andlát. og jarðarför eigin- manns míns og föður okkar GUÐMUNDAR GUÐMUNDSSONAR Túnshergi Vestmannaeyjum. Helga S. Árnadóttir og dœtur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.