Morgunblaðið - 26.11.1947, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 26.11.1947, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 26. nóv. 1947 MÁNADALU S>háldóaya eptir J/ach cJlovido n 65. dagur Þau sátu kyr og horfðu aftur á myndirnar. Og Saxon varð nú enn hrifnari af sveitarbænum en áður. Hún tók nú líka eftir ýmsu, sem áður hafði farið fram hjá henni. Hún sá nú bylgj andi akra á bak við bæinn og himininn með hvítum og ljett- um skýjum. Hún þekti ýmsa fuglana aftur, einkum gamla og geðvonda hænu, sem átti í illindum við gyltuna og grísana og var aðsúgsmest allra, þegar stúlkan fór að gefa fuglunum. Saxon rendi augunum aftur yf- ir akrana og himininn og hún fann að blessaður friður hvíldi yfir öllu þarna. Þessi friður hreif svo sál hennar að hún fór að gráta af einskærri gleði. „Jeg veit hvernig jeg mundi fara með hestinn, ef hann ætl- aði að hrekkja mig“, sagði Billy lágt. „Og nú veit jeg líka hvert við eigum að fara þegar við yfir- gefum Oakland“, hvíslaði hún. „Nú, hvert eigum við að fara?“ Hann leit á hana og sá að hún starði hugfangin á mynd- ina. „Nú, það er svona“, hvíslaði hann eftir litla umhugsun. „Já, hvers vegna skyldum við ekki gera það?“ „Q, Billy. er þjer alvara?“ Hún var svo skjálfrödduð, að hann heyrði tæpast hvað hún sagði. „Já, víst er mjer alvara“, sagði hann. Þetta var þeirra mikli gleðidagur og hann vildi alt fyrir hana gera. „Þú skalt fá alt, sem þig langar í. enda þótt jeg verði að brjóta negl- urnar á mjer upp í kviku til þess að þjer geti hlotnast það. Satt að segja hefir mig altaf langað til þess að eiga heima í sveit. Og jeg hefi vit á hest- um.-Jeg get fengið hesta fyrir hálfvirði vegna þess að einhver galli er á þeim, og jeg kann að laga hvern galla á hestum“. XVIII. KAFLI. Það var enn ekki mjög álið- ið, er þau komu úr leikhúsinu og stigu af strætisvagninum í Pine Street. Þau fóru í búðir og keyptu ýmislegt og svo skildu þau á éötuhorninu. Sax- on fóru heim til þess að undir- búa kvöldmatinn, en Billy fór á fund fjelaga sinna, ökumann- anna, til þess að fá frjettir hjá þeim. • „Mundu nú eftir að fara var- lega, Billy“, kallaði hún á eft- ir honum. „Jeg skal gera það“, sagði hann glaðlega og veifaði til hennar hendi. Þrjá stundarfjórðunga beið Saxon með matinn. Alt var fram borið nema lambasteikin, því að hún vildi ekki setja hana á pönnuna fyr en Billy væri kominn heim. Svo heyrði hún að grindin í hliðinu Var opnuð, en hún heyrði ekki fótatak hans, heldur fótatak nokkurra manna. Hún hljóp út í dyrnar. Þar mætti hún Billy, en nú var hann gjörólíkur þeim Billy, sem hún skildi við fyrir stundu. Lítill drengur var með honum og hjelt á hattinum hans. Hún sá að Billy hafði verið þvegíð í framan af handahófi, því að vatnið hafði lekið niður á bring una á honum. Hárið, var blautt og klest. og blóð vælaði út úr því. Handleggirnir hjengu mátt lausir niður. En hann var róleg ur á svip og brosandi. „Kiptu þjer ekki upp við þetta“ sagði hann. „Jeg hefi farið að ráði mínu eins og asni og er nokkuð illa útleikinn, en ekki yfirbugaður“. Hann gekk inn í húsið. „Komið þið með, fjelagar“, sagði hann. „Við erum grasasn ar allir saman“. Drengurinn kom næstur hon um, svo Bud Strothers og ann- ar ökumaður, sem Saxon hafði sjeð áður. Og svo voru þarna líka tveir menn, sem hún þekti ekki. Þeir voru hálf kindarlegir á svipinn og var engu líkara en að þeír væri hræddir við Saxon. „Þú mátt vera óhrædd, Sax- on“, sagði Billy, en Bud greip þá fram í fyrir honum: „Við verðum þegar að rista utan af honum fötin. Hann er brotinn á báðum handleggjum og þetta eru hálfvitarnir, sem valdir eru að því“. Hann benti á ókunnu menn- ina, og þeir urðu nú enn kind- arlegri en áður. Billy settist á rúmið. Saxon hjelt á ljósi, en þeir Bud fóru að rista sundur ermarnar á jakka og skyrtum hans. „Hann vildi ekki fara í sjúkrahúsið", ’ sagði Bud við Saxon. „Nei. jeg átti ekki annað eft- ir“, sagði Billy .„En jeg bað að sent væri eftir Hentley lækni, og hann kemur hingað á hverri stundu. Þessir tveir handleggir hafa dugað mjer vel í lífinu og bess vegna verð jeg að fara vel með þá. Jeg átti nú ekki annað eftir en að láta þá á spítalanum hafa mig fyrir til- raunadýr“. „Hvernig atvikaðist þetta?“ spurði Saxon og leit á þá til skiftis, því að henni var þetta hrein ráðgáta enn. „Það var ekki þeim að kenna“, sagði Billy. „Þeir vissu ekki betur en að þeir væri að gera skyldu sína. Þetta eru öku menn frá San Francisko og þeir eru komnir hingað til þess að hjálpa okkur“: Það var eins og ókunnu ménn irnir yrði hressari í bragði við þetta. „já, okkur skjátlaðist,“ sagði annar þeirra. „Við höfum farið laglega að ráði okkar, eða hitt þó heldur“. Saxon var ekki hrædd og ekki reið heldur. Þetta var svo sem ekki annað en búast mátti við. Það var eftir öðru, sem fram við hana hafði komið í Oakland. Og til allrar hamingju var Billy ekki hættulega sár. Handleggsbrot læknast furðu fljótt. Hún sótti stóla og bauð þeim öllum að setjast. „Segið mjer nú hvað komið hefir fyrir“, sagði hún. „Mjer er óskiljanlegt hvernig í þessu öllu liggur — mjer er óskiljan legt hvers vegna þið tveir hafið handleggshrotið manninn minn á báðum handleggjum, og síðan fylgið þið honum heim og látið sem.þið sjeuð mestu mátar“. „Já, þjer eigið heimtingu á að vita alt“. sagði Bud Stroth- ers. „Jeg skal nú segja yð- ur---------“. „Æ, haltu þjer saman“, sagði Billy. „Þú sást það ekki“. . Saxon leit til mánnanna frá San. Francisko. „Við komum hingað til að hjálpa ökumönnunum í Oak- land, vegna þess að þeir voru að tapa verkfallinu", sagði ann ar þeirra. „Og við höfum sann- fært marga verkfallsbrjóta um að til er betri atvinna en að vera ökumaður. Við Jackson hjerna vorum að snuðra og vita hvers við yrðum vísari og í því kemur maðurinn yðar. Þegar hann sá---------- „Nei, bíddu nú við“, sagði Jackson. „Þú áttir að byrja á byrjuninni. Við hjeldum að við þektum alla verkfallsmennina. En manninn yðar höfðum við ekki sjeð fyr vegna þess að hann----------“. „Já, vegna þess að hann hefir verið úr leik nú. um hríð, ef jeg má svo að orði komast“, sagði hinn. ..Og þegar við sáum nú mann stytta sjer leið þarna, þá hjeldum við að hann væri verkfallsbrjótur — ------“. „Jeg stytti mjer leið í gegn «m sundið hjá grænmetisbúð- inni“, sagði Billy. „Já, einmitt, í gegn um sund ið hjá grænmetisversluninni“, endurtók ökumaðurinn frá San Francisko. „Við vorum þess vegna vissir um að þarna væri ' verkfallsbrjótur á ferð og'ætl- aði sjer að laumast inn í hest- húsin þessa leið“. „Þarna gripum við Billy einu sinni verkfallsbrjót11, sagði Bud.. „Við vorum ekkert. að tví- nóna við það“, sagði Jackson. „Við höfum áður fengist við verkfallsbrjóta og við vitum hvernig við eigum að fara með þá. Og svo gripum við mann- inn vðar þarna í sundinu-----“. „Jeg var að leita að Bud“, sagði. Billy. „Mjer var sagt að jeg mundi geta hitt hann ein- hversstaðar þarna. En áður en jeg vissi af var hann Jackson þarna kominn og spyr hvort jeg geti gefið sjer eldspýtu“. „Og þá Ijet jeg bragð mitt“, sagði ökumaðurinn. „Hvernig?“ spurði Saxon. „Lítið þjer á“, sagði hann og benti á höfuðið á Billy. „Jeg greiddi honum högg á höfuðið. Hann fjell eins og skotinn uxi. En svo fór hann brátt að að skríða á fætur og tala eitthvað um það að hjer vseri ekki alt með feldu. Hann var ruglaður og vissi ekki hvað hann var að segja. Og þá gerðum við það“. Hann þagnaði — hann hafði lokið sögu sinni. „Já, þeir brutu á honum báða handleggina með járnfleini“, sagði Bud. „Þá áttaði jeg mig fyrst þeg- ar þeir höfðu handleggsbrotið mig“, sagði Billy. „Og svo gáfu þeir mjer hverja ráðninguna eftir aðra. „Þú hefir gott af þeásu og býrð lengi að því“, sagði Jackson. „Mjer þætti gaman að sjá þig stjórna hest- um með þessum handleggjum“, sagði Anson. Þá sagði Jackson: „Við skulum gefa honum einn í nesti“. Og svo gaf hann mjer þennan líka rokna löðrung —“. „Nei, það var ekki rjett“, sagði Anson. „Það var jeg sem gaf þjer þann löðrung“. GULLNI SPORINN 141 Jeg veit ekki, hvert okkar varð mest undrandi, en svo mikið er víst, að jeg var nú búinn áð missa alla þolin mæði. „Það er Tingcomb, sem jeg ætlaði að tala við“, sagði jeg byrstur. Sá síðhærði leit upp frá mat sínum. „Þey!“ Hann lyfti annari hendinni og hristi höfuðið dapurlega, en jeg byrjaði að velta því fyrir mjer, hvar jeg hefði sjeð hann áður. „Hafið þjer englavængi?" spurði hann. „Nei, ágæti vinur, en jeg hefi ágæta byssu, og henni skaltu fá að kynnast, ef þú ekki strax svarar mjer“. „Ungi maður“, hrópaði gamli maðurinn, sem opnað hafði fyrir okkur, „þessi háæruverðugi prestur er þjónn guðs og því er það, að hann talar í líkingum. Það, sem hann á við, er, að minn ágæti húsbóndi er látinn og hvílir nú í kistu sinni“. „Rjett, góði maður", sagði presturinn og seildist eftir stórum kjötbita. „Já“, hjelt gamli maðurinn áfram, „hann dó sama dag- inn, sem þjer komuð hingað.'Ungi maður. Hann fjekk annað krampakast og dó á stundinni. — En fallegt er líkið, herra minn, fallegt er líkið“. „Þá skulum við fá að sjá það“. „Vissulega, ungi maður“. Að svo mæltu fylgdi hann okkur inn í sama herbergi, sem jeg hafði talað við Tingcomb í, og alveg eins og þá, stóðu í því sex logandi kerti. En borðið hafði verið flutt út í horn, og bjarminn af kertunum fjell á langa, svarta líkkistu, sem stóð á miðju gólfi. Kistan var lokuð og negld aftur með silfurnöglum, en á lokinu var silfur- plata, sem á var letrað: Hannibal Tingcomb MDXLIII. ■ „Hvers vegna hefur kistan verið negld aftur?“ spurði jeg. „Hvernig getið þjer taláð svona, ungi maður? Þjer ættuð þó að vita, hvernig líkin fara á sumrin". „Hvenær á að greftra hann?“ „Á morgun“. Hann leit út undan sjer á mig, hugsaði sig um andartak og sagði svo: „Ætlið þjer að fylgja?“ „Já, það máttu vera viss um“, sagði jeg. „En sjáðu nú um að hafa góð herbergi og rúm handa mjer og fylgdarliði mínu“. — Svona, svona, látið yður ekki detta í hug að þetta geti verið nokkuð hættulegt. ★ Maður nokkur kom eitt sinn með son sinn í Hiram College á meðan James A. Garfield var rektor skólans. Faðirinn ætlaði að koma því þannig fyrir að drengurinn kæmist fljótar í gegnum skól- ann en tilskilið var. Hann áleit að hann hefði gáfur til þess. „Það hefir enga þýðingu að láta hann taka öll þessi milli- próf“, sagði faðirinn, „jeg vil að hann ljúki náminu á skemri tíma en reglugerð skólans seg- ir til um. Getið þjer ekki komið því'til leiðar fýrir mig?“ „Jú, jú. hann getur lokið nám inu á mislöngum tíma, eftir því hvað það er, sem þjer viljið láta hann verða“, Sagði Garfield. „Þegar Guð skapar eikina, tek- ur það hann hundrað ár að gera hana fullþroska, en það tekur hann aðeins tvo mánuði að fullgera marglittuna.“ ★ Jón litli var altaf lakastur í skólanum, sjerstaklega þó í stíla gerð enda skammaði kennar- inn hann oft. Eitt sinn brá þó svo við, að Jón var langfyrstur að ljúka við stílinn sinn. Það var þegar kennarinn sagði krökkunum að skrifa um feg- ursta. hlutinn, sem þau hefðu augum litið. Stíll Jóns var ekki langur, og verður hann því birtur hjer í heild: „Fallegasti hluturinn, sem jeg hefi sjeð, er svo fall- egur að engin orð fá lýst hon- um“. ★ Lítil s.túlka og lítill drengur voru í mömmuleik. Þau voru í „þykjast“heimsókn hjá mömmu stúlkunnar. Alt gekk þetta á- gætlega þangað til sú litla sneri sjer að móður sinni, togar í pilsfald hennar að segir með al- vörusvip: „Jeg er hrædd um að við verðum að kveðja yður núna. Maðurinn minn var að gera ljótt í buxurnar“. ItlUIIIIIIIMIIIIIIIItlllllllllllllllllllllllllllllMlllllllllllllliM | SMURT BRAUB | [ KJÖT & GRÆNMETI j = Hringbraut 56. Sími 2853. § Z 3 illlltlllllllllllllllllllllilillllllllllllllllllllllllllliliiliilliiill /

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.